Mál nr. 78/2022 Úrskurður 20. júní 2022
Mál nr. 78/2022 Millinafn: Kobold
Hinn 20. júní 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 78/2022 en erindið barst nefndinni 31. maí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Kobold er ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir því ekki ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Kobold er hafnað.