Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 492/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 492/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16090065

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. september 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. september 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 25. júlí 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 7. september 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 12. september 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 14. september 2016 barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 23. september 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kæranda var birt ákvörðun Útlendingastofnunar þann 27. september 2016 og óskaði kærandi þann sama dag eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðuninni á meðan mál hans væri til kærumeðferðar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 28. september 2016 til kærunefndar útlendingamála. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar útlendingamála þann 28. september 2016. Kæranda var veittur frestur til þess að skila inn greinargerð til 12. október 2016 en þann 10. október 2016 óskaði kærandi eftir viðbótarfresti til að skila greinargerð og var honum veittur viðbótarfrestur til 20. október 2016 til að skila greinargerð. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 19. október 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kæranda bæri að yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Svíþjóðar, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera að bíða eftir gögnum frá Svíþjóð sem lögð yrðu fram í málinu. Í niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar kemur fram að fyrir lægi í málinu að sænsk stjórnvöld samþykktu endurviðtöku á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Það væri mat Útlendingastofnunar að ekki væri þörf á frekari staðfestingu á því að umsókn kæranda hafi verið synjað af sænskum stjórnvöldum og að umrædd gögn myndu ekki hafa áhrif á niðurstöðu málsins.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi sagt í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann vilji ekki fara aftur til Svíþjóðar. Hann hafi sótt þar um hæli og fengið synjun hjá sænsku útlendingastofnuninni og þeim dómstólum sem hægt sé að áfrýja til. Sænsk stjórnvöld muni senda hann aftur til [...] í þær aðstæður sem hann hafi flúið frá. Þá hafi kærandi greint frá því að aðstæður í flóttamannabúðunum í Svíþjóð hafi verið erfiðar, hann hafi orðið fyrir árásum vegna kynþáttar síns og hafi ekki verið öruggur þar. Þá hafi kærandi orðið fyrir munnlegu áreiti af hendi fulltrúa sænsku útlendingastofnunarinnar og hann óttist það að sömu einstaklingar hjá hinu opinbera í Svíþjóð, þ.e. túlkarnir sem hafi verið viðstaddir og þeir sem hafi ritað og gengið frá umsókn hans, muni vinna að máli hans og brottvísa honum til heimaríkis.

Vísað er til þess í greinargerð kæranda að innanríkisráðherra Svíþjóðar hafi gefið frá sér yfirlýsingu þann 11. nóvember 2015 þess efnis að vegna mikils álags sem hafi verið á sænska hæliskerfinu yrði tekið upp tímabundið eftirlit á landamærum landsins sem yrði framlengt eftir þörfum. Árið 2015 hafi 162.877 einstaklingar sótt um hæli í landinu og vegna þessa mikla fjölda hælisleitenda hafi lögreglan óttast að hættuástand gæti skapast í landinu. Eftir að landamæraeftirliti hafi verið komið á hafi dregið úr hælisumsóknum í Svíþjóð en hins vegar glími landið við margar áskoranir og erfiðleika vegna hins mikla fjölda hælisleitenda sem fyrir sé í landinu. Þá hafi sænsk stjórnvöld lagt fram beiðni til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að önnur ríki sambandsins létti af þeim byrðina vegna hins mikla álags sem hafi verið á hæliskerfinu í Svíþjóð. Hafi hatur á útlendingum gert vart við sig í meira mæli en áður hafi þekkst og þá hafi til að mynda ítrekað verið kveikt í húsnæði hælisleitenda víðsvegar um landið. Enn fremur beri að nefna það að þann 1. júní 2016 hafi tekið gildi breytingar á lögum um móttöku útlendinga í Svíþjóð sem feli í sér töluverða skerðingu á réttindum hælisleitenda í landinu. Þá er í greinargerð kæranda vísað til tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, frá maí 2015, um aðgerðir til að takast á við innstreymi mikils fjölda flóttamanna til Evrópu.

Í greinargerð kæranda er vísað til d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Vísað sé til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Þá sé á það bent að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem beri ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni.

Þá er í greinargerð kæranda fjallað um málsmeðferð sænskra stjórnvalda og niðurstöðu í máli kæranda þar í landi. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um hæli á öllum stigum í Svíþjóð og því sé ljóst að kærandi verði sendur til [...], verði hann endursendur til Svíþjóðar. Með ákvörðun um endursendingu til Svíþjóðar hafi Útlendingastofnun því tekið ákvörðun um að senda kæranda til lands þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir og sé slík endursending í andstöðu við 45. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi ákvörðun um endursendingu brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka umsókn kæranda um hæli ekki til efnismeðferðar og vísa honum til Svíþjóðar.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstarfsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfstætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Svíþjóð.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015)

  • Amnesty International Report 2015/16 (Amnesty International, 10. mars 2016)

  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016)
  • Freedom in the World 2016 – Sweden (Freedom House, 22. mars 2016)
  • Sweden 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)
  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, júní 2015)
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016)
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se)

Eins og fram hefur komið hefur kærandi fengið synjun á hælisumsókn sinni í Svíþjóð. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um hæli í Svíþjóð sem fengið hafa endanlega synjun á hælismáli sínu hjá sænsku útlendingastofnuninni (s. Migrationsverket) og þeim dómstólum sem hægt er að kæra til eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafi breyst verulega eða verulegir annmarkar hafi verið á fyrri málsmeðferð geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má bera undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Þá eiga hælisleitendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Þegar hælisleitendur leggja fram umsókn um hæli í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni (s. Migrationsverket) og á áfrýjunarstigum málsins nema þegar umsókn hefur verið talin tilhæfulaus samkvæmt sænskum lögum. Hælisleitendur eiga aftur á móti ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en geta hins vegar átt rétt á að fá lögmann tilnefndan ef sænska útlendingsstofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Þá geta hælisleitendur einnig leitað til frjálsra félagasamtaka eins og til dæmis ráðgjafarmiðstöðvar fyrir hælisleitendur og flóttamenn (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að telji kærandi sig vera í hættu eða öryggi hans ógnað í Svíþjóð þá geti hann leitað sér aðstoðar lögregluyfirvalda í landinu. Þá getur hælisleitandi sem telur sig hafa orðið fyrir slæmri meðferð af hálfu starfsmanna sænsku útlendingastofnunarinnar kvartað af því tilefni til umboðsmanns umsækjenda hjá sænsku útlendingastofnuninni (s. bemötandeombudsmannen ).

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Svíþjóð hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu eða hafi verið tryggð raunhæf úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Af ofangreindum gögnum er það mat kærunefndar að ekkert bendi til þess að [...] hælisleitendum sé synjað sjálfkrafa eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 21. september 2016 vera áhyggjufullur og óttasleginn. Var kæranda af því tilefni kynnt að hann gæti fengið tíma hjá sálfræðingi. Ekkert annað liggur fyrir í gögnum málsins varðandi heilsufar kæranda. Kærandi kvaðst ekki hafa sérstök tengsl við Ísland og í gögnum málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta