Hoppa yfir valmynd

Nr. 168/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 168/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19120059

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 30. desember 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. desember 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar. Í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga, og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. október 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Finnlandi. Þann 24. október 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Finnlandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá finnskum yfirvöldum, dags. 25. október 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 9. desember 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 17. desember 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 30. desember 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 8. janúar 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að finnsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Finnlands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Finnlands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi m.a. greint frá ástæðu þess að hann hafi yfirgefið heimaríki sitt og að eiginkona hans hafi verið myrt þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að vera heilbrigður en finna til í munni, vera með verki í fingri og vera án tilfinningar í tá. Kærandi hafi óskað eftir læknisaðstoð í Finnlandi vegna þessa, þar hafi hjúkrunarfræðingur sagt honum að taka verkjatöflur en hann hafi ekki hitt lækni. Þá kvað kærandi sig vera andlega hraustan en hafi upplifað erfiða hluti sem hafi haft áhrif á hann. Kærandi greindi frá því að hann hafi dvalið í flóttamannabúðum í Finnlandi en hafi verið vísað þaðan eftir lokasynjun umsóknar hans um alþjóðlega vernd þar í landi. Í kjölfarið hafi hann ekki fengið fengið aðstoð frá finnskum yfirvöldum, ekki verið með aðgang að heilbrigðiskerfinu og hafi þurft að leita sér aðstoðar í skýli fyrir heimilislausa. Kærandi kvað það hafi tekið finnsk stjórnvöld tvö ár að taka ákvörðun í máli hans og hafi biðtíminn haft áhrif á andlega heilsu hans. Þá kvað kærandi sig hafa hitt lögfræðinga í Finnlandi en erfitt hafi verið að fá tíma og aðstoð þeirra hafi verið ábótavant. Þá hafi kærandi upplifað fordóma og andlegt ofbeldi þar í landi.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun í greinargerð sinni. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísi í því sambandi til sögu sinnar og svara á skimunarlista sem lagður sé fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar m.a. hvað varðar aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að lögfræðiþjónustu og rétt þeirra til að kæra synjun á umsókn sinni til æðri stjórnsýsludómstóls. Í greinargerð kæranda er vísað til heimilda þess efnis að réttur umsækjenda um alþjóðlega vernd til ókeypis lögfræðiþjónustu í Finnlandi hafi verið takmarkaður og kærufrestir styttir. Kærandi telji að hann muni því hvorki eiga þess kost að kæra ákvörðun finnskra útlendingayfirvalda né standa ókeypis lögfræðiþjónusta til boða þar í landi. Þá mótmælir kærandi þeirri niðurstöðu Útlendingastofnunar að í Finnlandi viðgangist ekki viðvarandi mannréttindabrot og að íbúar landsins geti leitað til þarlendra yfirvalda telji þeir á sér brotið. Vísi kærandi m.a. til heimilda um vaxandi andúð gegn útlendingum þar í landi. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við beitingu ákvæða reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga. Meðal annars vísi kærandi til þess að talsmenn Rauða kross Íslands hafi gert alvarlegar athugasemdir vegna skorts á lagastoð fyrrnefndrar reglugerðar vegna þeirra skilyrða sem þar séu sett fram, þ.e. að þau gangi lengra en ákvæði laga um útlendinga og gangi í raun gegn vilja löggjafans. Auk þess veki kærandi athygli á því að þau viðmið sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðarinnar séu sett fram í dæmaskyni. Því sé ekki um tæmandi talningu að ræða á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Útlendingastofnun hafi því borið að framkvæma heildarmat á aðstæðum kæranda. Þá telji kærandi að aðstæður hans séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, auk þess sem hann muni eiga erfitt uppdráttar í Finnlandi vegna alvarlegrar mismununar verði honum gert að snúa þangað aftur.

Kærandi reisir í fyrsta lagi kröfu sína um að mál hans verði tekið til efnislegrar meðferðar hér á landi á því að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærandi í því sambandi m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og túlkunar kærunefndar á ummælum í frumvarpi til laga nr. 81/2017, um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Kærandi telji auk þess að verði honum gert að snúa aftur til Finnlands séu verulegar líkur á því að staða hans verði mun síðri en staða almennings í Finnlandi. Þá biði hans þar áframsending til heimaríkis, þar sem hann yrði myrtur. Telji kærandi ljóst að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Finnlandi og leggi áherslu á skyldu stjórnvalda að framkvæma ítarlegt og einstaklingsbundið mat á væntanlegum aðstæðum hans þar í landi. Telji kærandi að heimildir um ástandið í finnska hæliskerfinu bendi til þess að varhugavert sé að senda hann til Finnlands.

Í öðru lagi byggir kærandi kröfu sína um að mál hans verði tekið til efnismeðferðar á því að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Þá sé mælt fyrir um bann við óbeinni endursendingu í 2. mgr. 42. gr. sama ákvæðis. Vísi kærandi til þess að finnsk stjórnvöld hafi sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til svæða þar sem þeir eigi á hættu að sæta ofsóknum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Nýverið hafi Mannréttindadómstóll Evrópu kveðið upp dóm þess efnis að Finnland hafi gerst brotlegt við 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu með því að hafa synjað írökskum manni um alþjóðlega vernd þar í landi og sent hann til heimaríkis þar sem hann hafi verið drepinn. Kærandi telji að samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga verði íslensk stjórnvöld að tryggja að hann verði ekki áframsendur frá Finnlandi til svæðis þar sem hann yrði m.a. í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Kærandi telji að íslensk stjórnvöld verði að fara fram á einstaklingsbundnar tryggingar fyrir því að kærandi muni ekki vera sendur áfram til heimaríkis ellegar taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Finnlands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja finnsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Finnlandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Finnlandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – Finland (United States Department of State, 11. mars 2020),
  • Administrative Detention of Migrants in the District Court of Helsinki (Law and the Other in Post-Multicultural Europe - University of Helsinki, 2015),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Finland (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Comments by the UNHCR Regional Representation for Northern Europe on the draft Law Proposal of 15 April 2016 amending the Aliens Act of the Republic of Finland (UN High Commissioner for Refugees, maí 2016),
  • Country Factsheet: Finland 2018 - European Migration Network (European Commission),
  • Freedom in the World 2019 – Finland (Freedom House, 4. febrúar 2019),
  • Report to the Finnish Government on the visit to Finland carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 22 September to 2 October 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 20. ágúst 2015),
  • Response of the Finnish Government to the report of the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) on its visit to Finland from 22 September to 2 October 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 6. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu finnska félags- og heilbrigðisráðuneytisins (www.stm.fi),
  • Upplýsingar af heimasíðu finnsku útlendingastofnunarinnar (www.migri.fi),
  • Upplýsingar af heimasíðu Rauða krossins í Finnlandi (www.redcross.fi) og
  • Upplýsingar af heimasíðu Refugee Advice Centre (www.pakolaisneuvonta.fi).

Umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun Finnlands geta kært niðurstöðuna til stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá stjórnsýsludómstólnum eiga þeir möguleika á því að kæra þá niðurstöðu til æðri stjórnsýsludómstóls að fengnu leyfi þess dómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá hinum æðri stjórnsýsludómstól eða ekki fékkst leyfi til að fara með umsóknina fyrir æðri stjórnsýsludómstólinn eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Finnland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna málsmeðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd nr. 32/2013 og 33/2013. Samkvæmt framangreindum gögnum má sjá að ákveðin þjónustuúrræði eru í boði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Finnlandi. Umsækjendur eiga til að mynda rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og geta þeir fengið hjálp við að leita sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá eiga umsækjendur í Finnlandi rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá eiga umsækjendur rétt á endurgjaldslausri túlkaþjónustu í viðtölum sínum hjá finnsku útlendingastofnuninni.

Í upplýsingum frá útlendingastofnun Finnlands kemur fram að þeir sem séu endursendir til landsins á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fari almennt í móttökumiðstöðvar en geti í einhverjum tilfellum sætt varðhaldi. Móttökumiðstöðvarnar séu opnar en varðhald lokað og gildi mismunandi löggjöf um úrræðin. Þeim sem dvelja í móttökumiðstöðvum stendur til boða sama þjónusta og öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd geta verið settir í varðhald t.d. vegna þess að ekki sé hægt að bera kennsl á viðkomandi, ferðaáætlun sé óljós eða þegar líklegt sé að viðkomandi muni láta sig hverfa til að forðast brottvísun frá landinu. Þá geta umsækjendur sem hafa fengið neikvæða lokaniðurstöðu verið settir í varðhald fyrir brottflutning frá landinu. Varðhaldsmiðstöðvarnar eru reknar og starfræktar af finnsku útlendingastofnuninni og er ein varðhaldsmiðstöðvanna sérstaklega ætluð viðkvæmum einstaklingum. Þá er aðgangur að heilbrigðisþjónustu til staðar fyrir einstaklinga í varðhaldi. Varðhald getur varað að jafnaði í nokkra daga til nokkrar vikur en í einstaka tilfellum getur varðhald varað í nokkra mánuði. Skylt er að leiða umsækjendur fyrir héraðsdóm þar sem dómari ákveður hvort beita á varðhaldi. Umsækjandi á rétt á löglærðum talsmanni sem gætir hagsmuna hans fyrir dómstólum þar sem fjallað er um lögmæti varðhaldsins.

Einstaklingar sem sendir eru til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Finnlandi. Við framlagningu slíkrar umsóknar er fyrst tekið til skoðunar hvort ný gögn eru í málinu eða uppi eru nýjar málsástæður sem geta orðið grundvöllur veitingar alþjóðlegrar verndar. Ef ekki eru uppi nýjar málsástæður í málinu er umsóknin að jafnaði ekki metin tæk til meðferðar án þess að nýtt viðtal sé tekið við viðkomandi. Í þeim tilvikum sem uppi eru nýjar málsástæður fer fram viðtal við umsækjanda varðandi aðstæður hans og málið tekið til efnislegrar meðferðar. Umsækjandi á rétt á að áfrýja í báðum tilvikum, þ.e. ákvörðun um að málið sé ekki tækt til efnislegrar meðferðar og efnislegri ákvörðun málsins.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að finnsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á lögfræðiþjónustu við meðferð máls síns hjá finnsku útlendingastofnuninni og á kærustigi. Umsækjendur eiga að sama skapi rétt á þjónustu löglærðra talsmanna í viðtölum sínum hjá útlendingastofnuninni en slík þjónusta er þó ekki endurgjaldslaus nema sérstaklega ríkar ástæður liggja að baki umsókn þeirra eða ef viðkomandi umsækjandi er fylgdarlaust barn. Þá eiga umsækjendur ekki rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð vegna viðbótarumsóknar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi ekkill á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 24. október 2019, greindi kærandi frá því að hann hafi fingurbrotnað og að brotið hafi ekki gróið rétt saman. Hann sé því með verki í fingrinum og geti ekki beygt hann. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 7. nóvember 2019, greindi kærandi m.a. frá því að vera almennt heilsuhraustur. Hann hafi þó lent í erfiðleikum sem hafi haft áhrif á hann. Þá hafi hann fundið fyrir verkjum í tönnum og í vör auk þess að vera tilfinningalaus í tá. Kærunefnd hafa ekki borist önnur gögn um heilsufar kæranda en læknisvottorð, dags. 16. nóvember 2019, til staðfestingar þess að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 7. nóvember 2019, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar þann 23. mars 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu og barst svar þann 26. mars 2020 þess efnis að ekki lægju fyrir ný gögn og að kærandi hygðist ekki leggja fram frekari gögn að þessu sinni. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til heilsufars.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn um heilsu sína þrátt fyrir leiðbeiningar þar um. Framangreind gögn um aðstæður í Finnlandi benda að auki til þess að kærandi hafi aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Af gögnum málsins er ljóst að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd í Finnlandi hafi verið synjað. Af framangreindum gögnum má ráða að kærandi hefur m.a. þann möguleika að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Finnlandi. Kærunefnd leggur því til grundvallar að honum standi úrræði til boða að því er varðar stöðu hans við endursendingu hans til Finnlands.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Felast aðgerðirnar m.a. í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins lokað tímabundið fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Á þetta við um Ísland og ríkir því ákveðin óvissa hér á landi um það hvenær framkvæmd á endursendingum hefjist að nýju. Yfirvöld í Finnlandi hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, m.a. með ferðabanni til og frá landinu (m.a. að undanskildum ferðum sem talist geta nauðsynlegar), auk þess sem takmarkanir á samkomum eru við lýði og veitingahúsum hefur verið lokað. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að álykta að endursendingar til viðtökuríkisins verði ekki hafnar áður en umræddur frestur rennur út.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Finnlands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til þess að viðtökuríkið hefur sterka innviði og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar útlendingamála í málum nr. 550/2017, 552/2017, 583/2017 og 586/2017, tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda er ekki um sömu viðtökuríki að ræða.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 7. nóvember 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. október 2019.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Finnlandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Finnlandi, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá finnskum yfirvöldum. Finnsk stjórnvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. 147. gr. finnsku útlendingalaganna (f. Ulkomaalaislaki 301/2004). Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að í Finnlandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þess og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð finnskra stjórnvalda á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður umsækjenda í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Finnlandi hafi verið óforsvaranleg. Þótt fyrir liggi að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Finnlandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu, í máli N.A. gegn Finnlandi (nr.25244/18) frá 14. nóvember 2019 tekur kærunefnd fram að af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér megi ráða að finnsk stjórnvöld hafi með skjótum hætti gripið til úrbóta í kjölfar dómsins. Þannig voru t.a.m. verkferlar vegna viðbótarumsókna bættir, þjálfun starfsfólks í hæliskerfinu var aukin ásamt því að farið var yfir eldri umsóknir með hliðsjón af dómnum.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi athugasemdir í greinargerð sinni við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans, þ. á m. við mat á viðkvæmri stöðu hans og við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Kærunefnd tekur fram að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna leggur nefndin mat á einstaklingsbundnar aðstæður einstaklingsins í hverju máli fyrir sig, með tilliti til aðstæðna í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sem tók gildi þann 6. mars 2018 þar sem m.a. kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar aðstæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 22. október 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Finnlands eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa finnsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Finnlands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                             Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta