Hoppa yfir valmynd

Nr. 277/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. maí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 277/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040088

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. apríl 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Gerð er krafa aðallega um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta skipti þann 23. ágúst 2016. Þann 9. október 2016 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Grikklands. Þann 14. nóvember 2016 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Grikklands þann 21. mars. 2017. Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. febrúar 2019. Kærandi framvísaði grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 19. nóvember 2020 og gildu grísku dvalarleyfi sem gaf til kynna að kærandi væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. ágúst 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, þann 11. mars 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 9. apríl 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 9. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. maí 2019. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn þann 6. maí 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og væri með dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til 13. ágúst 2021. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi áður sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, þann 23. ágúst 2016. Vísi kærandi til aðstæðna sinna þá, en hann hafi m.a. [...] vegna andlegrar vanlíðanar sem hafi staðið yfir í nokkra daga. Í greinargerð sinni vísar kærandi þá til þess að hann glími við [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi gert grein fyrir erfiðum aðstæðum sínum á Grikklandi, m.a. hvað varðar húsnæðismál, félagslega aðstoð og atvinnumál. Þá hafi kærandi greint frá því að í Grikklandi séu einstaklingar á eftir honum vegna atburða í heimaríki kæranda og að kærandi sé mjög hræddur við þá. Kveði kærandi að lögreglan í Grikklandi hafi ekki viljað aðstoða kæranda vegna þessa, en hann hafi sætt fordómum og óvirðingu af hálfu hennar. Þá hafi hann ekki fengið læknisaðstoð [...] þar í landi og sú heilbrigðisþjónusta sem hann hafi þó fengið hafi verið ófullnægjandi. Þá kveði kærandi sig eiga unnustu í heimaríki en hann hafi ekki átt möguleika á að fá hana til sín til Grikklands. Kærandi kveði einnig að hann hafi sætt fordómum í Grikklandi og að hann hafi [...] við komuna til landsins þar sem hann hafi ekki haft skilríki. Þá hafi kærandi greint frá því að hann sé mjög hræddur við að verða sendur til Grikklands á nýjan leik og hann sé m.a. hræddur um líf sitt þar í landi.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar í greinargerð sinni. Í fyrsta lagi geri kærandi athugasemd við að ekki hafi verið nýtt túlkaþjónusta þegar hann hafi farið í læknisskoðun hér á landi, hvorki í tengslum við fyrri né núverandi umsókn hans. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi borið að bregðast við þessu og hafi því ekki viðhaft góða stjórnsýsluhætti í málinu og að stofnunin hafi með slíkri háttsemi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. einnig 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Í öðru lagi gagnrýnir kærandi þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem varpi ljósi á heilsufar hans. Vísi kærandi til greinargerðar sinnar til stofnunarinnar, en meðfylgjandi henni hafi kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá fyrri dvöl hans hér á landi. Þá bendi kærandi á að talsmaður hans hafi undir höndum nýleg heilsufarsgögn frá árinu 2019 en þar sem kærandi hafi ekki notið túlkaþjónustu á Göngudeild sóttvarna, hafi hann ekki getað tjáð sig með fullnægjandi hætti um heilsufar sitt og því hafi talsmaður ekki talið ástæðu til að leggja þau gögn fram. Það sé því á ábyrð Útlendingastofnunar að ekki séu til nýleg heilsufarsgögn til að leggja fram í máli kæranda.

Kærandi gerir í þriðja lagi athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki gert greinarmun á einstaklingum með stöðu flóttamanns í Grikklandi annars vegar og hins vegar stöðu einstaklinga með viðbótarvernd í landinu þegar kemur að rétti til fjölskyldusameiningar. Kærandi hafi hlotið viðbótarvernd í Grikklandi og samkvæmt skýrslu Asylum Information Database (AIDA) þá eigi hann því ekki rétt til fjölskyldusameiningar á grundvelli þeirrar stöðu. Telji kærandi að raunverulegt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans hafi því ekki farið fram. Í fjórða lagi mótmælir kærandi því sem fram komi í hinni kærðu ákvörðun um að hann geti leitað til lögreglu vegna ótta síns í Grikklandi. Vísi kærandi í því sambandi til þess að heimildir hermi að grísk lögregluyfirvöld hafi verið sökuð um illa meðferð á borgurum landsins. Þá mótmælir kærandi enn fremur þeirri fullyrðingu Útlendingastofnunar að hann geti leitað sér fullnægjandi heilbrigðisaðstoðar í Grikklandi, þurfi hann á henni að halda. Loks telur kærandi að skilyrði reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga, með síðari breytingum, varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í lögum um útlendinga, sbr. einnig athugasemdir með frumvarpi því sem varð að núgildandi lögum um útlendinga. Telji kærandi að þær kröfur sem Útlendingastofnun leggi til grundvallar eigi sér ekki stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Í greinargerð sinni gerir kærandi ítarlega grein fyrir aðstæðum flóttafólks í Grikklandi. Vísi kærandi m.a. til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar síðan árið 2010, enda væri ómannúðlegt að senda fólk í hælismeðferð til landsins þar sem ástand og aðstæður væru með þeim hætti að brotið væri á mannréttindum þess. Kærandi vísi jafnframt til þess að mikill fjöldi einstaklinga hafi sótt um alþjóðlega vernd í Grikklandi á undanförnum árum og nýlegar heimildir beri með sér að aðstæður flóttafólks þar í landi séu bágbornar og allt að því skelfilegar, sbr. t.d. nýjustu ársskýrslur Amnesty International og Human Rights Watch. Athygli hafi m.a. verið vakin á því að mikil þörf sé á að auka við félagslega þjónustu við flóttafólk en vegna takmarkaðrar þjónustu sé aðlögun þeirra að grísku samfélagi erfið. Flóttafólk verði þá fyrir mismunun á húsnæðismarkaði, m.a. vegna tungumálaerfiðleika, auk þess sem þessir hópar hafi lítil fjárráð og eigi erfitt með að finna húsnæði á almennum markaði. Engin lögfræðiaðstoð sé veitt í tengslum við endurnýjun á dvalarleyfum en umsókn um slíkt geti einnig tekið langan tíma sem geti haft þau áhrif að einstaklingar eigi í erfiðleikum með að fá aðgang að þjónustu, t.d. á vegum félagsmálayfirvalda með umsókn þeirra sé til meðferðar. Þá séu flóttamannabúðir á grísku eyjunum og á meginlandinu yfirfullar en slík þrengsli skapi óróa, spennu og deilur milli mismunandi hópa sem þar dvelja og annarra íbúa landsins.

Kærandi vísar þá til þess að víðtækur niðurskurður innan heilbrigðiskerfisins hafi komið niður á heilbrigðisþjónustu á sama tíma og þörfin fyrir þjónustuna hafi aukist. Mikið skorti t.d. á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk í Grikklandi, en auk þess þurfi þessir hópar oft að fara langar vegalengdir eða bíða lengi eftir að fá tíma hjá læknum og þá hafi lyfjakostnaður aukist á síðustu árum. Þá vísi kærandi til þess að atvinnuleysi í Grikklandi sé það hæsta í Evrópu og erfitt sé fyrir flóttafólk að finna sér atvinnu þar í landi. Í áðurnefndri AIDA skýrslu komi m.a. fram að hið mikla atvinnuleysi, efnahagskreppa, tungumálaerfiðleikar og ójöfn staða flóttafólks þegar komi að starfsnámi séu dæmi um þá erfiðleika sem geri flóttafólki nánast ómögulegt að framfleyta sér í landinu. Því leiti fólk í ólöglega vinnu við slæmar aðstæður sem stundum jaðri við misnotkun eða nauðungarvinnu. Þá vísi kærandi til þess að engin húsnæðisúrræði séu í boði sem sérstaklega séu ætluð þeim sem njóti alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og jafnframt enginn fjárstuðningur sé veittur þeim einstaklingum. Kærandi vísi einnig til þess að önnur Evrópuríki hafi stöðvað endursendingar einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd til Grikklands. Loks telji Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna öryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd og viðurkennds flóttafólks í landinu vera ógnað vegna vaxandi kynþáttafordóma, útlendingahaturs, ofbeldis og skorts á umburðarlyndi í Grikklandi. Álit almennings til málaflokks flóttamanna hafi snúist til hins verra og stuðningur við hægri öfl í landinu hafi vaxið ásmegin á undanförnum árum.

Aðalkrafa kæranda er í fyrsta lagi byggð á því að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga, sem mælir fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu, eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hafi lýst aðstæðum sínum á Grikklandi og komi sú lýsing heim og saman við þær heimildir sem vísað sé til í greinargerð kæranda um aðstæður þar í landi. Telji kærandi að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem og skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Endursending kæranda til Grikklands myndi því vera brot gegn 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða brot gegn reglunni um non-refoulement.Þá er aðalkrafa kæranda jafnframt reist á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi þar sem sérstakar ástæður mæli með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærandi til þess að hann hafi glímt við andlega erfiðleika en hann hafi m.a. í fyrri dvöl sinni hér á landi [...]. Kærandi vísi þá til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála, en niðurstaða í þeim málum hafi byggst á aðstæðum í viðtökuríki. Með tilliti til sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda og almennra aðstæðna í Grikklandi sé ljóst að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar þar í landi. Þá vísi kærandi til tiltekinna úrskurða kærunefndar útlendingamála frá 27. september 2018 og 26. mars 2019, þar sem kærunefnd hafi fellt úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar og lagt fyrir stofnunina að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, m.a. vegna aðstæðna kærenda í Grikklandi. Telji kærandi að staða hans sé verulega síðri en staða almennings í Grikklandi vegna ofbeldis þar í landi gegn fólki af erlendum uppruna og að endursending hans þangað muni hafa slæmar afleiðingar í för með sér fyrir hann.

Varakrafa kæranda er byggð á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Vísi kærandi til þess að stofnunin hafi ekkert aðhafst til að afla frekari upplýsinga um afleiðingar erfiðra veikinda kæranda eða leitað eftir frekari aðstoð sérfræðinga vegna heilsubresta kæranda í samræmi við 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá vísi kærandi til þess sem áður hefur komið fram að hann hafi ekki notið túlkaþjónustu hjá Göngudeild sóttvarna og því ekki getað tjáð sig um heilsufar sitt með fullnægjandi hætti.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. ágúst 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Einstaklingsbundnar aðstæður kærandaSamkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] karlmaður sem kom einn hingað til lands en hann kveðst eiga unnustu í heimaríki. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 11. mars 2019, kvaðst kærandi m.a. glíma við [...].

Kærandi hefur lagt fram heilsufarsupplýsingar frá dvöl kæranda hér á landi árið 2017. Í þeim kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað til [...]. Kærandi hefur ekki lagt fram frekari heilsufarsgögn í tengslum við síðari umsókn sína hér á landi.Að mati kærunefndar bera fyrirliggjandi gögn, þ. á m. viðtöl kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, ekki með sér að kærandi teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins. Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að í ljósi framangreindra heilsufarsgagna er það mat nefndarinnar að mál kæranda sé nægjanlega upplýst m.t.t. heilsufars kæranda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og ekki ástæða til að gera athugasemd við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun að þessu leyti.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 29. maí 2018);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji. Í áðurnefndri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að óheimilt sé samkvæmt grískum lögum að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. í því skyni að að staðfesta auðkenni viðkomandi flóttamanns eða í þágu almannaöryggis og allsherjarreglu. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að fangelsisrými séu of skornum skammti í Grikklandi og því séu þau yfirfull með tilheyrandi vandamálum, t.d. sé öryggi í yfirfullum fangelsum ófullnægjandi auk þess sem þau glíma við skort á hreinlæti og heilbrigðisþjónustu.

Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða.

Af framangreindum skýrslum má ráða að grísk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá eru ýmsar hömlur fyrir þá sem hlotið hafa réttarstöðu flóttamanns til fjölskyldusameiningar, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, krafa stjórnvalda til framlagningu gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hefur verið samþykkt.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd hvorki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, en hann hefur meðal annars borið fyrir sig að glíma við andlega erfiðleika. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið slæmar, m.a. með vísan til húsnæðis- og atvinnumála og réttindi til félagslegrar aðstoðar auk fordóma sem hann hafi orðið fyrir. Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Af gögnum um aðstæður flóttafólks í Grikklandi kemur þó fram að atvinnuleysi sé hátt þar í landi, en það eigi bæði við um flóttafólk sem og gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Kærandi hefur þá jafnframt greint frá því að hann óttist tiltekna aðila í Grikklandi sem leiti hans þar vegna atburða í heimaríki kæranda og hefur kærandi lagt fram tvö myndskeið og ljósmynd sem hann kveði að sýni þá hættu sem hann sé í verði hann endursendur til Grikklands. Hann kveðst hafa leitað til lögreglunnar í Grikklandi en hún hafi ekki viljað aðstoða hann og vísar til heimilda um að lögregluyfirvöld og opinberir aðilar í Grikklandi hafi verið sökuð um illa meðferð á borgurum landsins. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að draga þá ályktun af framlögðum gögnum að ástand lögreglumála í Grikklandi sé með þeim hætti að löggæsluyfirvöld þar séu óviljug til að aðstoða þá einstaklinga sem til hennar leiti. Það er mat kærunefndar að óttist kærandi um öryggi sitt þar í landi geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda, m.a. umboðsmanns ef hann telur að á honum sé brotið af hálfu lögreglunnar þar í landi.

Vegna athugasemdar í greinargerð varðandi möguleika kæranda til fjölskyldusameiningar tekur kærunefnd fram að samkvæmt gögnum málsins hafa einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns möguleika á fjölskyldusameiningu í Grikklandi. Aftur á móti eru takmarkanir á heimildum til fjölskyldusameiningar fyrir einstaklinga sem njóta viðbótarverndar en slíkar takmarkanir eru í samræmi við regluverk Evrópusambandsins, þ.m.t. tilskipun nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu. Að mati kærunefndar eru reglur um fjölskyldusameiningu í Grikklandi ekki þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 og nr. 110/2019 frá 26. mars 2019. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, m.a. þar sem þar hafi verið um að ræða fjölskyldur auk þess sem kærendur hafi verið barnshafandi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 23. febrúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telur kærandi að skilyrði reglugerðarinnar um mat á sérstökum ástæðum, sbr. ákvæði 32. gr. a, eigi sér ekki stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Vegna athugasemda í greinargerð kæranda varðandi umfjöllun stofnunarinnar um möguleika kæranda á fjölskyldusameiningu tekur kærunefnd undir með kæranda að vanda hefði mátt betur rökstuðning stofnunarinnar að því leyti, sbr. 2. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga, enda eiga einstaklingar með viðbótarvernd ekki rétt á fjölskyldusameiningu í Grikklandi. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana að öðru leyti.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 23. febrúar 2019 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                          Hilmar Magnússon


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta