Mál nr. 77/2015 Úrskurður 5. nóvember 2015
Mál nr. 77/2015 Eiginnafn: Mírey
Hinn 5. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 77/2015 en erindið barst nefndinni 21. október:
Eiginnafnið Mírey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Míreyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Mírey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.