Hoppa yfir valmynd

Nr. 500/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 17. október 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 500/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19070055 og KNU19070056

 

Kæra […],

[…]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 23. júlí 2019 kærðu kona er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir K) og maður er kveðst heita […] , vera fæddur […] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 4. júlí 2019, um að synja kærendum og börnum þeirra, […] , fæddur […] , ríkisborgari Íraks (hér eftir A), […] , fæddur […] , ríkisborgari Íraks (hér eftir B) og […] , fæddur […] , ríkisborgari Íraks (hér eftir C), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísað er til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga þar sem kemur fram að maki útlendinga sem nýtur alþjóðlegrar verndar og börn hans yngri en 18 ára eiga einnig rétt á alþjóðlegri vernd nema sérstakar ástæður mæla því í mót.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd þann 7. júní 2018. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum kom í ljós að kærendur hefðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 18. janúar 2019 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að taka mál kærenda ekki til efnislegrar meðferðar heldur endursenda þau til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 13. mars 2019 felldi kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kærenda úr gildi og lagði fyrir stofnunina að taka málið til efnismeðferðar. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 6. og 7. júní 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 4. júlí 2019, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 23. júlí 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda þann 16. ágúst 2019 ásamt fylgigögnum. Kærunefnd bárust viðbótargögn í málum kærenda þann 14. október 2019.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna hótana ótilgreindra aðila.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A, kom fram að A hefði mætt til viðtals þann 7. júní 2019 ásamt talsmanni sínum. Var ákvörðun í máli A grundvölluð á framburði hans og foreldra hans og var niðurstaðan sú að honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum B og C, kom fram að kærendum hafi verið boðið að B og C færu í viðtal en að kærendur hafi ekki viljað að viðtöl yrðu tekin við þau. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að framburður kærenda um málsástæður B og C hafi verið talinn fullnægjandi til að leggja til grundvallar ákvörðun án þess að taka viðtal við B og C. Fram kom að umsóknir B og C væru grundvallaðar á framburði foreldra þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að B og C væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Börnum kærenda var vísað frá landinu.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð kærenda kemur fram þau hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau væru Kúrdar og fædd og uppalin í […], Sulaymaniyah í Kúrdistan. Aðspurð um hvaða atvik hafi leitt til þess að kærendur hafi flúið heimaríki kváðust kærendur hafa lifað venjulegu lífi þangað til að þau hafi ákveðið að selja stórt hús sitt í desember 2017. M hafa fundið nafnlaust bréf á handfangi á hurð bíls hans í febrúar 2018, þar sem honum hafi verið hótað lífláti. Kærendur hafi í kjölfarið leitað til lögreglu sem hafi ætlað að rannsaka málið ef frekari sönnunargögn kæmu í ljós, annars yrði málið fellt niður að ári liðnu. Tveimur til þremur mánuðum seinna hafi kærendur séð menn í bíl keyra niður götuna og þá hafi nágrannar sagt þeim að þessir menn hafi komið í tvígang að spyrja um kærendur og gengið í kringum húsið. Þau hafi verið hrædd um að þessir aðilar væru að vakta þau og K hafi því ákveðið að taka börn þeirra úr skóla. Í kjölfarið hafi þau óttast um líf sitt og barna sinna og ákveðið að flýja þann 5. maí 2018. Kærendur telji að lögregla hafi ekki aðhafst neitt í málinu og sé í flestum tilvikum ófær um að veita borgurum aðstoð.

Í greinargerð er fjallað almennt um sögu Íraks, stjórnarfar og ástand mannréttindamála þar í landi. Þá er fjallað um aðstæður í sjálfstjórnarhéraðinu Kúrdistan og vísa kærendur til alþjóðlegra mannréttindaskýrslna máli sínu til stuðnings. 

Kærendur gera athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum þeirra. Í fyrsta lagi fjalli Útlendingastofnun um trúverðugleika kærenda og vísa til misræmis í frásögnum M og K varðandi efni og innihald umrædds hótunarbréfs. Í því samhengi vísa kærendur til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um trúverðugleikamat í hælismálum, sem fjalli um takmörk og sveiflur mannlegs minnis. Ljóst sé að rúmt ár sé liðið frá því að M hafi fundið bréfið, innihald þess hafi haft mikil áhrif á kærendur og þau lagt það fram á lögreglustöð strax daginn eftir. Það sé því ósanngjarnt að gera þá kröfu að kærendur muni efni bréfsins nákvæmlega. Í öðru lagi hafi Útlendingastofnun metið það sem svo að kærendur ættu að muna atburði með nákvæmari hætti, a.m.k. dagssetningar o.fl. Kærendur hafi hins vegar fengið upplýsingar um umrædda aðila frá nágrönnum og eigi þetta atriði því ekki að rýra trúverðugleika þeirra að verulegu leyti. Þá hafi Útlendingastofnun talið að tilkynning sem kærendur hafi lagt fram til lögreglu væri ekki til þess fallin að styrkja trúverðugleika frásagnar þeirra enda sé þar maður nafngreindur sem […]. Samkvæmt M sé í Írak yfirleitt notast við fjölskyldunöfn og […] sé nafn föður hans og […] nafn afa hans. Því sé í raun vísað til M í fyrrnefndri tilkynningu. Þá sé að mati kærenda hvorki sanngjarnt né raunhæft að fallast á að þeim standi til boða fullnægjandi lögregluvernd í heimaríki sínu.

Í greinargerð er þess krafist að þegar litið sé til málsástæðna og krafna kærenda skuli það sem börnum kærenda sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Tekið skuli tilliti til þeirrar verndar sem þau eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld eru skuldbundin af samkvæmt þjóðarétti.

Kærendur byggja aðalkröfu sína á því að þau uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ofsóknir í garð þeirra megi rekja til aðildar þeirra að tilteknum þjóðfélagshópi, þ.e. þolenda glæpagengja. Í framburði sínum hafi kærendur greint frá því að þeim stafi ógn af fólki sem líkur séu á að hafi tengsl við glæpasamtök í Kúrdistan. Samkvæmt nýlegri skýrslu EASO um öryggisástandið í Írak sé fjöldi vopnaðra aðila sem séu valdir að glæpum og ofbeldi í Írak og séu slíkir aðilar oft ekki þekkjanlegir og geti verið erfitt að komast að raun um auðkenni þeirra. Oft sé um að ræða fólk sem tengist glæpahópum eða glæpagengjum. Til stuðnings aðalkröfu sinni um alþjóðlega vernd vísa kærendur í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um umsóknir um alþjóðlega vernd vegna gengjaofbeldis. Í greinargerð er tekið fram að þó þau viti ekki nánari deili á þeim aðilum sem þau óttist standi líkur til þess að þeir tengist glæpastarfsemi á einhvern hátt. Heimildir beri með sér að einstaklingar sem eigi í vandræðum vegna glæpahópa í Kúrdistan geti almennt ekki stólað á vernd þarlendra yfirvalda. Leggja verði til grundvallar að þeir sem kærendur óttist falli undir ákvæði c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga um að ekki sé raunhæft að leita ásjár yfirvalda. Kærendur telji jafnframt að með því að senda þau aftur til Íraks verði brotið gróflega gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement sem lögfest sé í 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Til vara gera kærendur kröfu um viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af því sem rakið sé í greinargerð kærenda í tengslum við aðalkröfu þeirra sé ljóst að kærendur uppfylli skilyrði fyrri hluta 2. mgr. 37.gr. laga um útlendinga, þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að þau eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi refsingu verði þau send til heimaríkis. Þá eigi síðari hluti ákvæðisins jafnframt við enda ljóst að langvarandi stríðsástand hafi ríkt í Írak. Þá liggi fyrir að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ráði ríkjum frá því að senda fólk aftur til Írak vegna þeirra vopnuðu átaka sem hafi átt sér stað og eigi sér enn stað í landinu.

Til þrautavara er gerð sú krafa að kærendum og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að langvarandi stríðsástand hafi ríkt í landinu og að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Þá sé hagsmunum þriggja barna kærenda best borgið verði fjölskyldunni veitt dvalarleyfi hér á landi, fjarri aðilum sem séu á eftir fjölskyldunni og fjarri þeim vopnuðu átökum sem ríkt hafi í heimalandi kærenda í fjölda ára.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað írökskum skilríkjum fyrir sig og börn sín. Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur væru frá Kúrdistan í Írak. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefi tilefni til að draga í efa mat Útlendingastofnunar á þjóðerni kærenda og barna þeirra og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu frá Kúrdistan. Að öðru leyti sé óljóst um auðkenni kærenda og barna þeirra.

Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Annual Report 2017/18 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual report on the human rights situation in 2018 – Iraq (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, 19. febrúar 2019);
  • Country Policy and Information Note: Medical and healthcare issues, Iraq (UK Home Office, maí 2019);
  • Country policy and information note: Perceived collaborators, Iraq (UK Home Office, febrúar 2019);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, 16. nóvember 2018);
  • Country Information and Guidance Note: Iraq: Return/Internal relocation (UK Home Office, uppfærð skýrsla 19. nóvember 2018);
  • Country Policy and Information Note: Iraq: Political opinion in the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (UNHCR, ágúst, 2017);
  • Country Reports on Human Rights Practices 2018 - Iraq (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • EASO COI Meeting Report – Iraq (European Asylum Support Office (EASO), 1. júlí 2017);
  • EASO COI Report – Iraq – Actors of Protection (European Asylum Support Office (EASO), nóvember 2018);
  • Foreign Travel Advice – Iraq (The UK Foreign and Commonwealth Office, 3. október 2019);
  • Freedom in the World 2017- Iraq (Freedom House, 2. júní 2017);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, 3. maí 2019);
  • Iraq – Security situation. EASO Country of Origin Information report (EASO, 1. mars 2019);
  • Iraq – Targeting of Individuals (EASO, 7. mars 2019);
  • Irak: Politi og rettsvesen I de tre kurdiskstyrte provinsene (KRI) (Landinfo, 27. október 2016);
  • Iraq: Basisinfo (Landinfo, 28. september 2018);
  • Iraq Flash Update (UNHCR, 31. maí 2018);
  • Iraq: Relevant COI for Assessment on the Availability of an Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA): Ability of Persons Originating from (Previously or Currently) ISIS - held or Conflict Areas to Legally Access and Remain in Proposed Areas of Relocation (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Northern Iraq – Security situation and the situation for the internally displaced persons (IDPs) in the disputed areas, incl. possibility to enter and access the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (Danish Immigration Service, 5. nóvember 2018);
  • Oil and Borders: How to Fix Iraq´s Kurdish Crisis (International Crisis Group, 17. október 2017);
  • Operation Inherent Resolve and other overseas contingency operations (Lead IG Report to the United States Congress, 1. apríl 2019 - 30. júní 2019);
  • Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);
  • The Kurdistan Region of Iraq (KRI) Access, Possibility of Protection, Security and Humanitarian Situation (Danish Immigration Service, apríl 2016);
  • UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016) og
  • World Report 2019 – Iraq (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Samkvæmt framangreindum gögnum er Írak lýðræðisríki með tæplega 40 milljónir íbúa. Írak varð til eftir fyrri heimsstyrjöld þegar sigurvegarar stríðsins skiptu Mið-Austurlöndum á milli sín. Ríkið var breskt yfirráðasvæði fram til ársins 1932, þá tók við tímabil sem einkenndist af pólitískum óstöðugleika sem lauk árið 1958 þegar komið var á fót lýðveldi. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1994 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2008. Ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011 og alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010. Þá fullgilti ríkið jafnframt samning um réttindi einstaklinga með fötlun árið 2013.

Í framangreindum gögnum kemur fram að frá árinu 1968 til 2003 hafi Írak verið alræðisríki sem hafi lotið stjórn Ba‘ath flokksins. Stjórn flokksins hafi verið steypt af stóli í kjölfar innrásar bandaríska hersins og bandamanna þeirra í Írak árið 2003. Frá innrásinni hafi ástandið á mörgum svæðum í Írak verið óstöðugt. Hafi samtök sem kenna sig við íslamskt ríki (Daesh) hafið uppreisn árið 2014 og náð undir sig stórum landsvæðum. Frá þeim tíma hafi íröksk stjórnvöld, með aðstoð alþjóðasamfélagsins, náð miklum árangri í að ná aftur fullri stjórn yfir ríkinu þótt enn séu lítil svæði í vesturhluta landsins sem uppreisnarmenn hafi á valdi sínu. Þá hafi íröksk yfirvöld ekki fulla stjórn yfir hersveitum sínum og dæmi séu um að hersveitir á vegum yfirvalda fremji mannréttindabrot gegn almennum borgurum , þ. á m. ólögmætar aftökur og pyndingar í varðhaldi. Alvarleg mannréttindabrot og brot á mannúðarlögum hafi haft mikil áhrif á almenna borgara á þeim svæðum í Írak sem átökin hafi náð til. Af þeim sökum hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum Íraka frá þeim svæðum þar sem átök geisi og þar sem ástandið sé óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh. Þá sé það mat stofnunarinnar að vegna almenns ástands í Írak, þ.m.t. vegna fjölda þeirra sem hafi þurfta að flýja innanlands, sé í miklum meirihluta mála ekki grundvöllur til að líta svo á að Írakar frá þessum svæðum geti notið verndar í öðrum hlutum landsins.

Þá kemur fram í framangreindum gögnum að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnast Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönum Daesh og annarra tengdra samtaka.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa Kúrdistan að tilstuðlan forseta Kúrdistan þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrdistan. Írösk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og viðurkenndu ekki niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi íraski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan Kúrdistan og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti Kúrdistan sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í Kúrdistan en það eru PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem hafi farið fram þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Kúrdistan. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna hótana ótilgreindra aðila. Þeim hafi borist hótun með bréfi sem hafi verið sett á handfang á hurð bifreiðar M og að nágrannar þeirra hafi sagt þeim að aðilar hafi verið að fylgjast með þeim og spyrjast fyrir um þau. Kærendur hafa greint frá því að þau hafi talið að umræddir aðilar væru á eftir þeim vegna fjármuna sem þau hefðu undir höndum vegna sölu á fasteign sinni. Kærendur greindu frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að þau hafi leitað til lögreglu en að hún hafi ekki aðhafst neitt.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 6. og 7. júní 2019 greindu M og K frá atburðum sem hafi leitt til flótta þeirra frá heimaríki. Þau kváðust ekki muna nákvæmlega hvenær þau hafi fengið umrætt hótunarbréf, hvað hafi staðið í bréfinu eða vitað hverjir stæðu á bak við umræddar hótanir. Að mati Útlendingastofnunar var frásögn kærenda ónákvæm og mat Útlendingastofnun frásögn kærenda ótrúverðuga að mestu leyti. Kærendur lögðu fram viðbótargögn til Útlendingastofnunar þann 21. júní 2019, sem þau kváðu vera afrit umrædds hótunarbréfs og afrit tilkynningar frá lögreglu um niðurfellingu á máli þeirra. Útlendingastofnun sendi gögnin til þýðingar og samkvæmt því komi fram í hótunarbréfinu að einhver hafi heyrt út á götu að einhverjir aðilar hafi verið að tala um að myrða M. Af því má ráða að bréfið inniheldur ekki hótun gagnvart kærendum eða börnum þeirra.

Í tilkynningu frá lögreglu sem dagsett sé 13. janúar 2019 komi fram að dómari hafi látið mál […] niður falla og hafnað frekari rannsókn þar sem viðkomandi hafi ekki fylgt kvörtun sinni eftir. Í umræddri tilkynningu hafi verið vísað í 422. gr. írakskra hegningarlaga nr. 111/1969 sem fjallar um mannrán á einstaklingi sem er undir 18 ára að aldri. Framangreind gögn voru að mati Útlendingastofnunar ekki til þess fallin að varpa frekara ljósi á mál kærenda. Þá hafi það verið mat stofnunarinnar að tilkynning frá lögreglu sem kærendur hafi lagt fram hafi ekki styrkt trúverðugleika frásagnar þeirra þar sem aðili máls sé nafngreindur sem […] og vísað til lagagreinar sem fjalli um mannrán. Í greinargerð kærenda til kærunefndarinnar er vísað til þess að í Írak sé yfirleitt notast við fjölskyldunöfn og sé […] nafn föður hans og […] sé nafn afa hans. Því sé í raun vísað til M í umræddri tilkynningu.

Kærunefnd tekur undir mat Útlendingastofnunar varðandi ákveðið misræmi í frásögn kærenda, einkum hvað varðar fjölda þeirra atvika sem þau byggi ótta sinn við ofsóknir á. Þá eru gögn sem kærendur hafi lagt fram ekki til þess fallin að varpa skýrara ljósi á þá hættu sem kærendur telja sig vera í í heimaríki sínu. Kærunefnd telur að þó svo að kærendur kunni að eiga á hættu áreiti ótilgreindra einstaklinga í heimaríki af ástæðum sem eru ókunnar hafi þau ekki lagt nægan grunn að þeirri málsástæðu sinni að þau eigi á hættu ofsóknir af því alvarleikastigi sem 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga tekur til, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að þau sæti ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki sínu. Þá benda gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur eigi þær á hættu. Þau gögn og skýrslur um aðstæður í heimaríki kærenda sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar, og framlögð gögn kærenda, benda ekki til annars en að ætla megi að réttarvörslukerfið þar í landi hafi burði til að veita þeim viðeigandi vernd. Þó fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé að einhverju leyti ábótavant þá er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld í heimaríki kærenda skorti vilja eða getu til að veita þeim viðeigandi aðstoð eða vernd gegn athöfnum, sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd einnig á því að þau séu aðilar að tilteknum þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga þar sem þau séu þolendur ofsókna af hálfu aðila í glæpagengi. Samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar sem kærunefnd hefur skoðað geta þolendur glæpagengis í sumum tilvikum talist vera aðilar að þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga. Þá geti hótanir um ofbeldi og líflátshótanir, jafnvel þótt umsækjandi hafi ekki enn sætt ofbeldi, jafnast á við ofsóknir þegar hótanir eru metnar trúverðugar í því samhengi sem um ræðir. Kærunefnd telur að jafnvel þó að byggt yrði á frásögn kærenda um að þau hafi sætt áreiti af hálfu ótilgreindra aðila bendi ekkert til þess að þeir aðilar teljist tilheyra glæpagengi og ætlaðar ofsóknir þeirra gagnvart kærendum sé á grundvelli aðildar þeirra að tilteknum þjóðfélagshópi með vísan til leiðbeininga Flóttamannastofnunar. Gögn málsins, þ.m.t. framburður kærenda, benda ennfremur ekki til þess að sú hætta sem kærendur kveða sig vera í tengist þeim ástæðum sem 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vísar til, sbr. 3. mgr. 38. gr. laganna.

Eins og rakið er í greinargerð hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum einstaklinga til Íraks sem koma frá þeim svæðum þar sem átök geisa; þar sem ástandið er óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn ISIS-samtakanna eða þeim svæðum þar sem ISIS er enn við völd. Þá telur Flóttamannastofnun óráðlegt að senda einstaklinga frá slíkum svæðum til annarra svæða innan Írak. Samkvæmt þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar er ljóst að heimabær kærenda, Sulaymaniyah, sé á öruggu svæði í KRI. Verður því ekki talið að viðvörun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eigi við um einstaklinga sem séu í sambærilegri stöðu og kærendur.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum B og C kemur fram að ekki hafi verið talin ástæða til að taka viðtal við þau. A fór í viðtal hjá stofnuninni þann 7. júní 2019 ásamt talsmanni sínum. Þar greindi hann frá því að faðir hans glímdi við ákveðið vandamál í heimaríki en kvaðst ekki vita um hvað málið snerist. Hann greindi frá því að hann teldi sig vera í hættu í heimaríki og að lögreglan gæti ekki hjálpað honum. Þá kvaðst A ekki telja að fjölskyldan gæti búið á öðrum stað í Kúrdistan og verið örugg enda væri alls staðar hættulegt fyrir þau að vera. Ekkert í framburði A gaf til kynna að það áreiti sem hann kvað föður sinn hafa orðið fyrir hafi beinst að A sjálfum. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna kærenda samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Við það mat horfir kærunefnd m.a. til þess að þau eru í fylgd með foreldrum sínum og njóta stuðnings þeirra. Ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til annars en að kærendur séu við góða heilsu og vinnufær og að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum. Samkvæmt gögnum málsins munu börn kærenda hafa aðgang að mennta- og heilbrigðiskerfi í heimaríki. Í málinu liggur ekki fyrir að börn kærenda hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til, aðrar en þær sem leiða af aldri þeirra. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska þeirra að það sé þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. 

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau og börn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kærenda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að vera fyrri meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki sé fulltrúar stjórnvald. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulegar hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kærenda að fá stuðnings í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997). 

Eins og að framan greinir benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir eindregið til þess að svæði KRI sé talið öruggt og að lögregla og öryggisveitir Kúrda séu öflugar og vel búnar. Þá sé heimabær kærenda, Sulimaniyah, langt inni í landi KRI þar sem lögregla og öryggissveitir hafi stjórn á aðstæðum. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærendur séu í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu í KRI, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðalegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til KRI. Jafnframt er það mat kærunefndar, með vísan til skýrslna um aðstæður í heimaríki kærenda og barna þeirra, að þeim standi til boða vernd og aðstoð lögreglu í KRI telji þau sig þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Þótt fallist verði á að langvarandi stríðsástand hafi ríkt í heimaríki kærenda hafa aðstæður í heimahéraði kærenda einkennst fremur af stöðugleika. Verður því ekki fallist á að kærendur hafi ríka þörf á vernd vegna þess stríðsástands sem ríkir í öðrum héruðum heimaríkis þeirra. Þá halda kærendur því fram að yfirvöld í heimaríki geti ekki veitt þeim þá vernd sem þau þarfnist. Eins og að framan hefur verið rakið er það niðurstaða kærunefndar að í heimahéraði kærenda standi þeim til boða vernd og aðstoð lögreglu telji þau sig þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðunartöku.

Kærendur hafa greint frá því að þau óttist ótilgreinda aðila sem hafi hótað þeim en þau þekki ekki deili á. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 2. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríki eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki og mats á trúverðugleika frásagnar kærenda telur kærunefnd að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að tilefni sé að veita þeim og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærendur lögðu fram heilsufarsgögn þann 14. október 2019 þar sem fram kemur að þau hafi leitað sér læknisaðstoðar vegna ýmissa heilsukvilla undanfarna mánuði. Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að kærendur og börn þeirra séu almennt heilsuhraust. Þá hafa kærendur greint frá því að þau hafi haft aðgang að læknisþjónustu í heimaríki. Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau og börn þeirra hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við það mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda og barna þeirra í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Við mat á hagsmunum barnsins skal Útlendingastofnun m.a. líta til öryggis barns, velferðar og félagslegs þroska. Ennfremur, við ákvörðun í máli sem varðar barn skal stofnunin taka skriflega afstöðu til þessara þátta. Af ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi A verður ekki ráðið að skrifleg afstaða hafi verið tekin til nefndra þátta eða að þessir þættir hafi fengið sérstaka skoðun. Er ákvörðunin að þessu leyti því haldin annmarka.

Í umfjöllun kærunefndar hafa ofangreindir þættir verið kannaðir sérstaklega og hefur nefndin komist að þeirri niðurstöðu að það samrýmist best hagsmunum A og annarra barna kærenda að þau fari með foreldrum sínum til heimaríkis. Kærunefnd telur jafnframt ljóst að sá annmarki sem er á ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi A hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu málsins. Þá hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda af skjótri málsmeðferð. Af þessum sökum telur kærunefnd að ekki sé ástæða til, eins og á stendur sérstaklega í þessu máli, að fella ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi A úr gildi. Kærunefnd gerir þó athugasemdir við þennan skort á lögbundinni umfjöllun um hagsmuni A og þau viðmið sem stofnunin virðist styðjast við vegna mats á hagsmunum barna kærenda og brýnir fyrir stofnuninni að vanda betur mat sitt á hagsmunum barna.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.

 

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærendur komu hingað til lands 7. júní 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag ásamt börnum sínum. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra og barna þeirra um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kærendum og börnum þeirra því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur og börn þeirra eru við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kærenda er vakin á því að ef þau yfirgefa ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa þeim. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra.

Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra eru staðfestar. Lagt er fyrir kærendur og börn þeirra að hverfa af landi brott. Kærendum og börnum þeirra er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their children are affirmed. The appellants and their children are requested to leave the country. The appellants and their children have 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta