Nr. 338/2023 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 1. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 338/2023
í stjórnsýslumáli nr. KNU23050051
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]
Málsatvik
Hinn 28. apríl 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. nóvember 2022, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Íran, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 2. maí 2023 og 8. maí 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 15. maí 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.
Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Málsástæður aðila
Í greinargerð aðila kemur fram að hann óttist um líf sitt verði sendur til Íran þar sem hann hafi orðið fyrir hótunum. Vegna heilsubrests aðila af þessum sökum sé þess óskað að brottvísun hans verði frestað svo hann fái þá aðstoð sem hann þurfi. Heilsufarsgögn verði send kærunefnd um leið og þau berist aðila. Aðili geti ekki farið neitt þar sem hann þori ekki til Íran vegna hótana sem hann hafi sætt af hálfu þarlendra yfirvalda. Eina landið sem hann hafi vegabréfsáritun til sé Úkraína en augljóst sé að hann geti ekki farið þangað. Aðili hafi stundað hér nám en orðið að hætta því. Hann hafi nú fengið vilyrði um skólavist á komandi hausti og óski því eftir frestun réttaráhrifa þar sem honum sé sá einn kostur að bera mál sitt undir dómstóla. Staðfesting skólavistar verði send svo fljótt sem verða megi. Með tilliti til þess sé þess óskað að brottvísun verði frestað svo aðili geti borið mál sitt undir dómstóla ásamt því að sækja um dvalarleyfi á grundvelli náms. Þá myndi það reynast aðila erfitt að vera í sambandi við talsmann sinn hér á landi yrði honum gert að yfirgefa landið. Þá sé óljóst hvort aðili muni hafa burði til að fylgja máli sínu eftir þar sem hann yrði, en það sé nauðsynlegt fyrir rekstur málsins að hann verði staddur hér á landi þegar málið verði tekið fyrir.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.
Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til heimaríkis.
Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.
Hvað varðar málsástæðu kæranda um að hann hafi fengið vilyrði um skólavist í haust bendir kærunefnd á að ákvæði 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga á einungis við þegar aðilar hyggjast höfða mál fyrir dómstólum. Það að kærandi hyggist fara í nám hér á landi kemur því ekki til álita við mat á frestun réttaráhrifa samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.
ÚRSKURÐARORÐ
Kröfu aðila er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður