Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 152/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 12. maí 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 152/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 5. júlí 2010, var kæranda, A, tilkynnt að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis á tímabilinu frá 20. maí til 25. maí 2010 og af þeirri ástæðu hafi verið ákveðið að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dags. 11. ágúst 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Af hálfu kæranda kemur fram að hún skilji vel af hverju hún fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur þá daga sem hún hafi ekki verið á Íslandi Á hinn bóginn geri hún sér ekki grein fyrir því af hverju viðurlögin séu þau að hún eigi ekki tilkall til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Kærandi telur að slík skerðing á greiðslum atvinnuleysisbóta sé brot á mannréttindum. Kærandi greinir frá því að henni hafi verið boðið í helgarferð til B-lands og hún hafi alls ekki gert sér grein fyrir því að það myndi hafa áhrif á greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar. Hún kveðst ekki hafa vitað að hún þyrfti að láta vita af för sinni í örfáa daga og aldrei hafa farið til útlanda ef hún hefði vitað að ferðin myndi hafa þessar afleiðingar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 30. mars 2011, kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta frá stofnuninni hinn 4. janúar 2010. Þann 21. maí 2010 hafi komið staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá B-landi. Vinnumálastofnun hafi því sent kæranda erindi 9. júní 2010 og óskað eftir skýringum á dvöl hennar erlendis. Hinn 14. júní 2010 hafi kærandi skilað inn skýringum á dvöl sinni erlendis og farseðlum sem staðfestu brottfarar- og heimkomudag. Þann 5. júlí 2010 hafi kæranda svo verið sent bréf þar sem hin kærða ákvörðun var tilkynnt.

Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi hafi óskað eftir endurupptöku og frekari skýringar hafi borist frá henni í tölvupósti. Með bréfi, dags. 13. september 2010, hafi kæranda verið tilkynnt að fyrri ákvörðun myndi standa en stofnunin hefði tekið þá ákvörðun á fundi 20. ágúst 2010.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Þá vísar stofnunin til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar er kveðið á um skyldu þess sem fær greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laganna til að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili og annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum.

Vinnumálastofnun greinir frá því að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé enn frekar mælt um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitenda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Þá vísar Vinnumálastofnun í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fram kemur að sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. h-lið 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eigi ekki rétt til atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun er tilkynnt aðila. Ljóst sé að kærandi hafi verið stödd í B-landi tímabilið 20. maí til 25. maí 2010. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið að gera skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi segi í kæru að hún hafi ekki vitað af framangreindum skilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun kveðst margsinnis hafa vakið athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hérlendis. Einu undantekningarnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Á kynningarfundum stofnunarinnar sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum og þeim, sem huga að ferð erlendis á sama tíma og þeir eru skráðir í atvinnuleit hjá stofnuninni, bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag. Þá vekur stofnunin athygli á því að í tilvikum sem tilkynnt er um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því, nema fyrir liggi E-303 vottorð hjá stofnuninni, fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dvelst erlendis. Það sé því eindregin afstaða Vinnumálastofnunar að eftirlitsaðgerðum stofnunarinnar verði ekki jafnað við tilkynningu frá atvinnuleitanda og verði í ljósi 9. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að gera greinarmun á þeim sem láta sjálfir vita um ferðir sínar og þeirra sem stofnuninni berast upplýsingar um með öðrum hætti.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 6. apríl 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 20. apríl 2011. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Þýðingarmestu atvik þessa máls eru þau að kærandi sótti um atvinnuleysisbætur í ársbyrjun 2010 og skömmu síðar var umsókn hennar samþykkt. Kærandi hélt af landi brott 20. maí 2010 og sneri til baka 25. maí sama ár. Hún lét Vinnumálastofnun ekki vita af þessari brottför sinni fyrr en eftir að Vinnumálastofnun hafði sent henni fyrirspurn um málið með bréfi, dags. 9. júní 2010. Vinnumálastofnun tók í kjölfarið þá ákvörðun að stöðva greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði.

Kærandi heldur því meðal annars fram í málinu að hún hafi ekki fengið fullnægjandi leiðbeiningar um að henni væri óheimilt að fara til útlanda nema láta Vinnumálastofnun af því vita fyrir fram. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Kærandi telur að brotið hafi verið á mannréttindum sínum í málinu. Á þetta verður ekki fallist. Með lögum hefur verið komið á ákveðnu skipulagi atvinnuleysistrygginga þar sem tryggja á að atvinnuleitendur njóti aðstoðar Atvinnuleysistryggingasjóðs. Atvinnuleitendur þurfa að fullnægja þeim skilyrðum sem gilda á hverjum tíma til að njóta slíkrar aðstoðar. Af atvikum þessa máls verður engan veginn ráðið að lagareglur þær sem máli skipti við úrlausn málsins brjóti í bága við ákvæði um mannréttindavernd.

Hin kærða ákvörðun var reist á svohljóðandi 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga 134/2009:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Kærandi lét Vinnumálastofnun ekki vita af því fyrirfram að hún myndi dvelja erlendis. Með því braut hún gegn þeirri skyldu sinni að upplýsa Vinnumálastofnun um þær breytingar sem verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti, sbr. h-lið 1. mgr. 14. gr., 2. mgr. 14. gr. og 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna leiddi brot þetta til þess að kærandi átti ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að liðnum tveimur mánuðum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar var tilkynnt henni.

Með hliðsjón af framanrituðu og þeim rökum, sem Vinnumálastofnun hefur fært fram í málinu, verður hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. júní 2010, sbr. ákvörðun stofnunarinnar frá 20. ágúst 2010, í máli A um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði, er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta