Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 172/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. mars 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 172/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17020035

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. febrúar 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. janúar 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Belgíu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til þeirrar meginreglu nýrra laga um útlendinga sem birtist í 1. mgr. 36. gr., sbr. einnig 3. mgr. 36. gr. og 1. og 2. mgr. 42. gr., laga nr. 80/2016 um útlendinga og 2. mgr. 36. gr. sömu laga.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests sbr. sama ákvæði.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. desember 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 26. ágúst 2016 og 28. desember 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Þann 31. ágúst 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 13. október 2016 barst svar frá belgískum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 25. janúar 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Kærandi kærði ákvörðunina þann 15. febrúar 2017 til kærunefndar útlendingamála. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 124/2016 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 frestar kæra á ákvörðunum Útlendingastofnunar teknum á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga réttaráhrifum sjálfkrafa. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 23. febrúar 2017.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Belgíu. Lagt var til grundvallar að Belgía virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Belgíu ekki í sér brot gegn 33. gr. flóttamannasamningsins, 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Belgíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggði mál sitt á því að skoða ætti aðstæður kæranda í heimaríki í ljósi 36. gr. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga varðandi bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Í niðurstöðu Útlendingastofnunar er tekið fram að öll ríki Evrópusambandsins séu bundin af meginreglunni um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu samkvæmt skuldbindingum í alþjóðlegum mannréttindasamningum og eftir viðurkenndum reglum þjóðaréttar. Belgía sé þar af leiðandi einnig bundið af reglunni eins og íslensk stjórnvöld. Ekkert bendi til annars en að belgísk stjórnvöld fylgi þeim alþjóðareglum sem Belgía hefur gengist undir að framfylgja.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd 28. desember 2016. Þá kemur fram í greinargerð kæranda að í viðtali hans hjá Útlendingastofnun hafi kærandi tjáð stofnuninni að hann vilji ekki fara aftur til Belgíu þar sem hans bíði ekkert annað en áframsending til [...] en samþykki belgískra stjórnvalda fyrir endurviðtöku byggist á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kæranda hafi verið veitt alþjóðlega vernd í Belgíu árið 2010 en honum hafi síðar verið synjað um áframhald þeirrar verndar og gert að snúa aftur til [...]. Þá hafi kærandi fengið takmarkaða lögfræðiaðstoð við meðferð umsóknar hans um alþjóðlega vernd í Belgíu.

Kærandi byggir á því að ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um að ef beiting 1. mgr. 36. gr. laganna leiði til þess að brotið sé gegn 42. gr. sömu laga, varðandi bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu þá skuli taka mál til efnismeðferðar hér á landi. Þá er vísað til c-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna að baki þeim. Í greinargerð kæranda kemur fram að ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu og að 2. mgr. ákvæðisins geri kröfu til þess að mat fari fram í hverju tilviki fyrir sig varðandi hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn verði tekin til efnismeðferðar. Annars vegar vegna þess að með nýjum lögum um útlendinga sé leiddur í ljós vilji löggjafans til að víkka út gildissvið ákvæðisins miðað við beitingu stjórnvalda á sambærilegu ákvæði í eldri lögum um útlendinga. Hins vegar vegna þess að ákvæðið taki einnig til þeirra tilvika þegar varhugavert þyki að beita ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar og senda umsækjendur um alþjóðlega vernd til ríkja í Evrópu þar sem ástæða þyki til að ætla að meðferð eða aðbúnaður þeirra sé í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða aðrar þjóðréttarlegar skuldbindingar íslenska ríkisins. Að auki muni endursending kæranda brjóta gegn 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Í greinargerð kæranda er aðstæðum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu lýst og vitnað í því sambandi til alþjóðlegrar skýrslu, Asylum Information Database (AIDA), Country Report: Belgium, frá febrúar 2017. Í henni komi fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu hafi takmarkað aðgengi að hæliskerfinu, aðbúnaður þeirra sé bágborinn og miklar tafir séu á málsmeðferðinni. Þá sé aðgangur að lögfræðiaðstoð takmörkunum háður vegna strangra reglna um endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð og skorts á opinberu fjármagni. Þeir sem fengið hafi synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Belgíu og sæki aftur um slíka vernd eigi ekki rétt á húsnæði eða annarri félagslegri aðstoð sem umsækjendum um alþjóðlega vernd sé annars veitt í landinu. Verði kærandi endursendur til Belgíu þurfi hann því að búa á götunni þar til hann verði sendur úr landi en verulega erfitt sé að sækja um alþjóðlega vernd að nýju í Belgíu. Auk þess sé erfitt fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að finna sér atvinnu þrátt fyrir að aðgangur að vinnumarkaðnum í Belgíu sé tryggður í lögum, m.a. vegna tungumálaörðugleika, mikillar mismununar í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd á vinnumarkaðnum og þeirra staðreyndar að erlend prófskírteini séu ekki metin til jafns við innlend. Þá sé mismunun algeng gagnvart [...] minnihlutahópum í Belgíu, bæði á vinnumarkaði og af lögreglu.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að belgísk stjórnvöld reki varðhaldsmiðstöðvar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og til standi að fjölga plássum í miðstöðvunum nú í byrjun árs 2017. Þá hafi Mannréttindadómstóll Evrópu hafi gert athugasemdir við yfirvöld í Belgíu fyrir að halda umsækjendum um alþjóðlega vernd of lengi í varðhaldi. Þá hafi móttökutilskipun Evrópusambandsins varðandi varðhaldsvist umsækjenda um alþjóðlega vernd ekki verið innleidd í belgískan rétt.

Þá er í greinargerð kæranda bent á að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem beri ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni. Það fái stoð í niðurstöðu Hæstaréttar Bretlands frá 2014 og greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu frá desember 2015. Í greinargerð innanríkisráðuneytisins komi meðal annars fram að nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu hafi skýrt að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð eða móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í viðtökulandinu heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Kærandi byggir kröfur sínar jafnframt á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga og einnig hafi skort á einstaklingsbundið mat á aðstæðum kæranda. Í greinargerð kæranda er bent á Útlendingastofnun vísi í niðurstöðu sinni aðeins í örfáar heimildir en með tilliti til 10. gr. stjórnsýslulaga, um rannsókn stjórnvalds, og 22. gr. sömu laga, um efni rökstuðnings, verði að gera þá kröfu að stofnunin vísi til heimilda niðurstöðu sinni til stuðnings. Þá telur kærandi að orðalag í rökstuðningi Útlendingastofnunar hafi ekki uppfyllt ofangreindar kröfur stjórnsýsluréttar um rannsóknarskyldu og efni rökstuðnings fyrir íþyngjandi ákvörðun stjórnvalda og að stofnunin hafi í raun ekki virt þessar reglur við úrvinnslu umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá er af hálfu kæranda því haldið fram að Útlendingastofnun geti ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína án þess að undirbúa mál sín vel. Í því sambandi bendir kærandi á bréf umboðsmanns Alþingis til forstjóra Útlendingastofnunar frá 5. ágúst 2016 þar sem fram komi að ábyrgð stjórnvalds við að undirbúa mál sín vel sé mikil, sérstaklega þegar komi að samspili reglna stjórnsýsluréttarins um málsmeðferð og rannsókn mála.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að belgísk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Belgíu er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæði sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, febrúar 2017),

· Belgium 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017),

· Freedom in the World 2016 – Belgium (Freedom House, 20. júní 2016),

· Amnesty International Report 2016/17 – Belgium (Amnesty International, 22. febrúar 2017) og

· The organisation of Reception Facilities in Belgium (European Migration Network, ágúst 2013).

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar geta sótt um alþjóðlega vernd á flugvellinum við komu til Belgíu eða hjá útlendingastofnun (b. Dienst Vreemdelingenzaken) þar í landi. Stofnun sem fer með umsóknir um alþjóðlega vernd (b. Commissariaat-generaal voor de vluchtelingen en de staatlozen (CGVS)) tekur ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi. Ákvarðanir hennar eru kæranlegar til stjórnsýsludómstóls í útlendingamálum (b. Raad voor Vreemdelingenbetwistingen). Fái umsækjendur endanlega synjun á umsókn sinni eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun. Liggi nýjar upplýsingar fyrir í málinu, sem auka möguleika viðkomandi umsækjanda á því að fá alþjóðlega vernd, sendir útlendingastofnun málið til CGVS sem svo metur innan átta virkra daga hvort umsóknin verði tekin til efnismeðferðar. Umsækjandi á rétt á félagslegri aðstoð sé samþykkt að taka viðbótarumsókn til efnismeðferðar. Þá geta umsækjendur borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, teljir þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eiga rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn. Að sama skapi er þeim tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Af ofangreindum gögnum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu má jafnframt ráða að þegar umsækjendur eru endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar er umsókn þeirra skoðuð sem viðbótarumsókn. Í þeim tilfellum er umsækjendum veitt húsnæði, mataraðstoð og vasapeningar þegar CGVS hefur tekið viðbótarumsókn þeirra til skoðunar. Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Belgíu eiga rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og eiga jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Belgíu brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Belgíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi, sem er [...] einhleypur karlmaður, tjáði Útlendingastofnun í viðtali þann 12. janúar 2017 að hann væri andlega og líkamlega hraustur. Í gögnum málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það er því mat kærunefndar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 28. desember 2016.

Kærandi kvaðst í framangreindu viðtali hjá Útlendingastofnun ekki hafa sérstök tengsl við Ísland og þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemda í greinargerð varðandi rannsókn málsins tekur kærunefnd fram að ekki fæst annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi byggt á nýjustu tiltæku skýrslum um aðstæður í Belgíu. Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Við töku ákvörðunar í máli kæranda hjá Útlendingastofnun byggði stofnunin niðurstöðu sína á gögnum sem aflað var við rekstur málsins auk þeirra gagna sem kærandi lagði fram og á nýjustu tiltæku skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu. Verður ekki annað séð á ákvörðun Útlendingastofnunar en að farið hafi fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum kæranda. Kærunefndin fær ekki séð að skort hafi á rannsókn máls kæranda hjá Útlendingastofnun og getur því ekki fallist á það með kæranda að stofnunin hafi brugðist rannsóknarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga. Þá er það mat kærunefndar að í ákvörðun stofnunarinnar sé gerð grein fyrir þeim meginsjónarmiðum sem voru ráðandi við mat Útlendingastofnunar á því hvort rétt væri að synja umsókn kæranda um efnismeðferð og helstu málsatvik sem höfðu verulega þýðingu við úrlausn málsins, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Telur kærunefnd því ekki tilefni til að gera athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar í málinu.

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Belgíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Þorbjörg Inga Jónsdóttir Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta