Mál nr. 51/2014, úrskurður 30. júlí 2014
Mál nr. 51/2014
Eiginnafn: Ermenrekur
Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2014 en erindið barst nefndinni 28. júní:
Eiginnafnið Ermenrekur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ermenreks, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ermenrekur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.