Hoppa yfir valmynd

Nr. 386/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 386/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19050042 og KNU19050041

Kæra [...],

[...]

og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. maí 2019 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 6. maí 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barns þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 1. og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. október 2018. Þar sem kærendur höfðu fengið útgefna vegabréfsáritun hjá frönskum stjórnvöldum var þann 25. október 2018 beiðni um viðtöku kærenda og umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 13. desember 2018, samþykktu þau viðtöku kærenda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 6. maí 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 7. maí 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 21. maí 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 28. maí 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að frönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknirnar yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir þeirra til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Frakklands.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra hans, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, útlendingalaga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hans væri best borgið með því að fylgja foreldrum sínum til Frakklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi, í viðtali hjá Útlendingastofnun, lýst miklum ótta við að verða send til Frakklands. Frönsk yfirvöld nái ekki að sinna öllum þeim fjölda sem sæki þar um alþjóðlega vernd, m.a. fái ekki allir húsnæði og séu því sumir á götunni. Þá búi margir [...] í Frakklandi og óttist kærendur að meðal þeirra geti verið einhverjir sem tengist þeim aðilum sem kærendur séu að flýja. Þá hafi kærendur greint frá því að þeim líði betur eftir að hafa komið til Íslands, K hafi verið veik [...] en fengið góða meðferð á Íslandi. M hafi þá lýst áhyggjum sínum af andlegri heilsu sinni og K.

Kærendur gera athugasemd við umfjöllun um húsnæðismál í Frakklandi í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærendur vísa til heimilda þess efnis að minnihluti umsækjenda þar í landi fái úthlutað húsnæði og í mörgum borgum landsins séu dæmi um að umsækjendur þurfi að leita í athvörf fyrir heimilislausa eða sofa á götunni. Ástandið leiði til þess að tjaldbúðir spretta víða upp, einkum í París, en frönsk stjórnvöld hafi farið í aðgerðir til að uppræta þær. Kærendur vísa þá til þess að samkvæmt frönskum mannúðarsamtökum hafi færst í aukana að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu hnepptir í varðhald, þ. á m. barnafjölskyldur. Kærendur gera jafnframt athugasemd við þá staðhæfingu í hinni kærðu ákvörðun að ekkert bendi til annars en að kærendur muni fá vandaða og efnislega meðferð verði þeim snúið tilbaka til Frakklands, þ. á m. að þeim verði ekki vísað á brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Vísa kærendur í því sambandi til þess að mikill meirihluti umsækjenda frá [...] fái synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Frakklandi. Sökum náinna tengsla ríkjanna tveggja óttist kærendur að frönsk yfirvöld taki ekki tillit til aðstæðna í [...], en kærendur hafi lýst afar slæmum aðstæðum í heimaríki sínu.

Krafa kærenda er reist á því að sérstakar ástæður standi til þess að taka skuli mál þeirra til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Við túlkun ákvæðisins vísa til lagaáskilnaðarreglu stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrárinnar, sem og til lögmætisreglunnar í þessu sambandi, og lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Telji kærendur að stjórnvöld hér á landi hafi í of ríkum mæli horft til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd til að fá mál sín tekin til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Lögskýringargögn bendi til þess að íslenskum stjórnvöldum hafi ávallt verið eftirlátið mat á sérstökum ástæðum og hafi haft heimild til þess að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum, m.a. reglum mannréttindasáttmála Evrópu. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, hafni kærendur því að við mat á sérstökum ástæðum skuli sjónarmið um skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu Dyflinnarsamstarfsins hafa nokkurt vægi.

Krafa kærenda er reist á hagsmunum A og vísa kærendur til þess að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur sé hér á landi. Þá vísa kærendur til 1. mgr. 22. gr. samningsins síðastnefnda sem kveði á um að yfirvöldum beri skylda til þess að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra forráðamanna eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem það á skv. samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- eða mannúðarmála. Kærendur vísa þá jafnframt til nánar tilgreindra ákvæða laga um útlendinga um að hagsmunir barna skuli hafðir að leiðarljósi við ákvarðanir í málefnum þess, auk ákvæða tilskipana Evrópusambandsins og Dyflinnarreglugerðarinnar sama efnis. Kærendur telji líkur á því að fjölskyldan verði heimilislaus í Frakklandi auk þess sem miklar líkur séu á að þeim verði gert að snúa aftur þaðan til heimaríkis, líkt og áður er rakið. Það sé því A fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál fjölskyldunnar til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og veiti henni alþjóðlega vernd hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, m.a. viðtöl við K og M, þ. á m. varðandi A. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsóknum kærenda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærendur hafi fengið útgefnar vegabréfsáritanir af þarlendum stjórnvöldum. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kærendum, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Kærendur eru hjón á fertugsaldri. Í þjónustuviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 24. október 2018, upplýsti K [...]. Samkvæmt gögnum málsins [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst M vera við góða líkamlega heilsu. Hvað varðar andlega heilsu sína kvað M sig hafa glímt við svefnerfiðleika, auk þess sem hann hafi glímt við streitu og kvíða. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvað K sér líða vel líkamlega [...] auk þess sem hún kvað andlegt heilsufar sitt vera gott.

Samkvæmt framansögðu er sonur kærenda [...] en bæði M og K hafa lýst heilsufari hans sem mjög góðu. Það er mat kærunefndar að gögn málanna, þ. á m. viðtöl kærenda hjá Útlendingastofnun, beri ekki með sér að aðstæður kærenda séu slíkar að þau teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2017 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 13. júní 2018),
  • Applying for asylum í France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 18. apríl 2019),
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 20. mars 2019),
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 12. september 2017),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2018 – France (Freedom House, 28. maí 2018),
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína. Þegar umsókn hefur verið lögð fram geta þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skal leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geta einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veita lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð er í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina, en það geti þó verið vandkvæðum bundið að fá túlkaþjónustu þegar um sjaldgæf tungumál er að ræða.

Í skýrslu Asylum Information Database frá 20. mars 2019 kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum miðstöðvum. Þeir sem eru endursendir til Frakklands geta leitað til móttökumiðstöðvanna AT-SA (f. Accueil temporaire – serivce de l‘asile), PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile), CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Árið 2017 var einnig komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geta verið á meðan beðið er eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hefur þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fá úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fá gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildir í eitt ár, en slíkt vottorð gerir umsækjendum m.a. kleift að stofnað bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður hefur komið fram.

Þá kemur fram í skýrslu Asylum Information Database að fjölskyldur og einstæðir foreldrar með börn njóti forgangs þegar kemur að úthlutun á húsnæði og margar móttökumiðstöðvar eru sérstaklega skipulagðar til að taka á móti fjölskyldum. Að öllu jöfnu eru fjölskyldur vistaðar saman í húsnæði á meðan umsókn þeirra um alþjóðlega vernd er til meðferðar. Sé nauðsynlegt að vista fjölskyldur í neyðarskýli eru herbergi kynjanna þó stundum aðskilin.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum, þ. á m. [...]. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Á grundvelli PUMA eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum kemur þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tala frönsku þjónustu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi sama rétt og frönsk börn til endurgjaldslausrar menntunar til 16 ára aldurs. Þrátt fyrir þetta eru hindranir í framkvæmd, svo sem skortur á frönskukunnáttu barnanna, auk þess sem erfitt getur reynst að koma börnum í skóla sem e.t.v. hafa ekki sótt skóla áður vegna aðstæðna. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að börn sem ekki eru frönskumælandi taki próf sem metur þörf þeirra fyrir sérhæfðari kennslu sem undirbýr þau til þess að geta hlotið menntun við hæfi.

Framangreindar skýrslur bera þá með sér að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald í Frakklandi en einungis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. ef þeir hafa fengið synjun á umsókn sinni og talin sé hætta á að þeir muni koma sér undan brottvísun. Fjölskyldur með börn eru almennt ekki settar í varðhald nema í undantekningartilfellum og er frekar leitað vægari leiða að sama markmiði, t.d. með gæslu í heimahúsi (e. house arrest). Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Barnafjölskyldur eru almennt ekki settar í varðhald í Frakklandi nema í undantekningartilfellum og aðeins þegar önnur úrræði eru ekki talin fullnægjandi, eins og áður hefur komið fram. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í Frakklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð franskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar benda gögn málsins, þ.m.t. tölfræði sem kærendur hafa vísað til, ekki til þess að umsækjendum frá [...] sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Frakklandi eða þeir endursendir þangað án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Að mati kærunefndar gefa gögn málanna, þ. á m. þær skýrslur sem áður hefur verið vísað til, ekki til kynna að endursending kærenda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kærenda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kærenda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málunum. Svo sem áður hefur komið fram þá [...]. Af gögnum málanna verður ekki annað ráðið en að heilsufar A sé með ágætum [...]. Það er mat kærunefndar að gögn málanna bendi ekki til þess að heilsufar kærenda, þ. á m. A, sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður þeirra að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Frakklandi eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum, þ. á m. [...] og geðheilbrigðisþjónustu.

Að mati kærunefndar bera gögn málanna þá ekki með sér að kærendur, sem eru frönskumælandi, muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærendur geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum verður þá ráðið að óttist kærendur um öryggi sitt þar í landi geti þau leita ásjár franskra yfirvalda vegna þess.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Frakklandi vistaðar saman og njóta þær forgangs við úthlutun gistirýma. Þá verður jafnframt ráðið af framangreindum skýrslum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Frakklands samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda það til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kærenda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. apríl 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 18. október 2018.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands þann 17. október 2018. Þau sóttu sóttu um alþjóðlega vernd þann 18. október 2018. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur skulu flutt til Frakklands innan tilskilins frests, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Anna Tryggvadóttir                                                                       Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta