Mál nr. 28/2014, úrskurður 13. mars 2014
Mál nr. 28/2014
Eiginnafn: Vindar
Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 28/2014 en erindið barst nefndinni 11. mars:
Eiginnafnið Vindar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Vindars og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Vindar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.