Hoppa yfir valmynd

Nr. 429/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 9. september 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 429/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030016

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. mars 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknina til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Verði ekki fallist á það er þess krafist til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknina til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Til þrautavara er þess krafist að málið verði sent til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna brota á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. október 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 30. október 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 13. október 2017. Við umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 8. nóvember 2017 til 7. nóvember 2020 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum yfirvöldum með gildistíma til 17. mars 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 23. nóvember 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 15. febrúar 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. febrúar 2021 og kærði kærandi ákvörðunina þann 2. mars 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 11. mars 2021. Frekari gögn og viðbótarathugasemdir bárust dagana 30. júní, 15. júlí og 6. september 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til viðtala hjá Útlendingastofnun og annarra gagna málsins, þ.m.t. greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar, hvað málsatvik varðar. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að kærandi hafi glímt við alvarleg andleg og líkamleg veikindi vegna atburða sem hann hafi upplifað í heimaríki og endurupplifi enn í dag. Kærandi hafi verið handtekinn, fangelsaður og pyndaður í heimaríki og þjáist af líkamlegum áverkum enn í dag. Kærandi sé bundinn við hjólastól vegna áverka á mænunni þar sem hann sé enn með byssukúlu fasta. Kærandi hafi greint frá því að andleg heilsa hans hafi algjörlega hrunið vegna líkamlegra meiðsla hans. Kærandi hafi enga stjórn á þvagláti og hægðum vegna meiðslanna og sé alltaf með þvagpoka. Kærandi hafi greint frá því að hafa hrakist frá Grikklandi vegna þess að hann hafi staðið frammi fyrir því að vera heimilislaus. Kærandi hafi fengið aðstoð við leigu á húsnæði í tvö ár en í lok leigutímabilsins hafi hann átt að sjá um leiguna sjálfur. Kærandi hafi verið atvinnulaus og ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi eftir að hafa fengið alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi ítrekað reynt að finna atvinnu á meðan hann dvaldi í Grikklandi en ekkert orðið ágengt. Kærandi hafi því lifað á lánum frá fjölskyldu þar sem hann hafi misst framfærslu eftir að hann hafi fengið dvalarleyfi í Grikklandi. Þá hafi kærandi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu eins og aðrir einstaklingar búsettir í Grikklandi.

Í greinargerð kæranda til kærunefndar fjallar hann um aðstæður sínar í Grikklandi og gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Kærandi gerir þ. á m. athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá heilbrigðis- og félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem honum standi til boða í Grikklandi. Kærandi vísar í greinargerð sinni til fjölmargra heimilda sem hann telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli kæranda. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að kæranda standi ekki ógn af kynþáttafordómum og mismunun. Þær heimildir sem kærandi hafi vísað til hafi aðra sögu að segja og vísar kærandi m.a. til ýmissa skýrslna máli sínu til stuðnings auk ummæla mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að á þeim tíma er úrskurður kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 var kveðinn upp hafi verið um að ræða ófyrirsjáanleika er varðar Covid-19 faraldurinn en nú séu ríki heims mun betur í stakk búin til að takast á við áskoranir tengdar faraldrinum. Kærandi mótmælir þessari niðurstöðu Útlendingastofnunar og vísar til þess að úrskurður kærunefndar hafi byggst á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum hafi leitt að öðru leyti. Kærandi vísar til þess að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að úrskurðurinn féll, hvorki varðandi stöðu flóttafólks í Grikklandi né varðandi áhrif Covid-19 faraldursins. Kærandi fjallar um úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU20110009 frá 10. desember 2020 og er ósammála niðurstöðu kærunefndar. Kærandi telur að enn ríki mikil óvissa í heiminum öllum og hver áhrif Covid-19 faraldursins verði á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Þá byggir kærandi á því að með því að synja umsókn kæranda um efnismeðferðar, þrátt fyrir að Útlendingastofnun telji að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, hafi stofnunin virt að vettugi bein fyrirmæli löggjafans sem meðal annars séu ítrekuð í greinargerð með frumvarpi að lögum um útlendinga.

Með tilliti til uppruna kæranda, frásagnar hans og með hliðsjón af þeim upplýsingum um þær aðstæður sem bíði hans í Grikklandi muni hann eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar á grundvelli kynþáttar og hann geti vænst þess að staða hans verði verulegra síðri en almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Byggir það mat m.a. á takmörkuðum möguleikum kæranda á löglegri atvinnu í landinu. Takmarkaðir möguleikar kæranda á atvinnu í Grikklandi muni auka líkurnar á því að hann endi á götunni heimilislaus. Jafnframt séu kröfur grískra stjórnvalda til þeirra sem sæki um félagslega aðstoð það miklar að þær geri þeim sem hlotið hafi þar alþjóðlega vernd nær ómögulegt að uppfylla þær. Þá beri að líta til áhrifa Covid-19 faraldursins í grísku samfélagi. Í ljósi framangreinds séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Enn fremur byggir kærandi á því að hann muni standa frammi fyrir ómannúðlegum aðstæðum í Grikklandi og með endursendingu íslenskra stjórnvalda á honum myndu þau gerast brotleg við grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga og mannréttindasamninga sem Ísland á aðild að, þ.e. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Í viðbótarathugasemdum kæranda kemur m.a. fram að hann geri alvarlegar athugasemdir við niðurstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans og að ekki sé fallist á að staða hans verði talin verulega síðri en annarra íbúa Grikklands. Kærandi vísar til þess að hann sé fatlaður og bundinn við hjólastól. Kærandi sé með þvaglegg og hafi þörf fyrir þvagpoka. Þá hafi kærandi greint frá því að hafa mætt hindrunum í Grikklandi vegna stöðu hans sem fatlaðs flóttamanns en líkamleg skerðing hafi staðið í vegi fyrir fullri og árangursríkri samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Kærandi hafi greint frá því að stjórnvöld hafi hvorki veitt honum nauðsynlega grunnaðstoð eða þjónustu né sérstaka aðstoð eða þjónustu vegna fötlunar hans. Kærandi fjallar um 32. gr. a reglugerðar um útlendinga en þar komi fram að stjórnvöld skuli sérstaklega taka tillit til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar vegna alvarlegrar mismununar, þ.e. sé hann útilokaður frá nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða ef hann geti vænst þess að staða hans í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærandi vísar til þess að heimildir staðfesti frásögn hans um að fötluðu fólki sé mismunað í Grikklandi og að staða þess sé verulega síðri en annars flóttafólks. Þá sé fatlað fólk sá minnihlutahópur sem sæti hvað mestum hindrunum dags daglega. Fatlað fólk sé líklegra til að vera án atvinnu og þ.a.l. án sjúkratrygginga, líklegra til að sæta mismunun í heilbrigðiskerfinu, líklegra til að búa við fátækt, líklegra til að þurfa að bera þyngri kostnað vegna sérþarfa sinna og líklegra til að sæta ofbeldi. Þá mæti fatlað fólk jafnframt hindrunum á húsnæðismarkaði, vegna skorts á aðgengi. Fatlað flóttafólk sæti nú enn frekari hindrunum vegna Covid-19 faraldursins, t.d. hvað varðar aðgang að heilbrigðisþjónustu, atvinnumarkaði, félagslegri þjónustu, menntun og er meðal þeirra hópa sem hafi orðið fyrir hvað verstum afleiðingum faraldursins. Kærandi vísar til þess að hann hafi ekki notið aðstoðar og þjónustu í Grikklandi, þrátt fyrir að hafa sérþarfir og ríka þjónustuþörf. Kærandi hafi átt erfitt með að koma sér á milli staða og sækja réttindi sín. Ljóst sé að kærandi hafi ekki notið viðeigandi aðlögunar í Grikklandi. Kærandi muni eiga erfitt uppdráttar þar í landi vegna alvarlegrar mismununar þar sem ríkið hafi útilokað hann frá nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar og ekki veitt honum viðeigandi aðstoð.

Kærandi gerir athugasemdir við niðurstöðu Útlendingastofnunar um að 42. gr. laga um útlendinga komi ekki í veg fyrir að hann verði sendur aftur til Grikklands. Kærandi telur að lýsingar hans á aðstæðum sínum komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi hvað varðar m.a. húsnæði, atvinnu, félagslega þjónustu, heilbrigðisþjónustu, aðbúnað og mismunun á grundvelli stöðu og fötlunar. Kærandi telur að aðstæður fatlaðs flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni og gerir því þá kröfu til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að í fyrsta lagi hafi Útlendingastofnun virt að vettugi að rannsaka stöðu fatlaðs flóttafólks í Grikklandi og hvers kærandi megi vænta, verði hann endursendur til Grikklands. Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka sérstaklega raunverulegt aðgengi kæranda að húsnæði, félagslegri aðstoð, sérhæfðri aðstoð, heilbrigðisþjónustu, hjálpartækjum, atvinnu og rannsaka hvort fatlað flóttafólk sæti frekar fordómum en annað flóttafólk og hvort fatlað flóttafólk sé berskjaldaðra fyrir skammtíma og langtímaáhrifum Covid-19 faraldursins en aðrir. Í öðru lagi telur kærandi að Útlendingastofnun hafi átt að rannsaka betur hvort hann hafi í raun og veru gilt dvalarleyfi í Grikklandi. Dvalarleyfi kæranda hafi runnið út þann 7. nóvember 2020 en kærandi hafi greint frá því að hann hafi reynt að endurnýja dvalarleyfi sitt en verið synjað. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi átt að setja sig í samband við grísk stjórnvöld og ganga úr skugga um hvort kærandi geti í raun endurnýjað dvalarleyfi sitt í Grikklandi. Mikilvægt sé að upplýsingarnar liggi fyrir þar sem kærandi hafi ríka þjónustuþörf og eigi í erfiðleikum með að bera sig eftir réttindum sínum og aðstoð. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110019 frá 4. febrúar 2021 þar sem sambærilegur ágalli hafi verið á rannsókn máls.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt viðbótarvernd í Grikklandi þann 13. október 2017 og hafði hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 7. nóvember 2020. Af gögnum málsins verður ráðið að alþjóðleg vernd kæranda haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi hans renni út en sækja þurfi sérstaklega um endurnýjun á dvalarleyfum. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • The Greek Ombudsman’s Report on the implementation of the UN Convention on the rights of persons with disabilities (The Greek Ombudsman, júlí 2019);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. september 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti þó verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinni kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í stjórnarskrá Grikklands er m.a. kveðið á um réttindi fatlaðs fólks auk þess sem Grikkland hefur fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og valfrjálsa bókun við samninginn. Í skýrslu gríska umboðsmannsins frá árinu 2019 kemur fram að fatlaðir einstaklingar hafi aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi í gegnum almannatryggingakerfið líkt og almenningur. Þá eigi þeir einstaklingar sem ekki hafi verið sjúkratryggðir einnig rétt á heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Jafnframt séu sjúkrahúsinnlagnir endurgjaldslausar fyrir fatlaða einstaklinga í Grikklandi. Þá kveði grísk lög á um réttindi fatlaðra til jafns við aðra til atvinnu. Jafnframt eigi ótryggðir einstaklingar sem búi við fötlun rétt á örorkubótum í gegnum gríska velferðarkerfið. Í skýrslunni kemur fram að gríska ríkið þurfi þó að gera umbætur á ýmsum sviðum í löggjöf sinni til að réttindi fatlaðra nái fyllilega fram að ganga en tryggja þurfi með fullnægjandi hætti réttindi fatlaðra m.a. á sviði menntunar, félagslegrar verndar og þjónustu. Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sem glími við fötlun kunni að mæta erfiðleikum við að sækja um félagslega styrki. Þurfi þeir að gangast undir skoðun hjá tiltekinni stofnun (e. Disability Accrediation Centre) til að meta hvort örorka þeirra sé meiri en 67%, en einungis þeir sem nái þeim þröskuldi eigi rétt á örorkubótum. Þá kemur fram að tafir geti verið á málsmeðferð.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fái einstaklingar sem hafi hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildi um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið renni út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsóknir um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafi því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi renni út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefi til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi séu þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 26. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi fengið byssuskot í 7. hryggjarlið í heimaríki, hann hafi lamast í kjölfarið fyrir neðan mitti og sé nú í hjólastól. Kærandi hafi greint frá því að hugsa mikið á næturnar og vera hræddur um að eitthvað komi fyrir hann. Þessar áhyggjur hafi orðið þess valdandi að hann eigi erfitt með að festa og viðhalda svefni. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 7. desember 2020, kemur fram að röntgenmynd hafi leitt í ljós gamalt berklasmit en að öðru leyti séu lungun hrein og eðlileg. Þá sé aðskotahlutur úr málmi í liðbolnum og í posterior elementum séu minni agnir. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing. Í komunótu frá heilsugæslunni Firði, dags. 29. mars 2021, kemur fram að kærandi glími við svefntruflanir og hafi fengið ávísað svefnlyfi. Í tölvubréfi talsmanns kæranda, dags. 10. júní 2021, kemur fram að kærandi hafi greinst með Covid-19. Í komunótu frá Bráðadeild, dags. 12. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna kviðverkja auk ógleði og uppkasta. Þvagprufa hafi leitt í ljós þvagfærasýkingu og kæranda ávísað sýklalyfi. Í myndgreiningarsvari, dags. 12. júlí 2021, kemur fram að ekki hafi fundist steinar í nýrum, þvagleiðurum eða þvagblöðru. Þá hafi engar sjúklegar breytingar fundist í líffærum kviðarhols með fyrirvara um að ekki hafi verið gefið skuggaefni í æð. Garnir hafi verið eðlilega víðar og ekki mátt greina veggþykknun eða fyrirferð í kvið. Ekki hafi fundist skýring á einkennum sjúklings. Þá hafi myndgreining á lungum og hjarta verið eðlileg. Í komunótu frá Bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 17. ágúst 2021, kemur fram að kæranda hafi verið vísað þangað af heimilislækni. Kærandi hafi verið svefnlaus í fjóra til fimm daga. Þá sé kærandi með geðklofsjúkdóm sem hann taki inn lyf við. Kærandi hafi lýst einkennum sem samræmist geðrofseinkennum, aðsóknarkennd, ofheyrn og ofsjónum. Kærandi hafi ekki verið metinn í bráðri sjálfsvígshættu og hann verið beðinn um að koma í endurmat síðar. Í komunótu Bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 20. ágúst 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað í endurmat. Kærandi hafi greint frá því að ofsóknarhugmyndir væru farnar og hann náð að sofa. Kærandi hafi ekki verið metinn í sjálfsvígshættu í viðtali en metinn í sjálfsvígshættu til lengri tíma vegna geðsjúkdóms hans og bágrar félagslegrar stöðu. Kærandi þurfi að komast í samband við heimilislækni sem geti séð um lyfjamál hans auk þess sem hann sé í þörf fyrir félagslegan stuðning. Kærandi hafi fengið ávísað lyfi við geðklofa og hann bókaður í endurkomu. Í komunótu Bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 27. ágúst 2021, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera aftur orðinn svefnlaus. Kærandi hafi svarað lyfjameðferð vel og honum ráðlagt að hækka skammt af lyfi sem honum hafði verið ávísað. Kæranda hafi verið vísað í áframhaldandi eftirlit hjá heilsugæslu.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Þá byggir kærandi á því að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki enda sé hann lamaður fyrir neðan mitti eftir að hafa hlotið áverka á mænu og sé bundinn við hjólastól.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042, KNU20020034, KNU19110022, KNU19110023, KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa almannatrygginganúmera til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu almannatrygginganúmera til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi einstæður karlmaður sem, samkvæmt gögnum málsins er lamaður fyrir neðan mitti og bundinn við hjólastól. Kærandi notast við þvaglegg og hefur þörf fyrir þvagpoka. Af framangreindum gögnum verður ráðið að þó að dvalarleyfi kæranda sé útrunnið í Grikklandi þá hafi honum verið veitt viðbótarvernd þar í landi sem hann nýtur enn. Samkvæmt 19. gr. grískra laga um alþjóðlega vernd (e. International Protection Act) er aðeins hægt að afturkalla viðbótarvernd í ákveðnum tilvikum, s.s. ef kærandi hefur veitt rangar upplýsinga við meðferð umsóknar sinnar þar í landi. Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að til þess að eiga rétt á því að að fá útgefið langtímadvalarleyfi þurfi umsækjandi að geta sýnt fram á sjö ára samfellda dvöl. Af þessu verður ráðið að renni dvalarleyfi einstaklinga út, sem hefur verið veitt viðbótarvernd, verði rof á samfelldri og lögmætri dvöl hans í Grikklandi þannig að áhrif hafi á skilyrði þess að hann hljóti langtímadvalarleyfi. Rannsókn kærunefndar hefur ekki leitt annað í ljós en að framangreint sé meðal helstu réttaráhrifa þess að dvalarleyfi einstaklings sem nýtur viðbótarverndar renni út. Þá er ekkert sem bendir til þess að kærandi, sem handhafi viðbótarverndar, geti ekki sótt um nýtt dvalarleyfi í Grikklandi. Samkvæmt framangreindu og skýrslu Refugee Support Aegean getur umrætt ferli tekið töluverðan tíma og á meðan á því standi geti einstaklingar lent í þeirri stöðu að hafa takmarkað aðgengi að félagsaðstoð, heilbrigðisþjónustu eða atvinnumarkaðnum líkt og einstaklingar sem veitt hefur verið alþjóðlega vernd þar í landi en hafa ekki fengið útgefið dvalarleyfi. Þá bera framangreindar upplýsingar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi með sér að það geti verið kæranda vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu m.a. vegna álags á gríska heilbrigðiskerfinu vegna Covid-19 og þeirra hindrana sem hann kæmi til með að þurfa að yfirstíga. Enn fremur gætu orðið tafir á því að kærandi fái aðgang að þeirri þjónustu og úrræðum sem hann þarf á að halda.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að kærandi megi vænta þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríkinu, Grikklandi, m.a. vegna heilsufars hans og vandkvæða við aðgengi að félagslegum úrræðum, sbr. áðurnefnd viðmið um sérstakar ástæður í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá lítur kærunefnd til þess að gögn málsins gefa til kynna að kærandi sé einstæður og hafi ekki stuðningsnet í Grikklandi.

Þegar litið er til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, einkum þarfa hans á heilbrigðis- og félagsþjónustu, og í ljósi gagna um aðgengi að slíkri þjónustu, er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á, að fella beri úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála eins og hér stendur á, að taka beri mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

 


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant´s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta