Mál nr. 60/2014, úrskurður 15. ágúst 2014
Mál nr. 60/2014
Eiginnafn: Náð
Hinn 15. ágúst 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2014 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Náð (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Náðar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Náð (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.