Mál nr. 76/2015 Úrskurður 5. nóvember 2015
Mál nr. 76/2015 Eiginnafn: Diljar
Hinn 5. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 76/2015 en erindið barst nefndinni 12. október:
Eiginnafnið Diljar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Diljars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Diljar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.