Hoppa yfir valmynd

Nr. 533/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 12. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 533/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030079

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Málsatvik, kröfur og kröfuheimild

Kærandi, er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks, sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 12. september 2020. Hinn 20. september 2020 sótti eiginkona kæranda, er kveðst heita [...] og vera fædd [...], og börn þeirra, [...], fd. [...], [...], f.d. [...], og [...], f.d. [...], öll ríkisborgarar Íraks, einnig um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi og eiginkona hans komu í viðtal hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 1.-3 desember 2020. Með ákvörðunum, dags. 4. mars 2021, synjaði Útlendingastofnun kæranda, eiginkonu hans og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála hinn 24. mars 2021. Kærunefnd barst greinargerð frá kæranda og eiginkonu hans hinn 8. apríl 2021 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd upplýsingar og gögn frá þeim hinn 6. og 18. maí 2021.

Hinn 3. júní 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála fyrrnefndar ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja kæranda, eiginkonu hans og börnum þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Hinn [...] lögðu kærandi og eiginkona hans fram stefnu í Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur íslenska ríkinu til ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála frá 3. júní 2021. Með úrskurði, dags. 15. september 2021, afturkallaði kærunefnd úrskurð nefndarinnar frá 3. júní 2021 vegna annmarka og tilkynnti kæranda og eiginkonu hans að nýr úrskurður yrði kveðinn upp í máli þeirra.

Í ljósi framkomins viðbótargagns, dags. 20. september 2021, um breyttar aðstæður kæranda og eiginkonu hans voru mál þeirra aðskilin hjá kærunefnd. Kæranda var tilkynnt um það og kemur fram í tölvubréfi til kærunefndar, dags. 6. október 2021, að hann geri engar athugasemdir við það fyrirkomulag. Kærandi telji ekki þörf á að skila sérstakri greinargerð vegna aðskilnaðar þeirra hjóna og vísi til fyrirliggjandi gagna og greinargerða varðandi málsástæður og rökstuðning fyrir kröfum sínum.

Í greinargerð til kærunefndar, dags. 9. apríl 2021, kemur fram að kærandi krefjist þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 74. gr. laga um útlendinga. Að lokum krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði send aftur til Útlendingastofnunar til nýrrar meðferðar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. mars 2021, kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna trúarbragða sinna, Al-Murshidyah, sem Mahdi vígasveitin hafi að skotmarki. Þá hafi kærandi kært vígasveitirnar til lögreglu árið 2015 og sé hann í hættu vegna þess.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð til kærunefndar, dags. 9. apríl 2021, kemur fram að kærandi og fjölskylda hans hafi flúið frá Bagdad, Írak, árið 2017 vegna trúarofsókna sem þau hafi orðið fyrir, en þau tilheyri minnihlutahópi þeirra sem aðhyllist Murshidis trúarbrögðin í Írak. Kærandi hafi orðið fyrir alvarlegri árás og ítrekuðum hótunum af hálfu Mahdi vígahópsins. Þá hafi faðir hans, bróðir og frændi allir verið drepnir í Írak vegna trúarbragða þeirra. Kærandi hafi, þrátt fyrir viðvaranir, talið öruggt að leggja fram kæru á hendur Mahdi vígahópsins til lögreglunnar í Írak árið 2015. Það hafi þó aðeins leitt til þess að honum hafi verið hótað, rænt og haldið nauðugum í tvo daga. Hafi hann verið beittur grófu ofbeldi og skilinn eftir úti á götu nær dauða en lífi. Það hafi tekið kæranda langan tíma að jafna sig eftir þetta og hafi liðið 18 mánuðir þar til hann hafi getað gengið á nýjan leik óstuddur og hafið störf að nýju. Þegar kærandi og fjölskylda hans hafi fengið frekari hótanir árið 2017 hafi þau ákveðið að flýja Írak. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli trúarbragða og ekki hafa getað iðkað trú sína opinberlega í heimaríki. Auðvelt sé að bera kennsl á hann vegna eftirnafns hans og óttist hann Mahdi vígahópinn sem og aðra herskáa sjíta og súnníta í Írak.

Fram kemur að kærandi geri ýmsar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar, þ. á m. við afmörkun málsástæðna og einföldun á frásögn hans. Kærandi telji að heimildir styðji við frásögn hans um ofsóknir af hálfu vígahópa og sé það því ekki ótrúverðugt, líkt og haldið sé fram í hinni kærðu ákvörðun, að vígahópar Mahdi hafi ofsótt kæranda og fjölskyldu hans. Þá gerir kærandi athugasemd við að ekki hafi verið tekið tillit til trúverðugra frásagna hans um að hann aðhyllist Murshidis trúarbrögðin. Þó að ekki sé hægt að finna heimildir um að trúarbrögðin finnist í Írak verði hann að njóta vafans varðandi þann þátt frásagnar hans, enda sé engin önnur trúverðug skýring á þeim ofsóknum sem hann hafi orðið fyrir.

Aðalkrafa kæranda um að honum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er byggð á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki á grundvelli trúarbragða, sbr. ákvæði b-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji ljóst að ofsóknir á grundvelli trúarbragða séu alvarlegt vandamál í Írak og hafi verið í langan tíma. Kærandi sé neyddur til að fagna trúarhátíð sinni í felum og skrá sig sem múslima. Þá hafi hann orðið fyrir fordómum, margþættri mismunun og alvarlegum ofsóknum vegna trúar sinnar. Kærandi hafi lagt fram trúverðug gögn um árás sem hann hafi orðið fyrir og sýni heilbrigðisgögn í málinu fram á að hann glími enn við alvarlegar afleiðingar í kjölfar þess. Þá geti kærandi ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda, enda séu þau fullkomlega ófær um að veita íbúum landsins vernd gegn ofsóknum herskárra trúarofsatækismanna, sbr. b- og c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi m.a. til framlagðra gagna í málinu og skýrslna alþjóðlegra stofnana um trúmál og ofsóknir í garð trúarlegra minnihlutahópa í Írak. Kærandi telji að með því að senda hann til Íraks yrði brotið gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, 3. gr. samnings gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki vegna trúarbragða hans. Þá eigi hann á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar í landi þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Í því sambandi vísar kærandi m.a. til þess að Útlendingastofnun hafi, með ákvörðunum dags. 23. nóvember 2020, komist að þeirri niðurstöðu að fjölskylda frá Bagdad ætti rétt á viðbótarvernd þar sem líkur væru á því að þeim gæti stafað ógn af tilviljunarkenndu ofbeldi þar í borg. Umræddar ákvarðanir hafi verið birtar fjórum dögum áður en kærandi mætti til viðtala hjá stofnuninni og hafi hann því haft réttmætar væntingar um að framkvæmd stofnunarinnar stæði óhögguð. Kærandi hafi ekki verið beðinn um að skila greinargerð og hafi hann því ekki fengið veður af því fyrr en mánuði eftir að þau mættu til viðtala að Útlendingastofnun hygðist endurskoða mat sitt á aðstæðum í Bagdad, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun hafi víðtækan rétt til að breyta framkvæmd sinni en stofnunin sé bundin af ákveðnum meginreglum við slíka breytingu, s.s. réttmætum væntingum. Kærunefnd útlendingamála sé bundin sömu meginreglum og beri að tryggja að umsækjendur um alþjóðlega vernd njóti jafnræðis við úrlausn umsókna þeirra, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Útlendingastofnun hafi ekki vísað til heimilda til stuðnings breyttri framkvæmd og gefi engar nýjar heimildir tilefni til þess að mat stofnunarinnar á aðstæðum í Bagdad hefði átt að taka breytingum.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Krafan byggist í fyrsta lagi á því að kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd af heilbrigðisaðstæðum. Ítarleg heilbrigðisgögn liggi fyrir hvað varðar líkamlegar- og andlegar afleiðingar ofsókna sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Í þessu sambandi telur kærandi að taka þurfi sérstakt tillit til ástands mála í Írak vegna Covid-19. Krafan byggist auk þess á því að kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra almennra aðstæðna í Írak. Mannréttindabrot séu viðvarandi í Írak og þarlend yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem væru til þess fallin að sanna á honum á deili og leysti stofnunin því úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Að mati Útlendingastofnunar þótti, m.a. að teknu tilliti til niðurstaðna tungumála- og staðháttarprófa, ekki ástæða til að vefengja að kærandi væri frá Bagdad í Írak. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að draga í efa það mat Útlendingastofnunar og er því lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Íraks. Að öðru leyti er auðkenni hans óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 30. mars 2021);
  • 2020 Report on International Religious Freedom - Iraq (U.S. Department of State, 12. maí 2021);
  • Annual Report of the U.S. Commission on International Religious Freedom. 2021 (U.S. Commission on International Religious Freedom, USCIRF, apríl 2021);
  • Country Fact Sheet. Iraq. (IOM, UN Migration, 2019);
  • Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Asylum Support Office, janúar 2021);
  • Country of Origin Information Report - Iraq - Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Country of Origin Information Report - Iraq: Internal Mobility (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Country of Origin Information Report - Iraq: Key socio-economic indicators for Baghdad, Basra and Erbil (European Asylum Support Office, september 2020);
  • Country of Origin Information Report - Iraq - Security situation (EASO, 1. mars 2019);
  • Country of Origin Information Report - Iraq: The Protest Movement and Treatment of Protesters and Activists (European Asylum Support Office, október 2020);
  • Country of Origin Information Report - Iraq - Security Situation (EASO, Október 2020);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Policy and Information Note - Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, 19. febrúar 2019);
  • Country Policy and Information Note - Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, maí 2020);
  • Country Policy and Information Note - Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
  • Country Policy and Information Note - Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
  • DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 17. ágúst 2020);
  • Education in Iraq. Impact of Covid-19, protests, and pre-existing crises on needs (Acaps, nóvember 2020);
  • Factsheet on the EU Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST LEX-Iraq) (European Union External Action Service, EEAS, janúar 2014);
  • Freedom in the World 2021 - Iraq (Freedom House, 3. mars 2021);
  • Human Rights Violations and Abuses in the Context of Demonstrations in Iraq, October 2019 to April 2020 (UNAMI og OHCHR, ágúst 2020);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNCHR, maí 2019);
  • Iraq: Apostasi og ateisme (Landinfo, 29. ágúst 2018);
  • Irak: Basisinfo (Landinfo, 28. september 2018);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA) (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Iraq - Targeting of Individuals (EASO, 7. mars 2019);
  • Mahdi Army (Stanford, Center for International Security and Cooperation, síðast uppfært maí 2019);
  • Murshidis (Murshidiyya), including their treatment, particularly in the city of Latakia (Immigration and Refugee Board of Canada, 22. apríl 2016);
  • Respons – Irak: Målretteda angrep på deminstranter, journalister og andre kritikere (Landinfo, 27. ágúst 2021);
  • Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);
  • Temanotat-Irak- Ekteskap og skilsmisse (inkludert KRI) (Landinfo, 25. mars 2021);
  • Thematic report: The Security Situation in Iraq July 2016-November 2017 (version 4.0) (Migrationsverket, 18. desember 2017);
  • UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016);
  • The Murshidis of Syria: A Short Overview of their History and Beliefs (The Muslim World, janúar 2013);
  • The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 2. nóvember 2021);
  • World Report 2021 – Iraq (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • Vefsíða Stanford háskólans – Mapping Militant Organizations. Mahdi Army (http://web.stanford.edu/group/mappingmilitants/cgi-bin/groups/view/57, sótt 18. október 2021) og
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 12. nóvember 2021)

Írak er lýðræðisríki með tæplega 40 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Í skýrslu norsku landaupplýsingastofnunarinnar Landinfo frá janúar 2018 kemur fram að frá árinu 1968 til 2003 hafi Írak verið alræðisríki sem hafi lotið stjórn Ba‘ath-flokksins. Stjórn flokksins hafi verið steypt af stóli í kjölfar innrásar bandaríska hersins og bandamanna þeirra í Írak árið 2003. Frá innrásinni hafi ástandið á mörgum svæðum í Írak verið óstöðugt. Í skýrslu EASO frá nóvember 2018 kemur fram að samtök sem kenna sig við íslamskt ríki (Daesh) hafi hafið uppreisn árið 2014 og náð undir sig stórum landsvæðum. Frá þeim tíma hafi íröksk stjórnvöld, með aðstoð alþjóðasamfélagsins, náð miklum árangri í að ná aftur fullri stjórn yfir ríkinu þótt enn séu lítil svæði í vesturhluta landsins sem uppreisnarmenn hafi á valdi sínu. Þá kemur fram í skýrslu UNHCR frá 2019 að dæmi séu um að hersveitir á vegum yfirvalda hafi framið mannréttindabrot gegn almennum borgurum, þ. á m. ólögmætar aftökur og pyndingar í varðhaldi. Alvarleg mannréttindabrot hafi haft mikil áhrif á almenna borgara á þeim svæðum í Írak sem átökin hafi náð til. Af þeim sökum hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum Íraka frá þeim svæðum þar sem átök geisi og þar sem ástandið sé óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh. Þá sé það mat stofnunarinnar að vegna almenns ástands í Írak, þ.m.t. vegna fjölda þeirra sem hafi þurft að flýja innanlands, sé í miklum meirihluta mála ekki grundvöllur til að líta svo á að Írakar frá þessum svæðum geti notið verndar í öðrum hlutum landsins.

Í skýrslu EASO frá 2019 er fjallað um aukin yfirráð yfirvalda í Írak í kjölfar þess að sigur hafi verið unninn á Daesh. Fram kemur að íröksk yfirvöld geti, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklinga, almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad og í suðurhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 að öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt af írakska hernum, lögreglunni, hersveitum PMF (e. Popular Mobilization Forces) og ýmsum sjía hersveitum.

Í skýrslum EASO frá október 2020 og Landinfo frá 2021 kemur fram að fjölmenn mótmæli hafi brotist út í Bagdad og fáeinum öðrum héröðum Írak hinn 1. október 2019. Mótmælendur hafi m.a. kallað eftir kerfisbundnum breytingum, efnahagsumbótum, samfélagslegu réttlæti, fleiri störfum fyrir ungt fólk og aðgerðum gegn spillingu. Þáverandi forsætisráðherra Íraks, Adel Abdel Mahdi, hafi sagt stöðu sinni lausri hinn 29. nóvember 2019 vegna mótmælanna og hafi tekið um fimm mánuði að mynda nýja ríkisstjórn. Þrátt fyrir að mótmælin hafi, að mestu leyti, farið friðsamlega fram hafi yfirvöld brugðist við með harkalegum og jafnvel banvænum aðgerðum, s.s. notkun táragass og skotvopna gegn mótmælendum. Samkvæmt skýrslu UNAMI og OHCR frá 2020 hafi 487 mótmælendur látið lífið og 7715 hlotið áverka vegna þátttöku þeirra í mótmælunum. Þá hafi fjöldi mótmælenda verið handteknir og hafi hluti þeirra greint frá því að hafa orðið fyrir illri meðferð í haldi. Yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að hafa uppi á aðilum sem hafi horfið í kjölfar mótmælanna en hafi ekki dregið aðila sem hafi gerst sekir um óhóflega og ólöglega notkun valds gegn mótmælendum til ábyrgðar.

Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytis frá árinu 2021 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin nefnist The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2021 um trúfrelsi kemur fram að íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslímar og flestir þeirra séu sjía-múslímar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní-múslímar en um 15% íbúa séu súnní-múslímskir Kúrdar og 24% súnní-múslimískir arabar. Sjía-múslimar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu sjía-múslimar. Íbúar norður- og vesturhluta landsins séu flestir súnní-múslimar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, sabaean-mandean, jasídi og íslam séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 að það hafi verið einstök tilvik í Írak þar sem meðlimir trúarlegra minnihlutahópa hafi verið beittir ofbeldi eða drepnir, þ. á m. í Bagdad, en þau tilvik megi ekki alltaf rekja til trúarbragða viðkomandi. Þá hafi meðlimir trúarlegra minnihlutahópa einnig sætt mismunun, m.a. vegna þess að þeir hafi ekki fylgt samfélagslega viðurkenndum hefðum um hegðun á almannafæri eða klæðaburð.

Í framangreindum gögnum, þ. á m skýrslu kanadíska innflytjenda- og flóttamannaráðsins frá 2016, kemur fram að Murshidis (Murshidiyaa) trúarbrögðin séu sýrlenskur klofningshópur úr alavíta trúarbrögðunum. Einstaklingar sem aðhyllist Murshidis trúarbrögðin líti á sig sem undirhóp innan íslamstrúar en túlkun þeirra á inntaki trúarinnar sé önnur. Þeir séu fylgjendur Salman (Sulayman) al-Marshid, fyrrum alavíta, sem kveðst hafa fengið skilaboð frá guði á þriðja áratugi 20. aldar. Talið sé að allt að 300 þúsund einstaklingar aðhyllist trúarbrögðin og búi þeir flestallir í Sýrlandi, n.t.t. í vesturhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu The Muslim World frá 2013 að frjálslyndi og umburðarlyndi í garð annarra trúarbragða sé í hávegum haft meðal Murshidis trúarhópsins. Meðal annars sé staða Murshidi kvenna almennt góð og geti þær til að mynda gifst karlmönnum sem aðhyllist önnur trúarbrögð.

Í framangreindri skýrslu Center for International Security and Cooperation (CISAC) og vefsíðu Stanford háskólans kemur fram að Mahdi herinn, einnig þekktur sem Jaysh al-Mahdi (JAM), sé sjíta vígahópur undir forystu Mugtada al-Sadr. Yfirlýst markmið hersins, sem hafi verið stofnaður árið 2003, hafi verið að hrekja herafla bandaríska hersins frá Írak og koma á fót sjíta ríkisstjórn í landinu. Á árunum sem fylgdu hafi herstyrkur Mahdi hersins aukist gríðarlega og hafi hann verið álitinn einn hættulegasti vígahópurinn í Írak allt til ársins 2008. Meðlimir Mahdi hersveita hafi verið sakaðir um að beita súnní múslima ofbeldi en al-Sadr hafi staðfastlega neitað því. al-Sadr hafi skipað Mahdi hersveitum að afvopnast árið 2007 og 2008 og hafi ýmsir meðlimir þeirra þá gengið til liðs við aðrar sjía hersveitir, s.s. Asa‘ib Ahl al-Haq. Þá hafi hann breytt áherslum hersveitanna og nafni þeirra í PDB (e. Promised Day Brigades). Eftir að Mosul borg hafi fallið í hendur Daesh í júni 2014 hafi al-Sadr kallað saman það sem eftir var af fyrrum Mahdi hersveitinni og breytt nafni hennar í Friðarsveitina (e. Peace Brigades) eða Saray-al-Salam. Markmið hersveitarinnar hafi í fyrsta lagi verið að hafa sigur á Daesh og í öðru lagi að koma þáverandi forsætisráðherra frá völdum. Eftir að forsætisráðherra hafi látið af störfum hafi hersveitin, í samstarfi við írakska herinn, barist gegn Daesh. Þá hafi stjórnmálaarmur PBS verið virkur í stjórnmálum í landinu og hafi kosningabandalag undir forystu al-Sadr unnið flest sæti á íröksku þingi í kosningunum árið 2018.

Í framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 kemur fram að stjórnarskrá Íraks tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meiri hluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa séu staðsett í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í miklum vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum, einkum í Bagdad og Erbil, að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt.

Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi að öll börn eigi rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Börn sem hafi stundað nám erlendis þurfi að framvísa skólaskírteinum frá þarlendum skólum og fá þau vottuð af menntamálaráðuneyti Íraks til að fá námið metið. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu EASO frá árinu 2020 kemur fram að það séu ýmsar hindranir að aðgengi að menntun fyrir börn á innri flótta og börn sem séu búsett á svæðum sem hafi verið undir stjórn Daesh. Þá hafi lokun skóla vegna Covid-19 faraldursins haft áhrif á aðgengi barna að menntun í Írak.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðsambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Krafa kæranda um að honum verði veitt alþjóðlega vernd er byggð á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki á grundvelli trúarbragða. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir mismunun í heimaríki þar sem hann tilheyri minnihlutahópi um 100 þúsund einstaklinga sem aðhyllist Murshidis (Murshidyya) trúarbrögðin. Þá hafi meðlimir Mahdi hersveita drepið bæði föður og bróður hans vegna þess að þeir aðhylltust trúarbrögðin. Árið 2015 hafi yfirvöld hvatt þegna sína til að tilkynna mannshvörf og morð og hafi kærandi því talið öruggt að leggja fram kæru á hendur leiðtoga Mahdi vígahópsins vegna dauða þeirra. Það hafi hins vegar verið gildra af hálfu yfirvalda sem hafi viljað lokka til sín einstaklinga sem hefðu átt í útistöðum við yfirvöld og/eða vígahópa. Kæranda hafi borist hótanir vegna kæru sinnar til lögreglu. Þá hafi hann verið numinn á brott af meðlimum Mahdi hersveita, haldið nauðugum í tvo daga og verið pyndaður. Að því búnu hafi hann verið skilinn eftir úti á götu nær dauða en lífi. Kæranda hafi borist hótunarbréf í febrúar 2017 og hafi sonur hans hætt í skólanum í kjölfar líflátshótunar ókunnugs manns. Vegna framangreinds hafi kærandi og fjölskylda hans flúið heimaríki sitt í apríl 2017.

Kærunefnd hefur, þrátt fyrir ítarlega leit, ekki fundið neinar heimildir sem styðja við frásögn kæranda um tilvist Murshidis trúarbragðanna í Írak eða mismunun í garð einstaklinga þar í landi sem aðhyllast trúarbrögðin. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér, líkt og að framan er rakið, að meðlimir Murshidis trúarhópsins búi flestir í vesturhluta Sýrlands. Þrátt fyrir það telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi aðhyllist umrædd trúarbrögð og verður það því lagt til grundvallar við úrlausn málsins.

Kröfu sinni til stuðnings lagði kærandi fram ljósmyndir og afrit af ýmsum gögnum. Til að mynda af vottorði sem kærandi kveður að sé dánarvottorð bróður hans sem og af kæru sem kærandi kveður að hann hafi lagt fram hjá lögreglu í Írak vegna framangreindra atburða. Þar sem um ljósmyndir og afrit er að ræða er ekki mögulegt fyrir kærunefnd að kanna áreiðanleika þeirra eða uppruna. Þá hefur kærandi, líkt og að framan er rakið, ekki lagt fram gögn sem eru til þess fallin að sanna á honum deili og verður því ekki af gögnunum ráðið að þau eigi við um kæranda eða bróður hans.

Kærandi hefur að öðru leyti ekki fært fram trúverðug gögn sem þykja til þess fallin að styðja við frásögn hans af þeim atvikum sem hann hefur lagt til grundvallar umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Í ljósi frásagnar kæranda um að ætlaðar ofsóknir hafi átt sér stað á árunum 2015 til 2017 er að mati kærunefndar ekki ósanngjarnt að gera kröfu um að kærandi leggi fram einhver gögn sem leiði að því líkur að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu meintra ofsóknaraðila í heimaríki.

Meðal gagna málsins eru gögn frá hollenskum útlendingayfirvöldum vegna umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd þar í landi árið 2018. Í enskri þýðingu viðtals við kæranda, sem fór fram hinn 4. mars 2020, kemur m.a. fram að hann hafi yfirgefið heimaríki hinn 18. október 2017 og haldið til Tyrklands. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi hins vegar frá því að hann hafi yfirgefið heimaríki ásamt fjölskyldu sinni í apríl 2017. Þá kemur fram í ákvörðun hollenskra útlendingayfirvalda að kærandi hafi lagt fram fölsuð auðkennisskilríki við meðferð málsins. Það liggur því fyrir að kærandi hafi, við umsókn sína um alþjóðlega vernd í Hollandi, lagt fram fölsuð auðkennisskilríki og gefið stjórnvöldum þar í landi upplýsingar sem stangast á við upplýsingar sem hann hefur síðar gefið stjórnvöldum hér á landi. Það er mat kærunefndar að framangreint dragi úr trúverðugleika frásagnar hans.

Í kjölfar afturköllunar á úrskurði kærunefndar nr. 221/2021 í máli kæranda og fjölskyldu hans var kæranda send framangreind gögn og honum gefinn kostur á að tjá sig um efni þeirra. Þá var honum gefinn kostur á að gera athugasemdir við þá framkvæmd að mál hans og fjölskyldu hans yrðu, í ljósi nýtilkominna upplýsinga um breyttar aðstæður þeirra, aðskilin hjá kærunefnd. Í tölvubréfi frá talsmanni kæranda til kærunefndar, dags. 6. október 2021, kemur fram að kærandi hafi engar athugasemdir við að mál hans og fjölskyldu hans verði aðskilið. Hann telji ekki þörf á að skila sérstakri greinargerð vegna aðskilnaðar þeirra og vísi til fyrirliggjandi gagna og greinargerða varðandi málsástæður og rökstuðning fyrir kröfum sínum.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til þess, m.a. í ljósi sögu Íraks, að draga í efa að fjölskyldumeðlimir kæranda hafi látið lífið og að hann hafi orðið fyrir hótunum og ofbeldi af hálfu ótilgreindra aðila. Kærunefnd telur hins vegar ekkert hafa komið fram í málinu sem gefi til kynna að það hafi verið á grundvelli trúarbragða þeirra eða að meðlimir Mahdi vígahópsins hafi þar verið að verki. Samkvæmt framansögðu verður því ekki unnt að leggja til grundvallar í málinu að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu meintra ofsóknaraðila eða annarra vígahópa í Írak vegna trúarbragða hans. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki sínu af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að íbúum Bagdad standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða, þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, telji hann sig þurfa þess.

Hvað varðar vísun kæranda í greinargerð til Útlendingastofnunar til ákvarðana stofnunarinnar sem hann telur sambærilegar sínu máli þá tekur kærunefnd fram að forsendur og rökstuðningur ákvarðana Útlendingastofnunar eru ekki bindandi fyrir kærunefnd. Kærunefnd telur jafnframt að tilvísun kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 191/2020 frá 28. maí 2020 hafi ekki þýðingu fyrir þetta mál. Kærunefnd telur ljóst að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í framangreindum úrskurði, m.a. vegna þess að um var að ræða mál þar sem rannsaka þurfti nánar hvort fjölskyldutengsl væru til staðar. Að mati kærunefndar hefur framangreindur úrskurður því ekki fordæmisgildi í máli kæranda.

Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Eins og rakið er að framan hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum einstaklinga til Íraks sem koma frá þeim svæðum þar sem átök geisa; þar sem ástandið er brothætt eða óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh samtakanna, eða þeim svæðum þar sem Daesh er enn við völd. Þá telur Flóttamannstofnun óráðlegt að senda einstaklinga frá slíkum svæðum til annarra svæða innan Íraks. Samkvæmt þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar er ljóst að heimaborg kæranda, Bagdad, er á öruggu svæði í Írak, og er ekki og hefur ekki verið undir stjórn Daesh samtakanna. Verður því ekki talið að viðvörun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eigi við um einstaklinga sem séu í sambærilegri stöðu og kærandi. 

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að leggja ekki til grundvallar að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu meintra ofsóknaraðila eða annarra vígahópa í Írak vegna trúarbragða hans. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki sínu af öðrum ástæðum. Eins og að framan greinir benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir til þess að íröksk yfirvöld geti almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad. Öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt, m.a. af írakska hernum, lögreglunni og hersveitum PMF. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu á að sæta dauðarefsingu eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka í heimaríki hans. Jafnframt er það mat kærunefndar, með vísan til skýrslna um aðstæður í heimaríki kæranda, að kæranda standi til boða vernd og aðstoð lögreglu í Bagdad, telji hann sig þurfa á slíkri aðstoð að halda. Kærunefnd telur að ekki sé ástæða til að ætla að sá órói sem einkennt hefur Bagdad frá því að fjölmenn mótmæli gegn yfirvöldum hófust þar í borg árið 2019 sé af þeim toga að hann raski framangreindu mati.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður kæranda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunni að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væri ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Meðal gagna málsins eru komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. október 2020 til 19. apríl 2021. Kemur þar m.a. fram að kærandi sé mjög kvíðinn og glími við einkenni streitu. Þá kemur fram að hann hafi greint frá því að hafa hlotið mænuskaða í heimaríki árið 2015. Kvaðst hann hafa verið lamaður í eitt og hálft ár og farið í stranga endurhæfingu. Þá kvaðst hann enn fá mikla bakverki og líða illa andlega yfir því sem gerðist. Kærandi lagði fram heilsufarsgögn frá Grikklandi og Hollandi þar sem kemur fram að hann hafi fengið heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu í Hollandi og farið í endurhæfingu í heimaríki í kjölfar árásar árið 2015.

Að teknu tilliti til framlagðra heilsufarsgagna er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í meðferð hér á landi sem óforsvaranlegt væri að rjúfa. Þá telur kærunefnd, að teknu tilliti til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér og framburðar kæranda um þá heilbrigðisþjónustu sem hann hafi hlotið í Írak, að honum standi til boða aðgangur að heilbrigðisþjónustu í heimaríki, m.a. geðheilbrigðisþjónustu.

Líkt og að framan er rakið afturkallaði kærunefnd úrskurð nefndarinnar í máli kæranda, eiginkonu hans og barna þeirra hinn 20. september 2021 vegna annmarka og tilkynnti kæranda að nýr úrskurður yrði kveðinn upp. Hinn 22. september 2021 barst kærunefnd greinargerð frá ráðgjafa Reykjavíkurborgar, dags. 20. september 2021, vegna eiginkonu kæranda. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi, að ósk eiginkonu hans, verið fluttur í annað húsnæðisúrræði. Í ljósi framkominna upplýsinga um breyttar aðstæður kæranda og eiginkonu hans voru mál þeirra aðskilin hjá kærunefnd. Kæranda var tilkynnt um það og kemur fram í tölvubréfi til kærunefndar, dags. 6. október 2021, að hann hafi engar athugasemdir við það fyrirkomulag.

 

Með úrskurði kærunefndar nr. 532/2021, dags. 11. nóvember 2021, var eiginkonu kæranda og börnum þeirra veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Eins og að framan greinir dvelur kærandi ekki í sama húsnæðisúrræði og eiginkona hans og börn þeirra. Af gögnum málsins verður hins vegar ekki annað ráðið en að þau fari með sameiginlega forsjá barna þeirra og að eiginkona kæranda hafi óskað eftir því að samkomulagi verði náð um sameiginlega umgengni. Kærunefnd telur óvíst að umgengni kæranda við börn sín yrði tryggð yrði hann sendur aftur til heimaríkis. Í ljósi þess, og með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar telur kærunefnd, að veita beri kæranda einnig dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Samantekt

Með vísan til þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar umsókn kæranda  um alþjóðlega vernd hér á landi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita honum dvalarleyfi skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd er staðfest.

 

The Directorate is instructed to issue residence permits for the appellant based on Article 74 of the Act on Foreigners. The decision of the Directorate of Immigration in the appellants case related to his applications for international protection is affirmed.

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Þorbjörg I. Ingadóttir                                                            Sindri M. Stephensen

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta