Mál nr. 59/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Mál nr. 59/2019 Millinafn: Borgfjörð
Hinn 7. ágúst 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2019 en erindið barst nefndinni 5. júlí.
Nafnið Borgfjörð er til sem ættarnafn á Íslandi og borið sem slíkt í þjóðskrá. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, er ættarnafn einungis heimilt sem millinafn í eftirfarandi tilvikum:
- Hver maður, sem ber ættarnafn í þjóðskrá má breyta því í millinafn.
- Hver maður, sem ekki ber ættarnafn en á rétt til þess, má bera það sem millinafn.
- Maður má bera ættarnafn sem millinafn hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn.
- Maður á og rétt á að taka sér ættarnafn maka síns sem millinafn. Honum er einnig heimilt að taka sér nafnið sem millinafn beri maki hans það sem millinafn.
Samkvæmt erindi úrskurðarbeiðanda á ekkert þesssara tilvika við um hana og þannig ekki unnt að fallast á Borgfjörð sem millinafn.