Mál nr. 160/2022 Úrskurður 5. janúar 2023
Mál nr. 160/2022 Eiginnafn: Nathalía (kvk.)
Hinn 5. janúar 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 160/2022 en erindið barst nefndinni 15. desember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:• Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Ritháttur nafnsins Nathalía er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan th er ekki notuð í ósamsettum orðum í íslensku nema í ritmyndum nafna sem hafa öðlast hefð. Er því aðeins unnt að samþykkja ritháttinn Nathalía að hefð sé fyrir honum.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna eiginnafnið Nathalía. Nafnið kemur heldur ekki fyrir í neinu manntali frá 1703–1920. Miðað við þessar forsendur hefur mannanafnanefnd áður komist að þeirri niðurstöðu að eiginnafnið Nathalía (kvk.) hafi ekki unnið sér hefð í íslensku, sbr. úrskurð frá 17. ágúst 2020 í máli 62/2020.
Til nánari útskýringar á niðurstöðu téðra úrskurða er rétt að benda á að í lagaákvæðinu sem um ræðir, þ.e. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr., er talað um hefð fyrir rithætti tiltekins nafns, en ekki um hefð fyrir tilteknum bókstaf eða samstöfu. Til þess að hægt sé að fallast á að ritháttur nafns, sem víkur frá almennum ritreglum íslensks máls, hafi unnið sér hefð í íslensku verða að jafnaði að vera ákveðið mörg dæmi, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur, um þennan rithátt nafnsins. Ritháttur annars nafns myndar aftur á móti ekki grundvöll hefðar fyrir nafnið sem um ræðir. Til dæmis er nafnið Walter ekki ritað í samræmi við almennar íslenskar ritreglur þar sem bókstafurinn w er ekki hluti af íslensku stafrófi. Hins vegar er Walter á mannanafnaskrá með þessum rithætti þar sem nafnið telst hafa unnið sér hefð í íslensku. Þetta hefur þó ekki í för með sér að bókstafurinn w hafi unnið sér hefð og leiðir ekki til þess að önnur nöfn rituð með w, t.d. Wilma, teljist hafa unnið sér hefð í málinu. Sama gildir um samstöfuna th. Ekki er til dæmis hægt að fallast á að hefð sé fyrir rithættinum Thalía þótt th komi fyrir í upphafi nafnsins Thelma sem hefur unnið sér hefð í íslensku. Þessi túlkun er í samræmi við texta laga, nr. 45/1996, um mannanöfn og greinargerð með frumvarpi að lögunum.
Með öðrum orðum telst ritun nafns með tilteknum bókstaf eða samstöfu ekki hafa unnið sér hefð þótt á þann hátt sé ritað í einhverju öðru nafni. Eins og rakið er hér að ofan skírskotar hefð í mannanafnalögum til ritháttar ákveðinna nafna en ekki til ákveðinna bókstafa eða samstafna. Þess vegna er almenna reglan sú að hefð fyrir rithætti eins nafns hefur ekki áhrif á mat á hefð fyrir rithætti annars nafns.
Aftur á móti eru í sumum tilvikum sérstök tengsl milli nafna, svo sem milli mismunandi ritmynda sama nafns, sbr. t.d. Nathalia ~ Natalía og Marzellíus ~ Marsellíus; einnig milli nafna sem telja má orðhlutalega skyld, t.d. kvenmannsnöfn sem leidd eru af karlmannsnöfnum, sbr. t.d. Einara ~ Einar og Baldur ~ Baldína, og gælunöfn sem leidd eru af öðrum nöfnum, t.d. Jón ~ Jónsi, Kristín ~ Stína. Þegar metið er hvort tiltekinn ritháttur nafns hafi unnið sér hefð í íslensku virðist eðlilegt að líta til þess hvort samsvarandi ritháttur tíðkist í öðru nafni sem hefur sérstök tengsl – á borð við þau sem hér var lýst – við nafnið sem verið er að meta. Ekki verður séð að þessi undantekning hafi veruleg áhrif á gildi þeirrar reglu að hefð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. mannanafnalaga skírskoti til ritháttar ákveðinna nafna en ekki til ákveðinna bókstafa eða samstafna. Jafnframt er þessi túlkun að ákveðnu leyti í samræmi við mikilvæga reglu í íslenskri stafsetningu, þ.e. að stofn orða hafi sem líkasta ritmynd þrátt fyrir framburðarmun í stofni á milli ólíkra orðmynda, sbr. dæmi á borð við marg-ur og marg-t, hag-i og hag-a og vatni og vatns (gjarnan vass í framburði).
Þar sem eiginnafnið Nathalía er ritháttarafbrigði nafnsins Nathalia, sem hefð er fyrir að rita með samstöfunni th, lítur mannanafnanefnd svo á að rithátturinn Nathalía styðjist við hefð í íslensku auk þess sem líta megi svo á að eiginnafnið Nathalía sé aðlögun tökunafnsins Nathalia að almennum íslenskum ritreglum, sbr. 4. gr. vinnulagsreglna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Nathalía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnsins Nathalia (kvk.).