Hoppa yfir valmynd

Nr. 66/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 66/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100084

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. október 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. október 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. apríl 2019. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun hjá frönskum yfirvöldum var, þann 23. apríl 2019, beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 20. maí 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 15. október 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. október 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 29. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 13. nóvember 2019 ásamt fylgigögnum. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 21. janúar 2020, um að leggja fram frekari gögn í málinu. Viðbótargögn bárust þann 24. janúar 2020. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 11. febrúar 2020, um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu. Voru þær leiðbeiningar ítrekaðar með tölvupósti þann 17. febrúar sl. Frekari gögn bárust kærunefnd þann 26. febrúar 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að frönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Frakklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun, aðspurð um andlegt og líkamlegt ofbeldi, m.a. greint frá því að hún fái verki í maga og krampa. Hún hafi það ekki gott andlega og hafi óskað eftir tíma hjá sálfræðingi. Kvað hún atburðarrásina sem hafi átt sér stað [...] hafa haft mjög slæm áhrif á sig andlega og hún hafi í kjölfarið flúið til Frakklands. Í Frakklandi hafi hins vegar ekki tekið við betri aðstæður. Kærandi hafi staðið í langri biðröð til að sækja um alþjóðlega vernd þegar [...] karlmaður hafi gefið sig á tal við hana. Hann hafi misnotað sér stöðu hennar, bókað fyrir hana flug og tilkynnt henni að þau væri að fara á annan stað innan Frakklands. Kærandi hafi hins vegar lent á Íslandi og verið [...]. Kvað kærandi aðila hafa haldið sér gegn vilja sínum og [...]. Henni hafi tekist að flýja, kynnst [...] konu sem hafi hjálpað henni og hvatt hana til að sækja um alþjóðlega vernd. Hún vilji ekki fara aftur til Frakklands af ótta um líf sitt.

Í greinargerð kæranda eru gerðar nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á því hvort taka þurfi tillit til sérstakrar stöðu kæranda. Við matið sé hvergi fjallað um það að kærandi sé [...]. Kærandi áréttar að hún hafi verið flutt til Íslands án þess að gera sér grein fyrir því að hún væri að yfirgefa Frakkland. Hér á landi hafi hún verið lokuð inni í herbergi gegn vilja sínum og [...]. Telji kærandi að ekki sé hægt að líta framhjá því að hún sé [...]. Í öðru lagi mótmælir kærandi þeirri staðhæfingu Útlendingastofnunar að hún geti leitað til franskra yfirvalda sé á henni brotið og að hún muni fá réttláta og málefnalega meðferð í Frakklandi. Hún sé [...] og í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, íslenskum stjórnvöldum beri því að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemdir við umfjöllun Útlendingastofnunar um meintar aðstæður í Frakklandi enda hafi frönsk stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir það hvernig tekið sé á móti viðkvæmum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Það hafi til að mynda gerst að kvenkyns umsækjendum, sem [...], hafi verið komið fyrir í móttökumiðstöðvum sem aðallega séu ætlaðar einhleypum karlmönnum. Telji kærandi hætt við því að hún fái ekki þá aðstoð sem hún, sem viðkvæmur einstaklingur, þurfi á að halda í Frakklandi og miklar líkur séu á að hún verði aftur [...] verði hún send til Frakklands. Í fjórða lagi gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að hún muni hafa aðgang að húsnæði við komuna til Frakklands. Með vísan til heimilda telji kærandi að það muni taka langan tíma að fá öruggt húsnæði í Frakklandi. Í mörgum borgum Frakklands séu dæmi um að umsækjendur eigi ekki annarra kosta völ en að leita í athvörf fyrir heimilislausa eða að sofa á götunni. Í því sambandi vísar kærandi til nýlegs dóms frá Þýskalandi frá 25. apríl 2019, þar sem dómstóllinn fjallar um hversu erfitt það sé að fá umsókn um alþjóðlega vernd skráða í Frakklandi sem leiði til þess að einstaklingar endi á götunni og að endursending þeirra muni brjóta gegn réttindum skv. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Að því er varðar aðgengi að búsetuúrræðum hafi dómstóllinn bent á erfiðleika við aðgengi og takmarkaðan fjölda þeirra.

Þá vísar kærandi til reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 er varðar framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til þess að orðalag 32. gr. a í umræddri reglugerð setji fram viðmið sem sett séu í dæmaskyni og ekki sé því um tæmandi talningu að ræða. Geti þau atriði sem þar séu nefnd í dæmaskyni ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Telji kærandi að færa megi rök fyrir því að aðstæður hennar séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá telji kærandi að frásögn hennar og þær heimildir sem vísað hafi verið til í greinargerð til Útlendingastofnunar bendi til þess að hún muni eiga erfitt uppdráttar í Frakklandi vegna alvarlegrar mismununar verði henni gert að snúa þangað aftur.

Kærandi byggir á því að ótækt sé að beita heimild c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hennar til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna sbr. 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Í 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33/1944 sé ítrekuð lagaáskilnaðarregla íslenskrar stjórnskipunar þegar komi að réttindum útlendinga til komu og dvalar hér á landi. Setji ákvæðið og ofangreind lagaáskilnaðarregla stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun hugtaksins sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd til að fá mál sín tekin til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Samkvæmt lögskýringargögnum hafi íslenskum stjórnvöldum með sérstökum ástæðum ávallt verið eftirlátið mat og þau haft heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum. Á stjórnvöldum hvíli rík skylda til að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjanda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hana, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt frásögn kæranda hafi hún orðið fyrir miklu aðkasti í heimaríki vegna [...]. Þá sé hún [...]. Kærandi hafi greint frá mikilli andlegri vanlíðan og [...] vegna þeirra hræðilegu atburða sem hún hafi lent í. Samkvæmt gögnum málsins sé kærandi í sálfræðimeðferð hér á landi og í meðferð hjá sérfræðingi [...]. Í ljósi ofangreinds beri að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsókn kæranda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Frakklands. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] kona sem stödd er einsömul hér á landi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að andleg og líkamleg heilsa hennar væri ekki góð. Hún væri [...], hafi verið send frá Frakklandi til Íslands og [...]. Þá telji hún sig ekki eiga afturkvæmt til heimaríkis [...]. Af gögnum málsins má sjá að kærandi hafi leitað á Göngudeild sóttvarna og notið þar þjónustu lækna og sálfræðings. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 29. apríl 2019 til 23. janúar 2020, kemur m.a. fram að kærandi sé almennt hraust fyrir utan vandamál í [...]. Í gögnum frá sérfræðingi [...], dags. 4. júlí 2019 og 28. október 2019, kemur m.a. fram að kærandi sé með [...]. Kærandi hafi greint frá verkjum í neðanverðum kvið og hafi fengið uppáskrifuð lyf [...]. Var kærandi skráð með greininguna [...]. Við skoðun hafi jafnframt [...]. í gögnum frá [...] kemur fram að kærandi hafi farið í skoðun [...] þann 19. febrúar 2020. Af gögnunum má ráða að skoðun [...]. Þá kemur fram að [...]. Í samskiptaseðli sálfræðings á Göngudeild sóttvarna, dags. 20. janúar 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að henni hafi liðið illa og hafi efasemdir um sjálfa sig, annars sé hún vinamörg og félagslega vel tengd.

Kærunefnd hafa ekki borist frekari gögn um heilsufar kæranda en hér hefur verið vísað til. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 29. maí 2019, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 21. janúar 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu og bárust frekari gögn um heilsufar þann 24. janúar sl. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 11. febrúar 2020, um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu. Þær leiðbeiningar voru auk þess ítrekaðar með tölvupósti kærunefndar, dags. 17. febrúar sl., og bárust svo frekari gögn í málinu þann 26. febrúar 2020. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til heilsufars.

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report 2018 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 19. júní 2019);
  • Annual Report on Migration and Asylum 2018 (European Migration Network (EMN), maí 2019);
  • Annual Report 2018 on Migration and Asylum Policies in France (French National Contact Point for the European Migration Network, apríl 2019);
  • Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, www.gisti.org. Síðast uppfært 5. september 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 20. mars 2019);
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 1. nóvember 2019);
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015);
  • Freedom in the World 2019 – France (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015);
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, www.conseil-constitutionnel.fr);
  • [...];
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017);
  • Upplýsingar af vefsíðu Ligue de droits de l’Homme (www.ldh-france.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu ráðuneytis um jafnrétti og baráttu gegn mismunun í Frakklandi (www.egalite-femmes-hommes.gouv.fr);
  • Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr);
  • Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr);
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (www.interieur.gouv.fr) og• World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020.

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l’entrée et du séjour des étrangers et du droit d’asile) eru tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína. Þegar umsókn hefur verið lögð fram geta þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skal leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geta einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veita lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð er í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.

Í skýrslu Asylum Information Database frá 20. mars 2019 kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d’accueil de demandeurs d’asile) eða í tímabundnum miðstöðvum. Þeir sem eru endursendir til Frakklands geta leitað til móttökumiðstöðvanna AT-SA (f. Accueil temporaire – serivce de l’asile), PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile), CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða HUDA (f. hébergement d’urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Árið 2017 var einnig komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d’accueil et d’examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geta verið á meðan beðið er eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hefur þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fá úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fá gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildir í eitt ár, en slíkt vottorð gerir umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður hefur komið fram. Í [...].

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Á grundvelli PUMA eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum kemur þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tala frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu er skimað eftir einstaklingum sem eru í viðkvæmri stöðu m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafa sérþarfir vegna þess.

[...] í Frakklandi. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita einstaklingum sem til þeirra leita viðhlítandi aðstoð og vernd, þ. á m. gegn einstaklingum sem þeir óttast.[...].

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en ljóst er að kærandi hefur m.a. glímt við andlega vanlíðan og vandamál [...], og fengið aðstoð vegna þess hér á landi. Þá gefi [...], sbr. gögn frá [...]. Það er mat kærunefndar að aðstæður hennar er varða heilsufar séu ekki með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan eða lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi verður ráðið að umsækjendur hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Kærunefnd telur því ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún muni ekki geta sótt sér þá heilbrigðisþjónustu eða aðra þá þjónustu sem hún þurfi á að halda í Frakklandi.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár franskra yfirvalda verði hún fyrir [...]. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi vísar til þess í greinargerð sinni að hún [...]. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að óttist kærandi um öryggi sitt að einhverju leyti í Frakklandi séu þarlend yfirvöld í stakk búin til þess að veita henni fullnægjandi vernd. Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að [...].

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 29. maí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína þann 11. apríl 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður í Frakklandi og um stöðu kæranda, m.a. [...]. Þá gerir kærandi athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Vegna athugasemda í greinargerð kæranda varðandi umfjöllun stofnunarinnar um [...] tekur kærunefnd undir með kæranda að vanda hefði mátt betur umfjöllun stofnunarinnar að því leyti og [...] gerð frekari skil. Þrátt fyrir þann ágalla er það mat kærunefndar að bætt hafi verið úr framangreindum ágöllum við rannsókn og rökstuðning málsins á kærustigi. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana að öðru leyti. Hefur þá kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 15. mars 2019 og samkvæmt gögnum málsins sótti hún um alþjóðlega vernd þann 11. apríl 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal flutt til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Áslaug Magnúsdóttir

Ívar Örn Ívarsson                                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta