Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 119/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. febrúar 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 119/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU16100029

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 24. október 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. október 2016, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f þágildandi laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hinni kærðu ákvörðun verði breytt þannig að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f þágildandi laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 44. gr. þágildandi útlendingalaga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt réttarstaða flóttamanns hér á landi, sbr. 1. mgr. 44. gr. sömu laga. Þá krefst kærandi þess, í samræmi við 32. og 33. gr. þágildandi útlendingalaga, að kærunefndin fresti réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar á meðan mál hans er til meðferðar fyrir nefndinni og heimili dvöl hans hér á landi á meðan, sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga og 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. þágildandi laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Hinn 1. janúar 2017 tóku gildi ný lög um útlendinga nr. 80/2016. Samkvæmt 2. mgr. 121. gr. laganna gilda ákvæði þeirra um mál sem bárust kærunefnd útlendingamála fyrir gildistöku laganna en höfðu ekki verið afgreidd með úrskurði. Fer því um mál þetta samkvæmt ákvæðum laga nr. 80/2016.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 7. febrúar 2016 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi kom í fyrsta viðtal hjá Útlendingastofnun þann 19. maí 2016, annað viðtal þann 5. september s.á. og framhaldsviðtal þann 9. september s.á., ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 3. október 2016, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 24. október 2016. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd þann 14. nóvember s.á. Að beiðni kærunefndar kom kærandi fyrir nefndina þann 2. febrúar 2017, ásamt talsmanni sínum, til að skýra ákveðna þætti málsins, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 44. gr. þágildandi laga um útlendinga. Þá verði kæranda ekki veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. j sömu laga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vegna sérstakra tengsla við landið skv. 12. gr. f þágildandi laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 45. gr. sömu laga stæðu endursendingu til heimalands ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. þágildandi útlendingalaga, sbr. 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 32. gr. þágildandi útlendingalaga.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta hans frá heimalandi sínu, [...], séu ofsóknir sem hann hafi sætt vegna [...]. Téðar ofsóknir hafi falist í líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu [...]. Þá hafi kærandi greint frá því, í viðtölum hjá Útlendingastofnun, að honum sé útilokað að leita verndar lögreglu eða stjórnvalda í heimalandi sínu.

Þá tilheyri kærandi þjóðarbroti [...]. [...].

Á árunum [...] kveðst kærandi hafa stundað [...] í [...]. Í skólanum hafi hann orðið fyrir ofsóknum og loks árás þar sem hann hafi [...]. Hafi hann kært árásina til lögreglu sem ekkert hafi aðhafst í málinu [...]. Árin [...] hafi kærandi flust á milli [...] og [...] þar sem hann hafi starfað sem [...]. Í [...] hafi kærandi verið [...]. Kærandi hafi leitað til lögreglu en kærandi kveður hana ekki hafa tekið af honum skýrslu vegna málsins. Þá hafi lögreglan vísað honum á dyr með þeim orðum að hann væri [...].

Í kjölfar þessa atviks hafi kærandi flúið til Svíþjóðar og sótt þar um alþjóðlega vernd árið [...]. Umsókn hans hafi verið synjað og hafi kærandi þá [...]. Loks hafi kærandi verið endursendur til [...] árið [...] og þá flust til [...]. Þar hafi hann orðið fyrir hótunum, áreiti og ofbeldi af hendi samborgara sinna og fjölskyldu. Í kjölfar endurtekinna líkamsárása [...] hafi kærandi verið fluttur á sjúkrahús. Þar hafi hann m.a. verið greindur með [...]. Kærandi hafi einnig leitað til lögreglu, sem hafi gert grín að honum og rekið hann á dyr. Í kjölfar þess hafi kærandi leitað til athvarfs [...] en verið vísað frá þar sem athvarfið hafi aðeins verið ætlað konum.

Kærandi hafi loks séð sér þann kost vænstan að leggja fram kvartanir vegna vinnubragða lögreglu. Hafi hann sent tölvupósta á fjölmarga aðila innan [...] stjórnkerfisins, þar á meðal ráðuneyti og yfirstjórn lögreglumála. Þá hafi hann einnig sent kvörtun til umboðsmannsins í [...] og mannréttindasamtakanna Amnesty International. Í stuttu máli hafi kvartanir kæranda ekki borið árangur og hafi hann því íhugað að fara með mál sitt fyrir [...] dómstóla. Hann hafi hafist handa við að leita sér að lögmanni en í kjölfarið hafi honum verið veitt eftirför á götum úti og borist enn grófari hótanir. Hafi hann því loks ákveðið að bjarga lífi sínu og andlegri heilsu og flýja [...]. Hafi hann kosið að hefja nýtt líf á Íslandi því hér telji hann að hann muni hljóta viðhlítandi vernd.

Í greinargerð sinni gerir kærandi jafnframt fjölmargar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Einkum geri hann athugasemd við það að framlögð gögn hans hafi ekki verið tekin til skoðunar. Þá komi fram í ákvörðun stofnunarinnar að það sé öruggt fyrir kæranda að snúa aftur til [...] en slíkt eigi ekki við rök að styðjast, sbr. fyrrgreinda umfjöllun. [...].

Til stuðnings kröfu sinni um veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum vísar kærandi til athugasemda með frumvarpi til þágildandi laga um útlendinga nr. 96/2002. Kærandi telji að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita honum dvalarleyfi á grundvelli þágildandi 12. gr. f sömu laga, í ljósi ofsókna þeirra, hótana og ofbeldis sem hann hafi þurft að sæta í [...] á grundvelli [...]. Þá beri kærandi mikið vantraust til lögreglu, svo og [...] yfirvalda, sem hann telji ekki geta veitt sér viðhlítandi vernd. Enn fremur hafi kærandi glímt við [...] í kjölfar fyrrgreindra ofsókna og sjái fram á að þurfa að búa við [...] í heimalandi sínu, verði honum gert að snúa aftur þangað. Jafnframt bendi kærandi á að [...].

Loks er í greinargerð kæranda að finna umfjöllun um varakröfu hans um viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 44. gr. þágildandi útlendingalaga nr. 96/2002. Í því samhengi bendi kærandi á þau skilyrði sem þurfi að uppfylla til að eiga rétt á henni og vísi jafnframt til athugasemda með frumvarpi til þágildandi útlendingalaga. Þá telji kærandi að hann hafi ótvírætt réttarstöðu flóttamanns, sbr. 1. mgr. 44. gr. þágildandi laga um útlendinga. Kærandi sé haldinn raunverulegum og ástæðuríkum ótta við ofsóknir í heimalandi sínu, [...], vegna [...]. Að endingu minni kærandi á þá meginreglu að fólki skuli ekki vísað brott þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 1. mgr. 45. þágildandi laga um útlendinga. Vísi kærandi í því sambandi á dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í málum Jalloh gegn Þýskalandi (mál nr. 54810/00) frá 11. júlí 2006, Tarakhel gegn Sviss (mál nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2014 og Ahmed gegn Austurríki (mál nr. 25964/94) frá 17. desember 1996.

Í greinargerð kæranda kemur jafnframt fram að hann telji á sér brotið fái hann ekki að koma sjónarmiðum sínum nægilega á framfæri við kærunefndina. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi aðallega verið farið yfir æsku hans og uppruna en ekki þá atburði sem hafi gerst síðustu tvö árin eftir að hann sneri aftur heim til [...] frá Svíþjóð. Þá hafi kærandi hvorki fengið upplýsingar frá Útlendingastofnun né talsmanni sínum um að þau gögn sem hann hafi lagt fram, máli sínu til stuðnings, yrðu ekki þýdd. Sjálfur hafi kærandi ekki næg fjárráð til að láta þýða gögnin. Kærandi óski því eftir því við nefndina að taka framlögð gögn til skoðunar.

Kærandi hefur lagt fram fjölda fylgiskjala með kæru sinni, þ. á m. [...].

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 121. gr. laganna, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum að því leyti sem hún hefur enn lagastoð, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Mat á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga teljast einstaklingar vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu ef þeir, vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða þeir geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum þessum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Sem dæmi um einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu nefnir ákvæðið fylgdarlaus börn, fatlað fólk, fólk með geðraskanir eða geðfötlun, aldrað fólk, þungaðar konur, einstæða foreldra með ung börn, fórnarlömb mansals, alvarlega veika einstaklinga og einstaklinga sem hafa orðið fyrir pyndingum, kynfæralimlestingum, nauðgun eða öðru alvarlegu andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.

Kærandi kveðst vera [...]. Verður tekið tillit til þess við meðferð málsins.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

· [...]

Samkvæmt ofangreindum gögnum er [...].

Af fyrrgreindum gögnum má þó ráða að nokkuð skorti á að tjáningarfrelsi sé virt, svo og réttindi tiltekinna minnihlutahópa, þ. á m. [...]. Þá séu réttindi fyrrgreindra hópa tryggð með lögum en eftirfylgni sé um margt ábótavant. Spilling fyrirfinnist víða á vettvangi hins opinbera, þar á meðal í heilbrigðis-, mennta- og löggæslukerfinu. Stjórnarskráin mæli fyrir um sjálfstæði dómstóla en lagaumgjörð um dómstólana skilji þó eftir nokkurt svigrúm til pólitískra áhrifa, s.s. við stöðuveitingar. Stjórnvöld hafi þó stuðlað að allnokkrum umbótum í réttarkerfinu síðastliðin ár í samræmi við athugasemdir [...].

[...]

Almennt ferðafrelsi sé tryggt í stjórnarskrá og hafi yfirvöld starfað með Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og öðrum mannúðarsamtökum m.a. við vernd og aðstoð við vegalaust fólk innan eigin lands. Málshraða og þjónustu við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd sé þó nokkuð ábótavant.

Yfirvöld heimili veru sjálfstæðra eftirlitsaðila í landinu, þ. á m. mannréttindasamtaka, fjölmiðla, alþjóðlegra eftirlitsnefnda og umboðsmanns borgara (e. deputy protector of citizens). [...].

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Krafa kæranda byggir á því að hann fái ekki viðhlítandi vernd í heimalandi sínu, [...], gegn ofsóknum sem hann hafi sætt [...].

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga geta ofsóknir m.a. falist í:

a. andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi,

b. löggjöf og aðgerðum stjórnvalda, lögreglu og dómstóla sem fela í sér mismunun að efni eða vegna þess hvernig þær eru framkvæmdar,

c. saksókn eða refsingu sem er óhófleg eða mismunar einstaklingum á ómálefnalegum grundvelli,

d. synjun um notkun réttarúrræða sem leiðir til óhóflegrar og mismunandi refsingar,

e. saksókn eða refsingu fyrir að neita að gegna herþjónustu í átökum þar sem þátttaka í slíkri herþjónustu mundi fela í sér glæpi eða athafnir skv. b-lið 2. mgr. 40. gr.

Í 3. mgr. 38. gr. eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar en þar segir:

a. kynþáttur vísar einkum til hópa sem deila húðlit eða öðrum sameiginlegum líffræðilegum einkennum og þjóðfélagshópa af tilteknum uppruna og ber að túlka í víðri merkingu,

b. trúarbrögð vísa einkum til trúarskoðana og annarra lífsskoðana, þ.m.t. guðleysis, og tjáningar þeirra, þátttöku í hvers konar trúarsamkomum, opinberum eða ekki, eða ákvörðunar um að taka ekki þátt í þeim, aðgerða sem byggjast á trúarskoðunum og frelsis til að skipta um trú,

c. þjóðerni tekur ekki aðeins til ríkisborgararéttar eða ríkisfangsleysis heldur geta fallið þar undir þeir sem tilheyra tilteknum kynþætti eða tilteknum hópi fólks sem talar sama tungumál eða hefur sameiginlega menningarlega sjálfsmynd, sameiginlegan uppruna, landfræðilega eða pólitískt, eða hópi sem er skilgreindur út frá tengslum við hóp fólks á landsvæði annars ríkis,

d. þjóðfélagshópur vísar einkum til hóps fólks sem umfram það að sæta ofsóknum hefur áþekkan uppruna, bakgrunn, venjur og félagslega stöðu eða hefur sameiginleg einkenni eða lífsskoðanir, svo sem kyngervi, sem eru svo mikilvæg fyrir sjálfsmynd þess að ekki ætti að gera kröfu til að þeim verði breytt, eða hóps fólks sem er álitinn frábrugðinn öðrum í samfélaginu; þá skulu fyrrverandi fórnarlömb mansals teljast meðlimir tiltekins þjóðfélagshóps,

e. stjórnmálaskoðanir vísa einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Geneva 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussels 2013).

Líkt og áður segir er krafa kæranda byggð á því að hann sæti ofsóknum í heimalandi sínu vegna [...]. Þá sé honum útilokað að leita aðstoðar yfirvalda vegna þeirra. Kærandi hefur lýst atvikum sem leiddu til þess að hann flúði til Svíþjóðar [...], þ.m.t. [...]. Kærandi hefur jafnframt sagt að í kjölfar endursendingar kæranda frá Svíþjóð til [...] hafi hann orðið fyrir [...] ofbeldi vegna [...] og nefnt í því sambandi dagana [...]. Kærandi hefur, m.a. í viðtali hjá kærunefnd 2. febrúar síðastliðinn, lýst ítarlega samskiptum við lögreglu í kjölfar umræddra atvika [...] en hefur ekki, þrátt fyrir ítrekaðar spurningar stjórnvalda, gert nánari grein fyrir þeim atvikum sem áttu sér stað fyrrgreinda daga, m.a. nánar um hvers konar ofbeldi hann varð fyrir og hverjir voru gerendur þess. Þá hefur kærunefnd tekið framlögð gögn kæranda til skoðunar, með aðstoð túlks, en þau gögn hafa heldur ekki varpað ljósi á þessi atriði. Þó að ekki sé dregið í efa að kærandi hafi orðið fyrir [...] í heimalandi sínu vegna [...] verður ekki talið, í ljósi þeirra upplýsinga sem kærunefnd hefur undir höndum, að fyrrgreindir atburðir hafi eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Skýrslur og önnur gögn um aðstæður í [...] sem kærunefnd hefur yfirfarið benda til þess að stjórnvöld hafi unnið að því síðustu ár að breyta löggjöf og stuðla að breyttri stefnumótun til að bregðast við [...]. Þrátt fyrir að enn sé þörf á úrbótum í þessu efni hefur að mati kærunefndar ekki verið sýnt nægilega fram á að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðhlítandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér ofsóknir. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimalands síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaland kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaland kæranda telur kærunefnd þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald, sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending, að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Þá kemur fram í sömu málsgrein að ákvæði þessu megi aðeins beita ef útlendingur er staddur hér á landi og að skorið hafi verið úr um með efnismeðferð að útlendingur uppfylli ekki skilyrði alþjóðlegrar verndar skv. 37. og 39. gr.

Þrátt fyrir að ákvæðið, samkvæmt hljóðan þess, heimili ekki skýrlega veitingu dvalarleyfis, má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Þá telur kærunefnd, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að fara þurfi fram heildarmat á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er veitt. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum félagslegum aðstæðum viðkomandi sé vísað til þess að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi. [...]. Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi [...] og telst því í viðkvæmri stöðu [...]. Þá kveður hann [...]. [...]. Kærandi hefur jafnframt lagt fram mikið af gögnum til stuðnings kæru sinni, þar á meðal læknisvottorð frá [...], Svíþjóð og Íslandi [...]. Í vottorðunum kemur m.a. fram að kærandi [...]. Líkt og fram hefur komið bera rannsóknir með sér að málsmeðferð [...] í [...] sé mismunandi eftir lögregluumdæmum og því hvaða þolanda um ræðir, þó ástandið sé að einhverju leyti betra í [...] en í smærri borgum og á landsbyggðinni. Í viðtali hjá kærunefnd þann 2. febrúar síðastliðinn kvaðst kærandi þegar hafa reynt að flytja til [...] og annarra staða innan [...] til að bæta aðstæður sínar en án árangurs. Þá hefur kærandi lagt fram ýmis gögn frá opinberum stofnunum í [...] sem honum bárust í kjölfar kvartana hans yfir vinnubrögðum lögreglu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að kærandi sé í erfiðum félagslegum aðstæðum í heimaríki [...] þar sem hann tilheyri minnihlutahópi [...]. Þessi aðstaða kæranda, einkum í ljósi [...], sé honum mjög þungbær. Hann njóti ekki stuðnings [...] og hafi reynt að leita ásjár yfirvalda þar en hafi ekki fengið þau viðbrögð sem hann óskaði eftir.

Í ljósi þess og framlagðra gagna um heilsufar kæranda er það því mat kærunefndar, eins og hér stendur á, að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Að loknu heildarmati er það því niðurstaða kærunefndarinnar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að staðfesta beri synjun Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd en að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd er staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

The decision of the Directorate of Immigration with regard to the appellant‘s application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74, paragraph 1, of the Act on Foreigners no. 80/2016.

Anna Tryggvadóttir Hjörtur Bragi Sverrisson



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta