Mál nr. 24/2014, úrskurður 13. mars 2014
Mál nr. 24/2014
Eiginnafn: Stjarney
Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2014 en erindið barst nefndinni 5. mars:
Eiginnafnið Stjarney (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Stjarneyjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Stjarney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.