Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 525/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. desember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 525/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16110044

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. nóvember 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. nóvember 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Noregs.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 18. október 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 18. október 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Noregi. Þann 21. október 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Noregi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 27. október 2016 barst svar frá norskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 8. nóvember 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Noregs. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu þann 15. nóvember 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 16. nóvember 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 24. nóvember 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Noregs. Lagt var til grundvallar að Noregur virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Noregs ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Noregs, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmælir því að vera sendur til Noregs þar sem hann óttist að norsk stjórnvöld muni senda hann aftur til [...]. Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann hafi aldrei ætlað að sækja um hæli í Noregi heldur hafi kærandi verið neyddur til að gefa fingraför sín við komuna til landsins og honum hafi verið sagt að hann gæti ekki yfirgefið Noreg. Kærandi byggir á því að norsk stjórnvöld hafi brotið gegn ákvæði 4. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og 1. mgr. 29. gr. reglugerðar nr. 603/2013/ESB þegar hann hafi gefið fingraför í Noregi.

Í greinargerð kæranda er dómur fransks dómstóls rakinn þar sem talið hafi verið að um formgalla væri að ræða á ákvörðun franskra stjórnvalda um endursendingu hælisleitanda til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem hælisleitandanum hafði ekki verið veittar viðeigandi upplýsingar þegar hann hafi heimilað töku fingrafara sinna. Krafa um slíkt sé gerð í 1. mgr. 29. gr. reglugerðar nr. 603/2013/ESB og 4. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en í ákvæði 1. mgr. 29. gr. segir að veita skuli viðkomandi upplýsingar um tilgang og afleiðingar fingrafaratöku á einföldu og skýru máli sem viðkomandi skilur. Þá vísar kærandi í annan dóm franska dómstólsins þar sem endursending manns til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi verið ógild. Dómstóllinn hafi talið ófullnægjandi að byggja endursendingu á því að viðkomandi hefði farið ólöglega yfir landamærin til Spánar og á fingraförum í gagnagrunni Eurodac þegar gögn málsins hafi borið með sér að viðkomandi hafði aldrei sótt um hæli á Spáni. Eins og fram hefur komið hefur kærandi greint frá því að hann hafi aldrei sótt um hæli í Noregi. Kæranda hafi, þegar fingraför hans voru tekin í Noregi, hvorki verið gerð grein fyrir raunverulegum tilgangi fingrafarartökunnar né lagalegum afleiðingum hennar. Kærandi telji að um svo alvarlegan galla á framkvæmd norskra stjórnvalda sé að ræða að íslenskum stjórnvöldum beri að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Þá eru ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar rakin auk ákvæða laga um útlendinga og lögskýringargögn er liggja þeim að baki. Í greinargerð kæranda er vísað til d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu og að 2. mgr. ákvæðisins geri kröfu til þess að mat fari fram í hverju tilviki fyrir sig varðandi hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn verði tekin til efnismeðferðar.

Í greinargerð kæranda kemur fram að nýlega hafi orðið breytingar á stefnu Noregs í málefnum hælisleitenda sem muni geta leitt til þess að stefna landsins í málefnum hælisleitenda verði ein sú strangasta í Evrópu. Hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gert fjölmargar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar Noregs á löggjöf í þessum málaflokki. Einnig hafi norsk yfirvöld m.a. tekið upp á því að dreifa upplýsingum á helstu samfélagsmiðlum í því skyni að letja fólk frá því að leita alþjóðlegrar verndar í Noregi. Enn fremur séu heimildir um vaxandi andúð í garð hælisleitenda og flóttamanna í Noregi og reglulega berist fréttir af íkveikjum í móttökumiðstöðvum landsins. Þá sé tölfræði í málum er varða hælisumsóknir frá [...] ríkisborgurum í Noregi rakin yfir ákveðið tímabil. Kærandi telji að tölfræðin bendi til þess að norsk stjórnvöld hafi breytt verklagi sínu við meðferð hælisumsókna með þeim hætti að hlutfallslega færri hljóti vernd en áður. Kærandi bendir einnig á að norsk stjórnvöld virðist ætla að meta umsóknir [...] ríkisborgara út frá því hvaða svæði innan [...] þeir komi frá án þess að meta umsóknir út frá mismunandi stöðu einstaklinga í hverju máli fyrir sig.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að ráðuneytisstjóri norska forsætisráðuneytisins hafi nýlega lýst því yfir að norsk stjórnvöld stefni að því, í samvinnu við [...] stjórnvöld, að vísa [...] á brott til landsvæða innan [...] þar sem ekki standi yfir vopnuð átök. Í greinargerðinni er því haldið fram að með þessum ummælum virðist sem norsk stjórnvöld ætli ekki að virða þá meginreglu flóttamannaréttar að umsóknarríki sé óheimilt að gera heimaríki viðvart berist þeim umsókn um hæli, enda geti slíkar upplýsingar skapað hættu fyrir viðkomandi. Þá er í greinargerð vísað til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um endursendingar til [...] þar sem fram komi að ástandið í [...] sé bæði hættulegt og óstöðugt. Stofnunin hafi mælst til þess að ríki sendi ekki einstaklinga frá [...] til baka nema ástandið í landinu breytist umtalsvert og unnt verði að tryggja öryggi þeirra. Með endursendingu til Noregs taki íslensk stjórnvöld þannig ábyrgð á því að kæranda verði vísað aftur til [...] þar sem líf hans sé í hættu. Slík ákvörðun væri að mati kæranda ólögmæt með vísan í 45. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir kröfur sínar jafnframt á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga og einnig hafi skort á einstaklingsbundið mat á aðstæðum kæranda. Í greinargerð kæranda er bent á að í hinni kærðu ákvörðun sé aðeins vísað í eina skýrslu um ástand mannréttindamála í Noregi en Útlendingastofnun beri skylda til að notast við áreiðanlegar og uppfærðar upplýsingar við ákvarðanir sínar og vísa til heimilda fullyrðingum sínum til stuðnings. Af hálfu kæranda er því haldið fram að Útlendingastofnun geti ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína án þess að undirbúa mál sín vel. Í því sambandi bendir kærandi á bréf Umboðsmanns Alþingis til forstjóra Útlendingastofnunar frá 5. ágúst 2016 þar sem fram komi að ábyrgð stjórnvalds við að undirbúa mál sín vel sé mikil, sérstaklega þegar komi að samspili reglna stjórnsýsluréttarins um málsmeðferð og rannsókn mála.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að norsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka umsókn kæranda um hæli ekki til efnismeðferðar og vísa honum til Noregs.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstarfsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfstætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Noregi.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Noregi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Norway 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)

· Freedom in the World 2015 – Norway (Freedom House, 10. ágúst 2015)

  • Amnesty Interational Report 2015-2016 – Norway (Amnesty International, 24. febrúar 2016)
  • Information for asylum seekers in Norway (Norwegian Organisation for Asylum Seekers, 2011)
  • Information Note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (European Council on Refugees and Exiles, október 2015)
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees: For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: NORWAY (UNHCR, september 2013)
  • UNHCR Observations on the proposed amendments to the Norwegian Immigration Act and Regulation: Høring – Endringer i utlendingslovgivningen (Innstramninger II) (UNHCR, 12. febrúar 2016)
  • UNHCR proposals to address current and future arrivals of asylum-seekers, refugees and migrants by sea to Europe (UNHCR, mars 2015)
  • Guidelines on international protection: "Internal Flight or Relocation Alternative" within the Context of Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees (23. júlí 2003)

· Upplýsingar af vefsíðum Hagstofu Evrópusambandsins (Eurostat) (www. http://ec.europa.eu/eurostat), landinfo (www.landinfo.no), norsku útlendingastofnunarinnar (www.udi.no), norsku kærunefndar útlendingamála (www.une.no), Lovdata (www.lovdata.no), norskra stjórnvalda (www.regjeringen.no), norskra dómstóla (www.domstol.no) og norskra samtaka fyrir hælisleitendur (www.noas.no).

Kærandi ber fyrir sig að ekki hafi verið rétt staðið að töku fingrafara hans í Noregi. Hann kveður sig ekki hafa ætlað að sækja um hæli þar í landi og að hann hafi ekki fengið viðeigandi upplýsingar varðandi fingrafaratökuna og verið neyddur til að gefa fingraför sín. Kærunefnd telur að ekki skipti máli í þessu sambandi hvernig staðið var að töku fingrafara og skráningu kæranda í viðtökuríkinu þar sem það er ekki til þess fallið að hafa áhrif á efnislega niðurstöðu kærumálsins. Fyrir liggur að norsk stjórnvöld hafa fallist á að taka við kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sem mælir fyrir um skyldu ríkis til að taka aftur við hælisleitanda sem sótt hefur um hæli í því ríki. Þá bendir framburður kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. nóvember 2016 til þess að kærandi hafi dvalið í búðum fyrir flóttamenn í Noregi þann tíma sem hann var þar í landi. Jafnframt benda gögn er varða málsmeðferð norskra stjórnvalda til þess að honum ætti að standa viðeigandi réttarúrræði til boða varðandi mál sitt þar í landi og að honum séu tryggð úrræði til að leita réttar síns.

Af framangreindum skýrslum og gögnum má ráða að á meðan hælismál er til meðferðar hjá norskum stjórnvöldum geta umsækjendur lagt fram gögn í málinu sem styðja við umsókn um hæli. Þá er hægt að óska þess að mál séu tekin upp að nýju á grundvelli nýrra gagna. Útlendingastofnun Noregs (n. Utlendingsdirektoratet) tekur ákvarðanir er varða hæli þar í landi. Neikvæða ákvörðun útlendingastofnunar er þá hægt að kæra til sérstakrar kærunefndar útlendingamála (n. Utlendingsnemnda). Fái umsækjandi um hæli í Noregi synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða kærunefnd á hann möguleika á því að bera málið undir dómstóla eða leggja fram beiðni um endurupptöku á máli sínu hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði endurupptöku verið uppfyllt. Þá geta hælisleitendur borið mál sitt undir norska dómstóla ef endurupptökubeiðni þeirra er synjað. Jafnframt eiga hælisleitendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Kærandi ber fyrir sig að norsk yfirvöld sendi [...] umsækjendur um alþjóðlega vernd aftur til heimaríkis í bága við ákvæði flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Byggt er m.a. á því að synjunarhlutfall norskra yfirvalda á umsóknum [...] borgara sé mun hærra en meðaltal ríkja Evrópusambandsins og að norsk yfirvöld hafi lýst hluta [...] sem öruggt svæði í bága við tilmæli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Kærunefndin telur að synjunarhlutfall norskra yfirvalda sé hvorki nægileg ástæða til að það eitt og sér komi í veg fyrir endursendingu með vísan til 45. gr. laga um útlendinga né til að beita heimild 2. mgr. 46. gr. a sömu laga og taka umsókn kæranda til efnismeðferðar. Þá telur kærunefnd að skilgreining norskra yfirvalda á tilteknum hlutum [...] sem öruggum svæðum ekki ein og sér gefa til kynna að meðferð umsókna um hæli kunni að brjóta í bága við bann við endursendingu útlendinga til svæðis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 45. gr. laga um útlendinga. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að stjórnvöld í Noregi veiti fullnægjandi vernd gegn brottvísun hælisleitenda til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. 73. gr. norskra laga um útlendinga (n. lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð norskra yfirvalda sé nægilega vönduð og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Ekkert bendi til þess að [...] hælisleitendum sé synjað sjálfkrafa um hæli í Noregi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Noregi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Noregs brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð raunhæf úrræði til að leita réttar síns í Noregi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Í því sambandi tekur kærunefnd fram að norsk stjórnvöld samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og er því lagt til grundvallar að hælismáli kæranda sé ekki lokið í Noregi. Af gögnum málsins fæst ekki annað séð en að kærandi eigi þess kost að fá viðeigandi aðstoð við meðferð hælismáls síns í Noregi og eigi raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum þar í landi.

Vegna athugasemdar í greinargerð varðandi rannsókn málsins tekur kærunefnd fram að ekki fæst annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi byggt á nýlegum skýrslum um aðstæður í Noregi. Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli nauðsynlegra gagna svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Eins og að framan greinir tekur kærunefnd undir það mat, sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar, um aðstæður í Noregi, og telur ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn málsins.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. nóvember 2016 líkamlegt og andlegt ástand sitt [...]. Í greinargerð kæranda kom hins vegar ekkert frekar fram um heilsufar hans. Þá kvaðst kærandi í fyrrgreindu viðtali ekki hafa sérstök tengsl við Ísland og í gögnum málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í máli þessu hafa norsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um hæli hér á landi og senda kæranda til Noregs með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Þorbjörg Inga Jónsdóttir Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta