Mál nr. 90/2023 Úrskurður 2. október 2023
Mál nr. 90/2023 Eiginnafn: Cara (kvk.)
Hinn 2. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 90/2023 en erindið barst nefndinni 11. september.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Cara (kvk.) er ritháttarafbrigði nafnsins Kara, sem er á mannanafnaskrá. Það telst uppfylla skilyrði 5. gr. laganna að öðru leyti en því að það er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c er ekki í íslenska stafrófinu. Þess vegna er aðeins hægt að samþykkja þennan rithátt nafnsins að hefð sé fyrir honum.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera fjórir einstaklingar nafnið Cara í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sá elsti er fæddur árið 1981. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703 til 1920. Telst því ekki hefð fyrir þessum rithætti nafnsins.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Cara (kvk.) er hafnað.