Mál nr. 78/2015 Úrskurður 5. nóvember 2015
Mál nr. 78/2015 Eiginnafn: Kalmara
Hinn 5. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 78/2015 en erindið barst nefndinni 2. nóvember:
Eiginnafnið Kalmara (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kalmöru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kalmara (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.