Hoppa yfir valmynd

Nr. 527/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 527/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19090003 og KNU19090004

Kæra [...],

[...] og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 3. september 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. ágúst 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir B), [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir C) og [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir D) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd verði teknar til efnislegrar meðferðar hér á landi í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Verði ekki fallist á það er þess krafist að umsóknirnar verði teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 27. febrúar 2019. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, þann 28. febrúar 2019, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Við meðferð málsins framvísuðu kærendur grískum flóttamannavegabréfum með gildistíma til 9. október 2023 og f.h. A, B, C og D með gildistíma til 9. október 2021. Þá lögðu kærendur einnig fram grísk dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 17. apríl 2021. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 25. mars og 3. apríl 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá komu A, B, C og D til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 10. maí 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 16. ágúst 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 20. ágúst 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 3. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 11. september 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust þá 5. og 18. nóvember 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B, C og D kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda er vísað til umfjöllunar í greinargerð þeirra til Útlendingastofnunar þar sem fram hafi m.a. komið lýsing kærenda á aðstæðum sínum í viðtökuríki. Þar komi m.a. fram að kærendur hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau hafi dvalið í Grikklandi frá árinu 2016 og lýst aðstæðum sínum sem slæmum. Þau hafi ekki haft tækifæri til að stunda atvinnu í Grikklandi en M hafi daglega reynt að afla sér starfs. Þau hafi enga aðstoð fengið frá grískum stjórnvöldum en fengið litla framfærsluaðstoð og húsnæði á vegum Sameinuðu þjóðanna. Húsnæðið hafi verið í hverfi þar sem kærendur hafi upplifað sig óörugg. Kærendur telji að þau hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu þar sem þau hafi þurft að greiða fyrir þjónustu þess. Eftir að kærendur hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi þeim verið gert að yfirgefa húsnæði það er þau hafi haft til afnota og af þeim sökum hafi þau ekki séð annan kost en að fara úr landi. Kærendur hafi upplifað mikla fordóma og mismunun í Grikklandi. K hafi greint frá mikilli vanlíðan í ljósi liðinna atburða, m.a. hafi syni hennar verið rænt í heimaríki og loks sleppt gegn lausnargjaldi og þá hafi bróðir hennar horfið.

Þá kemur fram að börn kærenda A, B og C hafi í viðtölum greint frá því að hafa verið aðskilin frá innfæddum börnum og ekki fengið hæfilega menntun í skólanum. Þau hafi orðið fyrir aðkasti af hendi annarra barna. Börn með flóttamannabakgrunn hafi veist að þeim og grísk börn hafi uppnefnt þau. Utan skólans hafi þau eytt tíma sínum heima við þar sem þau hafi verið í hættu utandyra. Þá hafi þau greint frá því að enginn dagur í Grikklandi hafi verið góður. Elsta barnið, A, hafi greint frá því að hann hafi ekki fengið viðunandi læknisaðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá hafi hann greint frá atburðum í heimaríki og í Grikklandi sem hafi reynst honum erfiðir. Í Grikklandi hafi hann orðið var við mikla fíkniefnaneyslu og glæpi sem hafi haft slæm áhrif á andlega líðan hans. Hér á landi sé hann í skóla þar sem kennarar og börn líti á hann sem jafningja sem leiði til þess að honum líði vel og óski þess að vera hér.

Í greinargerð kærenda er vísað til umfjöllunar í greinargerð þeirra til Útlendingastofnunar um aðstæður og réttindi flóttamanna í Grikklandi. Þar kemur m.a. fram lýsing á aðstæðum einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi auk þeirrar afstöðu kærenda að grísk stjórnvöld hafi ekki gripið til aðgerða til að koma til móts við stöðu flóttamanna.

Í greinargerð kærenda eru gerðar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a. við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að kærendum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi. Vísi kærendur til umfjöllunar í ákvörðun stofnunarinnar þar sem fram komi að heilbrigðisþjónusta í Grikklandi sé ófullnægjandi. Kærendur hafi greint frá því að þau hafi fengið lágmarks heilbrigðisþjónustu og borið að greiða fyrir þjónustu og lyf. Af þeim sökum telji kærendur að heilbrigðisþjónustan þar í landi hafi verið ófullnægjandi og þeim óaðgengileg. Þá geri kærendur athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að M hafi ekki sýnt fram á að hann hafi verið útilokaður frá þeim réttindum sem felist í dvalarleyfi hans eða þeirri félagslegu aðstoð sem hann eigi lögum samkvæmt rétt á. Telji kærendur að sönnun þess efnis sé ómöguleg og vísa til landaupplýsinga þar sem fram komi að einstaklingar í sömu stöðu verði fyrir mikilli mismunun og fordómum í Grikklandi. Þeim standi ekki til boða að læra grískt tungumál eða fá með öðrum hætti tækifæri til þess að aðlagast grísku samfélagi. Það sé því erfiðleikum bundið að útvega sér starf og sjá börnum sínum farborða. Þá geri kærendur athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar að fjölskyldunni standi til boða búsetuúrræði í Grikklandi og benda á að fjölskyldunni hafi verið úthlutað húsnæði á vegum Sameinuðu þjóðanna en ekki grískra stjórnvalda. Þá hafi fjárstyrkur frá grískum yfirvöldum varla dugað fyrir nauðsynjum. Hin ýmsu úrræði sem Útlendingastofnun vísi til í ákvörðun sinni hafi ekki verið kærendum aðgengileg, m.a. í ljósi skilyrða sem þau hafi þurft að uppfylla. Loks telji kærendur að skilyrði reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, sem varði sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi að lögum um útlendinga. Þau eigi sér ekki stoð í settum lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Krafa kærenda er í fyrsta lagi byggð á því að taka skuli mál þeirra til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að hagsmunir barnsins skuli hafðir að leiðarljósi en þau séu ung og á viðkvæmum aldri. Viðhlítandi mat þurfi að fara fram á hagsmunum þeirra í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Kærendur vísa jafnframt til 32. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 auk nokkurra úrskurða kærunefndar útlendingamála. Í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 368/2019 og 369/2019 frá 25. júlí 2019 og nr. 393/2018 frá 27. september 2018 hafi það verið niðurstaða kærunefndar að taka til efnismeðferðar umsóknir einstaklinga og fjölskyldu sem fengið höfðu alþjóðlega vernd í Grikklandi vegna sérstakra ástæðna. Einnig vísi kærendur til nánar tiltekinna úrskurða kærunefndar í tengslum við mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Kærendur telji að þau séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem leiði til þess að þau muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Einnig muni þau verða fyrir alvarlegri mismunun við endursendingu til Grikklands vegna fordóma sem þar ríki gagnvart flóttafólki og ófullnægjandi aðgengis að heilbrigðis- og félagsmálakerfinu. Með vísan til þessa muni staða þeirra, sem hjón með fjögur börn á framfæri, vera mun verri en staða almennings í Grikklandi. Þá bendi kærendur á að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Kærendur óski sérstaklega eftir því að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem börn þeirra A, B, C og D eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld eru bundin af þjóðarrétti að virða. Kærendur telji að endursending barna þeirra til Grikklands gangi gegn hagsmunum þeirra og að þau muni búa við öryggisleysi og óvissu þar í landi.

Þá byggja kærendur kröfu sína um efnismeðferð í öðru lagi á því að þau njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Telja kærendur að aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi ákvæðisins og samræmist skilgreiningunni á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Endursending kærenda til Grikklands feli þar með í sér brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og því beri að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við K, M, A, B og C hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar, þ. á m. hvað varðar A. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B, C og D sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B, C og D verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B, C og D eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna eru kærendur og börn þeirra með alþjóðlega vernd í viðtökuríki og hafa kærendur gilt dvalarleyfi þar í landi til ársins 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málanna eru K og M hjón á [...] með fjögur börn sem eru [...] , [...] , [...], og [...] ára gömul. Í gögnum um heilsufar M kemur fram að hann sé með góðkynja stækkun blöðruhálskirtils og hafi verið með [...]. M hafi fengið ávísað lyfjum vegna þess. Í heilsufarsgögnum K kemur fram að hún sé almennt heilsuhraust en glími m.a. við stoðkerfisvandamál, hafi fengið ávísað lyfjum vegna þeirra og fengið beiðni um sjúkraþjálfun vegna skertrar hreyfigetu í hné. Þá hafi K greint frá því að hún hafi glímt við andlega vanlíðan og kvíða þegar hún bjó í Grikklandi.

Í heilsufarsgögnum A kemur fram að hann hafi verið með berklasýkingu og verið í lyfjameðferð vegna hennar sem lauk 23. september sl. Meðal gagna málanna er bréf frá sálfræðingi, dags. 3. nóvember 2019. Í því kemur m.a. fram að A hafi svarað skimunarlista og hafi niðurstöður A sýnt alvarlegt þunglyndi, mjög alvarlegan kvíða og alvarlega streitu. Þá kemur fram að K hafi greint frá því að A svæfi illa, fengi martraðir, verki fyrir brjósti og fyndi fyrir seyðingi og dofa í útlimum. Hann ætti erfitt með að stjórna skapi sínu og væri oft mjög pirraður. Kemur einnig fram að fyrrgreind einkenni séu hugsanlegar aukaverkanir vegna lyfjagjafar við berklum og að hann þurfi aðstoð til að takast á við þau auk stuðnings og skilnings fjölskyldunnar. Í tölvupósti frá talsmanni kærenda, dags. 7. nóvember sl., kemur fram að skv. upplýsingum frá sálfræðingnum hafi foreldrar A greint frá því í viðtali að einkenni hans hafi ekki lagast eftir að hann hætti að taka lyfin og sé hann í afar slæmri stöðu. Þá eigi A sálfræðitíma þann 26. nóvember nk. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að A hafi verið rænt í heimaríki og það hafi haft áhrif á hann andlega.

Fram kemur í gögnum um heilsufar D að hann glími við afleiðingar nefbrots frá þriggja ára aldri en samkvæmt sérfræðilækni yrði ekki gerð aðgerð vegna slíks kvilla fyrr en hann væri fullvaxinn. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að B, C og D séu almennt heilsuhraust.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl kærenda og barna þeirra hjá Útlendingastofnun auk framlagðra gagna um heilsufar þeirra, beri ekki með sér að kærendur hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins. Mat á aðstæðum fjölskyldunnar tekur þó mið af því að A, B, C og D eru börn að aldri, sbr. framangreind ákvæði laga um ákvarðanir er varða börn.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 21. júní 2019);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum verður ráðið grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sæki skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið henti ekki endilega börnum sem njóti alþjóðlegrar verndar í Grikklandi.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ.á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu.

Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kærenda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda og barna þeirra, en meðal annars hefur komið fram að A hafi glímt við andlega erfiðleika. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og börn þeirra eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur hafi aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ.m.t. geðheilbrigðiþjónustu og lyf. Kærunefnd telur gögn málanna ekki benda til þess að kærendur og börn þeirra glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kærenda er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málum þeirra þar sem þau hafi ekki fengið næga félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi þau upplifað fordóma þar í landi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar, þó að þau þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu. Þá má einnig ráða að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sama rétt til menntunar fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið eigi þau rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem þau þurfa á að halda.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málanna því ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og börn þeirra handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa kærendur gilt dvalarleyfi þar í landi til ársins 2021. Þá hafi þau dvalið í Grikklandi um árabil og komu hingað í sameiningu. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017, 552/2017, 581/2017, 583/2017 og 586/2017 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda ekki um að ræða sömu viðtökuríki. Þá tekur kærunefnd einnig fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda í þessu máli við aðstæður kærenda í úrskurðum kærunefndar nr. 368/2019, 369/2019 og 393/2018 enda séu einstaklingsbundnar aðstæður þeirra ólíkar.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun daganna 25. mars og 3. apríl 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 27. febrúar 2019. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Ljóst er af gögnum málsins að ákvæðið eigi ekki við um kærendur enda séu ekki liðnir 10 mánuðir frá því umsókn þeirra barst íslenskum stjórnvöldum.

Athugasemdir kærenda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem áður hefur komið fram gera kærendur í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m. a. við trúverðugleikamat stofnunarinnar. Þá gera kærendur einnig athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málanna kveðast kærendur hafa komið hingað til lands þann 27. febrúar 2019 ásamt börnum sínum og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kærendum er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kærenda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason                                      Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta