Nr. 448/2018 - Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 448/2018
föstudaginn 15. mars 2019
A
gegn
Barnaverndarnefnd B
og
C og D
gegn
Barnaverndarnefnd B
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Lára Sverrisdóttir lögfræðingur, Guðfinna Eydal sálfræðingur og Sigríður Ingvarsdóttir lögfræðingur.
Með bréfi 18. desember 2018 kærði E lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð Barnaverndarnefndar B 26. nóvember 2018 vegna umgengni kæranda við [...]son sinn, F, sem er í langtímafóstri hjá C og D. Er þess krafist að kærandi A fái við drenginn reglulega umgengni eins og hún tilgreinir nánar í kröfugerð sinni fyrir úrskurðarnefndinni og lýst er í kafla II hér á eftir.
Með bréfi 21. desember 2018 kærði G lögmaður, f.h. fósturforeldranna C og D, til úrskurðarnefndar velferðarmála sama úrskurð. Er þess krafist að umgengniskröfu kæranda A verði hafnað eins og þau tilgreina nánar í kröfugerð sinni fyrir úrskurðarnefndinni og lýst er í kafla III hér á eftir. Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. a bvl., sbr. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 80/2011, eru kærendur C og D aðilar að málinu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
F er X ára gamall og lýtur forsjá Barnaverndarnefndar B. Móðir hans er H. Drengurinn hefur ekki verið feðraður en ætlaður faðir er I.
Drengurinn hefur verið hjá sömu fósturforeldrum frá X er hann var X gamall. Fyrst var hann í tímabundnu fóstri en í varanlegu fóstri frá X. Fram að því að drengurinn fór í fóstur dvaldi hann á J og K. Drengurinn hefur aldrei búið hjá foreldrum sínum. Móðir drengsins var svipt forsjá hans með dómi Héraðsdóms B X.
Drengurinn á eldri bróður, L, sem fæddur er X og er í varanlegu fóstri hjá [...]afa og maka [...]. F nýtur umgengni við L.
Kærandi A hefur einu sinni hitt drenginn F. Var það á K í eina klukkustund sama dag og hann fór til fósturforeldra, X.
Kærandi A hefur áður óskað eftir umgengni við drenginn. Með úrskurði Barnaverndarnefndar B18. mars 2014 var ákveðið að kærandi A hefði ekki sérstaka umgengni við drenginn en fengi myndir af honum einu sinni á ári. Var þeim úrskurði skotið til kærunefndar barnaverndarmála (nú úrskurðarnefnd velferðarmála) sem staðfesti hann með úrskurði 9. júlí 2014, sbr. mál nr. 3/2014. Var það niðurstaða nefndarinnar að kærandi A teldist ekki nákomin drengnum í þeim skilningi að tengslamyndun hefði ekki farið fram á milli hennar og drengsins.
Á árinu X gerði kærandi A aftur kröfu um umgengni við drenginn. Var málið tekið fyrir fund Barnaverndarnefndar B X 2015. Í bókun frá fundinum var vísað til úrskurðar kærunefndar barnaverndarmála í máli nr. 3/2014 og ekkert talið breytt í málinu sem gæfi tilefni til að ætla að það þjónaði hagsmunum drengsins að kærandi A fengi við hann umgengni.
Kærandi A óskaði enn eftir umgengni við drenginn með beiðni 11. október 2016. Úrskurðað var um málið á fundi Barnaverndarnefndar B 1. mars 2017 og ákveðið að kærandi A hefði ekki umgengni við drenginn, enda teldist hún ekki nákomin honum í skilningi barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.). Málið var kært til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. úrskurður í máli nr. 126/2017 frá 30. júní 2017. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kom fram að þegar úrskurðað hafi verið í máli drengsins 9. júlí 2014 hafi aðstæður verið ólíkar þeim sem voru árið 2017. Á þeim tíma hefði drengurinn verið nýkominn í fóstur um X mánaðar gamall og þyrft frið og ró til að geta myndað varanleg, heilbrigð og góð geðtengsl við fósturforeldra. Það hafi ekki verið tilefni til að drengurinn myndaði geðtengsl við aðra en fósturforeldra á þessum tíma. Því hafi ekki komið til álita að kærandi A tengdist drengnum. Þá taldi úrskurðarnefndin mikilvægt að taka sérstakt tillit til fósturforeldranna til að valda þeim ekki óþarfa spennu og hugsanlegri togstreitu með því að kærandi A hefði samskipti við drenginn þannig að fósturforeldrar gætu einbeitt sér að því mikilvæga verkefni að tengjast drengnum. Í úrskurði í máli nr. 126/2017 tók úrskurðarnefndin fram að tengslamyndun hefði gengið vel og drengurinn hefði fengið tækifæri til að tengjast fósturforeldrum eins og um kynforeldra væri að ræða. Drengurinn myndi ekki mynda sterk geðtengsl við aðra en þau þar sem djúptengslamyndun væri lokið. Úrskurðarnefndin tók fram að uppi væri önnur staða en áður og eðlilegt væri að amma drengsins, þ.e. kærandi A, fengi möguleika til að sjá hann og hafa einhver samskipti við hann. Úrskurðarnefndin taldi að slík umgengni gæti þjónað hagsmunum drengsins. Hér bæri ekki síst að líta til þess að drengurinn ætti albróður sem hefði tengsl við kæranda A og bræðurnir hefðu tengsl sín á milli. Ef samband bræðranna héldist áfram væri staða þeirra mjög ójöfn gagnvart kæranda A sem væri líffræðilega skyld þeim báðum. Það kynni að valda F hugarangri og vanlíðan að uppgötva seinna meir að bróðir hans ætti samskipti við kæranda A en hann ekki. Kærandi A væri náskyld F en ekki nátengd honum af því að tengslin væru engin. Þegar drengurinn hefði aldur og þroska til gæti hann sjálfur metið og ákveðið hvort hann vildi hafa samband við kæranda A eða ekki. Úrskurðarnefndin taldi að það væri réttur drengsins að honum væru búnar þær aðstæður sem gerðu honum kleift að taka sínar eigin ákvarðanir í framtíðinni varðandi umgengni við kæranda A. Barnaverndarnefndin hefði horft fram hjá framangreindum atriðum. Samkvæmt því hafi ekki verið lagður réttur grunnur að málinu við úrlausn þess. Málinu var því vísað til barnaverndarnefndarinnar til meðferðar að nýju samkvæmt 4. mgr. 51. gr. bvl.
Samkvæmt framangreindu tók Barnaverndarnefnd B málið aftur til meðferðar. Úrskurðað var á ný um málið á fundi Barnaverndarnefndar B 27. febrúar 2018 á grundvelli 4. mgr. 74. gr. bvl. og ákveðið að kærandi A hefði ekki umgengni við drenginn, enda teldist hún ekki nákomin honum í skilningi bvl. Sá úrskurður var kærður til úrskurðarnefndar velferðarmála. Með úrskurði úrskurðarnefndarinnar 26. júní 2018 í máli nr. 120/2018 var úrskurðurinn felldur úr gildi og málinu vísað til meðferðar barnaverndarnefndarinnar til meðferðar að nýju. Í niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála segir að við áframhaldandi vinnslu málsins hjá Barnavernd B og Barnaverndarnefnd B væri óhjákvæmilegt að leggja til grundvallar það sem fram kæmi í niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála frá 30. júní 2017 í máli nr. 126/2017 varðandi umgengni kæranda A við drenginn. Við úrlausn málsins yrði ekki hjá því komist að líta til þess að drengurinn ætti rétt á umgengni við þá sem væru honum nákomnir ef það samrýmdist hagsmunum hans, sbr. 1. mgr. 70. gr. bvl., sbr. 38. gr. og 1. mgr. 74. gr. sömu laga. Úrskurðarnefndin teldi það samrýmast hagsmunum drengsins að fá að þekkja kæranda A með vísan til framangreindra forsendna. Að mati úrskurðarnefndarinnar ógnaði það engan veginn tengslamyndum drengsins að fá tækifæri til að þekkja kæranda A þar sem frumtengsl myndist mest á tveimur fyrstu árum barns og megi því telja að þeim sé nú lokið. Úrskurðarnefndin teldi að það væri málefnalegt sjónarmið að albræðurnir, L og F, fengju báðir möguleika til að kynnast A. Ef hagsmunir F væru settir í brennidepil og aðilar legðu sig fram við að ná fram farsælli lausn væru forsendur fyrir því að drengurinn fengi að kynnast kæranda A. Þar sem deilur og togstreita hafi litað málið væri augljóst að til að árangur myndi nást þyrfti að vinna málið í litlum skrefum, gefa góðan tíma í aðlögun og takmarka umgengni verulega í upphafi.
Enn tók Barnavernarnefnd B málið til meðferðar. Á fundi barnaverndarnefndarinnar 11. september 2018 var ákveðið að skipa drengnum talsmann vegna kröfu kæranda A um umgengni. Skýrsla talsmanns lá fyrir X 2018. Var málið tekið fyrir hjá barnaverndarnefnd 30. október 2018. Fyrir fundinn lá fyrir tillaga starfsmanna um að kærandi A nyti ekki umgengni við drenginn en mat starfsmanna væri það að ekkert hefði breyst sem gæfi tilefni til að breyta fyrri ákvörðun. Lögðu starfsmenn til að umgengni yrði endurskoðuð ef það yrði talið drengnum til hagsbóta að hitta kæranda A. Með hinum kærða úrskurði 26. nóvember 2018 var úrskurðað í málinu að nýju.
Úrskurðarorð hins kærða úrskurðar er svohljóðandi, auk þess sem þar er bent á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:
„Barnaverndarnefnd B ákveður að F, hafi umgengni við A í eina klst. einu sinni á ári. Umgengni verði undir eftirliti á stað sem fósturforeldrar telja að sé góður fyrir barnið. Fósturforeldrum er heimilt að vera viðstödd umgengni“
II. Sjónarmið og kröfur kæranda A
Kærandi gerir aðallega þá kröfu að hún njóti umgengni við drenginn í tvær klukkustundir fjórum sinnum á ári. Til vara gerir hún kröfu um að hún njóti umgengni við drenginn í tvær klukkustundir tvisvar sinnum á ári. Þá er þess aðallega krafist að umgengnin fari fram á heimili kæranda A en til vara að umgengnin fari fram í húsnæði á vegum Barnaverndar B. Þá er þess aðallega krafist að fósturforeldrar fái ekki að vera viðstödd umgengnina. Ef talið sé nauðsynlegt að eftirlit sé haft með umgengninni verði eftirlitsaðili á vegum Barnaverndarnefndar B á staðnum í stað fósturforeldra.
Kærandi A vísar til þess að frá fæðingu drengsins hafi hún óskað eftir umgengni við hann. Hún hafi einu sinni fengið umgengni við hann í rúma klukkustund er hann var kornabarn. Sama dag og umgengni hafi farið fram hafi drengurinn farið í fóstur til núverandi fósturforeldra en síðan hafi engin umgengni átt sér stað.
Þann 1. mars 2017 hafi Barnaverndarnefnd B úrskurðað að kærandi A hefði enga umgengni við drenginn. Kærandi A hafi kært þann úrskurð til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. mál nr. 126/2017. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi kveðið upp úrskurð í málinu 30. júní 2017 þess efnis að hinn kærði úrskurður væri felldur úr gildi og málinu vísað til barnaverndarnefndarinnar til meðferðar að nýju. Rökin fyrir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar hafi meðal annars verið byggð á því að aðstæður drengsins væru ólíkar þeim sem voru í X. Drengurinn myndi ekki mynda sterk geðtengsl við aðra en fósturforeldra þar sem djúptengslamyndun væri lokið. Þá hafi úrskurðarnefndin talið að uppi væri önnur staða nú en áður og að eðlilegt væri að kærandi A, þ.e. amma drengsins, fengi möguleika á að sjá hann og eiga einhver samskipti við hann.
Allt frá því að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 126/2017 féll hafi Barnaverndarnefnd B reynt að hunsa hann. Í upphafi hafi málið verið dregið úr hófi fram. Fyrst með þeim rökum að starfsmenn væru í sumarleyfi, svo að þeir væru að leita sér að lögmanni og loks hafi málinu verið frestað því að lögmaður fósturforeldra hafi þurft meiri tíma sökum anna við að sinna öðrum verkefnum.
Hafi það farið svo að kærandi A hafi sent kvörtun vegna vinnslu málsins til Barnaverndarstofu. Barnaverndarstofa hafi gert alvarlegar athugasemdir við vinnslu málsins en ný ákvörðun um umgengni við kæranda A hefði ekki verið tekin. Þetta sé ekki í fyrsta skipti sem Barnaverndarstofa geri athugasemdir við vinnslu Barnaverndarnefndar B gagnvart kæranda og krafna hennar um umgengni við F.
Þann 27. febrúar 2018 hafi Barnavernd B úrskurðað að kærandi A hefði ekki umgengni við drenginn, enda teldist hún ekki nákomin honum í skilningi bvl. Úrskurðurinn hafi verið kærður til úrskurðanefndar velferðarmála sem kvað upp úrskurð þess efnis að hinn kærði úrskurður væri felldur úr gildi og málinu væri vísað til barnaverndarnefndar til meðferðar að nýju, sbr. úrskurð í máli nr. 120/2018. Úrskurðarnefndin hafi meðal annars fært rök fyrir því að umgengnin þjónaði hagsmunum drengsins.
Úrskurður í máli nr. 120/2018 hafi verið kveðinn upp 26. júní 2018. Barnaverndarnefnd hafi loks fallist á að taka málið fyrir á barnaverndarnefndarfundi 30. október 2018 eða rúmlega fjórum mánuðum eftir uppkvaðningu úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála. Þrátt fyrir að fundur barnaverndarnefndar hafi farið fram X 2018 hafi úrskurður ekki verið kveðinn upp fyrr en 26. nóvember 2018, eða X eftir fundinn. Á þeim tíma hafi ítrekað verið haft samband við starfsmenn barnaverndar og óskað upplýsinga um hvenær væri að vænta niðurstöðu í málinu. Barnaverndarnefndin hafi loks komist að þeirri niðurstöðu að kærandi skyldi njóta umgengni einu sinni á ári í eina klukkustund í senn undir eftirliti á stað sem fósturforeldra teldu góðan fyrir drenginn. Þá hafi fósturforeldrum verið heimilt að vera viðstödd umgengni.
Kærandi A sé sammála því að það þurfi að fara rólega af stað. Hún telji að umgengni í tvær klukkustundir í einu séu í raun mun betri en ein klukkustund í senn. Það þjóni hagsmunum drengsins betur. Það megi búast við því að í upphafi verði drengurinn feiminn og því þurfi að gefa honum góðan tíma til að átta sig á aðstæðum. Hann þurfi ró og næði og verði varla farinn að ná tengslum við kæranda A og hennar fólk er hann þurfi að fara aftur ef umgengnin sé ein klukkustund. Miðað sé við að umgengni hefjist og ljúki á [...] þannig að ef kærandi þarf að sækja drenginn á heimili fósturforeldra þurfi að reikna með tíma fyrir akstri á milli staða.
Kærandi A telji að umgengni einu sinni á ári sé allt of lítið. Með umgengni fjórum sinnum á ári væri miðað við umgengni einu sinni í hverjum ársfjórðungi. Þá fengi drengurinn að sjá kæranda A að hausti, vetri, vori og sumri. Þannig myndi drengurinn kynnast kæranda A í fjölbreyttum aðstæðum á öllum ársfjórðungum.
Í hinum kærða úrskurði sé tekið fram að umgengni skuli fara fram á stað sem fósturforeldrar telji að sé góður fyrir drenginn. Þarna fái fósturforeldrar í raun talsvert vald til að ákveða hvar og hvenær umgengni fari fram. Fósturforeldrar gætu þannig ákveðið að umgengni færi fram á róluvelli og við því væri ekkert að segja. Telja verði eðlilegt að umgengni fari fram á heimili kæranda A, enda sé drengurinn að njóta umgengni við ömmu sína. Þar geti hann seinna meir skoðað myndaalbúm og annað þess háttar.
Til að drengurinn njóti umgengninnar sem best verði að telja varhugavert að fósturforeldrar séu viðstödd umgengnina. Fósturforeldrar hafi ítrekað reynt að koma í veg fyrir umgengni og lýst vanþóknun á kæranda A, þrátt fyrir að hún hafi aldrei gert slíkt gagnvart fósturforeldrum. Það verði að teljast í hæsta máta óeðlilegt ef fósturforeldrar séu viðstödd umgengnina og það sé alls ekki drengnum til góða. Hann myndi væntanlega finna spennuna í andrúmsloftinu og því telji kærandi A betra ef fósturforeldar væru ekki viðstödd umgengnina.
Í málinu þurfi fyrst og fremst að hafa í huga hverjir séu hagsmunir drengsins, bæði til skemmri og lengri tíma. Drengurinn sem hér um ræði sé í ótímabundnu fóstri. Það sé alþekkt að börn sem séu tekin í fóstur vilji leita uppruna síns. Séu hagsmunir drengsins hafðir í huga eigi deilan einungis að snúa að því hversu oft kærandi A eigi að njóta umgengni við drenginn og hvar sú umgengni skuli fara fram.
Kærandi A telji enga ástæðu til að hafa eftirlit með umgengninni en geri þó ekki athugasemd við að eftirlitsaðili á vegum Barnaverndarnefndar B verði viðstaddur umgengnina.
III. Sjónarmið og kröfur kærenda C og D
Kærendur C og D krefjast þess að hinum kærða úrskurði verði breytt þannig að umgengniskröfu kæranda A verði hafnað.
Kærandi A, sem sé [...]amma drengsins, hafi haldið uppi kröfu um umgengni allt frá því að drengurinn fór í fóstur til kærenda C og D. Allt fram að hinum kærða úrskurði hafi Barnaverndarnefnd B hafnað kröfum hennar. Krafa kæranda A hafi í þrígang komið til úrskurðarnefndar velferðarmála og forvera hennar, kærunefndar barnaverndarmála. Um sé að ræða úrskurði í málum nr. 3/2014 hjá kærunefnd barnaverndarmála og málum nr. 126/2017 og 120/2018 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Um málavexti og gögn vísi kærendur C og D til þess að það sé með öllu óumdeilt að drengurinn þekki ekki [...]ömmu sína, kæranda A, hafi aldrei hitt hana og engin tengslamyndun hafi farið fram þeirra á milli.
Á fundi Barnaverndarnefndar B 28. nóvember síðastliðinn hafi hinn kærði úrskurður um umgengni drengsins við kæranda A, sbr. 74. gr. bvl., verið kveðinn upp. Þar sé umgengni ákveðin ein klukkustund í senn einu sinni á ári. Auk þess sé ákveðið að umgengni skuli vera undir eftirliti á stað sem fósturforeldrar telji að sé góður fyrir drenginn. Þá sé það sérstaklega tiltekið að fósturforeldrum sé heimilt að vera viðstödd umgengni.
Kærendur C og D byggi kæru sína fyrst og fremst á því að það sé ávallt grundvallarskilyrði að sá aðili, utan kynforeldra, sem æski umgengni við fósturbarn, verði að teljast vera því nákominn samkvæmt 2. mgr. 74. gr. bvl. Auk þess krefjist lagaákvæðið þess að sá sem óski umgengni verði að sýna fram á að umgengni sé talin til hagsbóta fyrir viðkomandi barn. Það sé afstaða kærenda að hvorugt skilyrði lagaákvæðisins sé uppfyllt í málinu.
Kærendur C og D mótmæla sérstaklega þeirri lagatúlkun sem fram hafi komið í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli aðila nr. 120/2018 sem kveðinn hafi verið upp í júlí 2018, en nokkuð ítarlega sé farið yfir þau sjónarmið í hinum kærða úrskurði. Í málinu sé kröfu kæranda A vísað að nýju til meðferðar Barnaverndarnefndar B þar sem nefndin hafi ranglega komist að þeirra niðurstöðu að kærandi A sé ekki barninu nákomin í skilningi 2. mgr. 74. gr. bvl. Virðist á því byggt af hálfu úrskurðarnefndarinnar að hugtakið nákominn geti tekið til tvenns konar aðstæðna. Annars vegar sé um að ræða ættingja og hins vegar sé um að ræða þá sem tengist barninu af öðrum ástæðum en vegna skyldleika. Þá virðist gengið út frá því að þegar um ættingja sé að ræða skipti ekki máli hvort barnið þekki viðkomandi eða ekki.
Kærendur C og D fái ekki séð að þessi túlkun eigi sér nokkra stoð í bvl. eða lögskýringargögnum. Þá hafi þessari túlkun aldrei verið beitt í öðrum úrskurðum úrskurðarnefndar eða forvera hennar, kærunefnd barnaverndarmála. Þá kannist lögmaður kærenda ekki við að slík túlkun hafi komið fram í dómsmáli. Hugtakið nákominn aðili í 2. mgr. 74. gr. bvl. hafi þvert á móti ávallt verið túlkað þannig að það nái eingöngu til þeirra aðila sem hafi þá þegar tengsl við barnið, þ.e. sem barnið þekki. Ekkert í fyrrgreindu orðalagi í skýringum við ákvæðið gefi til kynna að það eigi að túlka ákvæðið rýmkandi skýringu eins og úrskurðarnefnd velferðarmála virðist leggja til grundvallar í fyrrgreindum úrskurði.
Samkvæmt athugasemdum við ákvæðið skuli barnaverndarnefnd meta hvort aðili teljist nákominn barni í skilningi þess. Kærendur leggi áherslu á og byggi kröfur sínar á því að kærandi A teljist ekki og geti ekki talist nákomin drengnum í skilningi fyrrgreinds ákvæðis bvl. og þannig skorti lagaskilyrði til að ákveða umgengni drengsins við kæranda A.
Kærendur C og D byggi jafnframt á niðurstöðu og forsendum þess máls sem vísað sé til í hinum kærða úrskurði, þ.e. máli nr. 420/2017 hjá úrskurðarnefndinni. Sá úrskurður hafi verið kveðinn upp í mars 2018. Í því máli hafi kröfu konu um umgengni við [...]son sinn í varanlegu fóstri verið hafnað, meðal annars með vísan til þess að konan gæti ekki talist nákomin barninu í skilningi 74. gr. bvl., enda hafi tengslamyndun aldrei farið fram og barnið í því máli hefði ekki sjálfstæða þörf fyrir að tengjast henni. Af lýsingu málavaxta megi ráða að óumdeilt sé að engin tengsl hafi myndast á milli þeirra áður en hið varanlega fóstur hafi hafist. Sé hvergi í þeim úrskurði vikið að þeim rýmkandi lögskýringum sem úrskurðarnefndin beiti síðan í fyrrnefndum úrskurði aðila þessa máls í máli nr. 120/2018 um þremur mánuðum síðar, en málavextir virðist um margt sambærilegir.
Eins og fram komi í hinum kærða úrskurði telji Barnaverndarnefnd B sig bundna við fyrrgreindar lögskýringar og úrskurði um umgengni á þeim grundvelli. Það virðist með nokkrum semingi þó, enda er í engu tekið undir þessar lögskýringar í forsendum hins kærða úrskurðar heldur einvörðungu vísað til þess að nefndin telji sig bundna af niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í ljósi stjórnsýsluréttarlegrar stöðu sinnar. Kærendur mótmæli þessu þannig harðlega og byggi kröfu sína, þess efnis að hafna verði kröfum kæranda A um umgengni, fyrst og fremst á því að lögmætisregla stjórnsýsluréttar komi í veg fyrir að hægt sé að útvíkka eða túlka ákvæði 2. mgr. 74. gr. bvl. með rýmkandi skýringu þannig að hugtakið „nákominn“ geti náð til aðila sem sé barninu með öllu ókunnugur jafnvel þótt viðkomandi sé tengdur barninu blóðböndum. Þá skuli áréttað og ítrekað að bæði skilyrði ákvæðisins verði að vera uppfyllt til að tækt sé að ákveða umgengni, þ.e. bæði að viðkomandi sé barninu nákominn og að umgengnin teljist barninu til hagsbóta.
Verði komist að þeirri niðurstöðu að kærandi A eigi að falla undir hugtakið nákominn, þrátt fyrir framangreint, telji kærendur að allt að einu eigi að hafna kröfu hennar um umgengni, enda geti sú umgengni sem hinn kærði úrskurður segi til um aldrei verið til hagsbóta fyrir F. Kærendur byggi á því að umgengni drengsins við kæranda A geti aldrei þjónað þeim markmiðum sem fósturvistun drengsins byggi á, þ.e. að um varanlegt fóstur sé að ræða sem standa eigi til 18 ára aldurs hans. Markmið fóstursins sé óumdeilanlega að drengurinn aðlagist fósturfjölskyldunni sem sinni eigin og í raun alveg ljóst hvernig best skuli hagað umgengni í varanlegu fóstri, enda um margviðurkennd og margúrskurðuð sjónarmið að ræða.
Að mati kærenda C og D liggi hagsmunir F fyrst og fremst í því að hann búi áfram við stöðugleika og frið í fóstrinu og fái að viðhalda tengslum við fósturfjölskyldu sína. Kærendur byggi enn fremur kröfur sínar á því að drengurinn hafi nú þegar umgengni við kynmóður og bróður sinn, samtals u.þ.b. 5 til 7 sinnum á ári og nú sé nýhafin umgengni við kynföður. Sé í raun um að ræða frekar mikla umgengni við upprunafjölskyldu fyrir barn í varanlegu fóstri. Að mati kærenda geti það ekki verið drengnum til hagsbóta að bæta enn þar í, enda hafi hann enga sjálfstæða þörf fyrir umgengni við kæranda A. Komi það glögglega fram í talsmannaskýrslum sem liggi fyrir í málinu.
Enn fremur byggi kærendur C og D á nýjum úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 353/2018 frá 30. nóvember síðastliðnum. Varði það mál sama dreng og hér um ræði og umgengni hans við kynmóður. Í þeim úrskurði sé staðfest neitun Barnaverndarnefndar B um aukna umgengni hennar, meðal annars með eftirfarandi rökstuðningi:
„[...] lögvarðir hagsmunir drengsins eru að hann búi við stöðugleika, frið og ró í fóstrinu, fái svigrúm til að tengjast fósturfjölskyldunni áfram og að umgengni valdi sem minnstri truflun. Drengnum líður vel og ekkert bendir til að hann hafi þörf fyrir breytingar. Það geta ekki talist hagsmunir drengsins að vera í miklum tengslum við kynforeldri þar sem slík tengsl eiga ekki að vera varanleg og til frambúðar. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefur drengurinn hvorki getu né þroska til að meta hvernig umgengni eigi að vera háttað. Á þessum tíma í lífi drengins eru það því ekki hagsmunir hans að tekin verði áhætta með því að auka umgengni eða gera tilraunir með aukna umgengni, svo sem kærandi leggur til, en aukin umgengni myndi raska ró drengsins í fóstrinu. Þá hafa fósturforeldrar krafist þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur og telja að aukin umgengni við kæranda sé drengnum ekki til hagsbóta.“
Kærendur C og D telji augljóst að sami rökstuðningur eigi við um kröfu kæranda A um að koma á umgengni við hana, þ.e. bæta enn í umgengni við upprunafjölskyldu drengsins. Það sé mat og sannfæring kærenda, meðal annars með vísan til framangreinds rökstuðnings úrskurðarnefndar velferðarmála í máli er varði sama dreng og hér um ræði, að sú umgengni sem nú þegar sé til staðar sé nægileg til að drengurinn fá notið þeirra réttinda að þekkja uppruna sinn og viðhalda tengslum við upprunafjölskyldu. Það geti ekki verið honum til hagsbóta að bæta við fleiri aðilum. Allra síst geti það verið honum til hagsbóta að bæta nú inn í umgengnina aðilum sem óumdeilt sé að eru honum með öllu ótengdir.
Með vísan til alls framangreinds telji kærendur C og D að sýnt hafi verið fram á með óyggjandi hætti að ekki séu til staðar lagaskilyrði til að fallast á kröfur kæranda A um umgengni.
IV. Afstaða Barnaverndarnefndar B
Í greinargerð Barnaverndarnefndar B til úrskurðarnefndarinnar 21. janúar 2019 er vísað til þess að þann 18. mars 2014 hafi barnaverndarnefnd úrskurðað um að kærandi A hefði ekki umgengni við drenginn en fengi myndir einu sinni á ári. Kærandi A hafi kært þann úrskurð til kærunefndar barnaverndarmála sem staðfesti úrskurð Barnaverndarnefndar B með úrskurði 9. júlí 2014 í máli nr. 3/2014. Í þeim úrskurði hafi kærunefndin komist að þeirri niðurstöðu að kærandi A væri ekki nákomin drengnum í skilningi bvl. Í forsendum úrskurðarins segi að drengurinn hafi hvorki haft tækifæri til að kynnast né tengjast [...]ömmu drengsins, kæranda A. Kærandi A geti því ekki talist nákomin drengnum í þeim skilningi að tengslamyndun hafi ekki farið fram.
Í september 2015 hafi kærandi A á ný gert kröfu um umgengni. Hafi verið bókað á fundi Barnaverndarnefndar B 29. september 2015 að úrskurður kærunefndar barnaverndarmála 9. júlí 2014 um að kærandi A væri ekki nákomin, stæði.
Í febrúar 2017 hafi kærandi Svandís aftur gert kröfu um umgengni. Hafi Barnaverndarnefnd B úrskurðað 28. febrúar 2017 um að kærandi A hefði ekki umgengni við drenginn enda teldist hún ekki nákomin honum. Hafi verið vísað til úrskurðar kærunefndar barnaverndarmála frá 9. júlí 2014. Kærandi A hafi kært úrskurðinn til úrskurðarnefndar velferðarmála. Úrskurðarnefndin hafi úrskurðað 30. júní 2017, sbr. mál nr. 126/2017, og komist að þeirri niðurstöðu að breytt staða væri í málinu. Úrskurðarnefndin hafi fellt úrskurð Barnaverndarnefndar B úr gildi og vísað málinu til meðferðar hjá barnaverndarnefnd að nýju.
Málið hafi farið fyrir Barnaverndarnefnd B X 2018 og þann 27. febrúar 2018 hafi verið úrskurðað um að drengurinn hefði ekki umgengni við kæranda A, enda teldist hún ekki nákomin drengnum í skilningi bvl. Forsendur Barnaverndarnefndar B fyrir þeirri niðurstöðu hafi verið þær að samkvæmt 2. mgr. 74. gr. bvl. yrði kærandi A að uppfylla tvö skilyrði. Annars vegar að teljast vera nákomin drengnum og hins vegar að umgengni drengsins við kæranda A teldist honum til hagsbóta. Hafi verið vísað til forsendna úrskurðar kærunefndar barnaverndarmála frá 9. júlí 2014 í máli nr. 3/2014 þar sem talið hafi verið að kærandi A væri ekki nákomin drengnum með vísan til þess að drengurinn hefði „...hvorki haft tækifæri til að kynnast né tengjast...„ kæranda A.
Barnaverndarnefnd hafi talið að frá því að úrskurður kærunefndarinnar hafi verið kveðinn upp árið 2014 hafi aðstæður ekki breyst. Drengurinn hefði ekki hitt kæranda A á þessu tímabili. Hafi barnaverndarnefnd talið að með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 126/2017 hafi fyrri niðurstöðu kærunefndarinnar ekki verið hnekkt, enda ekki tekin afstaða til skilyrðis um hvort kærandi A teldist nákominn í máli nr. 126/2017. Hafi barnaverndarnefnd talið að aðstæður hefðu ekki breyst. Kærandi A gæti ekki talist nákomin drengnum í þeim skilningi að tengslamyndun hefði ekki átt sér stað. Þær forsendur hafi verið í samræmi við forsendur niðurstöðu kærunefndar barnaverndarmála í máli nr. 3/2014 frá 9. júlí 2014 og forsendur í máli úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 420/2017 í máli annars drengs sem einnig lúti forsjá Barnaverndarnefndar B.
Kærandi A hafi kært úrskurðinn til úrskurðarnefndar velferðarmála. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi komist að þeirri niðurstöðu að kærandi A teldist nákomin drengnum. Úrskurðarnefndin hafi fellt úrskurð Barnaverndarnefndar B úr gildi og vísað málinu til meðferðar hjá nefndinni að nýju, sbr. mál nr. 120/2018.
Málið hafi verið tekið fyrir á fundi Barnaverndarnefndar B X 2018. Fyrir fundinum hafi legið greinargerð starfsmanna frá X 2018 með tillögu um að engin umgengni yrði að svo stöddu en það yrði endurskoðað kæmi upp sú staða að rök væru fyrir því að það yrði drengnum til hagsbóta að hitta kæranda A. Mikilvægt væri að halda stöðugleika í lífi drengsins og hann væri ekki tengdur kæranda A. Starfsmenn hafi einnig talið að það gæti haft neikvæð áhrif á drenginn að þvinga fram umgengni við kæranda A gegn vilja fósturforeldra og það gæti orðið til þess að raska ró og öryggi drengsins. Hafi komið fram að á grundvelli úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 120/2018 væri ekki hægt að leggja til að nýju að kærandi A væri nákomin drengnum í skilningi bvl.
Niðurstaða barnaverndarnefndarinnar á fundi X 2018 hafi verið sú að starfsmönnum hafi verið falið að skipa drengnum talsmann vegna kröfu kæranda A um umgengni en það hafði ekki verið gert áður sökum ungs aldurs drengsins, auk þess sem hann þekkti ekki kæranda A. Í fyrirliggjandi skýrslu talsmanns frá X 2018 komi fram að erfiðlega hafi gengið að ná sambandi við drenginn. Þegar talsmaður hafi endurtekið spurninguna um hvort hann vildi hitta kæranda A hafi hann yppt öxlum og svarað "ja" en svo haldið áfram að leika sér. Meira hafi hann ekki viljað ræða við talsmann.
Málið hafi að nýju verið tekið fyrir á fundi Barnaverndarnefndar B X 2018. Fyrir fundinum hafi legið greinargerðir starfsmanna X og X 2018 þar sem lagt hafi verið til að ekki yrði umgengni að svo stöddu. Endurskoðað yrði með umgengni kæmi upp sú staða að rök væru fyrir því að það yrði talið drengnum til hagsbóta að hitta kæranda A.
Í bókun barnaverndarnefndarinnar X 2018 komi fram að Barnaverndarnefnd B taki undir mat starfsmanna í greinargerð X 2018. Sé bent á að drengurinn, sem einungis sé X ára gamall, hafi umgengni við báða foreldra sína og bróður sinn, en markmið umgengni í varanlegu fóstri sé fyrst og fremst það að tryggja að drengurinn þekki uppruna sinn. Komi fram að nefndin telji að því markmiði sé náð með þeirri umgengni. Þá sé einnig litið til afstöðu fósturforeldra við ákvörðun á umgengni, sbr. 2. mgr. 74. gr. a bvl., en þau séu andsnúin því að drengurinn njóti umgengni við kæranda A. Þrátt fyrir framangreind atriði hafi úrskurðarnefnd velferðarmála komist að þeirri niðurstöðu að kærandi A sé nákomin drengnum og það sé honum til hagsbóta að hitta hana, sbr. úrskurður í máli nr. 120/2018. Í bókuninni komi fram að barnaverndarnefndin telji sig bundna við þá niðurstöðu í ljósi stjórnsýslulegrar stöðu sinnar. Hafi það því verið niðurstaða barnaverndarnefndarinnar að kærandi A fengi umgengni við drenginn. Við þá ákvörðun hafi verið litið til forsendna í úrskurði máls nr. 120/2018 þar sem segi að "takmarka [þurfi] umgengni verulega í upphafi.“ Málið hafi verið tekið til úrskurðar á grundvelli 74. gr. bvl. og hafi úrskurður nefndarinnar legið fyrir 26. nóvember 2018.
Í 74. gr. bvl. sé fjallað um umgengni í fóstri. Segi þar í 1. mgr. að barn eigi rétt til umgengni við kynforeldra og aðra sem því eru nákomnir. Með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti. Þá segi meðal annars í 2. mgr. að kynforeldrar eigi rétt til umgengni við barn í fóstri, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skuli meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri sé ætlað að vara. Þá segi enn fremur að þeir sem telji sig nákomna barninu eigi með sama hætti rétt til umgengni við barnið, enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið.
Í athugasemdum við 74. gr. í frumvarpi því sem varð að bvl. komi fram að þegar um aðra nákomna sé að ræða sé tekið þannig til orða að umgengni sé barninu til hagsbóta. Samkvæmt þessu orðalagi sé réttur þessara aðila ekki jafnríkur og kynforeldra. Enn fremur komi fram að við ákvörðun um umgengni verði barnaverndarnefnd að meta hagsmuni og þarfir barns og gæta þess að umgengni sé í samræmi við markmiðin með fóstri. Þannig verði almennt að gera ráð fyrir ríkari umgengni sé fóstri ætlað að vara í skamman tíma og áætlað að barn snúi aftur til foreldra sinna. Gagnályktun frá þessum athugasemdum leiði til þess að almennt sé gert ráð fyrir takmarkaðri umgengni þegar börn séu vistuð í varanlegu fóstri, auk þess sem við túlkun á skilyrðum 74. gr. bvl. verði að taka mið af því að réttur annarra nákominna sé ekki jafnríkur og kynforeldra. Við úrlausn mála sem þessara beri að meta hvort sá sem óski eftir umgengni teljist nákominn barni í skilningi 2. mgr. 74. gr. bvl. Eins og fram komi í athugasemdum með lagaákvæðinu í frumvarpi til bvl. meti barnaverndarnefnd hvort aðili teljist nákominn barni í skilningi lagaákvæðisins. Við lögskýringu á lagaákvæðinu verði að líta til þess að ætlun löggjafans hafi verið sú að túlka bæri það hverjir teldust nákomnir barni út frá stöðu barnsins og hagsmunum þess.
Það sé óumdeilt að drengurinn þekki ekki kæranda A. Hann hafi hitt hana einu sinni þá X gamall í klukkustund á K, og engin tengslamyndun hafi farið fram þeirra á milli. Drengurinn hafi því ekki sjálfstæða þörf fyrir að tengjast kæranda A. Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. bvl. verði að uppfylla tvö skilyrði. Annars vegar að kærandi A teljist nákomin drengnum og hins vegar að umgengni drengsins við kæranda A teljist honum til hagsbóta. Hugtakið nákominn aðili í 2. mgr. 74. gr. bvl. hafi verið túlkað þannig að það nái eingöngu til þeirra aðila sem hafi þá þegar tengsl við barnið, þ. e. sem barnið þekki. Hafi tengslamyndun ekki farið fram væri verið að búa til tengsl sem myndu aldrei verða náin því að tengslin yrðu alltaf lítil, sbr. forsendur úrskurðarnefndar í máli nr. 420/2017.
Hafi það verið niðurstaða Barnaverndarnefndar B 13. febrúar 2018 að kærandi A væri ekki og gæti ekki talist nákomin drengnum í skilningi fyrrgreinds lagaákvæðis og þannig skorti lagaskilyrði til að ákveða umgengni drengsins við hana. Hafi það verið í samræmi við niðurstöðu kærunefndar barnaverndarmála í máli nr. 3/2014 og forsendur í máli úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 420/2017. Í ljósi niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 120/2018 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að kærandi A uppfylli skilyrði 74. gr. bvl. um að teljast nákomin drengnum og að það sé honum til hagsbóta að hafa raunhæfan möguleika á að kynnast henni, hafi það verið mat barnaverndarnefndarinnar á fundi sínum X 2018 að nefndin væri bundin við þá niðurstöðu í ljósi stjórnsýslulegrar stöðu sinnar. Kærandi A fái því umgengni við drenginn, en rétt sé að umgengni sé mjög takmörkuð í upphafi með tilliti til hagsmuna drengsins og þeirrar staðreyndar að drengurinn þekki hana ekki og engin tengsl séu þeirra á milli.
Í ljósi framangreinds, allra gagna málsins og með vísan til forsendna niðurstöðu úrskurðar barnaverndarnefndarinnar frá 26. nóvember 2018 krefjist Barnaverndarnefnd B þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
V. Afstaða F
Í málinu liggur fyrir skýrsla talsmanns drengsins frá X 2018 en talsmaður hitti drenginn á fósturheimili. Talsmanni var falið að kanna vilja drengsins til umgengni við kæranda A.
Í skýrslu talsmanns segir að talsmaður hefði spurt drenginn hvort hann vildi hitta [...]ömmu. Erfiðlega hefði gengið að ná sambandi við drenginn þar sem hann hafi verið svo upptekinn af því að finna teiknimyndir sem hann ætti. Talsmaður hefði endurtekið spurningu sína um hvort drengurinn vildi hitta [...]ömmu. Drengurinn hefði yppt öxlum og sagt „ja“ og hafi síðan haldið áfram að leita að myndunum.
VI. Niðurstaða
Með hinum kærða úrskurði var ákveðið að kærandi A hefði umgengni við F einu sinni á ári undir eftirliti.
Í málinu liggur fyrir að allt frá því að drengurinn var vistaður í fóstur um X mánaðar aldur hefur kærandi A, sem er [...]amma drengsins, reynt að fá við hann umgengni en án árangurs. Fósturforeldrar hafa verið andsnúnir umgengni. Áður hafa fallið þrír úrskurðir í málinu hjá úrskurðarnefnd velferðarmála og forvera hennar, kærunefnd barnaverndarmála.
Í hinum kærða úrskurði Barnaverndarnefndar B er meðal annars vísað til greinargerðar starfsmanna X 2018, en þar er gerð tillaga um að engin umgengni verði við kæranda A að svo stöddu. Það verði þó endurskoðað komi upp sú staða að umgengni við hana verði talin drengnum til hagsbóta. Barnaverndarnefnd kveðst sammála mati starfsmanna um að drengurinn eigi ekki að hafa umgengni við kæranda A en í ljósi stjórnsýslulegrar stöðu sinnar telur barnaverndarnefndin sig bundna við niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála um að umgengni við kæranda A sé drengnum til hagsbóta. Því sé það niðurstaðan að kærandi A fái umgengni við drenginn eins og kveðið er á um í hinum kærða úrskurði.
Kærandi A gerir aðallega þá kröfu að hún njóti umgengni við drenginn í tvær klukkustundir fjórum sinnum á ári. Til vara gerir hún kröfu um að hún njóti umgengni við drenginn í tvær klukkustundir tvisvar sinnum á ári. Þá krefst hún þess aðallega að umgengnin fari fram á heimili sínu en til vara að umgengnin fari fram í húsnæði á vegum Barnaverndar B. Kærandi A krefst þess einnig að fósturforeldrar fái ekki að vera viðstödd umgengnina. Sé talið nauðsynlegt að eftirlit verði haft með umgengninni fer kærandi A fram á að þá verði eftirlitsaðili á vegum Barnaverndarnefndar B á staðnum í stað fósturforeldra.
Kröfur sínar styður kærandi A meðal annars þeim rökum að hún telji að umgengni í tvær klukkustundir í einu séu í raun mun betri en ein klukkustund í senn. Það megi búast við því að í upphafi verði drengurinn feiminn og því þurfi að gefa honum góðan tíma til að átta sig á aðstæðum. Hann þurfi ró og næði og verði varla farinn að ná tengslum við kæranda A og hennar fólk, er hann þurfi að fara aftur, verði umgengnin ein klukkustund. Til að drengurinn njóti umgengninnar sem best verði að telja varhugavert að fósturforeldrar séu viðstödd umgengnina. Drengurinn myndi væntanlega finna spennuna í andrúmsloftinu og því telji kærandi betra að fósturforeldar væru ekki viðstödd umgengnina.
Kærendur C og D krefjast þess að hinum kærða úrskurði verði breytt þannig að umgengniskröfu kæranda A verði hafnað. Þau byggja kröfur sínar á því að kærandi A teljist ekki og geti ekki talist nákomin drengnum í skilningi 2. mgr. 74. gr. bvl. og þannig skorti lagaskilyrði til að ákveða umgengni drengsins við kæranda A. Þá telja kærendur C og D að jafnvel þó að kærandi A verði talin falla undir hugtakið nákominn eigi allt að einu að hafna kröfu hennar um umgengni, enda geti sú umgengni sem hinn kærði úrskurður segi til um aldrei verið til hagsbóta fyrir drenginn.
Barnaverndarnefnd B krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Í ljósi niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 120/2018, þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að kærandi A uppfylli skilyrði 74. gr. bvl. um að teljast nákomin drengnum og að það sé honum til hagsbóta að hafa raunhæfan möguleika á að kynnast henni, hafi það verið mat barnaverndarnefndarinnar á fundi sínum X 2018 að nefndin væri bundin við þá niðurstöðu í ljósi stjórnsýslulegrar stöðu sinnar. Því hafi verið úrskurðað um að kærandi A fengi umgengni við drenginn, en rétt sé að umgengni verði mjög takmörkuð í upphafi með tilliti til hagsmuna drengsins og þeirrar staðreyndar að drengurinn þekki hana ekki og engin tengsl séu þeirra á milli.
Eins og fram kemur í 1. mgr. 74. gr. bvl. á barn rétt á umgengni við foreldra og aðra sem því eru nákomnir. Foreldrar eiga með sama hætti rétt á umgengni við barn sitt samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skal meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri er ætlað að vara. Þeir sem telja sig nákomna barninu eiga með sama hætti rétt til umgengni við barnið, enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið. Við ráðstöfun barns í fóstur skal samkvæmt 3. mgr. lagagreinarinnar taka afstöðu til umgengni barns við foreldra og aðra nákomna og skal tekið mið af því hvað þjónar hagsmunum barnsins best. Samkvæmt 4. mgr. lagagreinarinnar getur barnaverndarnefnd ákveðið að umgengni við aðra nákomna en foreldra njóti ekki við ef skilyrðum 2. mgr. er ekki talið fullnægt.
Í athugasemdum við 74. gr. í frumvarpi því sem varð að núgildandi barnaverndarlögum er bent á að þegar um aðra nákomna sé að ræða sé tekið þannig til orða að umgengni sé barninu til hagsbóta. Samkvæmt þessu orðalagi sé réttur þessara aðila ekki jafnríkur og kynforeldra. Vera kunni að umgengni barns við aðra nákomna geti haft sérstaka þýðingu fyrir það, einkum þar sem umgengni við kynforeldra sé lítil sem engin. Tekið er fram að við ákvörðun um umgengni verði barnaverndarnefnd sem endranær að meta hagsmuni og þarfir barns og gæta þess að umgengni sé í samræmi við markmiðin með fóstri. Þannig verði almennt að gera ráð fyrir ríkari umgengni ef fóstri er ætlað að vara í skamman tíma og áætlað að barn snúi aftur til foreldra sinna.
Í 2. mgr. 46. gr. bvl. segir að gefa skuli barni kost á að tjá sig um mál sem það varðar í samræmi við aldur þess og þroska og taka réttmætt tillit til skoðana þess við úrlausn málsins. Við úrlausn þessa máls verður að líta til þess að drengurinn er X ára. Úrskurðarnefndin álítur að hann hafi ekki nægan þroska til að mynda sér marktæka skoðun á því hvort og þá hvernig umgengni við kæranda A verði best háttað.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur þegar komist að því að kærandi A sé nákomin drengnum vegna náins skyldleika við hann, en eins og fram hefur komið er hún [...]amma hans. Er í þessu sambandi vísað til úrskurða úrskurðarnefndarinnar í málum nr. 126/2017 og 120/2018.
Drengurinn er nú X ára gamall og hefur aldrei verið í umsjá foreldra sinna eða annarra líffræðilegra ættingja. Hann dvaldi fyrstu vikurnar á J og K en fór X mánaðar gamall til fósturforeldra þar sem hann hefur verið síðan. Móðir drengsins var svipt forsjá hans með dómi Héraðsdóms B X. Af þessum ástæðum hefur drengurinn hvorki kynnst né tengst kæranda, enda er fósturfjölskyldan eina fjölskyldan sem hann hefur þekkt.
Kærandi A hefur umgengni við L, albróður F, en L er nú X ára gamall. Aðstæður eru þær að á X ári L kom kærandi A að daglegri umönnun hans en um X árs aldur fór hann til fósturforeldra. Eftir það fékk kærandi A umgengni við L annan hvorn laugardag þar sem hún var talin nákomin honum. Hún hefur því byggt upp tengsl við L um X ára skeið. F hefur umgengni við L. Staða drengjanna gagnvart kæranda A er að því leyti ólík að annar þeirra hefur tengsl við hana en hinn ekki. Á hinn bóginn eru samskipti og tengsl á milli bræðaranna og trúlegt að svo verði áfram. Eins og fram kom í úrskurði úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 120/2018 telur úrskurðarnefndin af þeim sökum því réttlætismál fyrir F að fá tækifæri til að þekkja kæranda A og því sé það honum til hagsbóta að hafa raunhæfan möguleika á að kynnast henni til þess að hann geti ákveðið sjálfur í framtíðinni hvort hann vill hafa samband við kæranda eða ekki. Við úrlausn málsins ber að leggja þessar aðstæður til grundvallar við mat á því hvað þjóni best hagsmunum drengsins. Að því gættu verður því að telja að takmörkuð umgengi drengsins við kæranda A sé til hagsbóta fyrir hann. Með vísan til þessa og 1.- 4. mgr. 74. gr. bvl. ber að hafna kröfu kærenda C og D um að hinum kærða úrskurði verði breytt þannig að umgengniskröfu kæranda A verði hafnað.
Hin takmarkaða umgengi kæranda A við drenginn er í hinum kærða úrskurði ákveðin í samræmi við þær forsendur að hagsmunir drengsins þurfi að vera í fyrirrúmi. Þess vegna þarf að vinna málið í litlum skrefum, gefa góðan tíma í aðlögun og því þurfi að takmarka umgengni verulega í upphafi til þess að viðunandi árangur náist. Ákvörðun í hinum kærða úrskurði um eftirlit með umgengni, hvar hún skuli fara fram og að fósturforeldrum sé heimilt að vera viðstödd umgengni þjónar þessum sömu markmiðum. Úrskurðarnefndin leggur jafnframt þunga áherslu á að umgengni verði í góðri samvinnu allra aðila. Þannig verði hagsmunum drengsins best borgið.
Samkvæmt ofangreindu verður að telja að ákvörðun Barnaverndarnefndar B um umgengni hafi verið í samræmi við þau sjónarmið sem leggja ber til grundvallar samkvæmt 2., 3. og 4. mgr. 74. gr. bvl. þegar umgengni F við kæranda A var ákveðin. Með vísan til alls þess, sem að framan greinir, ber að staðfesta hinn kærða úrskurð Barnaverndarnefndar B.
Úrskurðarorð
Hinn kærði úrskurður Barnaverndarnefndar B frá 26. nóvember 2018 varðandi umgengni A, við [...]son sinn, F, er staðfestur.
Lára Sverrisdóttir
Guðfinna Eydal Sigríður Ingvarsdóttir