Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 134/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 19. apríl 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 134/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16010015

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 22. janúar 2016, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags 7. janúar 2016, um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002, um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt hæli sem flóttamanni hér á landi, skv. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins og sótti um hæli þann 9. september 2015 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Viðtal var tekið við kæranda hjá Útlendingastofnun þann 21. október 2015 að viðstöddum talsmanni hans. Með ákvörðun, dags. 7. janúar 2016, synjaði Útlendingastofnun kæranda um hæli ásamt því að kæranda var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar við þann 13. janúar 2016. Þann 18. mars s.á. var fallist á beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála þann 22. janúar 2016. Þann 29. janúar 2016 bárust kærunefnd útlendingamála gögn málsins frá Útlendingastofnun. Greinargerð barst kærunefnd þann 28. febrúar 2016 og þann 1. mars s.á. bárust viðbótargögn frá kæranda.

Kærandi kom þann 5. apríl 2016 fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru túlkur og talsmaður kæranda.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera í hættu í heimalandi sínu vegna hótana um líflát af hálfu óþekktra manna í heimaríki sínu í kjölfar skotárásar sem hann varð fyrir árið 2010.

Útlendingastofnun lagði framburð kæranda eins og hann lá fyrir til grundvallar með þeim fyrirvara að allar upplýsingar bendi til þess að kærandi eigi raunhæfa möguleika á að leita aðstoðar yfirvalda í […] og eftir atvikum lögreglu og dómstóla.

Útlendingastofnun taldi allar upplýsingar benda til þess að stjórnvöld og lögregla í […] séu í stakk búin til að veita kæranda viðeigandi vernd. Stofnunin taldi atvik þau er kærandi hafði lýst ekki ná þeim alvarleika að þeim yrði jafnað til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a, laga um útlendinga. Þá væri ekki unnt að rekja aðstæður kæranda til kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að sérstökum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunar, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Stofnunin taldi kæranda einnig ekki eiga á hættu illa meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Af öllu ofangreindu var það því mat stofnunarinnar að synja bæri um hæli skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f taldi Útlendingastofnun að kærandi væri ekki í þeirri aðstöðu í […] að hann ætti á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, því þótti ekki ástæða til að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hans við Ísland.

Það var ennfremur mat Útlendingastofnunar að endursending kæranda til heimaríkis hans brjóti ekki gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Þá er kæranda vísað frá landinu á grundvelli 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga sbr. IX. kafla reglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað að kæra myndi ekki fresta réttaráhrifum með vísan í c liðs 1. mgr. 32. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kveður kærandi að upphaf erfiðleika sinna megi rekja til ársins 2010, er kærandi hafi rekið veitingastað með góðum árangri. Samkeppnisaðilar kæranda hafi gert honum ljóst að þeim væri ekki vel við rekstur hans og hafi haft í hótunum við hann. Þann 21. ágúst 2010 hafi kærandi orðið fyrir alvarlegri skotárás þar sem reynt hafi verið að drepa hann. Í kjölfar árásarinnar hafi hótanir og ofsóknir á hendur kæranda haldið áfram og því hafi kærandi farið huldu höfði eftir það. Árið 2015 hafi hótanir farið að berast systur kæranda. Þá hafi kærandi og systir hans ákveðið að flýja land.

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi aðeins verið fjallað almennt um aðstæður í […] og dregin upp jákvæðari mynd af þeim en tilefni sé til. Sneytt hafi verið hjá mikilvægum staðreyndum er varði spillingu í gervöllu stjórnkerfi landsins, […] og háa glæpatíðni. Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í málinu eingöngu byggða á þjóðerni kæranda og ekki hafi farið fram einstaklingsbundið og sjálfstætt mat á aðstæðum kæranda í málinu. Það sé brot á 3. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi. Einstaklingsbundið mat á aðstæðum hverju sinni sé kjarni flóttamannahugtaksins og nauðsynlegt til að unnt sé að virða hina svokölluðu non-refoulement reglu sem lögfest hafi verið með 45. gr. laga um útlendinga.

Eins og fram hefur komið hafi kærandi orðið fyrir alvarlegri skotárás. Í kjölfarið hafi hann fengið líflátshótanir, að hann telji, frá sömu aðilum og hafi skotið hann. Einnig hafi systur kæranda borist hótanir bæði í gegnum síma og úti á götu. Ljóst sé að kærandi óttist um líf sitt og sá ótti sé ástæðuríkur með vísan til ofangreinds. Því verði að gera alvarlegar athugasemdir við það mat Útlendingastofnunar að atvikin hafi hvergi nærri náð þeim alvarleika að þeim yrði jafnað til ofsókna í skilningi flóttamannahugtaksins. Það hvort ótti kæranda verði talinn ástæðuríkur verði að meta m.a. út frá upplýsingum um aðstæður í heimlandi hans, m.a. tíðni ofbeldisbrota og ástæðum þeirra auk upplýsingar um vilja og getu stjórnvalda til þess að veita borgurum sínum vernd.

Í greinargerð er Útlendingastofnun sögð hafa brotið gegn rannsóknarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga með því að staðhæfa að ofbeldisbrot í […] tengist fyrst og fremst skipulagðri glæpastarfsemi en hafi lítil sem engin áhrif á almenning og daglegt líf borgaranna. Ekki hafi verið fjallað um tíðni ofbeldisbrota í […] eða á annan hátt um raunverulegar líkur þess að kærandi eigi á hættu að verða fyrir ofbeldi eða verða myrtur.

Kærandi telji stjórnvöld í […] hvorki vilja né geta veitt honum nauðsynlega vernd meðal annars vegna gruns kæranda um tengsl þeirra sem ofsæki hann við lögreglu og önnur stjórnvöld. […] sé fátækt land þar sem mikil spilling ríki, m.a. innan réttarkerfisins. Barátta stjórnvalda gegn spillingunni hafi lítinn árangur borið og spilltir embættismenn komist því áfram undan refsingu. Það sé því til lítils að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda og fái þar fullnægjandi vernd þar sem öll gögn bendi til þess að spilling, mútuþægni, skortur á gagnsæi og skipulögð glæpastarfsemi séu landlæg vandamál sem veikt réttar- og löggæslukerfi […] sé á engan hátt í stakk búið til að takast á við.

Kærandi kveður ekki mögulegt fyrir sig að flytja sig um set innan […] þar sem hann geti ekki verið öruggur. Mikilvægt sé einnig að hafa í huga smæð landsins þegar aðstæður kæranda séu metnar í tengslum við flutning hans innanlands.

Í greinargerð kæranda er fjallað um ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og samspil þess við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 15. gr. tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnast alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Tilskipunin hafi nú verið uppfærð með tilskipun nr. 2011/95/ESB. Í II. kafla tilskipunarinnar séu talin upp þau viðmið sem hafa beri til hliðsjónar við mat á þörf einstaklings fyrir alþjóðlegri vernd. Skuli slíkt mat fara fram á einstaklingsgrundvelli og verði m.a. að meta hvort hægt sé með sanngjörnum hætti að ætlast til þess að umsækjandi leiti verndar stjórnvalda. Hafi einstaklingur þegar orðið fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða eða beinum hótunum um slíkar ofsóknir eða skaða sé það vísbending um raunverulega hættu á því að verða fyrir alvarlegum skaða. Með vísan til þessa sé þess krafist til vara að kæranda verði veitt viðbótarvernd skv. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Varðandi þrautavarakröfu kæranda kemur fram í greinargerð að í athugasemdum frumvarps til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, segi að með íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af þessu og því sem kærandi hafi greint frá sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 12. gr. f útlendingalaga, þar sem […] stjórnvöld annað hvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræðir, og því beri að veita kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Kærandi hafi þegar gert tilraunir til þess að leita ásjár eigin stjórnvalda, án nokkurs árangurs, og telji hann að lögreglan muni ekki geta veitt þeim nægilega vernd þar sem ofsækjendur hans muni tvíeflast í ásetningi sínum leiti hann frekari ásjár lögreglu.

Að lokum er bent á það í greinargerð að þegar umsækjandi um hæli frá […] hafi dvalið í meira en þrjá mánuði á Íslandi og honum verið synjað um hæli í kjölfarið eigi hann einskis annars kost en að verða sendur nauðugur aftur til heimalands. Því beri að skoða vandlega hvort ákvæði 45. gr. laga um útlendinga komi í veg fyrir slíka endursendingu, hvað sem líði skilyrðum flóttamannahugtaksins.

VI. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […]ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[…].

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. farið yfir eftirfarandi skýrslur og gögn um […]; […].

Í ofangreindum gögnum kemur fram að […] stjórnvöld hafa tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna. Á undanförnum árum hefur talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu innan lögreglunnar og hjá dómsvaldinu.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á því að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í hættu í heimalandi sínu af hálfu óþekktra einstaklinga sem hafi haft í hótunum við hann.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærandi kveðst vera að flýja hótanir og ofsóknir af hálfu einstaklinga sem hann viti ekki hverjir séu. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir alvarlegum hótunum af hálfu þeirra sem ofsæki hann. Kærandi telji stjórnvöld í […] hvorki vilja né geta veitt honum nauðsynlega vernd. Hann hafi leitað til lögreglu en lögregla hafi ekki gert neitt til að aðstoða hann. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hans. Þá telur kærunefnd frásögn kæranda ótrúverðuga, einkum að því leyti að kærandi viti ekki hverjir það séu sem hafi haft í hótunum við hann og ástæðuna að baki hótunum þeirra. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að […] stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda fullnægjandi vernd fyrir þeim sem hóta honum.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Er það mat kærunefndar að þær hótanir sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir teljist ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga. Þá hafi kærandi möguleika á að leita aðstoðar stjórnvalda í heimaríki sínu vegna þeirra sem hafi hótað honum. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Kærandi krefst þess til vara að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann hátt að honum verði veitt viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum teljist einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita fullnægjandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi í málum nr. 38851/09 og 39128/09).

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið kemur fram að stjórnvöld í […] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þó nokkur árangur náðst síðustu ár þó enn sé þörf á frekari umbótum. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir hótunum af hendi einstaklinga vegna þess að honum hafi gengið vel í rekstri veitingastaðar. Þó rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í […] þá hafa, líkt og áður hefur komið fram, átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um […] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 12. gr. f laga um útlendinga

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í skamman tíma.

Ætlað brot gegn ákvæðum stjórnsýslulaga

Kærandi bar því við að mál hans hafi ekki verið nægilega vel rannsakað af hálfu Útlendingastofnunar.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, skal Útlendingastofnun sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlun er að byggja stjórnvaldsákvörðun á.

Við mat á því hvort brot á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga leiði til ógildingar á ákvörðun Útlendingastofnunar er rétt, eins og hér stendur á, að telja ákvörðunina ógildanlega nema ef sannanlegt er að annmarkinn hafi í raun ekki haft áhrif á efni hennar. Þó fallist yrði á það með kæranda að Útlendingastofnun hefði verið rétt að fjalla betur um persónulegar aðstæður kæranda í heimalandi hans verður ekki séð að skortur á slíkri umfjöllun í ákvörðun stofnunarinnar hafi hér haft áhrif á niðurstöðu í málinu. Kærunefnd getur því ekki fallist á það með kæranda að Útlendingastofnun hafi brugðist rannsóknarskyldu sinni skv. stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Anna Valbjörg Ólafsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta