Mál nr. 16/2014, úrskurður 13. mars 2014
Mál nr. 16/2014
Eiginnafn: Jarfi
Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2014 en erindið barst nefndinni 10. febrúar:
Eiginnafnið Jarfi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jarfa og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jarfi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.