Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 95/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 14. maí 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 95/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dagsettu 11. júlí 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 7. júní 2011 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá X var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 7. júní 2011. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 14. júlí 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 7. júní 2011. Í vottorði vinnuveitanda, X, dags. 8. júní 2011, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Sökum þess hvernig starfslokum kæranda var háttað, var kærandi beðin um að færa fram skýringar á uppsögn sinni. Skýringar kæranda bárust Vinnumálastofnun með bréfi dags. 15. júní 2011. Þar kemur fram að kærandi hafi sagt upp störfum hjá X vegna óánægju varðandi launamismun, einelti sem ekki hafið verið tekið á, ekki hafi verið fallist á að hún fengi starfshlutfall minnkað og ekki hafi verið virtur frítökuréttur.

Í kæru kæranda kemur fram að hún hafi verið að reyna að fá launamismun leiðréttan frá 11. janúar 2010. Hún hafi einnig margoft bent á að ekki sé tekið á einelti sem hún hafi orðið fyrir á vinnustað. Frítekjuréttur hennar hafi ekki verið virtur. Loks hafi hún tölvupóst til sönnunar þess að skriflegum bréfum frá henni hafi ekki verið svarað.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinumarkaðsaðgerða, dags. 17. ágúst 2011, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því  sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars, að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. 

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sé mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma, aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir. Kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X 30. apríl 2011.

Vinnumálastofnun telji að í þeim tilvikum sem óánægja starfsmanns með vinnuumhverfi sitt sé ástæða starfsloka, þurfi sá er hlut eigi að máli a.m.k. að hafa gert tilraunir til úrbóta með aðkomu stéttarfélags síns, yfirmanns á vinnustað eða eftir atvikum Vinnueftirlitsins, áður en hann taki ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Þá bendir Vinnumálastofnun á að Vinnueftirlitið hafi leiðbeinandi hlutverk og eftirlitsskyldu í eineltismálum á vinnustöðum sbr. reglugerð nr. 1000/2004 um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum. Af gögnum málsins megi ekki sjá að kærandi hafi leitað allra leiða til lausnar á þeim vanda sem upp hafi komið milli hennar og yfirmanna sinna. Vinnumálastofnun telji því að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 22. ágúst 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 5. september 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálf upp störfum sínum hjá X, án þess að vera með annað starf í hendi.

Að sögn kæranda var ástæða uppsagnar óánægja með launamismun, einelti sem ekki var tekið á, ekki hafi verið fallist á að hún fengi starfshlutfall minnkað og ekki hafi verið virtur frítökuréttur. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi gert tilraunir til að fá launahækkun, bæði með kröfum til vinnuveitanda og bréfi til stéttarfélags síns. Einnig kemur fram að hún hafi ekki fallist á tillögur vinnuveitanda síns að úrbótum á vinnustaðnum og hvernig hægt væri að koma til móts við óánægju hennar í starfi. Að lokum kemur fram að kærandi hafi sent starfsmannafélagi vinnuveitanda bréf þar sem hún kvartaði yfir launamismun, broti á frítökurétti og einelti.

Starfsmaður úrskurðarnefndarinnar ræddi við starfsmann X þann 24. apríl sl. Hann sagði kæranda góðan fagmann en að samstarfið hafi ekki gengið nógu vel. Hann sagði að reynt hafi verið að koma til móts við hana varðandi kaupkröfur en henni hafi ekki þótt það viðunandi. Hann sagði kæranda ekki hafa bent á einelti á vinnustað fyrr en um það leiti sem hún hætti og sagðist ekki fallast á að um einelti hafi verið að ræða. Hann hafnaði þeirri staðhæfingu að frítökuréttur hennar hafi ekki verið virtur og sagði að hún hafi m.a. fengið heimild vorið 2010 til að ferðast í einkaerindum á launum. Varðandi starfshlutfall sagði hann kæranda hafa verið ráðna í nýtt starfshlutfall haustið 2011 til eins árs.

Með vísan til alls framanritaðs er það mat úrskurðarnefndarinnar að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 7. júní 2011 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta