Hoppa yfir valmynd

Nr. 8/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. janúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 8/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110044

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 26. ágúst 2020 kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Hollandi. Þann 7. september 2020 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Hollandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá hollenskum yfirvöldum, dags. 16. september 2020, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 2. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 5. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 19. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. nóvember 2020 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að hollensk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Hollands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Hollands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi hefur greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd í Hollandi en tvisvar hafi umsókn hans verið synjað. Aðspurður um heilsufar sitt kvað hann andlega og líkamlega heilsu sína vera góða. Í greinargerð bendi hann þó á að hann hafi mælst með háan blóðþrýsting og að hann hafi verið hvattur til þess að fylgjast með einkennum háþrýstings. Kærandi hefur þá greint frá því að hann hafi þurft að sæta varðhaldi í Hollandi í samtals sex mánuði án þess að nokkuð hafi gerst í máli hans. Aðstæður í varðhaldi hafi svipað til herbúða og hann hafi deilt herbergi með öðrum einstaklingi. Kærandi óttist að verða hnepptur aftur í varðhald verði hann endursendur til Hollands auk þess sem að hann hafi þegar fengið neitun um vernd þar í landi.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi. Þar komi fram að stefna hollenskra stjórnvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna hafi legið undir talsverðri gagnrýni og menningarleg togstreita hafi aukist í landinu. Þá stefni hollensk stjórnvöld að því að draga úr lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd auk þess sem að mikill fjöldi umsókna hafi valdið því að mikið álag sé á þeim lögfræðingum sem veiti umsækjendum þjónustu. Þá komi fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem bíði brottvísunar séu látnir dvelja í varðhaldsmiðstöðvum sem minni helst á fangelsi. Starfsmenn í varðhaldsmiðstöðvum hafi beitt innflytjendur óhóflegu valdi og þá hafi mannréttindasamtök gagnrýnt yfirstjórn varðhaldsmiðstöðvar í Curacao fyrir að gera ekki athugasemdir við andlegt og líkamlegt ofbeldi gagnvart tilteknum einstaklingum í varðhaldi. Að auki fjallar kærandi í greinargerð sinni um að plássleysi í búsetuúrræðum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og aðgang þeirra að vinnumarkaði í Hollandi.

Kærandi byggir kröfu sína á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi gert greint fyrir aðstæðum og réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi auk þess að greina frá reynslu sinni en síðast þegar hann sneri aftur til Hollands hafi hann verið hnepptur í varðhald í sex mánuði á meðan umsókn hans hafi verið tekin til meðferðar. Kærandi telji allt benda til þess að hann muni verða hnepptur í varðhald en slík frelsisskerðing sé verulega íþyngjandi. Þá liggi fyrir að hollenska ríkið haldi flóttamönnum í varðhaldsbúðum svo mánuðum skipti. Þá áréttar kærandi að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Það liggi fyrir að kærandi sé með háan blóðþrýsting og að hann sé því í sérstakri áhættu ef hann smitist af Covid-19. Ljóst sé að þróun faraldursins í Evrópu sé í miklum vexti og ekki liggi fyrir að kærandi muni hafa óhindraðan aðgang að heilbrigðiskerfi Hollands við komuna þangað.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Hollands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja hollensk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Hollandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Hollandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – The Netherlands (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Netherlands (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Netherlands (European Council on Refugees and Exiles, 2. apríl 2020);
  • Asylum Information Database, Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  • Country report – Immigration Detention in the Netherlands: Prioritising Returns in Europe and the Caribbean (Global Detention Project, febrúar 2020);
  • ECRI Report on the Netherlands (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 4. júní 2019);
  • Freedom in the World 2020 - Netherlands (Freedom House, 1. mars 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, (www.government.nl/topics/asylum-policy);
  • Upplýsingar af vefsíðu COA (The Central Agency for the Reception of Asylum Seekers, www.coa.nl/en);
  • Upplýsingar af vefsíðu hollensku útlendingastofnunarinnar (www.ind.nl/en);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 7. janúar 2021) og
  • World Report 2020 - European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020).

Í framangreindum skýrslum, s.s. skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE), kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þá býðst þeim að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd þegar við komu til landsins. Á Schiphol flugvelli í Hollandi er umsóknarmiðstöð (h. Aanmeldcentrum) þar sem skráning umsókna um alþjóðlega vernd fer fram og er hún í höndum löggæsluyfirvalda (h. Koninklijke Marechaussee) þar í landi. Útlendingastofnun Hollands (h. Immigratie- en Naturalisatiedienst (IND)) ber ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Í hefðbundnu umsóknarferli fara umsækjendur um alþjóðlega vernd í tvö viðtöl, með aðstoð túlks sé talin þörf á því, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra. Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá IND geta kært niðurstöðuna til héraðsdómstóls (h. Rechtbank) og þeim dómi er í kjölfarið unnt að áfrýja til æðsta stjórnsýsludómstóls ríkisins (h. Afdeling Bestuursrechtspraak de Raad van State). Umsækjendur sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd eiga að auki möguleika á að leggja fram viðbótarumsókn hjá IND. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að hollensk yfirvöld uppfylli skyldur sínar um lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Í skýrslu ECRE kemur fram að um leið og umsókn hefur verið tekin til meðferðar hjá útlendingastofnun Hollands eiga umsækjendur rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þar til ákvörðun hefur verið tekin í máli þeirra. Ákveði umsækjendur að bera synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd undir dómstóla eiga þeir að auki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð á meðan áfrýjunarferlinu stendur.

Samkvæmt skýrslu ECRE og skýrslu samtakanna Global Detention Project geta yfirvöld ákveðið að úrskurða umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald ef þeir uppfylla ekki ákveðin skilyrði löggjafar um útlendinga í Hollandi, s.s. að geta sýnt fram á gild skilríki eða vegabréfsáritun sem heimili þeim inngöngu í landið eða að almenningi stafi ekki ógn af þeim. Að meginreglu er enginn hópur umsækjenda undanþeginn því að geta sætt varðhaldi, séu skilyrði þess uppfyllt, en fjölskyldur með börn þurfa þó almennt ekki að sæta varðhaldi. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins geta yfirvöld vistað umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og talin er hætta á að komi sér undan brottvísun í varðhald til þess að tryggja að brottvísun fari fram. Samkvæmt skýrslu ECRE er hámarkstími slíks varðhalds (e. pre-removal detention) 18 mánuðir. Þá eiga umsækjendur sem sæta varðhaldi rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Umsækjendur geta borið lögmæti varðhaldsúrskurðar undir dómstóla og eiga þeir jafnframt rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð við þá umleitan.

Holland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi, s.s. skýrslu ECRE, kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og fjárhagsleg aðstoð fyrir nauðsynlegum útgjöldum, s.s. matarinnkaupum, sé þörf á því. Eftir að skráningu umsóknar um alþjóðlega vernd er lokið eru umsækjendur fluttir í móttökumiðstöðvar þar sem þeir dvelja þar til leyst hefur verið úr umsókn þeirra.

Samkvæmt skýrslu ECRE fá umsækjendur aðgang að atvinnumarkaðnum í Hollandi sex mánuðum eftir að umsókn um alþjóðlega vernd hefur verið lögð fram. Vinnuveitandi verður þó að sækja um atvinnuleyfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd áður en þeir geta hafið störf og hefur það því reynst erfitt fyrir umsækjendur að finna sér störf. Þá kemur jafnframt fram í skýrslu ECRE að öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd er tryggt aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Við meðferð umsókna er að auki tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslu Evrópunefndar gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi hefur undanfarin ár mátt greina aukna andúð í viðhorfi gagnvart innflytjendum í Hollandi, þ. á m. gagnvart múslimum. Frá árinu 2009 hefur verið komið upp 38 skrifstofum um landið sem starfa gegn mismunun (e. Anti-Discrimination Bureaus) og veita þolendum mismununar aðstoð og ráðgjöf ásamt því að skrásetja tilvik þar sem einstaklingar hafa orðið fyrir mismunun. Mannréttindastofnun Hollands (e. The Netherlands Institute for Human Rights) ákvarðar í málum þar sem hvers konar mismunun er til skoðunar og gefur út óbindandi álit sem er að meginstefnu farið eftir. Stofnunin hefur að auki vald til að fara með mál fyrir dómstóla sem hún telur að geti haft fordæmisgildi. Þá eru mál, þar sem ofbeldi sem rekja má til kynþáttafordóma, saksótt með skilvirkum hætti séu þau tilkynnt til löggæsluyfirvalda. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Hollandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð óttist þeir tiltekna einstaklinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að andleg og líkamleg heilsa hans sé góð. Í framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 24. til 30. september 2020, kemur fram að kærandi sé almennt hraustur en samkvæmt samskiptaseðli, dags. 24. september 2020, hafi blóðþrýstingur mælst hækkaður án þess að háþrýstingur hafi verið greindur. Þá liggur fyrir skimunarlisti sem lagður var fyrir kæranda um andlega líðan hans.

Frekari gögn um heilsufar kæranda en hér hefur verið vísað til hafa ekki borist kærunefnd. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 7. september 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 3. desember 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust og ekki var óskað eftir frekari fresti til að leggja fram gögn. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisástæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Á grundvelli skýrslna um viðtökuríki hefur kærunefnd ekki forsendur til annars en að telja að kærandi komi til með að hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í Hollandi.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald í Hollandi kunni að bíða hans við komuna þangað til lands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði hollenskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur getur ekki sýnt fram á gild skilríki eða vegabréfsáritun sem heimili þeim inngöngu í landið eða að almenningi stafi ekki ógn af þeim. Þá bera heimildir með sér að að hollensk yfirvöld beiti varðhaldi til að tryggja greiðan flutning til heimaríkis þeirra sem eiga yfir höfði sér brottvísun. Umsækjendur sem sæta varðhaldi geta borið lögmæti varðhaldsúrskurðar undir dómstóla og eiga þá jafnframt rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð við þá umleitan. Þá njóti þeir sem dvelja í varðhaldsmiðstöðvum aðgangs að heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Í greinargerð sinni vísar kærandi til skýrslna sem fjallar um slæma meðferð fólks í „varðhaldsmiðstöðinni Curacao“. Af skýrslunum er hins vegar ljóst að um sé að ræða varðhaldsmiðstöð á eyjunni Curacao í karabíska hafinu en ekki á þeim hluta yfirráðasvæðis Hollands sem fyrirhugað er að flytja kæranda til. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að hann teljist eiga erfitt uppdráttar í Hollandi eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum. Þá er áréttað að framangreindar landaupplýsingar um aðstæður í Hollandi beri með sér að einstaklingur sem hafi fengið lokasynjun á máli sínu í Hollandi geti lagt fram viðbótarumsókn, svo sem ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríki um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Yfirvöld í Hollandi hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, m.a. með takmörkunum á ferðum til landsins og takmörkunum á fjöldasamkomum. Þá hefur verklag varðandi móttöku og afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd verið aðlagað að smitvörnum en t.a.m. hafa viðtöl umsækjenda um alþjóðlega vernd farið fram í gegnum fjarfundabúnað. Aflétting vissra takmarkana var hafin í Hollandi en vegna fjölgunar smita hafa stjórnvöld aftur gripið til hertra tímabundinna aðgerða. Hollensk stjórnvöld hafa tilkynnt að frá 15. desember 2020 til 19. janúar 2021 verði víðtækar takmarkanir á hvers konar þjónustu og hópamyndun í landinu og sé almenningur hvattur til að halda sig heima. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað á nýjan leik í Hollandi hefur kærunefnd ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 séu tímabundnar. Þá bera heimildir með sér að bólusetning gegn veirunni sem valdi Covid-19 faraldrinum hefjist í Hollandi á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 7. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 20. ágúst 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Bretlandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 3. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Frávísun

Af gögnum málsins má ráða að kærandi kom hingað til lands þann 20. ágúst 2020 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Hollands eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa hollensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Hollands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir         Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta