Hoppa yfir valmynd

Nr. 202/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. maí 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 202/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040023

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. apríl 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. mars 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn hennar um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, en til vara með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 30. desember 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, hinn 6. janúar 2022, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Rúmeníu. Hinn 13. janúar 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Rúmeníu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá rúmenskum yfirvöldum, dags. 3. febrúar 2022, kom fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi hinn 28. apríl 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. hinn 10. febrúar 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað hinn 23. mars 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda hinn 29. mars 2022 og kærði kærandi ákvörðunina hinn 12. apríl 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 26. apríl 2022, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn hinn 27. apríl 2022.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Rúmeníu. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Rúmeníu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Rúmeníu.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að sérstakar ástæður séu uppi í máli hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að ekki hafi verið unnið heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar í viðtökuríki, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, með hliðsjón af því að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu þar sem hún sé barnshafandi og þolandi líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis í heimaríki. Þá hafi kærandi orðið fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi í Rúmeníu og óttist um líf sitt og heilbrigði væntanlegs barns síns verði hún send þangað aftur.

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og ákvörðunar Útlendingastofnunar hvað almennar aðstæður flóttamanna í Rúmeníu varðar. Kærandi vísar til þess að kerfisbundnar hindranir geri það að verkum að flóttamönnum sé ógerlegt að nýta sér þau úrræði sem í boði séu í Rúmeníu. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki skoðað breyttar aðstæður í Rúmeníu í kjölfar innrásar Rússlandshers í Úkraínu og gífurlegs flóttamannastraums til Rúmeníu. Nýjustu upplýsingar beri með sér að gríðarleg fjölgun flóttamanna frá Úkraínu til Rúmeníu hafi sett rúmenska velferðarkerfið á hliðina með þeim afleiðingum að Evrópusambandið hafi þurft að senda fjölda starfsmanna til að aðstoða rúmensk stjórnvöld. Þá vísar kærandi til þess að flóttafólk frá Afríku, Asíu og Mið-Austurlöndum sæti mismunun í Rúmeníu.

Kærandi fjallar um 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram grundvallarreglan um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til þess að ekkert í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar beri með sér að stofnunin hafi skoðað aðstæður í Rúmeníu eins og þær séu í dag, tekið tillit til breytinga og áhrifa flóttamannastraums frá Úkraínu, einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda eða upplýsinga um að stofnunin hafi haft samband við rúmensk stjórnvöld til að tryggja að tekið verði við kæranda og barni hennar og þeim veitt nauðsynleg, viðeigandi þjónusta og aðstoð í Rúmeníu. Kærandi vísar til þess að horfa þurfi til aðstæðna sem hún hafi mátt þola og muni bíða hennar verði henni gert að snúa til baka til Rúmeníu sem einstæð móðir. Þá hafi sjálfsmatslisti sem lagður var fyrir kæranda borið með sér að hún sé með einkenni alvarlegrar áfallastreitu. Kærandi telur að einstaklingsbundnar aðstæður hennar og fyrirliggjandi upplýsingar um aðstæður flóttamanna í Rúmeníu hafi ekki verið kannaðar nægjanlega vel og því hafi Útlendingastofnun brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi telur að ekkert biði hennar í Rúmeníu annað en stöðugur ótti um eigið líf og barnsins sem hún gangi með og því skuli taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en til vara með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]sem er stödd einsömul hér á landi. Kærandi hafi greint frá því að hafa yfirgefið heimaríki þar sem faðir hennar hafi viljað að hún myndi giftast manni systur sinnar. Kærandi hafi greint frá því að faðir hennar myndi drepa hana myndi hún snúa aftur til heimaríkis. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Rúmeníu hinn 15. mars 2021 en dvalið þar í þrjá til fjóra mánuði þar til hún hafi farið til […] og kynnst núverandi eiginmanni sínum þar í landi sem sé einnig palestínskur ríkisborgari. Kærandi hafi svo lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 30. desember 2021. Kærandi hafi greint frá því að óttast tvo frændur sína úr föðurætt sem búsettir séu í Rúmeníu og af þeim sökum hafi hún yfirgefið landið. Þá hafi kærandi greint frá því að hafa ekki viljað búa í flóttamannabúðum og því hafi hún fengið að búa með vinkonu sinni í herbergi. Kærandi hafi hvorki haft aðgang að framfærslu né heilbrigðiskerfinu. Þá hafi kærandi haft atvinnuleyfi í Rúmeníu en yfirgefið landið fljótlega svo hún hafi ekki leitað að atvinnu. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi sé barnshafandi. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í heimaríki.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Rúmeníu hinn 28. apríl 2021. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir gildistími dvalarleyfis kæranda í Rúmeníu en samkvæmt eftirfarandi skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér eru dvalarleyfi til einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns veitt til þriggja ára. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Rúmeníu virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Rúmeníu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Rúmeníu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Romania (United States Department of State, 12. apríl 2022);

