Hoppa yfir valmynd

Nr. 127/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 2. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 127/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20020040

 

Beiðni [...] um endurupptöku

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 533/2018, dags. 6. desember 2018, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. september 2018, um að synja einstaklingi sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] (hér eftir kærandi), og vera ríkisborgari Pakistan, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda þann 10. desember 2018 og þann 17. desember 2018 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Var þeirri beiðni synjað með úrskurði dags. 10. janúar 2019, með úrskurði kærunefndar nr. 11/2019. Þann 18. janúar 2019 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins, ásamt fylgigögnum. Þann 8. febrúar s.á. hafnaði kærunefnd þeirri beiðni með úrskurði nr. 57/2019. Þann 18. febrúar 2020 barst kærunefnd ný beiðni um endurupptöku á úrskurði kærunefndar frá 10. desember 2018, ásamt fylgigögnum. Kærandi óskar eftir endurupptöku á úrskurði kærunefndar útlendingamála með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

II. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð vísar kærandi til 24. gr. stjórnsýslulaga um rétt aðila til endurupptöku ef atvik hafa breyst verulega frá því ákvörðun var tekin eða að ákvörðun hafi byggt á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum. Varðandi rökstuðning fyrir því að ákvörðun hafi verið byggð á ófullnægjandi upplýsingum vísar kærandi til röksemda í greinargerð við málsmeðferð kærunefndar í kærumáli hans og á þeim sjónarmiðum er reifuð hafi verið í fyrri beiðni um hans endurupptöku. Kærandi byggir aðallega á því að sá langi tími sem liðinn sé frá því að úrskurður kærunefndar hafi verið birtur fyrir honum feli í sér verulega breytt atvik frá því að ákvörðunin hafi verið tekin. Þannig séu um tvö og hálft ár síðan kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og um 14 mánuðir frá því að úrskurður kærunefndar hafi verið kveðinn upp. Kærandi hafi á þessum tíma aðlagast vel íslensku samfélagi.

Kærandi rekur í framhaldinu þau ákvæði laga um útlendinga sem lúta að málsmeðferðartíma í málum sem varða umsókn um alþjóðlega vernd og vísar jafnframt til markmiðs laganna um að málsmeðferðin sé skilvirk. Þá er vísað til ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sem veitir heimild til útgáfu dvalarleyfis fái útlendingur ekki niðurstöðu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða frá því að umsókn var fyrst lögð fram. Vísar kærandi til túlkunar kærunefndar á málsmeðferðartíma skv. 2. mgr. 36. gr. laganna og að þar sé miðað við dvöl á landinu. Færa megi rök fyrir því að vilji löggjafans sé sá sami varðandi málsmeðferðartíma í báðum þessu ákvæðum, það er að ómannúðlegt sé að einstaklingur aðlagist íslensku samfélagi en sé svo fluttur úr landi. Því eigi að túlka tímabil 1. málsl. 2. mgr. 74. gr. líkt og 2. málsl. 2.m gr. 36. gr.

Kærandi telur að almenn túlkun á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þess efnis að framangreindum 18 mánaða fresti ljúki þegar kærunefnd útlendingamála kveði upp úrskurð sinn standist ekki. Kærandi telur að slík túlkun geti eðli málsins samkvæmt ekki átt rétt á sér þegar endursending umsækjanda um alþjóðlega vernd dragist úr hófi fram. Í þeim tilvikum sé eðlilegra, með hliðsjón af tilgangi ákvæðisins og hvernig önnur sambærileg ákvæði laganna séu túlkuð, að miða tímafrestinn við það tímamark þegar endursending hafi átt sér stað. Að öðrum kosti sé hætt við að umsækjendur festi rætur hér á landi án þess að þeim verði sjálfum um kennt. Kærandi uppfylli ennfremur önnur skilyrði 74. gr. laganna.

Kærandi byggir einnig á því að telji kærunefnd útlendingamála að ekki sé tilefni til að beita 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga í málinu þá ætti að koma til skoðunar að beita 1. mgr. 74. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að ákvæðið feli í sér nokkuð víðtæka og matskennda heimild til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi byggir framangreint einkum á því sjónarmiði, sem hafi verið rakið að framan, að ómannúðlegt sé að senda mann úr landi sem hafi fest rætur hér á landi og aðlagast íslensku samfélagi. Kærandi hafi verið hér á landi í um 30 mánuði en hann hafi margt fram að færa til íslensks samfélags og aðlagast vel á meðan á dvöl hans hafi staðið. Hann hafi lært íslensku, þjálfað [...].

Kærandi vísar ennfremur til ákvæðis 78. gr. laga um útlendinga um heimild til þess að veita útlendingi dvalarleyfi hér á landi vegna sérstakra tengsla við landið. Vafalaust megi beita því ákvæði til þess að veita íþróttamanni, sem jafnframt sé umsækjandi um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi hér á landi. Kærandi væri mikill fengur fyrir [...] á Íslandi en hann hafi náð góðum árangri í íþróttinni.

Þá byggir kærandi á því að kærunefnd hljóti að þurfa að taka tillit til þeirrar þróunar sem hafi átt sér stað undanfarið á málaflokki umsækjenda um alþjóðlega vernd en það liggi fyrir tillögur ráðherra um að stytta málsmeðferðartíma enn frekar. Kærandi telur að samkvæmt þeim tillögum ætti því að miða við þann tíma sem líði frá því að umsókn um alþjóðlega vernd hafi verið lögð fram og þar til brottvísun sé framkvæmd enda skipti það umsækjanda litlu hvort niðurstaða fáist í málið á stjórnsýslustigi ef brottvísun sé ekki framkvæmd. Kærandi telur að líta verði á þau stjórnvöld sem komi að málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eitt heildstætt kerfi sem beri sameiginlega ábyrgð á málsmeðferðartíma og vísar því til stuðnings í álit umboðsmanns Alþingis nr. 9722/2018.

Kærandi vísar til þess að þau gögn sem hann hafi lagt fram með þessari beiðni um endurupptöku styðji það að hann hafi lagt sig fram um að hefja nýtt líf hér á landi og að endursending kunni að hafa óafturkræfar afleiðingar í för með sér.

Að lokum telur kærandi að með hliðsjón af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins, hagsmunum þeim sem í húfi eru í málinu og hvernig upplýsingar kunni að breyta niðurstöðu málsins að fullt tilefni sé til endurupptöku málsins.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála varðandi beiðni um endurupptöku

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Kærunefnd kvað upp úrskurð í máli kæranda þann 6. desember 2018, en með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synja kæranda alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Eins og fram er komið byggir kærandi endurupptökubeiðni sína á því að atvik í máli hans séu verulega breytt í ljósi þess tíma sem hafi liðið frá því að úrskurður kærunefndar hafi verið kveðinn upp, án þess að komið hafi til flutnings hans af landinu. Þá lagði kærandi fram ýmis gögn því til stuðnings að hann hafi aðlagast íslensku samfélagi, s.s. gögn um íþróttaiðkun hér á landi, meðmælabréf og staðfestingu á íslenskunámi.

Eins og fram kemur í greinargerð kærenda er markmið laga um útlendinga að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir m.a. að horft sé til þess að með lögunum verði leitast við að stytta málsmeðferðartíma, tryggja sanngjarna málsmeðferð og fleira. Í III. kafla laganna er mælt fyrir um málsmeðferðarreglur í málum um alþjóðlega vernd og þar m.a. mælt fyrir um að umsóknum samkvæmt 37. gr. laganna, þ.e. umsókn sem tekin er til efnismeðferðar, skuli svarað innan 18 mánaða. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 17. ágúst 2017, en úrskurður kærunefndar í mál hans var kveðinn upp þann 6. desember 2018. Var máli kæranda því lokið á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða. Flutningur kæranda af landinu hefur þó enn ekki farið fram og því ljóst að hann hefur hafa dvalið hér á landi í um tvö og hálft ár. Byggir kærandi á því að í tilviki hans beri stjórnvöldum að taka ákvarðanir um að endurupptaka mál á grundvelli þess að atvik hafi breyst verulega, með hliðsjón af áðurnefndu markmiði laga um útlendinga.

Samkvæmt orðanna hljóðan miðast lokadagur frests skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við ákvörðun á stjórnsýslustigi. Í athugasemdum við frumvarp til laga kemur fram að: „[þ]essi grein kveður á um heimild til að veita umsækjanda um alþjóðlega vernd dvalarleyfi af mannúðarástæðum hafi hann ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan 18 mánaða. Er hér um að ræða endanlega niðurstöðu hjá stjórnvöldum, þ.e. innan 18 mánaða á báðum stjórnsýslustigum.“ Kærunefnd hefur ávallt talið að það sé ljóst að miða verði við þann dag sem efnislegur úrskurður kærunefndar um umsókn útlendings um alþjóðlega vernd er birtur honum. Vegna málsástæðu kæranda um að veita beri honum dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga tekur kærunefnd fram að af lögmætisreglu stjórnsýsluréttar leiðir að ákvarðanir stjórnvalda verða að styðjast við heimild í lögum. Liti kærunefnd til þess tíma sem líður frá því að úrskurður er birtur og þar til útlendingur fer úr landi eða er fluttur úr landi væri nefndin að taka sér löggjafarvald, en ekki túlka lög til samræmis við orðalag eða markmið þeirra. Í þessu sambandi bendir kærunefnd á að túlkun nefndarinnar á lokadegi frests skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga byggir á því að ekki sé skýrt við hvaða tímamark eigi að miða enda er orðalag ákvæðisins annað og réttaráhrif þess að frestur líður tengist aðeins málsmeðferðarlegum réttindum. Af þeim sökum hafi verið rétt að túlka vafa umsækjenda í hag og í samræmi við markmið laga, og miða við dagsetningu farar úr landi. Eins og kærandi bendir á hefur umboðsmaður Alþingis tekið undir túlkun nefndarinnar á 2. mgr. 36. gr. í áliti nr. 9722/2018. Vegna tilvísunar kæranda til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga bendir kærunefnd á að ákvæðið lýtur eingöngu að þeim aðstæðum þar sem útlendingur hefur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra aðstæðna í heimaríki. Hafa málsástæður um tengsl kæranda við Ísland því ekki vægi við mat á rétti hans til dvalarleyfis samkvæmt síðastnefndu ákvæði.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að þótt kærandi hafi dvalið hér á landi í nokkurn tíma eftir að hann hafi fengið niðurstöðu í mál sitt hafi atvik málsins ekki breyst verulega á þann veg að tilefni sé til að verða við beiðni hans um endurupptöku málsins á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur kærunefnd að ekkert bendi til þess að önnur þróun í málaflokknum eða framlögð gögn leiði til þess að heimilt sé að endurupptaka mál kæranda.

Vegna tilvísunar kæranda til 78. gr. laga um útlendinga er kæranda leiðbeint um það að vilji hann sækja um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess ákvæðis eða annarra ákvæða laganna, s.s. 63. gr., ber honum að leggja slíka umsókn inn hjá Útlendingastofnun. Með þessum leiðbeiningum hefur kærunefnd ekki tekið afstöðu til þess hvort kærandi uppfylli skilyrði 78. eða 63. gr. laganna.

Samantekt

Að framangreindu virtu ert það því mat kærunefndar að atvik í máli kæranda hafi ekki breyst verulega þannig að taka beri mál hans upp að nýju á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga. Þá er ekkert sem bendir til þess að niðurstaða í máli kæranda hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik.

Með vísan til alls framangreinds er það mat kærunefndar að hafna beri beiðni kæranda um endurupptöku málsins. 

 

Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The request of the appellant to re-examine the case is denied.

Undirritað rafrænt

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                  Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta