Mál nr. 61/2021 Úrskurður 26. maí 2021
Mál nr. 61/2021 Aðlögun kenninafns: Thorsdóttir
Hinn 26. maí 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 61/2021.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 21. maí 2021, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX og XXX um að dóttir þeirra skuli vera kennd til föður síns, Tornike. Óska þau að kenninafn stúlkunnar verði skráð í þjóðskrá Thorsdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Thorsdóttir.