  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Asylum Information Database, Country Report: Romania (European Council on Refugees and Exiles, 30. apríl 2021);
  • Concluding observations on the fifth periodic report of Romania (United Nations Human Rights Committee, 11. desember 2017);
  • Freedom in the World 2021 – Romania (Freedom House, 13. apríl 2021);
  • Human Rights in Europe – Review of 2019 (Amnesty International, 16. apríl 2020);
  • Stjórnarskrá Rúmeníu (https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ro/ro021en.pdf, sótt 25. maí 2022);
  • UNHCR Submission on Romania: 29th UPR session (United Nations High Commissioner for Refugees, janúar 2018);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 25. maí 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 25. maí 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu eftirlitsstofnunar útlendingamála í Rúmeníu (http://www.igi.mai.gov.ro, sótt 25. maí 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu Evrópusambandsins (http://www.reopen.europa.eu/, sótt 25. maí 2022) og
  • Upplýsingasíða Heilbrigðisstofnunar Rúmeníu (http://www.cnscbt.ro, sótt 25. maí 2022).

Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) kemur fram að einstaklingar sem hljóti réttarstöðu flóttamanns í Rúmeníu fái útgefið dvalaleyfi í landinu til þriggja ára. Þeir einstaklingar sem hljóti viðbótarvernd fái útgefið dvalaleyfi til tveggja ára. Ábyrgð á útgáfu dvalarleyfa liggi hjá útlendingayfirvöldum en til þess að fá útgefið dvalarleyfi, í formi skírteinis, þurfi einstaklingar að sýna fram á löglegt heimilisfang í landinu. Þrátt fyrir að það eigi ekki að vera erfiðleikum bundið að fá útgefið dvalarleyfi hefur fulltrúi kirkjufélagsins AIDRom lýst áhyggjum yfir að einstaklingar eigi í erfiðleikum með að fá útgefna leigusamninga sem uppfylli skilyrði yfirvalda. Leigusalar vilji ekki lýsa því yfir við yfirvöld að þeir leigi út húsnæði sitt. Áður en fyrrgreind þrjú eða tvö ár líða geti handhafar alþjóðlegrar verndar fyllt út beiðni og endurnýjað dvalarleyfi sitt.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE geta handhafar alþjóðlegrar verndar sótt um aðstoð hjá útlendingayfirvöldum við aðlögun að samfélaginu í Rúmeníu. Sækja verður um slíka aðstoð innan þriggja mánaða frá því að alþjóðleg vernd var veitt. Þátttaka handhafa alþjóðlegrar verndar í aðlögunarferli á vegum yfirvalda skipti sköpum varðandi aðgengi þeirra að húsnæðisaðstoð og félagslegri þjónustu. Það sem boðið sé upp á í aðlögunarferlinu geti samanstaðið af ráðgjöf, fræðslu um rúmenskt samfélag og tungumálakennslu. Til viðbótar við fyrrgreint aðlögunarferli hafi ýmis verkefni verið sett á laggirnar, sem aðgengileg séu víðsvegar um Rúmeníu, í þeim tilgangi að auðvelda handhöfum alþjóðlegrar verndar og öðrum innflytjendum aðlögun að rúmensku samfélagi. Þá kemur fram í skýrslu ECRE að ákveðnir hópar s.s. fylgdarlaus börn, einstaklingar sem glími við fötlun, einstæðir foreldrar með ung börn og ófrískar konur eigi rétt á fjárhagslegum stuðningi og séu undanskildar reglum um umsókn að aðlögunarferli til að geta hlotið aðstoð yfirvalda.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar geti dvalið áfram í móttökumiðstöðvum á vegum rúmenskra yfirvalda í allt að 12 mánuði frá veitingu alþjóðlegrar verndar. Þetta er þó með þeim skilyrðum að einstaklingar nýti sér úrræði rúmenskra yfirvalda um aðlögun og þeir hafi ekki næg fjárráð til þess að verða sér úti um húsnæði sjálfir. Samkvæmt rúmenskum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegs húsnæðis og rúmenskir ríkisborgarar. Staðan sé samt sem áður sú að skortur sé á félagslegu húsnæði og biðlistar eftir húsnæði geti verið langir. Ef rúmensk yfirvöld geta ekki útvegað félagslegt húsnæði eiga handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á að leigja húsnæði með fjárhagsstuðningi sem nemur helmingi af leiguverði þar til félagslegt húsnæði finnst, en þetta úrræði gildi að hámarki í eitt ár. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE hafa handhafar alþjóðlegrar verndar sama aðgang að atvinnumarkaði landsins og ríkisborgarar þess. Aðgangur að atvinnumarkaði geti þó verið háður efnahagslegum aðstæðum í hverri borg eða á hverju svæði fyrir sig. Þá geti reynst erfitt að finna atvinnu vegna tungumálaerfiðleika og í einhverjum tilfellum vegna vöntunar á prófskírteinum. Jafnframt eigi þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og geta ekki framfleytt sér sjálfir rétt á fjárhagslegum stuðningi frá rúmenskum yfirvöldum í allt að 12 mánuði. Til þess að eiga rétt á fjárhagslegum stuðningi þurfi einstaklingar að hafa skráð sig í fyrrgreint aðlögunarferli hjá rúmenskum yfirvöldum.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu sambærilegan rétt til heilbrigðisþjónustu og rúmenskir ríkisborgarar. Þá eigi einstaklingar sem glími við geðræn vandamál, þ. á m. þolendur pyndinga og einstaklingar sem hafi orðið fyrir sálrænum áföllum, rétt á meðferðarúrræðum á sama grundvelli og ríkisborgarar landsins. Vandamál hafa komið upp vegna vanþekkingar einstaklinga á sjúkratryggingakerfinu og hafa frjáls félagasamtök gegnt lykilhlutverki í að aðstoða handhafa alþjóðlegrar verndar með því að upplýsa þá um réttindi þeirra.

Í skýrslu ECRE kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Rúmeníu eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur rúmensk börn. Þá geta handhafar alþjóðlegrar verndar sótt um sérstaka ungbarnaleikskóla fyrir börn sín til þriggja ára aldurs auk þess sem börn á aldrinum þriggja til sex ára geti sótt leikskóla. Aðgangur að menntun sé ókeypis og skilyrðislaus.

Samkvæmt stjórnarskrá Rúmeníu skulu allir einstaklingar vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynþáttar, þjóðernis, tungumáls, trúar, kyns, stjórnmálaskoðana eða stöðu að öðru leyti. Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna fyrir árið 2021 kemur fram að ofbeldi gegn konum þ. á m. heimilisofbeldi sé vandamál í Rúmeníu en ekki hafi verið tekið á slíkum brotum á nægilega skilvirkan hátt. Jafnframt kemur fram að samkvæmt rúmenskum lögum skuli jafnrétti kynjanna vera tryggt. Konur hafi þó upplifað mismunun á ýmsum sviðum m.a. á atvinnumarkaði, húsnæðismarkaði og í menntakerfinu. Samkvæmt rúmenskum lögum er mismunun á grundvelli þjóðernis refsiverð. Þá kemur fram að hjálparsamtök og fjölmiðlar hafi greint frá tilvikum þar sem flótta- og farandfólk í Rúmeníu hafi sætt áreiti og verið þolendur glæpa. Ekki hafi öll slík atvik verið tilkynnt sökum ótta þolenda, skorts á upplýsingum og ófullnægjandi stuðningsþjónustu. Þá hafi hjálparsamtök greint frá ofbeldi á hendur flóttafólki af hálfu lögreglu, m.a. óhóflegu valdi. Rúmensk yfirvöld hafi unnið með Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og öðrum hjálparsamtökum við að aðstoða og vernda flóttamenn, umsækjendur um alþjóðlega vernd, ríkisfangslausa einstaklinga og aðra einstaklinga sem mögulega þarfnast alþjóðlegrar verndar.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Í komunótu frá bráðadeild Landspítala, dags. 16. janúar 2022, kemur fram að kærandi hafi komið með sjúkrabíl vegna kviðverkja og uppkasta. Kærandi hafi farið í ómskoðun á botnlanga sem hafi ekki leitt í ljós neitt óeðlilegt. Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 14. febrúar 2022, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð og sé barnshafandi. Kærandi hafi greint frá því að hafa upplifað fósturlát á síðasta ári og hafi óskað eftir tíma hjá sálfræðingi. Þá greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í heimaríki auk þess sem atburðir í heimaríki hefðu haft áhrif á andlega heilsu hennar. Í komunótu frá fósturgreiningardeild Landspítala, dags. 18. febrúar 2022, kemur fram að 20 vikna ómun á fóstri hafi verið eðlileg.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, hinn 10. febrúar 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 12. apríl 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar dagana 26. og 27. apríl 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Rúmeníu verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Rúmeníu að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, og ríkisborgarar Rúmeníu, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hennar í Rúmeníu hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu. Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi eigi rétt á framfærslu í 12 mánuði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en þau eru m.a. að sækja þurfi um svokallað aðlögunarferli hjá rúmenskum útlendingayfirvöldum innan þriggja mánaða frá því að alþjóðleg vernd var veitt. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir hvort kærandi hafi sótt um aðlögunarferlið meðan á dvöl hennar stóð í Rúmeníu. Þá bera framangreindar skýrslur með sér að ákveðnir hópar s.s. fylgdarlaus börn, einstaklingar sem glími við fötlun, einstæðir foreldrar með ung börn og ófrískar konur eigi rétt á fjárhagslegum stuðningi og séu undanskildar reglum um umsókn að aðlögunarferli til að geta hlotið aðstoð yfirvalda. Jafnframt bera framangreindar skýrslur og gögn um aðstæður í Rúmeníu með sér að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þótt skýrslur um aðstæður í Rúmeníu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Rúmeníu.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún hafi orðið fyrir fordómum og áreiti í Rúmeníu. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga tvo frændur í Rúmeníu sem hún óttist að geri sér mein. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir áreiti í Rúmeníu. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár rúmenskra yfirvalda verði hún fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Rúmeníu geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hinn 10. febrúar 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hún hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína hinn 30. desember 2021.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum í Rúmeníu. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki skoðað breyttar aðstæður í Rúmeníu í kjölfar innrásar Rússlandshers í Úkraínu og fjölgunar flóttamanna þar í landi. Kærunefnd telur að þrátt fyrir að flóttamönnum hafi fjölgað í Rúmeníu í kjölfar stríðsins í Úkraínu sé ekki hægt að jafna aðstæðum þar í landi við aðstæður í Póllandi, en Pólland hefur tekið við stærstum hluta flóttafólks frá Úkraínu. Þá hefur kærandi hlotið alþjóðlega vernd í Rúmeníu og þarf því ekki að reiða sig á að fá afgreiðslu á umsókn sinni þar í landi. Er það því mat kærunefndar að kærandi geti sótt sér þá aðstoð sem hún eigi á lögum rétt á og þurfi á að halda í Rúmeníu. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Í ljósi framangreinds fellst kærunefnd ekki á kröfu kæranda um að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands hinn 30. desember 2021 og sótti um alþjóðlega vernd hinn sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð

:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta