Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 490/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 490/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16080006

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. ágúst 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. ágúst 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 18. júní 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi og Svíþjóð. Þann 24. júní 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 30. júní 2016 barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 4. ágúst 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kærandi óskaði við birtingu, þann 9. ágúst 2016, eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar á meðan mál hans væri til kærumeðferðar. Með bréfi kærunefndar útlendingamála þann 10. ágúst 2016 var fallist á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með fyrirvara um að kæra á ákvörðun Útlendingastofnunar bærist kærunefnd innan 15 daga frá birtingu ákvörðunarinnar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 22. ágúst 2016 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 28. september 2016. Kærunefnd bárust viðbótargögn vegna málsins 29. nóvember 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi bæri að yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Svíþjóðar, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá vísaði Útlendingastofnun til þess að það væri mat stofnunarinnar að ekki yrði litið svo á að kærandi yrði settur í hættu yrði hann sendur til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er greint frá því að rekja megi flótta kæranda frá heimalandi sínu til atvika sem hafi átt sér stað í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í [...]. Kæranda hafi verið boðnir peningar af forsvarsmönnum stjórnmálaflokksins [...] sem hann hafi verið meðlimur í til að taka þátt í kosningasvindli í umdæmi hans. Vegna þátttöku sinnar í svindlinu telji kærandi að líf hans sé í hættu og að háttsettir einstaklingar hafi gefið fyrirmæli um að hann skyldi ráðinn af dögum. Kærandi hafi því flúið heimaland sitt og sótt um hæli í Þýskalandi. Áður en niðurstaða hafi fengist um hælisumsókn hans þar hafi samlandi hans sýnt honum banatilræði og hafi þýska lögreglan hafið rannsókn á málinu. Kærandi hafi þó ekki talið sig öruggan og hafi farið frá Þýskalandi til Svíþjóðar. Þar hafi hann dvalist þangað til hann hafi fengið upplýsingar um að banatilræðismaður hans hafi elt hann til Svíþjóðar.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann hafi enga lögfræðiaðstoð fengið í Svíþjóð. Hann hafi á einhverjum tímapunkti verið látinn undirrita skjal sem hann hafi ekki vitað hvaða þýðingu hafði enda hafi hann ekki fengið neina aðstoð við hælisumsóknina. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafi kærandi þegar fengið synjun á hælisumsókn sinni í Svíþjóð.

Í greinargerð kæranda segir að fordæmalausar aðstæður hafi skapast í Svíþjóð á allra síðustu árum og tíðrætt hafi verið um alvarleg vandamál tengd hælisleitendum og flóttamönnum þar í landi. Álagið hafi skapað sænskum stjórnvöldum ýmis vandamál við að tryggja hælisleitendum lögbundinn stuðning, meðal annars hvað varði aðgang að húsnæði og öryggi þar. Þrátt fyrir að fækkun hafi orðið á fjölda hælisumsókna í Svíþjóð á milli áranna 2015 og 2016 beri ekki að túlka það sem svo að þörf einstaklinga fyrir vernd í Svíþjóð hafi dregist saman heldur skýrist það af aukinni hörku sænskra yfirvalda við að sporna við komu flóttamanna til landsins. Hafi innanríkisráðherra Svíþjóðar gefið frá sér yfirlýsingu þann 11. nóvember 2015 þess efnis að vegna mikils álags sem hafi verið á sænska hæliskerfinu yrði tekið upp tímabundið eftirlit á landamærum landsins sem yrði framlengt eftir þörfum og hafi löggjöf í þessum málaflokki verið hert tímabundið. Fjöldi mannúðarsamtaka hafi gagnrýnt lögin og talið hafi verið að um sé að ræða eina hörðustu innflytjandalöggjöf í Evrópu. Þá hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna einnig gagnrýnt stefnu sænskra stjórnvalda í þessum málaflokki og telji að hún geti sett ákveðið fordæmi fyrir önnur evrópsk stjórnvöld sem geti haft skelfilegar afleiðingar fyrir fólk í þörf fyrir alþjóðlega vernd. Í skýrslu Evrópuþingsins frá desember 2015 greini frá því að Evrópuráðið hafi sent Svíþjóð formlega áminningu fyrir að hafa ekki innleitt með fullnægjandi hætti endurskoðaða tilskipun um kröfur varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd nr. 2013/33/ESB.

Kærandi telji að framangreindar aðgerðir sænskra yfirvalda, sem hafi þann tilgang að hvetja fólk til að koma ekki til Svíþjóðar og leita hælis, skapi hættu á því að hælisleitendur fái ekki sanngjarna meðferð á umsóknum sínum. Yfirlýsingar sænskra yfirvalda í tengslum við aðgerðirnar og aukið útlendingahatur skapi versnandi aðstæður fyrir hælisleitendur sem dvelji þar en mikil spenna ríki í Svíþjóð samhliða þeim mikla fjölda fólks sem leitað hafi hælis í landinu. Til að mynda hafi ítrekað verið kveikt í húsnæði hælisleitenda víðsvegar um landið.

Þá er í greinargerð kæranda vísað til Dyflinnarreglugerðarinnar, d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Vísað sé til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Telji kærandi að þegar tekið sé tillit til hins fordæmalausa ástands hælismála í Svíþjóð og vegna þeirra annmarka sem hafi verið á málsmeðferð kæranda í Svíþjóð séu fyrir hendi sérstakar ástæður skv. 2. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að taka umsókn hans til efnismeðferðar.

Kærandi telji sig ekki öruggan í Svíþjóð og lífi hans verði stofnað í hættu verði hann sendur til Svíþjóðar. Þá telji kærandi enn fremur að verði hann sendur til Svíþjóðar þá verði hann sendur aftur til [...] þar sem líf hans sé jafnframt í hættu. Kærandi byggi á því að með vísan til 45. gr. laga um útlendinga sé óheimilt að endursenda hann til Svíþjóðar þar sem í ákvæðinu segi að ekki megi senda útlending til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir sem geti leitt til þess að hann teljist flóttamaður eða ef ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis (non-refoulement). Reglan feli í sér bæði bann við beinni endursendingu einstaklings til ríkis þar sem líf hans og frelsi kann að vera í hættu (e. direct refoulement) og jafnframt endursendingu til þriðja ríkis ef fyrirsjáanlegt er að það muni senda hann áfram í slíka hættu (e. indirect refoulement). Eins og komið hafi fram þá hafi kærandi fengið synjun á hælisbeiðni í Svíþjóð og liggi því fyrir að hann verði sendur til [...] verði hann endursendur til Svíþjóðar. Með ákvörðun um endursendingu til Svíþjóðar hafi Útlendingastofnun því tekið ákvörðun um að senda kæranda til lands þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir og sé slík endursending í andstöðu við 45. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi ákvörðun um endursendingu brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda er sú krafa gerð til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt og stofnuninni gert að taka mál kæranda til meðferðar að nýju. Kærandi telji að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 3. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga, m.a. vegna þess að Útlendingastofnun hafi ekki aflað gagna frá þýskum stjórnvöldum um banatilræði sem honum var veitt í Þýskalandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka umsókn kæranda um hæli ekki til efnismeðferðar og vísa honum til Svíþjóðar.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstarfsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfstætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Svíþjóð.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015)

  • Amnesty International Report 2015/16 (Amnesty International, 10. mars 2016)

  • Freedom in the World 2016 – Sweden (Freedom House, 22. mars 2016)

  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, júní 2015)

  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016)

  • Sweden 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)

  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se)

Eins og fram hefur komið hefur kærandi sótt um hæli í Svíþjóð en umsókn hans verið synjað. Í samþykki sænskra stjórnvalda um að taka við kæranda, dags. 30. júní 2016, kemur þó fram að kærandi hafi kært niðurstöðuna en málið hafi ekki enn verið tekið fyrir. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um hæli í Svíþjóð sem fengið hafa synjun á hælismáli sínu hjá sænsku útlendingastofnuninni (s. Migrationsverket) og dómstólum í þessum málaflokki eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafi breyst verulega eða verulegir annmarkar hafi verið á fyrri málsmeðferð geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má bera undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Þá eiga hælisleitendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Þegar hælisleitendur leggja fram umsókn um hæli í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á og túlkaþjónustu án endurgjalds. Þá eiga hælisleitendur rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds ef ekki er um að ræða umsókn sem talin er tilhæfulaus samkvæmt sænskum lögum.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að telji kærandi sig vera í hættu eða öryggi hans ógnað í Svíþjóð þá geti hann leitað sér aðstoðar lögregluyfirvalda í landinu.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Svíþjóð hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu eða hafi verið tryggð raunhæf úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í því sambandi tekur kærunefnd fram að þrátt fyrir fullyrðingar kæranda um að hann hafi ekki fengið aðstoð við að leggja fram kæru í máli sínu liggur fyrir að mál kæranda hafi verið kært og hafi enn verið til skoðunar þegar hann kom hingað til lands. Þá tekur kærunefnd fram að ekkert bendi til þess að [...] hælisleitendum sé synjað sjálfkrafa eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 14. júlí 2016 vera andlega hraustur en að hann hafi fengið skordýrabit eftir að hann kom til Íslands. Engar aðrar upplýsingar liggja fyrir um líkamlega heilsu kæranda. Kærandi kvaðst ekki hafa sérstök tengsl við Ísland og í gögnum málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Vegna athugasemdar í greinargerð varðandi rannsókn málsins tekur kærunefnd fram að ekki fæst annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi byggt á nýjustu tiltæku skýrslum um aðstæður í Svíþjóð. Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Eins og að framan greinir tekur kærunefnd undir það mat, sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar, um aðstæður í Svíþjóð, og telur ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn málsins.

Þá gerir kærunefndin ekki athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi ekki aflað gagna frá þýskum stjórnvöldum vegna atviks þar sem kærandi kveður [...] mann hafa reynt að ráða hann af dögum og að sá maður sé á eftir honum í Svíþjóð. Samkvæmt 3. mgr. 50. gr. laga um útlendinga skal afla þeirra gagna sem nauðsynleg eru fyrir málið, sbr. jafnframt 10. gr. stjórnsýslulaga. Stofnunin hefur við úrlausn málsins metið það svo að ekki hafi verið þörf á að afla gagnanna og er í hinni kærðu ákvörðun tekið fram að kærandi geti leitað til sænskra lögregluyfirvalda telji hann sér ógnað. Kærunefnd tekur undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda í Svíþjóð, eins og áður hefur komið fram. Það er mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi aflað fullnægjandi upplýsinga um aðstæður kæranda og gerir kærunefndin ekki athugasemdir við gagnaöflun í máli kæranda.

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta