Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 86/2012

Mánudaginn 3. mars 2014

 

 

A og B

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Arndís Anna K. Gunnarsdóttir og Lára Sverrisdóttir.

Þann 15. maí 2012 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A og B. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 27. apríl 2012 þar sem umsókn um heimild til greiðsluaðlögunar var hafnað.

Með bréfi 21. maí 2012 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 1. júní 2012.

Greinargerðin var send kærendum til kynningar með bréfi 8. júní 2012 og var kærendum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir kærenda bárust kærunefndinni 28. ágúst 2012.  

 

I. Málsatvik

Kærendur lögðu inn umsókn um greiðsluaðlögun 20. maí 2011. Kærendur eru bæði fædd 1972. Þau eru gift og búa ásamt tveimur börnum sínum í leiguhúsnæði í Noregi. Kærandi B er menntaður húsasmíðameistari og kærandi A er menntuð garðyrkjufræðingur. Bæði starfa þau við sína starfsgrein í Noregi. Ráðstöfunartekjur kærenda eru að meðaltali 725.027 krónur á mánuði.

Að mati kærenda má einkum rekja fjárhagserfiðleika þeirra til atvinnuleysis. Í apríl 2009 hafi kærandi B misst vinnu sína og var hann án atvinnu þar til í júní 2010. Vegna tekjulækkunar kærenda í kjölfar atvinnuleysis hafi þau ekki séð sér fært um að standa í skilum með skuldbindingar sínar. Kærandi B hafi fengið vinnu í Noregi í júní 2010 og hafi hann því flutt þangað. Kærandi A hafi einnig flutt til Noregs eftir að hún fékk vinnu þar í janúar árið 2011.

Samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara eru heildarskuldir kærenda 42.811.797 krónur og þar af falla 39.084.180 krónur innan samnings, sbr. 3. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.). Þær skuldir sem falla utan samnings um greiðsluaðlögun eru tilkomnar vegna námsláns og virðisaukaskattskuldar. Til helstu skuldbindinga var stofnað á árunum 2002‒2004 og 2006‒2009.

Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 27. apríl 2012 var umsókn kærenda um greiðsluaðlögun hafnað með vísan til þess að þau uppfylltu ekki skilyrði til að leita greiðsluaðlögunar samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge.

 

II. Sjónarmið kærenda

Málatilbúnað kærenda verður að skilja svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja um heimild til greiðsluaðlögunar verði felld úr gildi.

Í kæru kemur fram að kærendur hafi bæði átt lögheimili á Íslandi síðastliðin 38 ár. Kærandi A hafi jafnframt verið með lögheimili á Íslandi þegar sótt var um greiðsluaðlögun. Kærendur hafi upphaflega ætlað að vera í Noregi í eitt ár en sökum þess að atvinnuhorfur voru slæmar á Íslandi hafi þau ákveðið vera í Noregi í eitt ár til viðbótar. Umboðsmaður skuldara hafnaði umsókn þeirra um greiðsluaðlögun á þeim forsendum að ekki hafi verið sannað að búseta þeirra í Noregi væri tímabundin.

Kærendur telja að taka verði tillit til þess að þau séu með tvö börn á skólaaldri og þurfi að miða við lok hvers skólaárs. Þar sem uppsagnarfrestur á leiguhúsnæði og vinnusamningi sé þrír mánuðir geti þau flutt aftur til Íslands í lok skólaárs þegar aðstæður á vinnumarkaði batna. Ekki geti það talist til bóta að flytjast til Íslands ef enga vinnu sé þar að fá því þá sé enginn grundvöllur fyrir því að standa við þær skuldbindingar sem fyrir séu.

Kærendur hafi skipulagt flutning til Noregs sem tímabundna ráðstöfun enda sé mikill hluti búslóðar þeirra enn á Íslandi. Þá sé öll þeirra fjölskylda búsett á Íslandi og vilji þau umfram allt flytja aftur til Íslands því þar eigi þau heima. Þau hafi gert ráð fyrir að eldri dóttir þeirra myndi hefja framhaldsnám á Íslandi. Af þeim sökum sé búseta þeirra erlendis tímabundin og muni þau flytja til Íslands eigi síðar en þegar framhaldsskólaganga eldri dóttur þeirra hefjist. Heimild til greiðsluaðlögunar sé mjög mikilvæg til þess að kærendur geti flutt aftur til Íslands og staðið við skuldbindingar sínar.

Kærendur hafna fullyrðingu umboðsmanns skuldara um að óvíst sé hvort og þá hvenær þau komi aftur til Íslands. Það komi fram í svari kærenda að þau hyggist flytja aftur til Íslands þegar eldri dóttir þeirra hefur nám í framhaldsskóla.

 

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Í ákvörðun umboðsmanns skuldara kemur fram að við mat á því hvort veita skuli heimild til greiðsluaðlögunar beri umboðsmanni skuldara að líta til þeirra aðstæðna sem geti komið í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð, sbr. 6. gr. laganna.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr. lge. skuli synja um heimild til greiðsluaðlögunar ef fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skuldari uppfylli skilyrði laganna til að leita greiðsluaðlögunar. Í 4. mgr. 2. gr. lge. sé það skilyrði sett fyrir heimild til að leita greiðsluaðlögunar að umsækjandi sé búsettur og eigi lögheimili hér á landi. Víkja megi frá skilyrðinu ef sá sem leitar greiðsluaðlögunar sé tímabundið búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda og hafi verið búsettur í Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár samfleytt, enda leiti hann hennar einungis vegna skuldbindinga sem stofnast til á Íslandi við lánardrottna sem eigi heimili á Íslandi.

Umboðsmaður greinir frá því að kærunefnd greiðsluaðlögunarmála hafi í máli nr. 14/2011 úrskurðað um hvort líta ætti á búsetu kæranda erlendis sem tímabundna þannig að undantekningarheimild 4. mgr. 2. gr. lge. ætti við. Í úrskurði nefndarinnar frá 24. nóvember 2011 segi: „Til að afmarka þau tilvik þar sem um tímabundna búsetu erlendis er að ræða verður að líta til þess að heimildin er undantekning frá meginreglu, sem ekki er ætlað að ná til allra sem flytja erlendis um ótiltekinn tíma, til dæmis vegna atvinnuleitar. Það ræður ekki úrslitum í málum af þessu tagi hvort viðkomandi hafi flutt lögheimili sitt erlendis. Hins vegar verður við það að miða að með tímabundinni búsetu sé átt við það að sýnt sé fram á eða það gert líklegt að búsetu erlendis sé í upphafi markaður ákveðinn tími. Þegar flutt er til útlanda vegna starfs verður því að miða við það að viðkomandi hafi þegið tímabundið starf eða tekist á hendur verkefni sem fyrirfram er markaður ákveðinn tími eða einhver önnur atriði geri það líklegt að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Verði ekki litið svo á að um tímabundna búsetu sé að ræða ef sú staðhæfing er ekki studd neinum gögnum og er ekki fullnægjandi í þessu sambandi að viðkomandi lýsi yfir að hann hyggist flytja aftur til Íslands einhvern tíman í framtíðinni, til dæmis við breyttar aðstæður, sem óvíst er hvort og þá hvenær verði.“

Samkvæmt því sem fram komi í greinargerð kærenda séu þau búsett í Noregi og starfi þar annars vegnar á grundvelli ótímabundins ráðningarsamnings og hins vegar á grundvelli tímabundins ráðningarsamnings sem framlengdur hafi verið um eitt ár. Í samskiptum umboðsmanns skuldara við kærendur hafi komið fram að þau hafi í hyggju að flytjast til Íslands en óvíst sé hvenær það verði sökum aðstæðna á vinnumarkaði á Íslandi. Kærendur hafi ekki lagt fram gögn sem sýni fram á að búseta þeirra sé í raun tímabundin og henni hafi í upphafi verið markaður ákveðinn tími eða það með öðrum hætti gert líklegt að búsetja þeirra erlendis geti talist tímabundin í skilningi lge. Kærendum hafi verið gefið færi á því að leggja fram gögn sem renndu stoðum undir það að um tímabundna búsetu erlendis væri að ræða. Bréfinu hafi verið svarað þannig að vísað var til gagna sem kærendur höfðu áður lagt fram.

Með vísan til forsenda hinnar kærðu ákvörðunar fer umboðsmaður skuldara fram á að hin kærða ákvörðun verði staðferst.

 

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á a-lið 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge. Í a-lið 1. mgr. 6. gr. lge. kemur fram að synja skuli um heimild til greiðsluaðlögunar ef fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skuldari uppfylli skilyrði laganna til að leita greiðsluaðlögunar. Í 4. mgr. 2. gr. lge. segir að þeir einir geti leitað greiðsluaðlögunar samkvæmt lögunum sem eigi lögheimili og eru búsettir hér á landi. Frá þessu má þó víkja, meðal annars á þeim grundvelli að sá sem leitar greiðsluaðlögunar sé tímabundið búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda og hafi átt lögheimili og verið búsettur hér á landi í að minnsta kosti þrjú ár samfellt, enda leiti hann einungis greiðsluaðlögunar vegna skuldbindinga sem stofnast hafa hér á landi við lánardrottna sem eiga hér heimili.

Framangreind ákvörðun umboðsmanns byggist á því að kærendur séu búsett erlendis. Ekki sé unnt að líta svo á að búseta þeirra sé tímabundin vegna náms, starfa eða veikinda í skilningi undantekningarákvæðis 4. mgr. 2. gr. lge. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge., var því umsókn kærenda um greiðsluaðlögun synjað.

Í málinu er ágreiningur um hvort líta eigi á búsetu kærenda erlendis sem tímabundna þannig að áðurnefnd undantekningarheimild í 4. mgr. 2. gr. lge. eigi við.

Til skýringar á hugtakinu „tímabundin búseta erlendis“ í skilningi lge. verður að líta til þess að heimildin í 4. mgr. 2. gr. lge. er undantekning frá meginreglu. Af orðalagi ákvæðisins má ráða að því er ekki ætlað að ná til þeirra sem flytja til annarra landa í ótiltekinn tíma, til dæmis vegna atvinnuleitar. Við það verður að miða að með tímabundinni búsetu sé átt við það að sýnt sé fram á eða það gert líklegt að búsetu erlendis sé í upphafi markaður ákveðinn tími. Þegar flutt er til útlanda vegna starfs verður því að miða við það að viðkomandi hafi þegið tímabundið starf eða tekist á hendur verkefni sem fyrirfram er markaður ákveðinn tími eða einhver önnur atriði valdi því að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Að mati kærunefndarinnar verður ekki litið svo á að um tímabundna búsetu sé að ræða ef sú staðhæfing er ekki studd neinum gögnum. Nefndin telur ekki fullnægjandi í þessu sambandi að kærendur lýsi því yfir að þau hyggist flytja aftur til Íslands þegar fram líða stundir, til dæmis við breyttar aðstæður, sem óvíst er hvort og þá hvenær verði. Samkvæmt því telur nefndin ekki nægilegt í þessu sambandi að kærendur lýsi því yfir að þau hyggist flytja aftur til Íslands þegar dóttir þeirra hefji nám í framhaldsskóla á Íslandi.

Í tilviki kærenda liggur fyrir að þau eru búsett nú í Noregi samkvæmt skráningu í þjóðskrá og hefur kærandi B verið með skráð lögheimili þar síðan 12. nóvember 2010 og kærandi A síðan 17. janúar 2011. Að mati kærunefndarinnar hafa kærendur ekki sýnt fram á að búseta þeirra sé tímabundin í skilningi laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010.

Með vísan til þessa er ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja kærendum um heimild til greiðsluaðlögunar staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja A og B um heimild til að leita greiðsluaðlögunar er staðfest.

 

Sigríður Ingvarsdóttir

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir

Lára Sverrisdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta