Mál nr. 25/2014, úrskurður 13. mars 2014
Mál nr. 25/2014
Eiginnafn: Leyla
Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2014 en erindið barst nefndinni 5. mars:
EiginnafniðLeyla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Leylu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Leyla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.