Mál nr. 27/2014, úrskurður 13. mars
Mál nr. 27/2014
Eiginnafn: Ilías
Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2014 en erindið barst nefndinni 11. mars:
Eiginnafnið Ilías (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ilíasar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ilías (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.