Hoppa yfir valmynd

Nr. 286/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 17. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 286/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030020

 

Kæra [...] og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. mars 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. febrúar 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B) og [...], fd. [...] (hér eftir C), ríkisborgarar Íraks, um alþjóðlega vernd á Íslandi og brottvísa þeim frá landinu. Var kæranda og börnum hennar gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Kærandi krefst þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barna hennar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga. Til vara krefst kærandi þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir stofnunina að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. október 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 5. október 2022 kom í ljós að fingraför hennar höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að henni hefði verið veitt alþjóðlega vernd þar í landi 29. september 2021. Með umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteinum fyrir sig og fyrir hönd barna sinna útgefnum af grískum yfirvöldum með gildistíma til 3. febrúar 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. nóvember 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá komu börn kæranda til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. og 30. nóvember 2022. Útlendingastofnun ákvað 23. febrúar 2023 að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda 24. febrúar 2023 og kærði hún ákvarðanirnar 6. mars 2023 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 16. mars 2023.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kæranda var ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. laga um útlendinga. Var skorað á kæranda að yfirgefa landið án tafar og athygli hennar vakin á því að yfirgæfi hún landið sjálfviljug yrði endurkomubannið fellt niður.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldri sínu til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til viðtala við hana og dætur hennar hjá Útlendingastofnun hvað málsatvik varðar. Kærandi byggir aðallega á því að endursending hennar til Grikklands brjóti gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Grikklandi í þeirri von að hún gæti öðlast þar tækifæri til að lifa öruggu lífi, fengið atvinnu, séð fyrir sér, aðlagast samfélaginu og í þeirri trú að hún fengi þar grunnþjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu og félagslega aðstoð. Kærandi hafi enga aðstoð eða leiðbeiningar fengið og hafi endað á götunni eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Kærandi vísar til alþjóðlegrar skýrslu þar sem fram komi að skortur sé á stuðningi við fólk með alþjóðlega vernd. Kærandi hafi upplifað mismun og fordóma af hálfu heimamanna í landinu og hún hafi séð fljótt að engin vonarglæta væri um framtíð í Grikklandi, m.a. vegna ótta við fyrrverandi eiginmann sinn en kærandi telji sig ekki vera örugga í Grikklandi. Kærandi vísar til 38. gr. laga um útlendinga um ofsóknir, en kærandi hafi lýst því að hún hafi þurft að sæta mismunun og verið ofsótt í Grikklandi bæði á grundvelli þjóðernis og aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi í Grikklandi, þ.e. flóttamaður af arabískum uppruna. Þá hafi kærandi mátt dvelja án nokkurrar félagslegrar aðstoðar á götunni. Þannig hafi kærandi orðið fyrir niðurlægjandi og ómannúðlegri meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, en hún hafi orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, níðyrðum, niðurlægingu og ofbeldi.

Kærandi byggir á því að yrði hún endursend til Grikklands tækju sömu aðstæður sig upp aftur og hún yrði á ný á götunni. Kærandi hafi áður leitað húsaskjóls hjá kærasta sínum en óvíst sé hvort henni standi það til boða snúi hún aftur til Grikklands. Þá sé heilsu hennar hætta búin þar sem enginn geti lifað með þeim hætti til lengri tíma án þess að hljóta skaða af, aukinheldur eigi hún ekki greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki kynnt sér efnislegt innihald sálfræðilegrar greiningar á kæranda sem lögð hafi verið fram í viðtali. Þannig hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarskyldu sinni um að rannsaka og upplýsa mál til hlítar. Frásögn hennar af aðstæðum sínum í Grikklandi sæki sér stoð í fjölda skýrslna sem unnar hafi verið um aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Kærandi vísar til alþjóðlegrar skýrslu þar sem fram kemur að niðurskurður síðustu ára hafi leitt til þess að heilbrigðiskerfinu fari hrakandi og skorti getu til að mæta þörfum almennings.

Þá gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þau húsnæðisúrræði sem henni standi til boða í Grikklandi. Kærandi telur að umfjöllun stofnunarinnar beri með sér að hún hafi ekki aðgang að virku gistiúrræði. Þá sé hvergi rakið í niðurstöðum stofnunarinnar hvernig kærandi hafi verið án atvinnu og fjárhagsstuðnings auk þess sem atvinnuhorfur séu bágbornar. Þá komist Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi jafnan rétt á við gríska ríkisborgara á að nýta sér þau úrræði sem í boði séu á gríska húsnæðismarkaðnum af hálfu grískra stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka. Kærandi telur að framangreint feli ekki í sér úrlausn á því hvort handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi geti fengið gistiúrræði eða húsnæðisaðstoð þrjátíu dögum eftir að verndarleyfi sé veitt og hversu líklegt sé að kærandi fengi slíkt. Kærandi ítrekar að horfa verði á hverja umsókn út frá einstaklingsbundnum aðstæðum hennar. Nauðsynlegt sé við slíkt heildstætt mat að svara því hvernig þau úrræði og aðstæður sem til staðar séu í ríki sem endursenda á til horfi við þeim kæranda sem í hlut eigi. Útlendingastofnun dragi ekki frásögn hennar um aðstæður í Grikklandi í efa og miðað við eigin heimfærslu í ákvörðun muni hún ekki hafa aðgang að húsnæði eða gistiskýli í Grikklandi. Það sé með öllu óviðunandi að senda kæranda í slíkar aðstæður þar sem henni sé ekki tryggð grunnþjónusta og sem afleiðing sé öryggi hennar, heilsu og velferð stefnt í hættu. Þá óttist kærandi um líf sitt verði hún send aftur til Grikklands. Hafi atburðir sem hún hafi upplifað í Grikklandi haft veruleg áhrif á andlega heilsu hennar. Þau veikindi hafi ekki verið rannsökuð til hlítar og svo virðist sem stofnunin hafi ekki kynnt sér efnislegt innihald sálfræðiskýrslu sem lögð hafi verið fram á grísku til stofnunarinnar. Því telur kærandi að rannsókn stofnunarinnar sé ekki uppfyllt lögum samkvæmt.

Til vara krefst kærandi þess að henni og dætrum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að henni skuli veitt mannúðarleyfi vegna sérstaklega erfiðra félagslegra aðstæðna sem þeirra bíði. Kærandi búi við bága fjárhagsstöðu og veikt stuðningsnet og eigi ekki þess kost að afla sér grunnvelferðarþjónustu. Þá skuli veita kæranda mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum en hún sé með þrjár dætur og því einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem hafi ekki verið rannsakað til hlítar. Að endursenda kæranda til Grikklands eða Íraks myndi brjóta gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement). Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálalega réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda og barna hennar

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]sem stödd er hér á landi ásamt þremur börnum sínum sem eru [...]og [...]. Þá hafi kærandi greint frá því að elsta dóttir hennar sé enn stödd í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að hún væri fráskilin en hún væri þolandi ofbeldis af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi sótt um alþjóðlega vernd í Finnlandi árin 2015 og 2016. Þá hafi kærandi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Grikklandi árið 2018 og hlotið alþjóðlega vernd þar í landi 2021. Kærandi hafi dvalið í Grikklandi þar til hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 4. október 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa fengið fjárhagsaðstoð frá Helios samtökunum. Þá hafi kærandi búið hjá kærasta sínum í Grikklandi. Kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi en hún hafi þurft að greiða fyrir lyf. Þá greindi kærandi frá því að hún hafi ekki getað skráð börn sín í skóla í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að vera með skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með háan blóðþrýsting og þurfi að taka inn lyf vegna þess. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið undir miklu álagi í Grikklandi og hún hafi ekki getað sofið á nóttunni. Kærandi hafi sótt tíma hjá sálfræðingi í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að A væri með astma og blóðleysi. Þá væri B einnig með astma og þyrfti að nota innúðalyf. Þá væri matarlyst C ekki nógu góð og hún væri gul í andliti auk þess sem hún væri með hárlos.

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna og af þeim verður ekki annað ráðið en að hagsmunum barnanna sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða þeirra verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin eru í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála þeirra í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 29. september 2021 og voru kærandi og börn hennar með gilt dvalarleyfi til 3. febrúar 2023 á grundvelli viðbótarverndar þeirra. Samkvæmt eftirfarandi gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að alþjóðleg vernd kæranda og barna hennar haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi þeirra renni út. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og börn hennar njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd farið yfir þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni.

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 31. mars 2022);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2023 – Greece (Freedom House, mars 2023);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);

  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins þegar kemur að málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins er varða meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/ EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Grikklandi verið aðili að Evrópuráðinu frá 9. ágúst 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Grikkland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 6. október 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1997 og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1985 og barnasáttmálann árið 1993. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 5. apríl 1960.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá maí 2022 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Upplýsingasíðan Refugee Info Greece veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi. Samkvæmt upplýsingum á síðunni hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum sé skólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt hafi stór hluti flóttabarna átt í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Samkvæmt skýrslunni er heimilisofbeldi refsivert og er fangelsisrefsing við slíku broti eitt til þrjú ár. Stjórnvöld framfylgi lögunum með skilvirkum hætti en mannréttindasamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld fyrir að bregðast ekki nægilega við tilkynningum þolenda heimilisofbeldis. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í framangreindri skýrslu að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir mismunun og fordómum í Grikklandi en gríska stjórnarskráin og þarlend lög leggi bann við slíkri mismunun. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé fyrst veitt dvalarleyfi (ADET) til þriggja ára sem hægt sé að endurnýja með umsókn eftir þann tíma. Einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd fái nú aðeins dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að endurnýja að þeim tíma liðnum til tveggja ára. Þá kemur fram að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvubréf. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að langur biðtími sé eftir endurnýjun dvalarleyfa og það geti tekið níu mánuði, þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið yfir lengri tíma, m.a. vegna Covid-19. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og gildir í þrjá mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á [...]sem stödd er hér á landi ásamt þremur börnum sínum sem eru [...]og [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með háan blóðþrýsting og að hún taki inn lyf vegna þess. Þá greindi kærandi frá því að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi beitt hana ofbeldi en hann hafi hótað henni í Grikklandi eftir að hún hafi skilið við hann. Kærandi hafi verið undir miklu álagi í Grikklandi og hún hafi ekki getað sofið á nóttunni. Kærandi hafi alltaf verið hrædd og verið áhyggjufull. Kærandi hafi sótt tíma hjá sálfræðingi í Grikklandi og hefur hún lagt fram gögn þess efnis.

Kærandi greindi frá því að A væri með astma og blóðleysi. Þá væri B einnig með astma og þyrfti að nota innúðalyf. Þá væri matarlyst C ekki nógu góð, hún væri gul í andliti og líklega með blóðleysi auk þess sem hún væri með hárlos. Í máli kæranda og barna hennar liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. nóvember 2022, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 8. nóvember 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. mars 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda og barna hennar séu nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda og barna hennar sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda og barna hennar ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi og börn hennar hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og barna hennar tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda og barna hennar geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi en hún hafi þurft að greiða fyrir lyf. Þá hafi kærandi sótt tíma hjá sálfræðingi um nokkurra mánaða skeið þar í landi.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu auk þess sem erfitt hafi verið að finna atvinnu og húsnæði í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þá kemur fram í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun að hún hafi haft tök á að óska eftir húsnæðisaðstoð hjá hjálparsamtökum en að hún hafi ekki gert það sökum þess að sex mánuðirnir sem stæðu henni til boða væru ekki nóg. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Skilyrði fyrir styrknum er m.a. að framvísa leigusamningi eða í tilviki heimilislausra, vottorði um heimilisleysi frá gistiskýli eða sveitarfélagi. Kærandi hefur greint frá því að hafa fengið aðstoð frá Helios samtökunum um tíma auk þess sem hún hafi búið hjá kærasta sínum í Grikklandi sem hafi greitt fyrir ferð hennar og barna hennar til Íslands auk þess að annast hund hennar þar í landi.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar hefur kærandi greint frá því að hafa fengið útgefið skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærandi er að mestu heilbrigð og vinnufær og telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að hún sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hún þurfi á að halda í viðtökuríki, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum í Grikklandi. Þá óttist kærandi fyrrverandi eiginmann sinn sem sé staddur í Grikklandi en hann hafi beitt hana ofbeldi. Auk þess væri hún hrædd um að hann myndi taka börnin og fara með þau til heimaríkis. Jafnframt hafi fyrrverandi eiginmaður hennar tekið myndir af henni sofandi án klæða, dreift þeim og hótað henni í kjölfarið. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir kæranda og barna hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærandi og börn hennar handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kæranda og barna hennar til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi barnanna að menntun tekur kærunefnd fram að þótt skýrslur bendi til þess að kærandi þurfi að yfirstíga ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn sín í skóla er að mati kærunefndar ljóst að B og C eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi fram til 15 ára aldurs og þá eigi öll börnin rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Samkvæmt framburði kæranda hafi börn hennar sótt tíma í grískukennslu.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kæranda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barna hennar á aðstæður þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 8. nóvember 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Að teknu tillit til þess eru ekki forsendur til að telja að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 4. október 2022. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barna hennar er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi og börn hennar eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi og börn hennar njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sú staðreynd að dvalarleyfi kæranda og barna hennar séu útrunnin hefur að mati kærunefndar ekki áhrif á þessa niðurstöðu enda njóta kærandi og börn hennar áfram alþjóðlegrar verndar í Grikklandi þrátt fyrir að þurfa að endurnýja dvalarleyfi sín, sbr. framangreindar landaupplýsingar.

Samkvæmt framansögðu verða mál kæranda og barna hennar ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hinar kærðu ákvarðanir og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður flóttafólks í Grikklandi.

Kærandi telur sig vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún telji að Útlendingastofnun hafi ekki kynnt sér efnislegt innihald sálfræðilegrar greiningar á kæranda sem hún hafi lagt fram í viðtali hjá Útlendingastofnun og því hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarskyldu sinni.

Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kæranda. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 8. nóvember 2022. Aðspurð kvaðst kærandi vera með háan blóðþrýsting og tæki inn lyf vegna þess. Þá hefði kærandi verið undi miklu álagi í Grikklandi og þurft að leita sér sálfræðiþjónustu. Kærandi greindi einnig frá því að vera þolandi ofbeldis af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar hennar, s.s. hvort hún hafi leitað til læknis í viðtökuríki, hvernig henni hafi liðið undanfarið og hvaða áhrif þeir atburðir sem hún hafi orðið fyrir hafi haft á líf hennar. Þá var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðunum Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang handhafa alþjóðlegrar verndar að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi með hliðsjón af þeim heilsufarsvandamálum sem kærandi kvaðst glíma við. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari hennar og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hennar enda er ekkert sem bendir til þess að hún glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærunefnd telur að þó fyrir liggi greining á andlegri heilsu kæranda frá Grikklandi leiði það ekki til þess að taka beri mál hennar til efnismeðferðar. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 2. janúar 2023, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu, engin frekari heilsufarsgögn bárust.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær.

Vegna kröfu um veitingu dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmið samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins kemur það ekki til skoðunar að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess nema umsókn um alþjóðlega vernd hafi verið tekin til efnismeðferðar. Kemur því ekki til skoðunar hvort kærandi og börn hennar uppfylli skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Eins og að framan greinir njóta kærandi og börn hennar virkrar verndar í Grikklandi í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Koma því aðstæður kæranda í heimaríki ekki til skoðunar enda er ekkert sem bendir til þess að hún eigi á hættu endursendingu þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá brottvísun og endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum máls sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 4. október 2022, ásamt börnum sínum. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þær því ekki frekari heimild til dvalar. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda og börnum hennar úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Í andmælum kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að hún telji það verulega ósanngjarna ráðstöfun þar sem hún sé með ferðaskilríki frá Grikklandi sem sé innan Schengen-svæðisins. Kærandi vísi til rannsóknarskyldu Útlendingastofnunar en sálfræðigreining liggi fyrir um andlega heilsu hennar. Þar komi m.a. fram að hún sé í mikilli þörf fyrir sálræna aðstoð sem hún geti ekki fengið í Grikklandi. Þá séu kærandi og börn hennar í þörf fyrir heilsufarsskoðun hér á landi. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kæranda í Grikklandi telst brottvísun kæranda frá Íslandi ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar eru handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa heimild til dvalar þar á þeim grundvelli, þrátt fyrir að dvalarleyfisskírteini þeirra séu útrunnin. Kærandi og börn hennar teljast því að mati kærunefndar hafa aðra heimild til dvalar í skilningi orðalags 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og hefur brottvísun þeirra frá Íslandi ekki áhrif á þá heimild.

Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur án tafar. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta