Mannanafnanefnd, úrskurður 4. júní 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, fimmtudaginn 4. júní, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði G. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 47/2009 Eiginnafn: Frostrós (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Frostrós (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Frostrósar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Frostrós (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá .
--------------------------------------------
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.