Mál nr. 32/2017 Úrskurður 22. júní 2017
Mál nr. 32/2017 Eiginnafn: Ava
Hinn 22. júní 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 32/2017 en erindið barst nefndinni 12. júní.
Eiginnafnið Ava (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Övu og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ava (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.