Mál nr. 59/2014, úrskurður 15. ágúst 2014
Mál nr. 59/2014
Eiginnafn: Óðný
Hinn 15. ágúst 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2014 en erindið barst nefndinni 8. ágúst:
Eiginnafnið Óðný (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Óðnýjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Óðný (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá