Mannanafnanefnd, úrskurður 10. september 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, fimmtudaginn 10. september, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Baldur Sigurðsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 73/2009 Eiginnafn: Bergjón (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Bergjón (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Bergjóns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Bergjón (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
--------------------------------------------
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.