Matsnefnd eignarnámsbóta, úrskurðir 23. september 1994
Föstudaginn 23. september 1994 var í Matsnefnd eignarnámsbóta skv. lögum nr. 11/1973 tekið fyrir matsmálið nr. 14/1991
Einar Gíslason
gegn
Landbúnaðarráðherra o.fl.
og kveðinn upp svohljóðandi
ú r s k u r ð u r :
I. Skipan Matsnefndar eignarnámsbóta:
Matsnefnd eignarnámsbóta í máli þessu skipuðu í fyrstu þeir Ragnar Aðalsteinsson hrl., fyrrv. formaður nefndarinnar, auk Stefáns Svavarssonar endursk. og Stefáns Trggvasonar bónda, en formaður kvaddi þá tvo síðastnefndu til starfans með vísan til 2. mgr. 2. gr. l. 11/1973. Eftir að skipunartíma fyrrv. formanns nefndarinnar lauk, þann 23. ágúst 1993, tók Helgi Jóhannesson hdl., núverandi formaður nefndarinnar, hans sæti í máli þessu.
II. Matsbeiðni, aðilar og andlag eignarnáms:
Með matsbeiðni dagsettri 1. nóvember 1991 og lögð var fram í Matsnefnd eignarnámsbóta þann 9. janúar 1992 óskaði Einar E. Gíslason, kt. 050433-3669, Syðra Skörðugili, Seyluhreppi, Skagafjarðarsýslu (eignarnámsþoli) eftir því að matsnefndin ákvarðaði bætur til hans vegna niðurskurðar á fjárstofni hans sem framkvæmd var að kröfu sauðfjárveikivarna. Eignarnemi er landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Nánar tiltekið óskar eignarnámsþoli eftir mati á tjóni hans vegna niðurskurðarins, eftirfarandi fjárleysis og tekjumissis, fóðurkostnaði, heyi sem ekki nýttist honum, framtíðartekjumissis auk alls útlagðs kostnaðar vegna niðurskurðarins.
Aðilar málsins eru sammála um að heimild til meðferðar málsins sé að finna í 42. gr. l. nr. 23/1956 og að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun um að nota þá heimild. Matsnefnd eignarnámsbóta fellst á að skilyrði meðferðar málsins fyrir nefndinni séu uppfyllt.
III. Málsmeðferð:
Mál þetta var fyrst tekið fyrir í Matsnefnd eignarnámsbóta fimmtudaginn 9. janúar 1992. Á þeim fundi lagði eignarnámsþoli fram matsbeiðni og óskaði eftir fresti til framlagningar greinargerðar og annarra gagna. Að því búnu var málinu frestað til 13. febrúar 1992.
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992 var málið tekið fyrir. Á fundinum lagði eignarnámsþoli fram greinargerð ásamt 34 fylgiskjölum. Að því búnu var málinu frestað til framlagningar greinargerðar og annarra gagna af hálfu eignarnema til 12. mars 1992.
Fimmtudaginn 12. mars 1992 var málið tekið fyrir. Á fundinum lýsti eignarnemi því yfir að af hálfu eignarnema sé fallist á meðferð málsins fyrir matsnefndinni. Matsnefndin lýsti því yfir að hún teldi skilyrði málsmeðferðarinnar vera uppfyllt. Eignarnemi óskaði eftir fresti til að skila greinargerð og skjölum og var málinu því frestað til 30. apríl 1992.
Fimmtudaginn 30. apríl 1992 var málið tekið fyrir. Eignarnemi lagði fram greinargerð ásamt 7 fylgiskjölum. Að því búnu var málinu frestað um ótiltekinn tíma.
Þriðjudaginn 16. mars 1993 var málið tekið fyrir. Á fundinum lagði matsnefndin fram bréf til lögmanna aðila dags. 8. mars 1993. Sættir voru reyndar án árangurs. Ákveðið var að stefna að því að fara á vettvang í fyrstu viku maí og flytja málið þar.
Fimmtudaginn 24. september 1993 var málið tekið fyrir að Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Gengið var á vettvang og aðstæður skoðaðar. Á fundinum óskaði matsnefndin eftir því við eignarnámsþola að hann legði fram í málinu gögn er sýni raunverulegan útlagðan kostnað hans vegna niðurskurðarins auk kaupverðs nýs fjárstofns og flutningskostnað hans.
Miðvikudaginn 29. júní 1994 var málið tekið fyrir. Samkomulag hafði verið með aðilum um að bíða með frekara framhald þessa máls þar til úrskurðir í tveimur öðrum málum í matsnefndinni lægju fyrir þ.e. málunum nr. 11/1991, Jón Guðmundsson gegn landbúnaðarráðherra o.fl. og nr. 12/1991, Einar Ó. Björnsson gegn landbúnaðarráherra o.fl. Úrskurðir þessir lágu fyrir á fundinum. Á fundinum samþykktu aðilar að reyna sættir í málinu á þeim nótum að matsnefndin leggði fram útreikning á tekjutapi eignarnámsþola, reiknaður út frá sömu forsendum og gert var í þeim málum sem þegar hefur verið úrkurðað í hjá matsnefndinni. Málinu frestað til frekari sáttaumleitana til 5. júlí 1994.
Þriðjudaginn 5. júlí 1994 var málið tekið fyrir. Af hálfu eignarnámsþola var lagt fram nr. 47 afrit af reikningum vegna útlagðs kostnaðar. Sættir reyndar án árangurs og var málinu frestað til 25. ágúst 1994 og skyldi þá fara fram munnlegur flutningur í því.
Miðvikudaginn 29. ágúst 1994 var málið tekið fyrir, en af fyrirtöku þann 25. ágúst gat ekki orðið vegna veikinda lögmanns eignarnámsþola. Af hálfu aðila voru lögð fram nokkur skjöl og að því búnu fór fram munnlegur málflutningur í málinu. Að því búnu var málið tekið til úrskurðar.
IV. Málavextir:
Málavextir eru í stuttu máli þeir að í desember 1990 varð eignarnámsþoli var við að kind í eigu hans fór að hegða sér einkennilega. Einar Otti Guðmundsson héraðsdýralæknir skoðaði kindina og eftir endurtekna skoðun á henni í janúar 1991 þótti rétt að slátra henni. Þann 25. janúar 1991 fékk eignarnemi staðfestar upplýsingar um að kindin hefði verið sýkt af riðu.
Þann 28. janúar 1991 var haft samband við eignarnámsþola af Kjartani Blöndal, frkv. stjóra sauðfjárveikivarna sem sendi eignarnámsþola samningsform sem tillögu um bætur vegna niðurskurðarins og kostnaðar sem honum fylgdi. Til að gera langa sögu stutta tókust ekki samningar milli eignarnámsþola og Sauðfjárveikivarna um bætur vegna niðurskurðarins. Með bréfi dags. 8. mars 1991 var eignarnámsþola tilkynntur úrskurður landbúnaðarráðherra þess efnis að eignarnámsþola bæri að skera fé sitt niður fyrir 25. mars 1991. Samkomulag varð um að eignarnámsþoli sæi sjálfur alfarið um förgun fjárins og var það gert hinn 16. mars 1991 með viðstöddum Einari Otta Guðmundssyni héraðsdýralækni.
Ekki náðust samningar milli eignarnema og eignarnámsþola um bætur vegna niðurskurðarins og lauk þeim samningatilraunum með því að eignarnámsþoli ákvað að fara með málið fyrir matsnefnd eignarnámsbóta.
V. Kröfur og sjónarmið eignarnámsþola:
Af hálfu eignarnámsþola er gerð krafa um að eignarnemi bæti honum tjón er hann varð fyrir vegna niðurskurðar á bústofni hans og eftirfarandi fjárleysi og tekjumissi, alls kr. 12.465.342,00-. Þá gerir eignarnámsþoli kröfu um að eignarnemi bæti honum allan útlagðan kostnað sem eignarnámsþoli hefur orðið fyrir vegna niðurskurðarins, alls að fjárhæð kr. 1.716.927-. Þá krefst eignarnámsþoli vaxta á kröfufjárhæð og að við útreikning vaxta sé sérstakt tillit tekið til þess langa tíma sem mál þetta hefur verið til meðferðar hjá matsnefndinni. Að lokum gerir eignarnámsþoli kröfu um málskostnað. Að frádregnum ofangreindum kröfum skulu koma til frádráttar þær fjárhæðir sem eignarnámsþoli hefur þegar fengið greiddar vegna málsins.
Eignarnámsþoli rökstyður kröfugerð sína með því að honum beri að fá að fullu bætt það tjón sem hann hefur orðið fyrir vegna niðurskurðar fjárstofns hans. Eignarnemi kveður þá meginreglu að finna í 67. gr. stjórnarskrárinnar um að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína, nema almenningsþörf krefji, þurfi til þess lagafyrirmæli og fullt verð fyrir. Eignarnámsþoli samþykkir að lagaheimild til niðurskurðarins sé fyrir hendi í 42. gr. l. 23/1956. Eignarnámsþoli kveður kröfur sínar byggja á eftirfarandi rökum:
Að matsnefndin hafi í úrkskurðum sínum í málunum nr. 2 og 3/1990 úrskurðað að slík mál ættu undir nefndina og jafnframt sett efnisreglur um fjárhæðir bóta.
Að almenn lög geti ekki vikið til hliðar sjórnarskrárákvæði þar sem kveðið sé á um fullar bætur við eignarnám og því sé krafa um fullar bætur gerð í máli þessu.
Að vitneskja um riðuveiki og smitleiðir hennar sé lítil og það eigi ekki að bitna á eignarnámsþola einum og fjárhag hans ef bústofn hans er skorinn niður vegna almannahagsmuna, einkum þegar vitað er að riðuveiki hefur ekki valdið tjóni á fjárstofni hans. Lítið sé vitað um þessa veiki og alls óvíst hvort nauðsyn bar til að skera allan fjárstofn eignarnámsþola niður.
Að niðurskurður riðufjár sé notaður til að ná fram öðrum markmiðum en útrýmingu veikinnar, þ.e. því markmiði að fækka sauðfé í landinu. Slík markmið eigi ekki að valda eignarnámsþola tjóni umfram aðra bændur.
Kröfugerð eignarnámsþola og sjónarmið sundurliðast nánar þannig:
1. Felldur fjárstofn: Eignarnámsþoli bendir á að þegar niðurskurðurinn átti sér stað hafi hann átt 300 ær og gemlinga, sem allar voru komnar að burði. Eignarnámsþoli krefst þess að eignarnemi bæti hverja kind með greiðslu á kr. 11.200,00. Byggir eignarnámsþoli þessa kröfurgerð á því að hér sé um framleiðslutæki að ræða sem gefi að meðaltali af sér um 24-25 kg. af kjöti á ári hverju. Miðað við verðlagsgrundvöll frá Framleiðsluráði landbúnaðarins frá 29. nóvember 1991 þá sé verð á hverju kg. í 2. verðflokki með gæru og slátri kr. 479,00. Samkvæmt þessu gefur hver kind af sér heildartekjur að fjárhæð kr. 11.075,52. Eignarnámsþoli mótmælir því að verðgildi fjárins rýrni við það að bannað sé að selja féð, enda sé verðmæti þess að finna í framleiðslugetunni, ekki söluverðinu. Eignámsþoli bendir á að hjörð hans hafi verið sérstaklega ræktuð og því sérlega verðmæt. Eignarnámsþoli bendir á að þetta hafi verið viðurkennt af eignarnema með tilboði til eignarnámsþola um greiðslu kr. 250.000- aukalega vegna þessara sérstöku gæða stofnsins, þegar samningaviðræður milli aðila um bætur vegna niðurskurðarins áttu sér stað. Eignarnámsþoli krefst þess að þetta verði haft til hliðsjónar við mat á bótum til hans. Samkvæmt framansögðu gerir eignarnámsþoli þá fjárkröfu vegna þessa liðar að eignarnemi greiði honum kr. 3.360.000-, þ.e. 300 kindur x 11.200 kr.
Til vara krefst eignarnámsþoli þess að eignarnemi greiði honum þá fjárhæð sem samsvari þeirri upphæð sem eignarnámsþoli þarf að leggja út við kaup á líflömbum. Kröfu þessa byggir eignarnámsþoli á því að hann fái eitt lamb fyrir hverja kind. Kaupverð á líflömbum kveður eignarnámsþoli vera kr. 218,40 á hvert kíló og kveður eignarnámsþoli reikna með því að meðallamb sé 38 kg. að þyngd. Varakrafan er því kr. 2.489.760-, þ.e. 300 lömb x 38 kg. x 218,40 kr.
2. Bætur fyrir fellda hrúta: Eignarnámsþoli krest þess að honum verði bættir sex hrútar sem hann þurfti að lóga. Um hafi verið að ræða verðlaunahrúta, auk þess sem einn þeirra var dæmdur sá besti í Skagafjarðarsýslu. Eignarnemi gerir þá kröfu að hver þessara hrúta verði metinn á kr. 20.000-, eða kr. 120.000- fyrir alla hrútana.
Til vara gerir eignarnámþoli þá kröfu að honum verði bættir hrútarnir með upphæð sem samsvari þeirri upphæð sem hann þarf að leggja út við kaup á lambhrútum komnum í hús að Syðra Skörðugili. Kröfu þessa byggir eignarnámsþoli á því að hann fái einn lambhrút fyrir hvern hrút. Kaupverð á líflömbum kveður eignarnámsþoli vera kr. 218,40 á hvert kíló og kveður eignarnámsþoli reikna með því að meðal lambhrútur sé 48 kg. að þyngd. Varakrafan er því kr. 62.899,20, þ.e. 6 lambhrútar x 48 kg. x 218,40 kr.
3. Fóðurkostnaður til vors: Eins og fyrr kemur fram var fjárstofn eignarnámsþola skorinn í mars 1991. Þá hafði eignarnámsþoli eytt stærstum hluta af því fóðri, sem áætlað var til vetrarins. Eignarnámsþoli gerir þá kröfu að honum verði bættur áætlaður fóðurkostnaður hans veturinn 1990-1991. Eignarnámsþoli telur hverja kind þurfa 300 kg. af fóðri yfir veturinn. Auk þess hafði eignarnámsþoli eytt 745 kg. af kjarnfóðri í féð er það var skorið. Kostnaður vegna kjarnfóðursins nemur kr. 30.098,00 skv. framlögðu skjali nr. 25. Eignarnemi gerir því þá kröfu að honum verði greiddar kr. 1.389.098- vegna þessa liðar, þ.e. 300 kindur x 300 kg. x 15,10 kr. + 30.098 = 1.389.098-.
4. Umframbirgðir heys: Riðuveiki var staðfest að Syðra Skörðugili þann 25. janúar 1991. Þá hafði eignarnámsþoli töluverðar umframbirgðir af heyi í fjóshlöðu, sem hann gat ekki nýtt vegna niðurskurðarins. Telur eignarnámsþoli að eignarnema beri að bæta sér það tjón. Á framlögðu skjali nr. 24 kemur fram að heybirgðir eignarnásþola voru 19.920 kg. þegar niðurskurðurinn fór fram. Vegna mikils framboðs af heyjum þegar skorið var niður reyndist ómögulegt að selja hey. Eignarnámsþoli gerir þá kröfu að honum verði dæmdar bætur vegna þessa liðar að fjárhæð kr. 300.792-, þ.e. 19.920 kg. x 15,10 kr., sem er kostnaðarverð þess skv. skjali nr. 28.
5. Bætur vegna tekjumissis á fjárleysistíma: Eignarnámsþoli kveðst hafa látið reiknað út hreinar tekjur hans árin 1988, 1989 og 1990. Eignarnámsmþoli telur ekki vera vafa á að hann hefði haft sambærilegar tekjur af rekstrinum á fjárleysistímanum, ef ekki hefði komið til niðurskurðarins. Þar sem eignarnámsþoli má ekki taka fé aftur fyrr en tveimur árum eftir að því var fargað telur hann að bæta þurfi honum tekjumissinn í tvö ár eftir niðurskurðinn. Eignarnámsþoli er með blandað bú, en telur fjárbúskapinn vera um 40% af heildar búrekstrinum. Eignarnámsþoli kveður heildartekjur sínar vegna kindakjötsframleiðslu í hæsta gæðaflokki vera að meðaltali kr. 3.068.227,00 á ári að frádregnum kostnaði kr. 1.108.027,00. Hreinar meðaltalstekjur eignarnámsþola nema því kr. 1.960.201,00 á ári. Með vísan til þessa gerir eignarnámsþoli kröfu til að eignarnemi bæti honum þann tekjumissi næstu tvö ár eftir niðurskurðinn, þ.e. árin 1991 og 1992, samtals kr. 3.920.402,00.
6. Afurðatjón vegna nýs fjárstofns fyrir árið 1993: Eignarnemi telur að tekjur hans af nýjum fjárstofni fyrsta árið eftir að nýtt fé er tekið séu aðeins helmingur af því sem ella hefði orðið, ef ekki hefði komið til niðurskurðar. Af þessum sökum kveðst eignarnámsþoli gera kröfu um bætur vegna þessa að fjárhæð kr. 1.534.114,00.
7. Afurðatjón vegna nýs fjárstofns fyrir árin 1994-1996: Af hálfu eignarnámsþola er því haldið fram að nýr fjárstofn gefi ekki sömu heildartekjur og náðust fyrir niðurskurðinn. Telur eignarnámsþoli að á öðru til fjórða ári geti munurinn verið að meðaltali 20% lægri en á tímanum þar á undan. Ástæður þessa eru nokkrar, en eignarnemi bendir á að vinna við nýjan fjárstofn sé meiri en áður, fóðurkostnaður verður meiri og í þriðja lagi tekur það ákveðinn tíma að rækta upp kosti sem gera fjárstofninn arðmeiri. Eignarnámsþoli gerir þá kröfu að honum verði bættur upp þessi mismunur vegna áranna 1994 til 1996 með krónum 1.840.936,00, þ.e. heildartekjur á ári margfaldað með 20% og fjölda ára.
8. Slátrun, flokkun, viktun og flutningur á slátursstað: Eignarnemi kveður sig hafa gert samkomulag við Sauðfjárveikivarnir varðandi þennan lið og gerir þá kröfu að staðfest verði að eignarnema beri að greiða þennan kostnað.
9. Flutningur á líflömbum: Eignarnámsþoli gerir þær kröfur að eignarnemi bæti honum kostnað við flutning á líflömbum frá seljanda í hús að Syðra Skörðugili. Á framlögðu skjali nr. 30 má sjá að flutningskostnaður á lamb komið í hús sé kr. 1.020,00 pr. lamb. Krafa eignarnámsþola vegna þessa liðar nemur því kr. 312.120,00 þ.e. 306 lömb x 1.020,00.
10. Sótthreinsun, hreinsun, málning o.fl: Eignarnámsþoli gerir þá kröfu að eignarnemi greiði honum kostnað sem hann hefur lagt út í við þá miklu vinnu sem hann kveðst hafa innt af hendi við sótthreinsun, málningu o.fl. Krafa eignarnámsþola vegna þessa liðar sundurliðast þannig:
Vinnulaun kr. 200.000,00
Verðgerð á háþrýstidælu kr. 10.559,00
Karboli, sótthreinsiefni kr. 10.444,00
Samtals kr. 221.003,00
11. Jarðvegsskipti: Eignarnemi kveðst þurfa að leggja út í mikla vinnu við jarðvegsskipti í kring um fjárhús sín vegna niðurskurðarins. Hreinsa þarf upp jarðveg og setja möl í hans stað. Til þess að geta framkvæmt þessi jarðvegsskipti þurfti eignarnámsþoli að kaupa sturtuvagn og fá leigða stóra dráttarvél með drifi á öllum hjólum. Þá þurfti eignarnámsþoli að kaupa möl. Eignarnámsþoli gerir kröfu vegna þessa sem hér segir:
Leiga á dráttarvél kr. 172.800,00
Vinnulaun kr. 120.000,00
Sturtuvagn kr. 435.750,00
Hreinsun við fjárhús kr. 52.215,00
Flutningur á möl kr. 41.085,00
Samtals kr. 821.850,00
12. Endurnýjun fjárhúsa: Við þrif og sótthreinsun fjárhúsa þurfti að rífa út og henda hluta af innréttingum og görðum í fjárhúsi. Eignarnámsþoli áætlar að kostnaður við kaup á nýju timbri vegna þessa nemi kr. 70.000- og er gerð krafa um þá fjárhæð.
13. Bólusetning: Eignarnámsþoli bendir á að þar sem hann tekur sér nýtt fé sé nauðsynlegt að bólusetja hvert lamb tvisvar. Eignarnemi kveður heildarkostnað við þetta nema kr. 81.696,00 sem hann gerir kröfu um að fá bættan.
14. Lögmannskostnaður: Með vísan til 11. gr. l. 11/1973 gerir eignarnámsþoli kröfu til að eignarnema verði gert að greiða lögmannskostnað eignarnámsþola.
15. Útlagður kostnaður vegna matsmálsins: Eignarnámsþoli gerir þá kröfu að eignarnemi greiði kostnað sem eignarnámsþoli hefur þurft að leggja út fyrir vegna vinnu endurskoðanda við útreikning afurðatjónsbóta, kostnað vegna öflunar gagna o.fl. Eignarnámsþoli kveður þennan kostnað nema kr. 60.258,00 og vísar til 11. gr. l. 11/1973 um rökstuðning fyrir að fá hann greiddan.
16. Ferðakostnaður og dagpeningar eignarnámsþola: Eignarnámsþoli gerir kröfu um að eignarnemi bæti honum kostnað sem eignarnámsþoli hefur orðið fyrir vegna ferða hans frá heimili til Reykjavíkur vegna málsins. Eignarnámsþoli vísar enn til 11. gr. l. 11/1973 og gerir kröfu um greiðslu kr. 150.000,00 vegna þessa liðar.
17. Vaxtakrafa: Eignarnámsþoli gerir kröfu um greiðslu vaxta sbr. lög nr. 25/1987. Varðandi vaxtakröfuna bendir eignarnámsþoli á að mál þetta hafi dregist úr hömlu hjá matsnefndinni og það hafi valdið honum verulegu óhagræði og miskatjóni.
18. Miskabótakrafa: Við munnlegan flutning málsins reifaði eignarnemi kröfu til miskabóta sem hann gerir í málinu. Ástæður þessa kveður eignarnemi vera þær að hinn mikli dráttur sem orðið hefur á máli þessu hefur valdið honum verulegu hugarangri. Eignarnámsþoli kveður öll samskipti sín við eignarnema hafa verið hin erfiðustu í málinu og beri að líta til þessa við ákvörðun bótanna.
19. Innborganir: Eignarnámsþoli bendir á að hann hafi fengið greitt inn á bæturnar og beri að draga þær greiðslur frá endanlegum bótum. Greiðslurnar eru sem hér segir:
31.10.92. kr. 2.000.000-
31.12.92. kr. 2.000.000-
30.09.93 kr. 1.500.000-
Samtals kr. 5.500.000-
Eignarnámsþoli gerir áskilnað um að hann geti síðar kafist sérstakra bóta ef fullvirðisréttur jarðarinnar verður skertur næstu fimm árum eftir að fjárbúskapur hefst að nýju, þ.e.a.s. ef jörðin heldur ekki óskertum fullvirðisrétti til ársins 1998.
Eignarnámsþoli kveður óraunhæft að hann hafi getað takmarkað tjón sitt vegna niðurskurðarins með vinnu utan heimilis. Í fyrsta lagi sé hann með blandað bú sem kalli á viðveru hans á staðnum. Þá liggur fyrir að atvinnuleysi hefur verið í Seyluhreppi og á Sauðárkróki og þar sem eignarnámsþoli sé kominn undir sextugt á hann enn erfiðara með að fá vinnu en ella.
VI. Kröfur og sjónarmið eignarnema:
Eignarnemi gerir þær kröfur að eignarnámsþola verði ekki metnar bætur umfram þær, sem eignarnemi viðkurkennir að eignarnámsþoli geti frekast átt rétt til miðað við fyrri úrskurði Matnsnefndar eignarnámsbóta í sambærilegum málum. Þá er þess krafist að hvor aðila beri sinn kostnað af rekstri málsins, en til vara að sérstalega verði litið til nánar tilgreindra sjónarmiða varðandi lækkun málskostnaðar til handa eignarnámsþola. Eignarnemi telur hámarksbætur til eignarnámsþola geta orðið eftirfarandi:
a) Eignarnemi telur að bætur fyrir felldan fjárstofn geti í hæsta lagi numið kr. 1.758022, en til vara kr. 2.237.415-. Eignarnemi krefst þess jafnframt að til frádráttar komi svonefnd sjóðagjöld og flutningskostnaður á sláturstað. Þá krefst eignarnemi þess að bætur fyrir hinn fellda fjárstofn verði lækkaðar vegna þess að verðmæti hinnar sýktu fjárhjarðar að Syðra Skörðugili var ótvírætt lægra en frálagsverðmæti fjárins.
b) Afurðartjónsbætur fyrir árið 1991 verði að hámarki ákveðnar kr. 2.270.090-
c) Afturðartjónsbætur fyrir árið 1992 verði að hámarki ákveðnar kr. 1.553.224-
d) Eignarnemi fellst á að eignarnámsþola verði ákveðnar bætur vegna þess að tekjur á fyrsta ári eftir sauðleysi verði minni en ella hefði orðið. Eignarnemi telur rétt að leggja til grundvallar að brúttótekjur það árið verði aðeins helmingur af því , sem ella hafði mátt búast við.
e) Greiðsla vegna vélarvinnu við jarðvegsskipti verði ákveðin kr. 30.000-
f) Kostnaður við flutning á líflömbum verði bættur með kr. 72.000-.
g) Kostnaður vegna kaupa á sótthreinsunarefni kr. 10.000-
h) Útlagt vegna kaupa á málningu og fúavörn kr. 30.000-
i) Kostnaður vegna förgunar og greftrunar á sauðfé (þegar greitt) kr. 149.400-
Eignarnemi mótmælir algerlega frekari bótum vegna útlagðs kostnaðar en getið er um í liðum e) - i) hér að ofan. Eignarnemi mótmælir einnig öllum öðrum kröfum eignarnámsþola með eftirfarandi rökstuðningi:
1. Eignarnemi telur að umfarmbirgðir af heyi hefðu átt að nýtast eignarnámsmþola til að gefa hrossum. Þá telur eignarnemi heybirgðirnar allt of hátt metnar. Vegna mikils framboðs á heyi beri að lækka heyverð.
2. Eignarnemi heldur því fram að fóðurkostnaðurinn veturinn 1990-1991 sé bættur með afurðatjónsbótunum. Eignarnemi telur því sérstaka kröfu í þessa veru ekki eiga rétt á sér.
3. Eignarnemi hafnar því að eignarnámsþola séu greiddar hærri bætur en kr. 30.000- fyrir hreinsun og jarðvegsskipti. Eignarnemi telur eignarnámsþola hafa átt að takmarka tjón sitt eftir mætti og nota þannig t.d. eigin vélar meira en raun sýnist bera vitni til hreinsunarstarfsins. Eignarnemi fellst ekki á sérstakar launagreiðslur til eignarnámsþola eða fjölskyldu hans vegna framkvæmdar þessa verks. Þá er alfarið mótmælt að eignarnema beri að taka þátt í kostnaði af kaupum á sturtuvagni.
4. Eignarnemi mótmælir alfarið ferðakostnaði eignarnámsþola og dagpeningakröfu.
5. Eignarnemi telur að með nýjum búvörusamningi á skjali nr. 47 hafi skapast ný viðhorf varðandi líklegt verð líflamba að hausti. Eignarnemi kveður felast í því að eignarnámsþola eigi að vera kleift að fá keypt líflömb fyrir mun lægra verð en áður hefur verið.
6. Eignarnemi mótmælir algerlega sérstakri bótakröfu á grundvelli þess að málin hafi dregist hjá Matsnefnd eignarnámsbóta. Þá mótmælir hann alfarið miskabótakröfu eignarnámsþola. Eignarnemi bendir á að telji eignarnámsþoli sig hafa orðið fyrir tjóni vegna seinagangs í matsnefndinni, þá sé landbúnaðarráðuneytið ekki rétti aðilinn til að beina slíkri kröfu að. Eignarnemi telur að við ákvörðun vaxta í málinu skuli litið til þeirra mála sem áður hafa verið úrskurðuð í nefndinni og nefnd voru að framan.
Eignarnemi vísar til þess að í ársbyrjun 1991 hafi verið kveðnir upp þrír úrskurðir í Matnsnefnd eignarnámsbóta í matsmálunum nr. 1/1990, Þorgeir E. Þórarinsson gegn landbúnaðarráðherra o.fl, nr. 2/1990, Haukur Magnússon gegn landbúnaðarráðherra og nr. 3/1993, Hjalti Jósefsson gegn landbúnaðarráðherra. Eignarnemi kveður þá afstöðu hafa verið tekna af hans hálfu að sætta sig við þau sjónarmið og forsendur sem Matsnefnd eignarnámsbóta lagði til grundvallar úrskurðum sínum í þessum þremur málum. Málin hafi þar af leiðandi ekki verið borin undir dómstóla og bætur greiddar í samræmi við úrskurði nefndarinnar í þeim.
Eignarnemi kveður að í þeirri afstöðu hafi að sjálfsögðu falist að síðari mál af þessu tagi, sem kynni að verða beint til Matsnefndar eignarnámsbóta, fengju þar samskonar afgreiðslu. Eignarnemi telur að mál þetta sé í eðli sínu eins og þau þrjú mál sem nefnd voru hér að ofan, og vísar því að meginstefnu til til áðurnefndra úrlausna nefndarinnar varðandi sjónarmið sín í málinu, að teknu tilliti til atvika sem síðar hafa gerst. Er þá einkum hafður í huga búvörusamningur á skjali nr. 47, sem gerður var hinn 11. mars 1991.
Af hálfu eignarnema er lögð á það áhersla að eignarnámsþoli hefði átt að takmarka tjón sitt með vinnu utan heimilisins á fjárleysisárunum. Eignarnemi telur eignarnámsþola ekki hafa gert neinn reka að því að takmarka tjón sitt með þessum hætti.
Varðandi málskostnaðarkröfu eignarnámsþola bendir eignarnemi á að málatilbúnaður eignarnámsþola taki ekkert mið af þeim úrskurðum sem matnsnefndin hefur áður kveðið upp í sambærilegum málum. Eignarnemi telur kröfugerð eignarnámsþola úr öllu hófi og í engu samræmi við fyrri úrskurði nefndarinnar. Þetta hafi valdið því að eignarnámsþoli hafi gert sér og eignarnema mun meiri vinnu í máli þessu heldur en eðilegt gat talist og þörf var á. Þá bendir eignarnemi á að mál þetta sé sambærilegt öðrum sem lögmaður eignarnámsþola hefur flutt fyrir matsnefndinni og vinna í einu geti þannig nýst í öðru. Gerir eignarnemi þá kröfu að tekið verði tillit til þessa við ákvörðun málskostnaðar í málunum.
VII. Álit Matnsnefndar eignarnámsbóta:
Um varnir gegn sauðfjársjúkdómum giltu lög nr. 23/1956 um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma og útrýmingu þeirra með síðari breytingum er atburðir þeir gerðust, sem eignarnámsmál þetta er risið af. Í apríl 1993 tóku gildi lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og fella þau úr gildi framangreind lög nr. 23/1956. Engu breytir þetta þó um úrslit þessa máls, enda fer um það að lögum nr. 23/1956. Lögin eru að stofni til eldri og voru áður nr. 44/1947 með sama nafni. Gerðar voru nokkrar breytingar á lögnum árið 1956 og lögin nr. 44/1947 endurútgefin sem lög nr. 23/1956.
Í lögunum eru ákvæði um sjúkdóma þá er lögin ná til og aðgerðir til útrýmingar sauðfjársjúkdóma svo sem um sauðfjárvarnarsvæði, fjárskiptafélög og fjárskipti. Þá eru og í VI. kafla laganna ákvæði um fjárframlög ríkisins til fjárskipta. Framkvæmd laganna heyrði undir landbúnaðarráðherra, sem skipaði sauðfjársjúkdómanefnd til að hafa á hendi stjórn sauðfjársjúkdómamála.
Í 13. gr. 2. mgr. og 23. gr. 2. mgr. laganna eru sérákvæði um bætur fyrir kindur sem sleppa yfir varnarlínur og kindur sem eru sýktar eða grunur leikur á um að séu sýktar (sbr. og 17. gr. ). Í 13. gr. 2. mgr. er kveðið á um að ríkissjóður skuli bæta kind með a.m.k. fullu niðurlagsverði (haustverði). Í 23. gr. 2. mgr. er aðeins ákveðið að sauðfjárskúkdómanefnd ákveði bætur fyrir sauðfé, sem skorið er, án frekari skilgreiningar. Í þessum tilvikum er einungis fjallað um slátrun einstakra kinda, sem svo er ástatt um sem lýst er í lögunum.
Í VI. kafla laganna (37. gr. - 42. gr.) er hinsvegar fjallað um fjárframlög og bætur vegna fjárskipta, þ.e. þegar skorið er niður sauðfé á ákveðnum landsvæðum og nýtt fé fengið í staðinn, annað hvort þegar í stað eða að liðnu einu eða fleiri sauðleysisárum.
Í 37. gr. og 38. gr. er um það fjallað hvernig ríkissjóður skuli bæta fjáreigendum tjón vegna niðurskurðarins og á hvern hátt skuli greiða bætur. Þá er í 41. gr. fjallað um svonefndan uppeldisstyrk, sem greiða skal fjáreigendum sem missa fé vegna vanhalda, og geta ekki búist við fjárskiptum næstu tvö ár. Í 42. gr. er svohljóðandi ákvæði:
"Nú telur sauðfjársjúkdómanefnd nauðsynlegt að útrýma sauðfjársjúkdómi með niðurskurði á sýktu fé eða grunuðu svæði, skal hún þá senda landbúnaðarráðherra rökstuddar tillögur þar um. Getur ráðherra þá fyrirskipað niðurskurð, hvort sem atkvæðagreiðsla hefur farið fram á svæðinu eða ekki. Bætur skal greiða fjáreigendum samkvæmt ákvæðum þessara laga. Verði krafizt mats vegna niðurskurðarins, eftir gildandi lögum um eignarnám, er matsmönnum skylt að taka til greina sýkingu fjár á svæðinu eða yfirvofandi sýkingarhættu."
Þetta ákvæði var efnislega áður að finna í 41. gr. l. nr. 44/1947 þar sem segir m.a. að telji sauðfjársjúkdómanefnd nauðsynlegt að útrýma sjúkdómi með niðurskurði, þar sem fjárskiptafélag telst ekki stofnað, þá geti hún látið útrýminguna fara fram með samþykki ráðherra. Bætur skuli þá greiða fjáreigendum samkvæmt mati eftir gildandi lögum um eignarnám, en matsmönnum skylt að taka til greina sýkingu fjár á svæðinu.
Eignarnemi vísar til fyrri úrskurða Matsnefndar eignarnámsbóta um túlkun ákvæða l. nr. 23/1956 og telur að sömu sjónarmið eigi við í máli þessu og þar voru lögð til grundvallar.
Matsnefndin lítur svo á, að ákvæði 42. gr. l. nr. 23/1956 beri að skilja þannig, að fjáreigandi, sem þola verður heildarniðurskurð sauðfjár síns, eigi tveggja kosta völ. Annars vegar geti hann gert samning við ríkissjóð um bætur á grundvelli efnisreglna VI. kafla laga nr. 23/1956 og stjórnvaldsreglna, sem settar hafa verið með heimild í þeim lögum, en hins vegar geti hann krafist eignarnámsmats samkvæmt lögum um eignarnám. Sé síðari leiðin valin beri matsnefnd að leggja til grundvallar reglur stjórnskipunarlaga um fullar bætur eins og þær hafa verið tíðakaðar í löggjöf og lagaframkvæmd. Þessi túlkun matsnefndarinnar styðst bæði við orðalag 42. gr. l. nr. 23/1956 og við samanburð á ákvæðinu í 41 gr. l. nr. 44/1947. Niðurstaða þessi er og í samræmi við túlkun umboðsmanns Alþingis í áliti frá 8. júní 1989 (mál nr. 36/1988).
Af framangreindri túlkun leiðir, að matsnefndin telur sig með engum hætti bundna af ákvæðum í 37.- 40. gr. l. nr. 23/1956 og reglugerð nr. 556/1982 hvorki að því er varðar fjárhæð bóta né heldur hvenær þær komi til greiðslu. Matsnefndin telur rétt að taka fram, að í þessari afstöðu felst, að hún líti svo á, að sá sem velur þá leið að krefjast mats skv. lögum um eignarnám afsali sér þar með rétti til þeirra lögákveðnu bóta vegna niðurskurðarins sem ákvarðaðar eru í lögum og reglugerð og meti matsnefnd tjón hans minna en greindar reglur gera ráð fyrir, þá ráði matið.
Matsnefndin telur skv. framansögðu að það sé hlutverk hennar að meta eignarnámsþola bætur fyrir það tjón sem hann verður fyrir við það að fjárstofn hans var felldur og honum gert skylt að búa við sauðleysi frá desember 1990 til hausts 1992. Eignarnámsþoli hafi ekki haft neinar tekjur af sauðfénu haustin 1991 og 1992. Haustið 1991 hefði eignarnámsþoli átt að hafa tekjur sem nema frálagsverði sláturlamba og þarf því að meta honum afurðartjón að teknu tilliti til sparaðs kostnaðar. Sama gildi um tekjur af sauðfé haustið 1992. Þá þurfi að líta til þess hvort sá kostnaður, sem eignarnámsþoli hafði frá vori 1990 til vors 1991 og ekki nýttist honum skuli bætast að einhverju leyti eða hvort hann teljist þegar bættur. Að auki þurfi að meta hvort eignarnámsþoli beri einhvern þann kostnað sem er bótaskyld afleiðing af niðurskurðinum. Ennfremur ber að meta hvort það, að hey sem til var í fyrningum vorið 1991, teljist tjón eignarnámsþola, sem eignarnema beri að bæta. Þá beri óhjákvæmilega að meta til frádráttar bótum allan beinan sparnað eignarnámsþola árin 1991-1992 sem rakin verður til þess að ekkert sauðfé var á bænum og því til viðbótar þarf að meta hvort það vinnuafl, sem sauðfjárræktin hefði krafist, nýttist ekki annarsstaðar og komi til lækkunar á bótum. Þá beri matsnefndinni að taka tillit til vaxta við matið. Að lokum telur matsnefndin að reikna þurfi áhrif svonefndra beingreiðslna frá ríkissjóði skv. búvörusamningi og niðurfærslna á fullvirðisrétti.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir niðurstöðum Matsnefndar eignarnámsbóta um tjón eignarnámsþola og þykir rétt að leggja til grundvallar kröfugerð eignarnámsþola eins og hún er sundurliðuð í V. hér að framan. Aðilar eru sáttir við að miða bætur við 300 kindur.
1. Felldur fjárstofn: Eins og fram kom í IV. hér að framan var staðfest að riða fannst í fé eignarnámsþola á árinu 1990. Matsnefndin telur óhjákvæmilegt að taka tillit til þess við mat á bótum til handa eignarnámsþola, að ekki var um heilbrigt fé að ræða. Matsnefndin telur að verðgildi sauðfjárins lækki verulega við það að riðusýking finnst í fénu. Matsnefndin telur, að verðmæti fjárins á fæti sé verulega minna vegna sýkingarinnar en frálagsverðmæti fjárins. Nefndin telur að aðrir sauðfjárbændur myndu sniðganga sýkt fé við kaup á sauðfé. Matsnefndin hefur og litið til annarra matssjónarmiða en markaðsverðs, einkum hugsanlegs endurkaupaverðs og afnotaverðmætis fjárins í hendi eignarnámsþola. Matsnefndin telur, að ekki komi til álita að miða endurkaupsverð við heilbrigðan fjárstofn, heldur fjárstofn sem er sambærilegur fjárstofni þeim, sem skorinn var niður. Sú athugun leiðir óhjákvæmilega til sömu niðurstöðu og að framan greinir um markaðsverðmæti sauðfjárins, þ.e. að endurkaupsverðmæti nýrrar fjárhjarðar, sem svipað er ástatt um og þá hjörð, sem niður hefur verið skorin, sé lægra en frálagsverðmæti fjárins. Þá kemur til álita, að líta á verðmæti fjárins í hendi eignarnámsþola með það sjónarmið í huga, að það muni duga honum til sauðfjárræktar um langa hríð, enda þótt stofninn sé sýktur. Matsnefndinni er kunnugt um að sýking getur leynst nokkuð lengi í harðgerðum fjárstofnum. Matsnefndin telur verulegar líkur á, að sýking leiði til vanhalda, sem muni aukast og að lokum gera fjárstofninn arðminni. Enda þótt matsnefndin treysti sér ekki til að segja til um á hversu löngum tíma slíkt gerist, þá telur hún nægjanlega sýnt fram á slíka þróun. Þetta telur matsnefndin leiða til þess, að verðmæti fjárstofnsins í hendi eignarnámsþola sé skert og fari minnkandi. Þar sem ofangreindir matskostir leiða allir til lægri niðurstöðu en mat á frálagsverðmæti fjárins þykir rétt að leggja það til grundvallar.
Matsnefndin hefur reiknað út frálagsverðmæti sauðfjárins að Syðra Skörðugili í mars 1991 og framreiknað það til verðlags í október 1994. Þannig metið nemur verðmætið kr. 1.903.200- áður en dregin eru frá svonefnd sjóðagjöld, en þau eru 2,1% og nema því 39.967-. Að teknu tilliti til þessara atriða telur matsnefndin hæfilegt að meta tjón eignarnámsþola kr. 1.863.233-
2. Bætur fyrir fellda hrúta: Við útreikning liðs nr. 1 hér að framan hefur verið tekið tillit til hlutdeildar hrúta í fjárstofninum. Af þessum sökum er sérstakri kröfu um bætur vegna felldra hrúta hafnað.
3. Fóðurkostnaður til vors: Liður þessi er innifalinn í bótaliðnum nr. 5 hér á eftir og kemur því ekki til sérstakrar greiðslu vegna þessa liðar.
4. Umframbirgðir heys: Matsnefndin telur m.t.t. samsetningar í bústofni eignarnámsþola, en hann hefur á hendi umfangsmikla hrossarækt o.fl., valdi því að honum hefði verið í lófa lagið að koma umframbirgðum af heyi í lóg, þrátt fyrir niðurskurðinn. Af þessum sökum er hafnað kröfu um sérstakar bætur vegna þessa liðar.
5. Bætur vegna tekjumissis á fjárleysistíma: Matsnefndin hefur kynnt sér skattskýrslur eignarnámsþola ásamt viðeigandi landbúnaðarskýrslum. Matsnefndin hefur á grundvelli þessara gagna, sem hún telur trúverðug, reiknað út meðaltekjur eignarnámsþola af sauðfjárræktinni og jafnframt hefur nefndin reiknað út breytilegan kostnað sömu ára af sauðfjárræktinni.
Þau ár sem um er að ræða eru árin 1988, 1989 og 1990. Tekjurnar hefur nefndin reiknað til verðlags á fjárleysisárunum tveimur miðað við breytingar á grundvallarverði kindakjöts í hæsta verðflokki. Að auki eru þannig verðbættar tekjur framreiknaðar til verðlags á miðju árinu 1994 og er þá miðað við lánskjaravísitölu. Við framreikning kostnaðar hefur verið haft mið af vísitölu lánskjara. Með þessum hætti er framlegðin á fjárleysisárunum færð til verðlags á árinu 1994.
Meðaltekjur áranna 1988-1990 eru reiknaðar með eftirfarandi hætti og er þá tekið tillit til tekna af sauðfé úr landbúnaðarskýrslum eignarnámsþola:
Ár Tekjur af sauðfé Framreiknistuðull Framreiknaðar tekjur:
1988 2.066.448- 1,48 3.055.530-
1989 2.516.659- 1,23 3.092.969-
1990 2.845.227- 1,17 3.317.339-
9.465.838-
Meðaltalstekjur 3.155.279-
Breytilegur kostnaður áranna 1988-1990 er fundinn með eftirfarandi hætti:
Skýring 1988 1989 1990
Fóður 45.294- 45.172- 35.030-
Sáðvörur 183.274- 253.345- 311.766-
Búvélar 202.675- 286.431- 131.006-
Rekstrarvörur 70.607- 85.750- 118.937-
Laun 176.753- 180.060- 150.165-
Aðkeypt þjónusta 165.707- 309.350- 198.096-
Ýmis gjöld 65.468- 164.499- 230.940-
Bústofnsbreytingar - 1.740- -172.965- -163.215-
Samtals 908.036- 1.151.642- 1.012.725-
Framreiknað x 1,57 x 1,33 x 1,16
1.424.024- 1.531.593- 1.177.619-
Niðurstaðan af framangreindum útreikningi er eftirfarandi á verðlagi í október 1994:
Meðaltekjur á ári kr. 3.155.279-
Meðalútgjöld á ári kr. 1.377.745-
Mismunur kr. 1.777.534-
Með hliðsjón af þessum útreikningi reiknast aftuðartjónsbætur fyrir árin 1991 og 1992 á eftirfarandi hátt:
Bætur fyrir árið 1991 kr. 1.777.534-
Bætur fyrir árið 1992 kr. 1.698.652-
Niðurfærslan fyrir árið 1992 reiknast 2,5% og fyrir árið 1993 22,75% skv. upplýsingum landbúnaðarráðuneytisins, sbr. samning landbúnaðarráðherra og Stéttarsambands bænda frá 11. mars 1991. Niðurfærslan 1991 reiknast skv. því 2,5% af brúttótekjum, en ekki verður talið að svo lítil skerðing á tekjum hafi áhrif á gjöld.
Matsnefndin telur því tjón eignarnámsþola vegna afurðamissis í tvö ár hæfilega metið á kr. 3.476.186-.
6. Afurðatjón vegna nýs fjárstofns fyrir árið 1993: Matsnefndin fellst á, að afurðatjón eignarnámsþola sé ekki að fullu bætt fyrr en tekið hefur verið tillit til þess, að tekjur af nýbyrjaðri sauðfjárrækt, skili sér ekki með eðlilegum hætti fyrr en á öðru ári og tekjur á fyrsta ári eftir sauðleysið því mjög skertar. Sá tekjumissir sé afleiðing af niðurskurðinum. Telur matsnefndin að við mat á þeirri bótaskyldu skerðingu beri að hafa eftirfarandi í huga: Tekjur á fyrsta ári eftir sauðleysi, þar sem stofnað er til sauðfjárbúskapar með kaupum á líflömbum að hausti, verða verulega minni en ella. Stafar þetta m.a. af því að afföll verða meiri en venjulega og frjósemi minni. Skv. II. kafla reglugerðar nr. 336/1992 eru nú greiddar svokallaðar beingreiðslur til bænda sem nema 50% af framleiðslukostnaði kindakjöts samkvæmt verðlagsgrundvelli sauðfjárafurða 1. september 1993.
Í úrskurðum matsnefndar frá 1990 voru metnar bætur fyrir tjón vegna tekjumissis á fyrsta ári eftir fjárleysi. Hæfilegt þótti að miða við að 50% af viðmiðunartekjum þyrfti að bæta. Að Syðra Skörðugili er fyrsta ár eftir fjárleysi 1993. Á því ári er ákveðið að greiða bændum beingreiðslur sem fyrr segir og nema þær 50% af grundvallarverði afurða. Þá greiðslu fá einnig bændur sem orðið hafa að sæta niðurskurði sauðfjár vegna riðusýkingar svo fremi sem þeir hafa náð 20% framleiðslu miðað við afköst fyrir niðurskurð. Þetta á við að Syðra Skörðugili.
Með hliðsjón af þessu telur matsnefndin rökrétt að bætur vegna tekjumissis á fyrsta ári eftir fjárleysi nemi 50% af helmingi viðmiðunarverðs, þ.e. 25% af viðmiðunartekjum. En hér verður einnig að líta til þess að í tvígang er búið að skerða framleiðslurétt sauðfjárbænda. Á árinu 1992 var rétturinn skertur um 2,5% en á árinu 1993 um 22,75%. Leiðréttar viðmiðunartekjur verða því kr. 2.437.453-, þ.e. skerðingin 22,75% hefur verið dregin frá fullum viðmiðunartekjum. Samkvæmt þessu verða bætur til eignarnámsþola vegna skertra tekna á fysta ári eftir fjárleysi 25% af kr. 2.437.453- eða 609.363-.
7. Afurðatjón vegna nýs fjárstofns fyrir árin 1994-1996: Matsnefndinni þykir eignarnámsþoli hafa sýnt fram á að fé það sem sem skorið var niður, að Syðra Skörðugili, var sérlega góður fjárstofn. Sýnt þykir að nokkur tími muni líða þar til nýr stofn hefur náð gæðum hins fellda stofns. Matsnefndinni þykja hæfilegar bætur til eignarnámsþola vegna þessa vera kr. 250.000-.
8. Slátrun, flokkun, viktun og flutningur á slátursstað: Af hálfu matsnefndar er litið svo á að ekki séu deilur um þennan lið og að eignarnámsþoli hafi þegar fengið þennan þátt bættann úr hendi eignarnema.
9. Flutningur á líflömbum: Matsnefndin telur rétt að meta eignarnámsþola bætur fyrir þennan lið. Með hliðsjón af framlögðum gögnum varðandi flutningskostnað á líflömbum þykir kostnaður þessi hæfilega metinn á kr. 150.000- í máli þessu.
10. Sótthreinsun, hreinsun, málning o.fl.: Matsnefndinni þykir rétt að miða við að eignarnámsþoli reyni eftir fremsta megni að takmarka tjón sitt og framkvæma það sem þarf á búinu, vegna niðurskurðarins, með sem minnstum tilkostnaði t.d. með notkun eigin véla og vinnuafls. Með hliðsjón af þessu sjónarmiði þykir nefndinni kröfugerð eignarnámsþola vegna þessa liðar nokkuð hár, enda gert ráð fyrir aðkeyptu vinnuafli o.fl. í kröfugerðinni. Matnsnefndinni þykir hæfilegar bætur vegna þessa liðar vera kr. 50.000-.
11. Jarðvegsskipti: Með vísan til rökstuðnings í lið 10 hér að framan þykir þykja hæfilegar bætur vegna þessa liðar vera kr. 100.000-.
12. Endurnýjun fjárhúsa: Matsnefndin hafnar bótakröfu vegna þessa liðar, enda var ekki gerð krafa til endurnýjunar innréttinga í fjárhúsum af hálfu eignarnema. Rétt þykir að eignarnámsþoli beri sjálfur kostnað af slíkum viðhaldsverkefnum.
13. Bólusetning: Matsnefndin fellst ekki á að kostnaður við bólusetningu sé vávæn afleiðing af niðurskurðinum og hafnar því kröfulið þessum.
14., 15. og 16: Lögmannskostnaður, útlagður kostnaður vegna matsmálsins og ferðakostnaður og dagpeningar eignarnámsþola: Með vísan til 10. og 11. gr. l. 11/1973 þykir rétt að úrskurða eina fjárhæð, málskostnað, vegna framangreindra liða. Af hálfu matsnefndar þykir hæfilegur málskostnaður í máli þessu kr. 250.000- auk virðisaukaskatts.
15. Vaxtakrafa: Matsnefndin telur það utan hlutverks síns að kveða á um vexti af matsfjárhæð eftir uppkvaðningu úrskurðar. Vexti á tímabilinu frá niðurskurði til matsdags hefur nefndin reiknað og við þann útreikning var tekið mið af bótafjárhæðum og innborgunum til eignarnámsþola. Niðurstaðan er sú að hæfilegir vextir séu kr. 242.000-.
16. Miskabótakrafa: Af hálfu matsnefndarinnar þykja ekki lagaskilyrði vera fyrir hendi til að taka kröfu þessa til greina og er henni því hafnað.
Til álita kemur hvort lækka beri metið tjón eignarnámsþola með hliðsjón af því að honum hefði verið í lófa lagið að takmarka tjón sitt með vinnu utan heimilis á fjárleysisárunum, svo sem eignarnemi hefur haldið fram í málinu. Að teknu tilliti til aldurs eignarnámsþola og atvinnuástands á svæðinu þykir matsnefndinni óraunhæft að eignarnámsþoli hefði getað dregið úr tjóni sínu með vinnuframlagi utan heimilis. Þykja því ekki efni til að lækka bætur til hans vegna þessa.
Samandregin niðurstaða:
Heildarniðurstaða matsnefndarinnar vegna liða 1-16 hér að framan eru sem hér segir:
Bætur fyrir felldan fjárstofn kr. 1.863.233-
Bætur vegna tekjumissis á fjárleysistíma kr. 3.476.186-
Afurðartjón vegna nýs fjárstofns árið 1993 kr. 609.363-
Afurðartjón vegna nýs fjárstofns 1994-1996 kr. 250.000-
Flutningur á líflömbum kr. 150.000-
Sótthreinsun, hreinsun, málning o.fl. kr. 50.000-
Jarðvegsskipti kr. 100.000-
Málskostnaður m. vsk. kr. 311.250-
Vextir kr. 242.000-
Samtals kr. 7.052.032-
Eftirtaldar innborganir dragast frá:
Innborgun 31.10.92. ( kr. 2.000.000- )
Innborgun 31.12.92. ( kr. 2.000.000- )
Innborgun 30.09.93 ( kr. 1.500.000- )
Verðbætur á innborganir ( kr. 195.859- )
Samtals til frádráttar kr. 5.695.859-
Óbætt tjón kr. 1.356.173-
Samkvæmt framanrituðu telur matsnefndin eignarnámsbætur til handa eignarnámsþola úr hendi eignarnema hæfilega metnar kr. 1.356.173-, þ.m.t. málskostnaður og vextir. Fjárhæðin miðast við verðlag á matsdegi og greiðist í einu lagi. Auk ofangreinds skal eignarnemi bera kostnað af starfi Matsnefndar eignarnámsbóta í máli þessu, samtals kr. 542.875-.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Eignarnemi, landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, greiði eignarnámsþola, Einari Gíslasyni, kt. 050433-3669, Syðra Skörðugili, Seyluhreppi, Skagafjarðarsýslu, kr. 1.356.173- í eignarnámsbætur þ.m.t. kr. 250.000- auk vsk. í málskostnað.
Eignarnemi greiði kr. 542.875- til ríkissjóðs vegna kostnaðar af starfi Matsnefndar eignarnámsbóta í málinu.
______________________________
Helgi Jóhannesson hdl.
___________________________ ___________________________
Stefán Svavarsson endursk. Stefán Tryggvason, bóndi
Föstudaginn 23. september 1994 var í Matsnefnd eignarnámsbóta skv. lögum nr. 11/1973 tekið fyrir matsmálið nr. 1/1994
Hafnamálastofnun ríkisins
gegn
Ómari Antonssyni
og kveðinn upp svohljóðandi
ú r s k u r ð u r :
I. Skipan Matsnefndar eignarnámsbóta:
Matsnefnd eignarnámsbóta í þessu máli skipa þeir Helgi Jóhannesson, formaður, Ragnar Ingimarsson, verkfræðingur, og Kristinn Gylfi Jónsson, viðskiptafræðingur og bóndi, en formaður kvaddi þá tvo síðastnefndu til starfans með vísan til 2. mgr. 2. gr. l. nr. 11/1973.
II. Matsbeiðni, aðilar og andlag eignarnáms:
Með matsbeiðni dagsettri 26. apríl 1994, sem lögð var fram í Matsnefnd eignarnámsbóta þann 18. maí 1994, óskaði Hafnamálastofnun ríkisins (eignarnemi) eftir því að fram færi verðmat vegna eignarnáms á grjóti úr klöpp á landsvæði í sunnanverðu Litla Horni, í svokölluðum Háls eða Hálsenda, í landi Horns, Nesjahreppi, Austur Skaftafellsýslu. Eigandi nefnds landsvæðis er Ómar Antonsson, Hlíðartúni 15, Höfn, Hornafirði (eignarnámsþoli).
Í matsbeiðni var óskað eftir mati á efnismagni sem nægði til hleðslu u.þ.b. 60.000 m³. varnargarðs við höfnina á Höfn í Hornafirði. Við munnlegan flutning málsins fastsetti eignarnemi magntöluna við 50.000 m³ af klöpp sem óskað var eftir mati á.
Heimild til eignarnáms á nefndu grjóti byggir eignarnemi á 21. gr. hafnalaga nr. 23/1994. Ástæður eignarnámsins kvað eignarnemi vera þær að samkvæmt áætlun væri meiningin að styrkja og endurbæta hluta af hafnargarði þeim, sem varnar því að sjór gangi óheftur inn í höfnina á Höfn í Hornafirði, og því sé nauðsynlegt að fá umráð yfir klöpp þeirri sem umbeðið mat snýst um, til hleðslu varnargarðs við höfnina.
III. Málsmeðferð:
Mál þetta var fyrst tekið fyrir hjá Matnsnefnd eignarnámsbóta miðvikudaginn 18. maí 1994, en þá lagði eignarnemi fram matsbeiðni ásamt fylgigögnum. Við fyrirtökuna samþykktu aðilar að málið væri rekið fyrir Matsnefnd eignarnámsbóta og að eignarnámsheimild eignarnema væri fyrir hendi. Eignarnámsþoli mótmælti þó þeim stað sem fyrirhugað grjótnám á að fara fram og taldi ýmsa aðra staði í hans landi heppilegri til grjótnámsins. Sættir voru reyndar án árangurs og var málinu frestað til vettvangsgögnu til þriðjudagsins 24. maí 1994.
Þriðjudaginn 24. maí var málið tekið fyrir að nýju. Flogið var austur á Höfn í Hornafirði, ekið að Litla Horni, og aðstæður á vettvangi skoðaðar. Af hálfu eignarnema kom fram að með leigusamningi milli hans og Gabbró hf. væri búið að ráðstafa klöpp þeirri sem beðið hefði verið um mat á. Að vettvangsgöngu lokinni var málinu frestað til framlagningar greinargerðar og annarra gagna af hálfu eignarnámsþola til 13. júní 1994.
Mánudaginn 13. júní 1994 var málið enn tekið fyrir. Á fundinum lagði eignarnámsþoli fram greinargerð ásamt fylgigögnum. Málinu var að því búnu frestað til 4. júlí 1994.
Mánudaginn 4. júlí var málið tekið fyrir. Á fundinn mætti, auk fulltrúa aðila og matsnefndar, Hilmar Hilmarsson framkvæmdastjóri Gabbrós hf., en samkvæmt framlögðum gögnum frá eignarnámsþola þótti rétt að gefa Gabbró hf. kost á að gæta hagsmuna sinna í málinu. Hilmar var sérstaklega boðaður til fyrirtökunnar af matsnefndinni. Á fundinum lagði eignarnemi fram greinargerð ásamt fylgigögnum. Af hálfu Hilmars Hilmarssonar kom fram að hann teldi svæði það, sem fyrirhugað grjótnám á að fara fram á, muni e.t.v. eyðileggjast sem gabbróvinnslusvæði ef öflugar sprengingar yrðu notaðar til losunar grjótsins. Fram kom hjá Hilmari að raunhæf nýting Gabbrós hf. á klöppinni væri u.þ.b. 10% af heildarefnismagni hennar. Af hálfu Hilmars kom fram að farsælast væri að samstarf gæti verið milli Gabbrós hf. og eignarnema um efnistökuna. Samþykkt að fresta málinu til framlagningar greinargerðar af hálfu Gabbrós hf. til 18. júlí 1994.
Mánudaginn 18. júlí 1994 var málið tekið fyrir. Fulltrúi Gabbrós hf. mætti ekki með greinargerðina og var samþykkt að formaður matsnefndarinnar myndi setja sig í samband við hann og kanna hvort hann hyggðist leggja fram greinargerðina eða ekki. Af hálfu eignarnema kom fram að samstarf milli Gabbrós hf. og eignarnema um efnistökuna væri óraunhæfur kostur. Málinu frestað til 25. júlí 1994.
Mánudaginn 25. júlí 1994 var málið tekið fyrir. Á fundinum var lögð fram greinargerð frá Gabbró hf. Að því búnu var málinu frestað til frekari málsmeðferðar til 8. ágúst 1994. Í framlagðri greinargerð Gabbrós hf. komu ekki fram neinar kröfur til bóta vegna eignarnámsins. Í greinargerðinni kom hins vegar fram útlistun á stofnun félagsins, framtíðarmarkmiðum og nauðsyn þess að samstarf verði haft við það um efnistöku eignarnema, ef af henni yrði.
Mánudaginn 8. ágúst 1994 var málið tekið fyrir. Enginn mætti af hálfu Gabbró hf. á fundinn. Sættir reyndar án árangurs og málinu frestað til framlagningar gagna af hálfu aðila til 22. ágúst 1994.
Mánudaginn 22. ágúst 1994 var málið tekið fyrir. Á fundinum voru lögð fram ýmis gögn frá eignarnámsþola. Þrátt fyrir ítrekaðar boðanir var enginn mættur af hálfu Gabbrós hf. Með vísan til þessa og þess að við upphaf eignarmatsmáls þessa hafði enginn samningur verið gerður við Gabbró hf., var litið svo á að Ómar Antonsson væri einn eignarnámsþoli í málinu. Málinu frestað til 29. ágúst 1994. Að fundinum loknum hafði formaður matsnefndar símasamband við framkvæmdastjóra Gabbró hf. og staðfesti hann að þetta væri einnig skilningur Gabbrós hf., þ.e. að fyrirtækið væri ekki aðili að eignarmatsmálinu.
Mánudaginn 29. ágúst 1994 var málið tekið fyrir. Af hálfu eignarnema voru lögð fram gögn og samþykkt að fresta málinu til munnlegs málflutnings til 13. september 1994.
Þriðjudaginn 13. september 1994 var málið tekið fyrir. Af hálfu aðila voru lögð fram gögn en að því búnu fluttu aðilar málið munnlega fyrir nefndinni. Þegar aðilar höfðu reifað sjónarmið sín og kröfugerðir var málið tekið til úrskurðar.
IV. Málavextir:
Málavextir eru í stuttu máli þeir að eignarnemi sér um gerð og viðhald hafna hér á landi. Samkvæmt áætlun eignarnema er nú komið að því að styrkja og endurbæta hluta af hafnargarði þeim, sem varnar því að sjór gangi óheftur inn í höfnina á Höfn í Hornafirði. Eigandi hafnarsvæðisins er bæjarfélagið á Höfn. Til að hægt sé að fara út í nefndar framkvæmdir við hafnargarðinn er eignarnema nauðsynlegt að hafa aðgang að stórgrýti til upphleðslu varnargarðsins. Eftir athuganir á svæðinu telur eignarnemi hagkvæmast að nýta grjót úr klöpp þeirri í landi Horns sem nú hefur verið beðið um mat á. Samningaumleitanir eignarnema og eignarnámsþola um endurgreiðslu fyrir grjótið hafa ekki borið árangur og var máli þessu því vísað til Matsnefndar eignarnámsbóta svo sem mælt er fyrir um í 21. gr. hafnalaga nr. 23/1994.
V. Sjónarmið eigarnámsþola:
Af hálfu eignarnámsþola er gerð sú aðalkrafa að umbeðið eignarnám fari ekki fram, en til vara að eignarnámið verði látið ná til alls gabbrós í klöppum þeim sem eru í landi því er matið nær til. Ástæðu fyrir kröfu þessari kveður eignarnámsþoli vera þá, að talið sé að allt gabbró á svæðinu muni eyðileggjast við fyrirhugaðar sprengingar eignarnema á svæðinu. Þá er sú krafa gerð af hálfu eignarnámsþola að bætt verði allt jarðrask í sambandi við eignarnámið og nauðsynlegar viðgerðir í því sambandi, svo og allur kostnaður við að koma jarðvegi í fyrra horf, bæta nátturuspjöll og græða landið. Þá er þess krafist af hálfu eignarnámsþola að metinn verði tapaður hagnaður hans sem eiganda vinnuvéla vegna vinnu sem hann verður af fyrir Gabbró hf. verði af eignarnáminu. Að lokum er þess krafist að eignarnema verði gert að greiða eignarnámsþola allan kostnað í sambandi við rekstur matsmálsins þ.m.t. lögmannskostnað að fullu og skaðlausu.
Af hálfu eignarnámsþola er því haldið fram að eignarnámið beinist í raun að svæði sem ráðstafað hefur verið til Gabbrós hf. með kaup- og leigusamningi dagsettum 19. maí 1994, en samningur þessi liggur frammi í málinu sem skjal nr. 9. Eignarnámsþoli telur að eignarnema beri að beina kröfum sínum um eignarnám einnig að Gabbró hf., þar sem það félag eigi sjálfstæðan rétt til eignarnámsbóta skv. 10. gr. 2. mgr. laga nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms.
Af hálfu eignarnámsþola er tekið fram að engin nákvæm afmörkun sé á þeim stað sem eignarnámi er ætlað að beinast að og hvergi sé minnst á að eignarnámið beinist að eðalgrjóti. Þá bendir eignarnámsþoli á að engin umfjöllun liggi fyrir um málið frá Nátturuverndarráði, né hversu nærri íbúðarhúsunum á Horni eignarnámsstaðurinn sé.
Eignarnámsþoli bendir á að allar líkur séu á því að öll klöppin eyðileggist sem vinnslusvæði fyrir gabbróvinnslu verði af sprengingum þeim sem eignarnema eru nauðsynlegar til grjótvinnslu sinnar og því sé nauðsynlegt að eignarnámið nái til allrar klapparinnar með hliðsjón af 12. gr. l. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms.
Þá bendir eignarnámsþoli á að við vettvangsgöngu hafi hann bent á aðrar klappir í landi sínu sem séu bæði styttra frá fyrirhuguðum notkunarstað grjótsins og síður sé hætt við eyðileggingu af völdum sprenginga. Eignarnámsþoli telur ekki rétt að einskorða eignarnámið við þann stað einan sem verst kemur honum og hann hefur þegar ráðstafað öðrum til eðalgrjótvinnslu, þegar eignarnema er opin leið að fá grjótnám, sem uppfyllir þarfir hans, annars staðar í landi eignarnámsþola.
Varðandi verðmæti hins eignarnumda grjóts bendir eignarnámsþoli á verð það sem miðað er við í samningi hans við Gabbró hf. á skjali nr. 9. Í 4. grein þess samnings kemur fram að Gabbró hf. skuli greiða kr. 100 pr. m³ fyrir gabbró og granófýr sem notað er til slípunar og telur eignarnemi það verð hljóti að ná til allrar klapparinnar meðan hún er ósnert. Þá bendir eignarnámsþoli á framlagt skjal nr. 24, en það hefur að geyma yfirlýsinu fyrirtækins S. Helgason hf. -steinsmiðja- þess efnis að fyrirtækið greiði að jafnaði kr. 150-300 kr. pr. m³ eftir stærð og gæðum grjótsins. Ekki kemur fram í yfirlýsingunni um hvers konar grjót er að ræða, en við munnlegan flutning málsins upplýsti eignarnámsþoli að hér væri m.a. um gabbró að ræða.
Varðandi mat á töpuðum hagnaði eignarnámsþola vegna vinnu sem hann verður af, komi til eignarnámsins, bendir hann á 3. mgr. 4. gr. samningsins við Gabbró hf. á skjali nr. 9, en í þeirri grein kemur fram að eignarnámsþoli hafi forgangsrétt á öllum flutningi á grjóti fyrir kaupanda (Gabbró hf.) frá námasvæðinu til allra staða á Íslandi. Í nefndri málsgrein samningsins eru síðan nánari útreikningar á þóknun fyrir slíka efnisflutninga.
Varðandi kröfu um að fá bættan allan kostnað sinn vegna málsins, þ.m.t. lögmannskostnað, bendir eignarnámsþoli á 11. gr. l. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms.
VI. Sjónarmið eignarnema:
Eignarnemi byggir eignarnámsheimild sína á 21. grein hafnalaga nr. 23/1994 svo sem að framan er rakið. Af hálfu eignarnema er nánar tiltekið beðið um mat á 50.000 m³ af klöpp úr landi Horns, Nesjahreppi, Austur Skaftafellssýslu. Af hálfu eignarnema er mótmælt kröfu eignarnámsþola um sérstakar bætur vegna frágangs á námusvæðinu, umfram það sem almennt er tekið tillit til við mat á eignarnámsbótum. Vísar eignarnemi í þessu sambandi til 18. gr. náttúruverndarlaga nr. 47/1971, þar sem fram kemur að sá sem veldur jarðraski skuli ganga frá því á snyrtilegan hátt.
Eignarnemi mótmælir því að á nokkurn hátt verði tekið tillit til tapaðra tekna eignarnámsþola af vinnu við svæðið í þágu Gabbrós hf. Þá er af hálfu eignarnema gerð sú krafa að ekki verði tekið tillit til kröfu eignarnámsþola um greiðslu lögmannskostnaðar, en gerir þá kröfu að hvor aðili fyrir sig beri kostnað af sínum lögmanni. Þá gerir eignarnemi þá kröfu að aðilar greiði kostnað við matið sjálft að jöfnu. Kröfu þessa kveðst eignarnemi einkum byggja á því að eignarnámsþola hafi áður en máli þessu var vísað til Matsnefndar eignarnámsbóta verið boðnar bætur sem telja verði hæfilegar. Tilboð þetta er að finna á skjali nr. 2, en það gerir ráð fyrir kr. 16 pr. m³. Eignarnámsþoli hafi ekki fallist á það tilboð, en þess í stað lagt fram óraunhæft tilboð sem miðar við kr. 550 pr. m³ þ.m.t. sprengingar, flokkun og afgreiðsla á grjótinu. Tilboð þetta er að finna á skjali nr. 3.
Eignarnemi kveðst véfengja þá ráðstöfun sem eignarnámsþoli greip til, eftir að matsbeiðnin var lögð fram, með því að gera samning við Gabbró hf. Af hálfu eignarnema er talið að a.m.k. hluti þess samnings sé einhvers konar málamyndagerningur til að búa til markaðsverð á grjóti því sem til umfjöllunar er.
Eignarnemi kveðst mótmæla athugasemdum eignarnámsþola um að upplýsingar um nákvæma staðsetningu á efnistökustað, fjarlægð hans frá íbúðarhúsum o.fl. skorti, enda telur eignarnemi þetta ekki skipta máli varðandi verðmat grjótsins.
Eignarnemi kveðst mótmæla kröfu eignarnámsþola um að öll klöppin verði tekin eignarnámi. Þá bendir eignarnemi á að einungis 10% af klöppinni sé nýtanleg til gabbróvinnslu og því sé óraunhæft að miða verðmæti allrar klapparinnar við verð á gabbrói eins og eignarnámsþoli gerir. Eignarnemi kveðst einnig mótmæla því að hægt sé að taka grjótið í hafnargaðrinn á öðrum stað í landi eignarnámsþola. Eignarnemi bendir á að miklar rannsóknir á svæðinu liggi til grundvallar við val á staðsetningu grjóttökunnar og hafi þetta svæði verið best til þess fallið. Vísar eignarnemi í þessu sambandi sérstaklega til skjals nr. 12 sem hefur að geyma skýrslu um grjótnámið vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hornarfjarðarós.
Hvað verðmæti hins eignarnumda grjóts viðkemur mótmælir eignarnemi því alfarið að nokkuð tillit verði tekið til þess einingarverðs sem kemur fram í samningi eignarnámsþola við Gabbró hf. Hann bendir á að sá samningur eigi að gilda í 25 ár og það verð sem þar er tilgreint, muni eiga að gilda allan þann tíma, að teknu tilliti til vísitölu, og greiðast eftir því sem grjót er tekið úr námunum. Eignarnemi telur stóran mun á verðlagningu í slíkum samningi og verðlagningu grjóts þegar um er að ræða örugga efnistöku á nokkrum mánuðum og vissa fyrir hendi að greitt verði fyrir, eins og er í tilfelli eignarnema í máli þessu. Eignarnemi bendir á, að eins og fram komi í samningi eignarnámsþola við Gabbró hf., sé engin vissa fyrir því að samningurinn skili nokkurn tíma fé til eignarnámsþola, og sé í raun gert ráð fyrir því í 9. grein samningsins að svo geti farið, þar sem sérstaklega er tekið fram að samningurinn falli úr gildi, ef náma hefur ekki verið nýtt með eðlilegum hætti í 3 ár frá undirskrift samningsins.
Eignarnemi telur rétt varðandi mat á verðmæti grjótsins að tekið sé mið af söluverði grjóts þegar um raunverulega sölu er að ræða. Í þessu sambandi hefur eignarnemi lagt fram upplýsingar um verðlag grjóts á fjórum mismunandi stöðum á landinu, en í þeim tilfellum hafa verið greiddar kr. 12 pr. m³ (þ.m.t. virðisaukaskattur) vegna grjóts í Norðurfjarðarhöfn, kr. 18 pr. m³ (þ.m.t. virðisaukaskattur) vegna hafnarframkvæmda við Stokkseyri og Eyrabakka, kr. 10 pr. m³ (þ.m.t. virðisaukaskattur) vegna Suðurfjörutanga og kr. 8,63 pr. m³ (án virðisaukaskatts) vegna framkvæmda við Blönduós. Eignarnemi telur þessar tölur gefa rétta mynd af markaðsverði grjótsins sem beðið hefur verið um eignarnám á og sé hinn eini raunhæfi mælikvarði á markaðsverðið.
VII. Álit matsnefndar:
Samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms nr. 11/1973 sker Matsnefnd eignarnámsbóta úr ágreiningi um eignarnámsbætur og annað endurgjald, sem ákveða á samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms. Til að Matsnefnd eignarnámsbóta geti metið eignarnámsbætur, verður að vera fyrir hendi lagaheimild til eignarnámsins. Í 21. gr. hafnalaga nr. 23/1994 er landeigandi skyldaður til að leyfa að tekin verði í landi hans grjót, möl og önnur jarðefni og þola þær eignakvaðir, óhagræði og takmörkun á afnotarétti sem hafnargerð hefur í för með sér, allt þó gegn því að fullar bætur komi fyrir. Þar sem heimild eignarnema til eignarnámsins liggur þannig ljós fyrir í máli þessu, er ekki fallist á að aðalkrafa eignarnámsþola eigi við í máli þessu.
Í kafla III. hér að framan var fjallað um aðkomu Gabbró hf. að máli þessu. Ljóst er að þegar Matsnefnd eignarnámsbóta tók mál þetta fyrst fyrir hafði enginn samningur verið gerður við Gabbró hf um efnistöku á staðnum. Engu að síður var félaginu gefin kostur á að koma að kröfugerð og öðrum sjónarmiðum í málinu. Greinargerð Gabbrós hf. var lögð fram í málinu, en í henni er ekki gerð krafa um bætur vegna eignarnámsins, enda hefur framkvæmdastjóri félagsins lýst því yfir að hann telji félagið ekki vera aðila að málinu. Af hálfu Matsnefndar eignarnámsbóta er því litið svo á að einungis einn aðili, Ómar Antonsson, sé eignarnámsþoli í máli þessu.
Af hálfu eignarnámsþola hefur sú krafa verið gerð að öll klöppin verði tekin eignarnámi, enda muni hún öll eyðileggjast sem gabbrónáma við þær sprengingar sem eignarnemi mun framkvæma þar við töku hins eignarnumda grjóts. Ekkert liggur fyrir í málinu um að klöppin muni öll eyðileggjast þrátt fyrir brottnám þeirra 50.000 m³ af henni sem eignarnám þetta snýst um og þykir því á þessu stigi málsins ekki hægt að fallst á þá kröfu eignarnámsþola að klöppin verði öll tekin eignarnámi. Rétt þykir þó að benda á nauðsyn þess að gætt sé að því að grjótnámið valdi ekki meira tjóni á svæðinu en nauðsynlegt er.
Við ákvörðun eignarnámsbóta þykir rétt að taka mið af markaðsvirði hins eignarnumda sé unnt að staðreyna það. Eins og að framan er rakið hefur eignarnámsþoli lagt fram í málnu samning sinn við Gabbró hf. er gerir ráð fyrir kr. 100 pr. m³ í greiðslu fyrir gabbró af svæðinu. Þá liggur fyrir yfirlýsing frá S. Helgasyni hf. - steinsmiðju - um að fyrirtækið greiði kr. 150-300 pr. m³ fyrir gæðagrjót, allt eftir stærð og gæðum grjótsins. Af hálfu eignarnema hafa verið lögð fram gögn sem sýna að kaupverð hans á grjóti til hafnarmannvirkja er verulega miklu lægra eða allt frá kr. 10 upp í kr. 18 pr. m³ með virðisaukaskatti.
Af hálfu Matsnefndar eignarnámsbóta þykir ekki raunhæft að líta til þess verðs sem gefið hefur verið upp af S. Helgasyni hf. - steinsmiðju- um verð á grjóti. Bæði skortir upplýsingar um hvers konar grjót er að ræða, hvað það er mikið unnið þegar það er keypt og í hvaða magni verið er að kaupa það. Þá þykir heldur ekki rétt að miða við það verð sem Gabbró hf. skuldbindur sig til að greiða fyrir gabbró úr landi eignarnámsþola eða kr. 100 pr. m³. Í fyrsta lagi liggur það fyrir að einungis 10% af klöppinni nýtast til gabbróvinnslu og í öðru lagi hefur ekki enn verið um neina sölu að ræða úr klöppinni og því ósannað að markaðsverð hennar sé það sem eignarnámsþoli heldur fram að það sé. Þá má benda á að þrátt fyrir töku eignarnema á 50.000 m³ af klöpp úr landi eignarnámsþola þykir ekki sýnt að við það hafi tekjuöflunarmöguleikar eignarnámsþola með sölu á gabbrói úr landinu rýrnað svo nokkru nemi.
Eignarnemi hefur lagt fram upplýsingar um raunverulegt söluverð á grjóti víðs vegar um landið og þykir því rétt að líta nokkuð til þeirra fjárhæða varðandi mat á því hvað talist geti markaðsverð grjóts hér á landi. Á hinn bóginn verður að taka tillit til þess að grjót það sem eignarnemi hyggst taka eignarnámi í máli þessu er óumdeilanlega mjög gott efni. Um er að ræða sérstaklega hart grjót, sem molnar mun hægar en aðrar grjóttegundir og er því sérlega hagstætt til þeirrar notkunar sem eignarnemi hugsar sér. Þá er aðkoma að námustað góð og akstur á notkunarstað tiltölulega stuttur miðað við aðra kosti á svæðinu. Þykir rétt að tekið sé tillit til þessara þátta við mat á hinu eignarnumda grjóti.
Með vísan til alls ofanritaðs þykja hæfilegar bætur fyrir hina eignarnumdu grjótklöpp vera kr. 1.350.000,00 þar með talinn virðisaukaskattur. Að auki skal eignarnemi greiða eignarnámsþola kr. 200.000,00 auk virðisaukaskatts í málskostnað. Þá skal eignarnemi greiða kr. 410.900,00 til ríkissjóðs í kostnað vegna starfa Matnsnefndar eignarnámsbóta í málinu.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Eignarnemi, Hafnamálastofnun ríkisins, greiði eignarnámsþola, Ómari Antonssyni, Hlíðartúni 15, Höfn, Hornafirði, kr. 1.350.000,00 þar með talinn virðisaukaskattur í bætur fyrir hina eignarnumdu grjótklöpp og kr. 200.000,00 auk virðisaukaskatts í málskostnað. Þá greiði eignarnemi kr. 410.900,00 til ríkissjóðs í kostnað vegna starfa Matnsnefndar eignarnámsbóta í máli þessu.
___________________________________
Helgi Jóhannesson, formaður
______________________________ _______________________________
Ragnar Ingimarsson verkfr. Kristinn G. Jónsson vskfr. og bóndi