Hoppa yfir valmynd

Nr. 297/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 1. júlí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 297/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21050003

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. maí 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. apríl 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Til vara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi á grundvelli brota á 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og að málið verði sent til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 26. ágúst 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 28. febrúar 2020. Með umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 4. mars 2020 til 3. mars 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 10. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 13. apríl 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. apríl 2021 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. maí 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 11. maí 2021, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn þann 19. maí 2021.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til viðtals hjá Útlendingastofnun og greinargerðar hans til Útlendingastofnunar hvað varðar málsatvik. Í greinargerð til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að kærandi eigi við heilsufarsvandamál að stríða. Kærandi hafi greinst með krabbamein í skjaldkirtli og æxli í heiladingli á meðan hann dvaldi enn í heimaríki, sem hafi verið fjarlægt með skurðaðgerð í Egyptalandi. Kærandi þurfi á eftirfylgni og stöðugri lyfjagjöf að halda það sem eftir er vegna þessa. Bólgur vegna krabbameinsins hafi þrýst á sjóntaug og hann sjái ekki skýrt í dag. Þá hafi kærandi greint frá því að eiga erfitt með andardrátt ef hann taki ekki lyfin að staðaldri, en þjáist þó einnig af þunglyndi sem sé þekkt aukaverkun lyfjanna. Þá greindi kærandi frá því að hafa miklar áhyggjur af framtíðinni en hann hafi ekki haft aðgengi að lyfjum í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að hafa ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu eða nauðsynlegum lyfjum en hann hafi ekki verið með sjúkratryggingu. Þá hafi kærandi ekki fengið neina félagsþjónustu í Grikklandi. Jafnframt hafi enga atvinnu verið að fá þar í landi enda sé þar mikið atvinnuleysi. Kærandi hafi þurft að reiða sig á fjárhagsaðstoð frá föður sínum þar sem möguleikar hans á að standa á eigin fótum í Grikklandi voru engir. Mikið hafi verið um glæpagengi og eiturlyfjaneyslu og sölu. Þá hafi kærandi upplifað mikla óvild og fordóma heimamanna gagnvart sér og öðrum flóttamönnum, sem hafi skapað hjá honum mikinn ótta.

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar m.a. hvað varðar aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Kærandi hafi ekki fengið viðeigandi heilbrigðisþjónustu þar í landi og hann hafi ekki getað staðið straum af þeim kostnaði sem á hann féll vegna lyfjanna. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi sýnt af sér tómlæti í garð kæranda og ekki innt af hendi skyldu sína skv. 25. gr. laga um útlendinga þar sem læknir á Landspítalanum hafði viðrað þann möguleika að hafa samband við sjúkrahúsið í Tyrklandi til þess að fá gögn send aftur eða til að fá samantekt á stöðu hans, eftir að tiltekin framlögð gögn kæranda hafi reynst óþýðanleg. Kærandi vísar í þessu samhengi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20120021. Þá sé lagt til grundvallar í hinni kærðu ákvörðun að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðis- og félagsþjónusta í Grikklandi og vísað til þess að hann hafi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings fullyrðingum sínum um hið gagnstæða. Kærandi vísar til þess að komið sé í veg fyrir aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu með stjórnsýslulegum aðgerðum þar sem gerðar séu kröfur um að fólk framvísi gögnum, þar á meðal staðfestingu á heimilisfangi sem reynst hafi flóttafólki ómögulegt að afla. Kærandi telur að heimildir beri með sér að aðgangshindranir flóttafólks að heilbrigðiskerfinu séu mun meiri en grískra ríkisborgara og telur alvarlegt að Útlendingastofnun haldi öðru fram. Þá gerir kærandi athugasemd við það að hvergi í hinni kærðu ákvörðun komi fram að gengið hafi verið úr skugga um það hvort hann hafi fengið útgefna kennitölu eða skattnúmer í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að ekki sé víst hvort hann hafi aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi en hann hafi greint frá því að hafa hvorki verið með heilbrigðistryggingu né hafa haft heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi sem bendi til þess að hann hafi hvorki fengið útgefna kennitölu né skattnúmer þar í landi. Því telur kærandi að mat Útlendingastofnunar á því hvort honum standi til boða raunverulegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, sé hvorki byggt á fullnægjandi upplýsingum né hafi þar farið fram einstaklingsbundið mat á aðstöðu kæranda í Grikklandi.

Þá fjallar kærandi um aðstæður hans í Grikklandi og gerir frekari athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Kærandi gerir þ. á m. athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem honum standi til boða í Grikklandi. Kærandi vísar í greinargerð sinni til fjölmargra heimilda, m.a. ýmissa skýrslna og ummæla mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins, sem hann telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli kæranda. Jafnframt fjallar kærandi um stöðu mála í Grikklandi þegar komi að fordómum í garð innflytjenda, þ. á m. flóttafólks. Kærandi vísar til þess að stjórnvöld í Grikklandi séu einnig gerendur í slíkum málum og stór hluti vandans. Þá fjallar kærandi um það mat Útlendingastofnunar að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og telur að niðurstaða stofnunarinnar sé sett fram án fullnægjandi rökstuðnings. Kærandi vísar til þess að ákvæðið gerir þær kröfur að vísað sé til þeirra réttarheimildar sem ákvörðun sé byggð á og þeim meginsjónarmiðum sem ráðandi voru við mat á matskenndri ákvörðun. Kærandi vísar til hinnar almennu rannsóknarreglu í 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem fram komi að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð máls. Þá vísar kærandi til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og byggir á því að eðlilega þurfi slíkt mat að fara fram áður en Útlendingastofnun taki ákvörðun. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu kæranda hafi ekki farið fram enda virðist sem það sé ekki byggt á frásögn hans eða gögnum málsins. Kærandi vísar þá til þess að það sé hlutverk kærunefndar að meta einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og meta hvort andleg eða líkamleg veikindi hans leiði til þess að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans. Kærandi telur að  tilefni sé til þess að kærunefnd útlendingamála leggi mat á það hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Kærandi gerir athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á því hvort sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi við í máli hans. Kærandi gerir athugasemd við framsetningu texta í hinni kærðu ákvörðun sem og túlkun Útlendingastofnunar á ákvæði 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018. Kærandi vísar til þess að þau viðmið sem nefnd séu í ákvæðinu séu nefnd í dæmaskyni og séu því aðeins til leiðbeiningar og ekki tæmandi um það sem heimilt sé að líta til þegar kemur að því að leggja heildarmat á aðstæður kæranda komi til endursendingar hans til Grikklands. Kærandi áréttar skyldu stjórnvalda að leggja ítarlegt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem áréttuð er í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um þá heilsufarskvilla sem séu að hrjá hann en samkvæmt yfirlækni á Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma geti skapast lífshættulegt ástand mjög hratt. Kærandi gerir athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að hann eigi rétt á grunnheilbrigðisþjónustu en heimildir beri með sér að aðgengi að slíkri þjónustu sé afar erfitt í Grikklandi. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki kannað nægilega vel hvort þau lyf sem hann þurfi á að halda séu raunverulega aðgengileg í Grikklandi. Kærandi telur að rökstuðningi Útlendingastofnunar sé verulega áfátt hvað mat á einstaklingsbundinni stöðu kæranda varðar og að verulega skorti á að heildarmat á aðstæðum hans hafi farið fram. Kærandi telur að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum annmarka sem leiða skuli til ógildingar hennar. Kærandi telur jafnframt að kærunefnd útlendingamála sé ekki stætt á öðru en að hlutast til um að fram fari ítarlegri rannsókn eða greining á líkamlegri og andlegri heilsu kæranda.

Þá fjallar kærandi um mat Útlendingastofnunar á áhrifum heimsfaraldursins. Kærandi telur að þróun Covid-19 faraldursins í Grikklandi hafi færst nær því sem hún var þegar kærunefnd úrskurðaði í svipuðum málum síðastliðið vor. Kærandi vísar til þess að Covid-19 faraldurinn hafi haft mikil áhrif á líf og líðan flóttafólks í Grikklandi.

Kærandi vísar til þess að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi ekki verið spurður að því hvort hann væri með skattnúmer og kennitölu í Grikklandi. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á því hvort kæranda standi til boða raunverulegt aðgengi að réttindum, aðstoð og þjónustu í Grikklandi, sé hvorki byggt á fullnægjandi upplýsingum né hafi þar farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda í Grikklandi. Staðhæfingar Útlendingastofnunar um aðgengi kæranda að heilbrigðisþjónustu virðist eingöngu byggt á opinberum skýrslum og almennum heimildum. Því telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni og framkvæmt einstaklingsbundið mat á aðstæðum hans. Gerir kærandi því til vara þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 28. febrúar 2020 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. mars 2023. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/), sótt 1. júlí 2021;
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 1. júlí 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða kennitölu sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer sem sé tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefna kennitölu (AMKA) sem teljist varanlegt úrræði. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer, hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður karlmaður á [...]. Í komunótu frá Göngudeild innkirtla- og efnaskiptalækninga, dags. 5. febrúar 2021, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að árið 2019 hafi hann farið í aðgerð í Tyrklandi á heiladingli, trúlega vegna stækkunar með þrýstingi á sjóntaugar þar sem einkennin sem leiddu til greiningar voru hratt versnandi sjón. Þá sé kærandi enn með slæma sjón og noti gleraugu. Kærandi noti lyf vegna vanstarfsemi í skjaldkirtli, lyf við tíðum þvaglátum auk þess sem kærandi þurfi sprautur með testósterónhormónum.  Kærandi hafi verið sendur í blóð- og þvagprufu og gefinn tími í endurkomu til að fara yfir prufur og stilla af lyf. Í komunótu frá Göngudeild innkirtla- og efnaskiptalækninga, dags. 24. mars 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað til mats á ætluðum heiladingulsvanda. Kærandi hafi verið að taka uppbótarhormón sem passi við heiladingulsbilun í kjölfar aðgerðar eða vegna æxlis í heiladingli að mestu reglulega. Blóðprufa sem kærandi hafi farið í þann 8. febrúar 2021 bendi til heiladingulsbilunar. Kærandi þurfi að fá segulómun af heiladingli en sá tími hafi ekki verið pantaður að sinni. Þá kemur fram að kærandi sé ekki beinlínis í virkri meðferð en þurfi uppbót vegna skorts á hormónum. Öll hormónin séu lífsnauðsynleg og fáanleg víða um heim þar sem aðgengi að lyfjum sé hefðbundið. Skortur geti valdið þreytu, sleni og slappleika í víðum skilningi. Verði hann uppiskroppa með tiltekið lyf geti skapast lífshættulegt ástand mjög hratt, er í nótunni vísað til þess að slíkt geti gerst á sólarhringum. Verði brestur á aðgengi á öðru tilteknu lyfi truflist salt- og vatnsbúskapur hans á örfáum dögum og geti komist á lífshættulegt stig. Verði brestur á öðrum tilteknum lyfjum sem hann þurfi á að halda taki það lengri tíma að verða var við skortseinkenni en þetta séu engu að síður nauðsynleg hormón. Í göngudeildarnótu innkirtla- og efnaskiptalækninga, dags. 4. maí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað í sprautu á testósterónhormóni. Þá hefur kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá Tyrklandi, sem samkvæmt gögnum máls reyndist ekki unnt að þýða.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Þá byggir kærandi á því að samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum muni skortur á hormónum í líkama hans skapa lífshættulegt ástand mjög hratt auk þess sem verði skortur á lyfjum truflist salt- og vatnsbúskapur hans á örfáum dögum og geti komist á lífshættulegt stig. Þá hefur kærandi borið fyrir sig að hann hafi hvorki verið með heilbrigðistryggingu né haft heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi. Kærandi telur að það bendi til þess að hann hafi hvorki fengið útgefna kennitölu né skattnúmer í Grikklandi.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa kennitalna (AMKA) til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu kennitalna til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi einstæður karlmaður sem, samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum, hefur verið greindur með heiladingulsbilun. Kærandi taki inn lyf vegna vanstarfsemi í skjaldkirtli og sé í þörf fyrir reglulegar hormónasprautur. Þá komi fram í áliti sérfræðilæknis á Göngudeild innkirtla- og efnaskiptalækninga á Landspítalanum að verði kærandi uppiskroppa með tiltekið lyf geti skapast lífshættulegt ástand mjög hratt, er vísað til þess að slíkt geti gerst á sólarhringum. Verði brestur á aðgengi á öðru tilteknu lyfi truflist salt- og vatnsbúskapur hans á örfáum dögum og geti komist á lífshættulegt stig. Kærunefnd telur að í ljósi framlagðra heilsufarsgagna hafi kærandi þörf fyrir greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu vegna veikinda sinna. Framangreindar upplýsingar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi bera með sér að það geti verið kæranda vandkvæðum bundið að sækja þá þjónustu m.a. vegna álags á gríska heilbrigðiskerfinu vegna Covid-19 og þeirra hindrana sem hann kæmi til með að þurfa að yfirstíga. Ennfremur gætu orðið tafir á því að kærandi fái aðgang að þeirri þjónustu og úrræðum sem hann þarf á að halda. Í ljósi gagna málsins og vegna þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar í viðtökuríki telur kærunefnd að fyrir hendi sé ástæða er varðar heilsufar kæranda sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið. Hefur heilsufar kæranda því vægi við mat á því hvort taka beri umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar, í ljósi gagna málsins, að það sé nauðsynlegt að kærandi hafi greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu vegna heilsufars síns í Grikklandi. Forsenda aðgengis kæranda að félags- og heilbrigðisþjónustu í Grikklandi sé að hann hafi kennitölu og skattnúmer þar í landi. Aftur á móti benda gögn málsins ekki til þess að kærandi hafi slíkar skráningar. Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann hafi ekki verið með heilbrigðistryggingu og ekki haft heimild til að stunda atvinnu sem hann telur benda til þess að hann hafi ekki fengið útgefna kennitölu né skattnúmer í Grikklandi. Að mati kærunefndar er ekki unnt að draga aðra ályktun af gögnum málsins um aðstæður í Grikklandi en að óvissa sé uppi um hvort kærandi muni greiðlega og án tafa hafa aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann þarf á að halda í ljósi fyrrgreindra upplýsinga um mögulegar aðgangshindranir að heilbrigðisþjónustu þar í landi og tafa við að nálgast hana og þess álags sem Covid-19 hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi.

Þegar litið er til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, einkum þarfa hans á áframhaldandi heilbrigðisþjónustu, og í ljósi gagna um aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á, að fella beri úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála eins og hér stendur á, að taka beri mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant´s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                              Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta