Hoppa yfir valmynd

Nr. 302/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 302/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030058

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 26. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 29. október 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Möltu. Þann 9. nóvember 2018 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Möltu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013. Í svari frá maltneskum yfirvöldum, dags. 12. nóvember 2018, kom fram að kæranda hefði verið veitt viðbótarvernd á Möltu þann 4. október 2014. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 4. desember 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 7. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 12. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 26. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. apríl 2019, ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn í málinu þann 9. apríl sl. Þann 21. maí sl. bárust kærunefnd jafnframt upplýsingar frá maltneskum yfirvöldum en andmæli kæranda vegna þeirra upplýsinga bárust þann 22. maí sl. Kærunefnd bárust frekari upplýsingar frá maltneskum yfirvöldum þann 23. maí sl. og veitti nefndin kæranda tækifæri til að koma að frekari gögnum og andmælum vegna upplýsinganna, þann sama dag. Frekari gögn bárust frá kæranda með tölvupósti 7. júní 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Möltu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Möltu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða endursendur til Möltu og kveður að dvöl hans þar hafi haft skaðleg áhrif á heila hans. Kærandi hafi dvalið í um fimm ár á Möltu, fyrst um sinn í flóttamannabúðum en eftir að hann hafi hlotið viðbótarvernd hafi hann þurft að yfirgefa búðirnar. Síðan þá hafi hann ýmist búið á götunni eða í skýli sem hann og aðrir flóttamenn hafi smíðað. Þeir hafi sofið tíu saman í skýlinu en eftir að hafa orðið fyrir árás af hendi heimamanna hafi þeir þurft að reisa skýli á nýjum stað. Þá hafi þeir gist á byggingarsvæði um stundarsakir en þurft að yfirgefa svæðið þegar bygging húsnæðisins hafi nálgast lokastig. Kærandi kveður að hann hafi ekki fengið leiguhúsnæði á Möltu sökum fordóma. Þá hafi hann ekki fengið nokkra fjárhagsaðstoð frá maltneskum yfirvöldum né haft aðgang að vinnumarkaðnum. Honum hafi eitt sinn tekist að fá atvinnu en eftir að hafa starfað þar í mánuð hafi hann komist að því að yfirmaðurinn hygðist ekki greiða honum laun. Kærandi hafi leitað til lögreglu þar í landi sökum þess en kveður að hún hafi ekkert aðhafst í máli hans. Þá kveður kærandi að hann hafi mætt kynþáttafordómum á Möltu.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann hafi ítrekað leitað læknisaðstoðar á Möltu. Hann þjáist af [...] og sé með áverka á [...] og [...] eftir alvarlega árás í heimaríki sínu. Þá kveður kærandi að hann eigi oft erfitt með [...] og líði eins og [...]. Þá verki hann í allan líkamann og heimamenn á Möltu hafi ítrekað sparkað í hann liggjandi. Í þau skipti sem hann hafi leitað aðstoðar á sjúkrahúsum á Möltu hafi honum verið neitað um hana. Þá glími kærandi einnig við svefnleysi, minnisleysi og andlega vanlíðan eftir að kona hans og tvíburadætur hafi verið myrtar í [...]. Það hafi tekið mikið á hann að rifja upp þann atburð í viðtali hjá Útlendingastofnun, svo að nauðsynlegt hafi verið að gera hlé á viðtalinu. Af þeim sökum hafi svör hans verið stutt þegar hann hafi verið spurður um hvort einhver atburður í lífi hans hafi haft áhrif á heilsu hans.

Kærandi kveður að lýsing hans á aðstæðum sínum á Möltu sé í samræmi við heimildir um aðstæður einstaklinga með viðbótarvernd þar og vísar í því sambandi til ýmissa alþjóðlegra skýrslna og gagna þar um. Þar komi m.a. fram að álagið á maltneska hæliskerfið hafi verið mikið, einkum á árunum 2009-2013. Þá njóti kærandi viðbótarverndar á Möltu en hún sé miklum takmörkunum háð, þ. á m. hvað varði ferðaskilríki, veitingu ríkisborgararéttar, fjölskyldusameiningu, aðgang að heilbrigðiskerfinu og annarri félagslegri þjónustu. Flóttafólk á Möltu eigi margt hvert erfitt með að ná endum saman og búi við óviðunandi húsnæðisskort. Þá sé aðlögun innflytjenda að maltnesku samfélagi erfiðleikum bundin og birtist m.a. í mismunun á vinnumarkaði, lélegum vinnuaðstæðum, lágum launum og miklu óöryggi. Innflytjendur á Möltu sæti enn fremur miklum kynþáttafordómum. Samkvæmt fyrirliggjandi heimildum hafi endurnýjun dvalarleyfa þá reynst einstaklingum með alþjóðlega vernd á Möltu erfið. Á meðan þeir bíði eftir endurnýjuðu dvalarleyfi mæti þeir oft hindrunum þegar komi að því að sækja grundvallarþjónustu á vegum hins opinbera. Þá séu skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis ströng.

Í greinargerð kæranda kemur þá fram að hann geri athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Kærandi telji ómálefnalegt af hálfu stofnunarinnar að efast um þann framburð kæranda að honum muni reynast erfitt að sækja sér félagslega aðstoð, atvinnu og fullnægjandi heilbrigðisaðstoð á Möltu. Þá gerir kærandi athugasemdir við beitingu stjórnvalda á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi setji spurningamerki við lagastoð reglugerðarinnar, sem hann telji að gangi lengra en ákvæði laga um útlendinga og jafnvel gegn vilja löggjafans. Þá séu viðmið í reglugerðinni sett fram í dæmaskyni en ekki sé um að ræða tæmandi talningu á þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort uppi séu sérstakar ástæður. Geti viðmiðin því ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Kærandi telji rökstuðning Útlendingastofnunar ófullnægjandi hvað þetta varði og óljóst hvort heildarmat á aðstæðum kæranda hafi farið fram. Kærandi byggir á því að aðstæður í máli hans séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá bendi frásögn kæranda og heimildir um aðstæður á Möltu til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar þar vegna alvarlegrar mismununar.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi til þess að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, lögskýringargagna að baki breytingarlögunum og úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017, 552/2017, 581/2017, 583/2017 og 586/2017. Kærandi hafi mótmælt endursendingu til Möltu þar sem dvöl hans þar hafi haft skaðleg áhrif á hann, þ.e. einkum heimilis- og atvinnuleysi, aðgangshindranir að heilbrigðisþjónustu, fordómar og ofbeldi. Þá glími hann við svefnleysi, minnisleysi og andlega vanlíðan vegna morðs á fjölskyldu hans í [...]. Í því sambandi vísar kærandi til 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og áðurgreindra úrskurða kærunefndar.

Þá byggir kærandi á því að taka beri mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi telji aðstæður flóttafólks á Möltu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Í því sambandi vísar kærandi jafnframt til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt viðbótarvernd á Möltu þann 4. október 2014 og fékk útgefið verndarskírteini (e. protection card) af maltneskum yfirvöldum með gildistíma til 23. október 2018. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Möltu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi í málinu er að sögn [...] ára gamall karlmaður sem kom einn hingað til lands en kveðst eiga dóttur í heimaríki. Í framlögðum heilsufarsgögnum kæranda kemur m.a. fram að hann hafi kvaðst glíma við [...] í 14 ár. Í framlagðri komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. desember sl., kemur fram að svo virðist sem um sé að ræða [...] en engin merki séu um bilanir á [...]. Þá hafi kærandi, þann 16. desember sl., verið fluttur á heilsugæslu vegna [...] og [...]. Samkvæmt komunótu, dags. 17. desember sl., hafi skoðun í kjölfarið leitt í ljós þaninn og mjúkan [...], [...] og dreifð [...]. Lungu hafi verið hrein, hjarta án auka- eða óhljóða og blóðprufur hafi ekki verið sýkingalegar. Af framlögðum heilsufarsgögnum verður að öðru leyti ráðið að kærandi hafi glímt við minniháttar langvinn heilsufarsvandamál, þ. á m. óþægindi í [...], [...] og [...] og [...] í andliti. Í endurriti af viðtölum við kæranda hjá Útlendingastofnun kemur jafnframt fram að kærandi glími við minnisleysi og andlegar afleiðingar atburða sem hann hafi upplifað í heimaríki og á Möltu, þ. á m. ofbeldis.

Þótt kærandi hafi leitað til heilbrigðisstarfsfólks hér á landi í nokkur skipti er það mat kærunefndar í ljósi gagna málsins, þ. á m. fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að þeir heilsufarskvillar sem gögn málsins bera með sér að hrjái kæranda séu ekki þess eðlis að hann teljist hafa sérþarfir vegna þeirra sem taka hefur þurft tillit til við meðferð máls hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Möltu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, 11. mars 2019);

• Malta 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);• Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018);

• Freedom in the World 2019 – Malta (Freedom House, 2019);

• Progress Report 2018: A Global Strategy to Support Governments to End the Detention of Asylum seekers & Refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees (UNCHR), febrúar 2019);

• ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);

• Amnesty International Report 2017/18 - Malta (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016);

• National Action Plan Against Racism and Xenophobia (Equality Research Consortium, 2010);

• Upplýsingar af vefsíðum maltneskra yfirvalda: https://deputyprimeminister.gov.mt/en/cbhc/Pages/Entitlement/Health-Entitlement-to-RefugeesMigrants.aspx, www.socialsecurity.gov.mt, www.housingauthority.gov.mt, http://www.justiceservices.gov.mt/DownloadDocument.aspx?app=lom&itemid=10663&l=1;

• Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna: http://www.unhcr.org.mt;

• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

• Upplýsingar af vefsíðu félagasamtakanna Victim Support: victimsupport.org.mt;

• Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu;

• Tölvupóstar frá maltneskum stjórnvöldum (Identity Malta og Refugee Commission), dags. 21. og 23. maí 2019.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að einstaklingar með viðbótarvernd (e. subsidiary protection) á Möltu fái útgefin endurnýjanleg dvalarleyfi til þriggja ára í senn. Að framkominni beiðni sé að jafnaði fallist á endurnýjun slíkra dvalarleyfa. Í framkvæmd sé útgáfa og endurnýjun dvalarleyfa þó erfiðleikum bundin, m.a. vegna skorts á aðgengi að upplýsingum, tafa við vinnslu umsókna, íþyngjandi krafna og neikvæðra viðhorfa opinberra starfsmanna í garð einstaklinga með alþjóðlega vernd á Möltu. Upplýsingar séu ekki alltaf settar fram á tungumáli sem aðilar skilji og þá þurfi umsækjendur um endurnýjun dvalarleyfis m.a. að leggja fram sönnun um núverandi dvalarstað, s.s. leigusamning og afrit af persónuskilríkjum leigusala. Útgáfa varanlegra dvalarleyfa sætir ströngum skilyrðum á Möltu svo og veiting ríkisborgararéttar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu njóta almennt ferðafrelsis og fá útgefin vegabréf fyrir útlendinga (e. Alien‘s passport). Framangreind vegabréf eru þó ekki alþjóðlega viðurkennd ferðaskilríki.

Þá er flóttamönnum og einstaklingum með viðbótarvernd almennt heimilt að dvelja um eitt ár í móttökumiðstöðvum en í framkvæmd er þeim mögulegt að dvelja þar lengur að framlagðri beiðni. Beiðnirnar eru metnar í hverju tilviki fyrir sig af stofnun um velferð umsækjenda um alþjóðlega vernd (e. Agency for the Welfare of Asylum Seekers). Þegar réttur til dvalar í móttökumiðstöð hefur verið fullnýttur framkvæmir félagsráðgjafi mat á aðstæðum aðila og reynir að beina þeim inn í félagslega kerfið. Rannsóknir meðal innflytjenda á Möltu hafa þó leitt í ljós að margir þeirra standa frammi fyrir húsnæðisvanda.

Flóttamenn á Möltu hafa aðgang að vinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og maltneskir ríkisborgarar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu hafa einnig aðgang að vinnumarkaðnum en atvinnuþátttaka þeirra kann þó að sæta takmörkunum þegar kemur að tilteknum starfsgreinum, svo sem lögreglustörfum og störfum á vegum maltneska hersins. Þá eiga einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu rétt á félagslegri aðstoð til grunnframfærslu en aðgangur þeirra að atvinnuleysistryggingum og lífeyri sætir takmörkunum að einhverju leyti. Handhafar viðbótarverndar njóta jafnframt grunnheilbrigðisþjónustu. Þá verður ráðið af fyrirliggjandi landaupplýsingum að sérhæfð meðferð fyrir þolendur pyndinga eða aðra viðkvæma einstaklinga sé almennt ekki í boði endurgjaldslaust.

Samkvæmt upplýsingum sem bárust kærunefnd útlendingamála frá maltneskum yfirvöldum með tölvupósti 23. maí 2019 hafa handhafar alþjóðlegrar verndar á Möltu, sem eru með útrunnin verndarskírteini, aðgang að heilbrigðisþjónustu meðan á endurnýjunarferlinu stendur. Í skýrslu Asylum Information Database kemur aftur á móti fram að þótt yfirvöld veiti umsækjendum um endurnýjun dvalarskírteinis skriflega staðfestingu á að umsóknin sé til meðferðar hafi slík staðfesting ekkert formlegt gildi. Í reynd eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd sem ekki séu handhafar gildra dvalarskírteina á hættu að geta ekki nálgast grunnþjónustu.

Í ofangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði. Árið 2010 gáfu maltnesk yfirvöld út aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia). Telji einstaklingar á sér brotið geta þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2009 kváðust 29% [...] innflytjenda hafa orðið fyrir ofbeldi, hótunum eða alvarlegu áreiti á grundvelli kynþáttar en yfir 50% árása væru ekki tilkynntar til lögreglu vegna skorts á trausti til yfirvalda. Ekki liggja fyrir aðgreind, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæta ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, eru refsiverðir skv. maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt ofangreindum heimildum skortir þó á eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál eru kærð og lágt hlutfall kærumála sætir ákæruferli. Auk þess að leita til lögreglu geta þolendur hatursglæpa leitað til samtakanna Victim Support og jafnframt tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Meðan á rannsókn standi eigi þeir jafnframt rétt á túlkaþjónustu en þurfi þá að greiða fyrir þjónustuna.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hans sem einstaklings með viðbótarvernd á Möltu verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá verður ekki fallist á með kæranda að aðstæður flóttamanna á Möltu samræmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Möltu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Möltu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærandi vísar til þess að hann glími við ýmis heilsufarsvandamál og hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu á Möltu. Þá hafi hann upplifað kynþáttafordóma og hvorki haft aðgang að vinnumarkaðnum né húsnæðis- eða fjárhagsaðstoð frá maltneskum yfirvöldum. Kærandi byggir enn fremur á því að sem einstaklingur með viðbótarvernd njóti hann lakari réttarstöðu á Möltu en einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns. Þá sé endurnýjun dvalarleyfa á grundvelli viðbótarverndar erfið og aðgangshindranir við nýtingu grundvallarþjónustu meðan á henni standi.

Svo sem fram hefur komið nýtur kærandi alþjóðlegrar verndar á Möltu og hefur fengið útgefið verndarskírteini af maltneskum yfirvöldum, sem nú er útrunnið. Fyrir liggur að kærandi mun þurfa að afla endurnýjunar á því ásamt dvalarleyfi sínu á þeim grundvelli. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um aðstæður á Möltu getur endurnýjun dvalarleyfis þar verið erfitt og tímafrekt ferli og þá geta umsækjendur staðið frammi fyrir aðgangshindrunum að félagslega kerfinu meðan á því stendur. Í ofangreindum upplýsingum frá Refugee Commission kemur þó fram að einstaklingur með alþjóðlega vernd, sem hefur ekki verið afturkölluð af stofnuninni, eigi rétt á allri þjónustu sem stafi af réttarstöðu hans sem slíks, þ.m.t. ríkisrekinni heilbrigðisþjónustu. Sem fyrr segir byggir kærandi m.a. á því að hann glími við ýmsa króníska heilsufarskvilla, þ. á m. [...]. Í fyrirliggjandi heilsufarsgögnum kemur m.a. fram að engin merki séu um bilanir á [...] og þá gefa gögnin ekki til kynna bráð heilsufarsvandamál að öðru leyti. Með tilliti til eðlis líkamlegra og andlegra kvilla kæranda, sbr. framlögð gögn í málinu, er það því mat kærunefndar að heilsufar hans sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir að húsnæðis- og vinnumarkaði hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu á Möltu og nýtur almennt sömu réttinda þar um og maltneskir ríkisborgarar. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár maltneskra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða verði fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar á Möltu. Það er því mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017, frá 10. október 2017, og nr. 581/2017, nr. 583/2017 og nr. 586/2017, frá 24. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í umræddum úrskurðum m.a. vegna þess að ekki er um að ræða sömu viðtökuríki.

Með vísan til alls framangreinds er það jafnframt mat kærunefndar að aðstæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 4. desember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 29. október 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Sem fyrr segir gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. trúverðugleikamat stofnunarinnar og beitingu stjórnvalda á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti máls kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 28. október 2018 og sótti um alþjóðlega vernd daginn eftir. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta