Mál nr. 30/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 30/2024
Fimmtudaginn 11. apríl 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 21. júlí 2021 og var umsóknin samþykkt 30. ágúst 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. janúar 2024. Með bréfi, dags. 18. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. mars 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. mars 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa fengið skilaboð um að mæta í skylduviðtal 27. nóvember 2023. Hann hafi þá verið veikur og sent upplýsingar um veikindin til Vinnumálastofnunar. Einnig hafi hann sent stofnuninni læknaskýrslu fyrir 28. og 29. nóvember 2023. Kærandi hafi búist við að um venjulega flensu væri að ræða og að hann yrði orðinn góður eftir tvo til þrjá daga. Veikindin hafi þó haldið áfram og hann hafi verið lengur veikur. Þann 7. desember 2023 hafi kærandi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um að greiðslur til hans hefðu verið stöðvaðar vegna þess að hann hefði ekki komið í viðtal 30. nóvember 2023. Kærandi hafi verið hissa á þessum skilaboðum því hann hafi ekki fengið nein skilaboð, hvorki með tölvupósti né í síma sinn. Venjulega sendi Vinnumálastofnun tölvupóst og smáskilaboð um fundi. Líklega hafi verið um kerfismistök að ræða. Kærandi hafi farið strax á skrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík til að vita hvað hefði gerst og hvers vegna greiðslur hans hefðu verið stöðvaðar. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi þá sagt kæranda frá boði í viðtal 30. nóvember 2023 sem mætti sjá á „Mínum síðum“ á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Starfsmaðurinn hafi einnig sagt kæranda að stundum væru ekki sendar tilkynningar í tölvupósti og í síma, hann ætti að skoða „Mínar síður“ á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi tjáð starfsmanninum að hann hefði enn verið veikur þessa dagana og hafi í fyrsta lagi ekki vitað hann þyrfti öllum stundum að skoða slíkar upplýsingar og í öðru lagi hafi hann ekki getað það vegna veikindanna. Einnig hafi kærandi sent Vinnumálastofnun læknaskýrslu fyrir 29. og 30. nóvember 2023 (vegna þess að hann hafi enn verið veikur þá daga). Þrátt fyrir það hafi greiðslur til hans fallið niður vegna þess að hann hafi sent læknabréfið of seint. Vinnumálastofnun hafi sagt að hann hefði átt að gera það innan sjö daga frá 30. nóvember 2023. Kærandi hafi sent læknaskýrsluna 7. desember 2023 en hefði getað gert það fyrr ef hann hefði fengið tilkynningu um seinna viðtalið með tölvupósti eða síma eins og venjulega. Kærandi hafi óskað eftir að Vinnumálastofnun myndi skoða þá staðreynd að hann hefði ekki fengið tilkynningu frá stofnuninni um seinna viðtalið. Þrátt fyrir það hafi kærandi fengið svar þann 19. desember 2023 um að greiðslur til hans hefðu verið felldar niður. Þann 5. janúar 2024 hafi kærandi fengið annað svar þess efnis að rök hans dygðu ekki og að hann gæti áfrýjað.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 21. júlí 2021. Með erindi, dags. 30. ágúst 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 24. nóvember 2023 hafi kærandi verið boðaður í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar þann 27. nóvember 2023, klukkan 13:30. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri [í viðtalið] og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hans. Þann 27. nóvember 2023, klukkan 10:10 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda þess efnis að hann gæti ekki mætt í viðtal vegna veikinda og að hann hygðist verða sér út um læknisvottorð vegna þess.
Þann 29. nóvember 2023, klukkan 10:36 hafi kærandi aftur verið boðaður í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram daginn eftir, eða 30. nóvember 2023, klukkan 13:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hans. Kærandi hafi ekki heldur mætt í umrætt viðtal. Með erindi, dags. 7. desember 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hans í viðtal þann 30. nóvember 2023. Áréttað hafi verið að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann sama dag hafi Vinnumálastofnun borist læknisvottorð, dags. 7. desember 2023. Í vottorðinu komi fram að það sé gefið út í gegnum heilsuveru.is og að tilkynning um veikindi frá 28. til 30 nóvember 2023 hefði verið tilkynnt lækni þann sama dag, 7. desember 2023.
Með erindi, dags. 19. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar vegna fjarveru í boðað viðtal 30. nóvember 2023 og vegna ónógrar upplýsingagjafar kæranda. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. sömu greinar, þar sem nýttur bótaréttur kæranda hafi numið 25 mánuðum. Frekari skýringar og beiðnir um endurupptöku ákvörðunar hafi borist Vinnumálastofnun dagana 19. til 20. desember 2023. Endurupptaka málsins hafi farið fram 5. janúar 2024 og kæranda hafi verið tilkynnt um niðurstöðu þess þann sama dag en ákvörðun stofnunarinnar hafi verið staðfest þrátt fyrir frekari skýringar kæranda.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svo hljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 30. nóvember 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 7. desember 2023. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að ef einstaklingur hafi þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er hafi fylgt frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi skilað inn læknisvottorði eins og áður segi þann 7. desember 2023 vegna seinni fundarins. Þá hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 19. desember 2023, á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 4. mgr. sömu greinar og synjað um greiðslur atvinnuleysisbóta. Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingarskyldu hins tryggða:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á ,,Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Meðal gagna í máli þessu sé samskiptasaga kæranda þar sem fram komi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma þar sem honum hafi verið tjáð að honum biðu skilaboð á „Mínum síðum“. Af samskiptasögu kæranda megi ráða að honum hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið tölvupóstfang og með textaskilaboðum í skráð farsímanúmer þann 29. nóvember 2023, klukkan 10:36 þar sem boðun hafi verið tilgreind. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þá sé ljóst að læknisvottorð það sem skilað hafi verið inn í byrjun desember 2023 hafi verið útbúið og sótt af kæranda eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru í boðað viðtal. Kærandi hafi þannig ekki brugðist við boðun í annað sinn á stuttum tíma og hafi fyrst óskað eftir vottorði í gegnum vefþjónustu 7. desember 2023 vegna veikinda sem hafi átt að vara frá 28. til 30. nóvember 2023 og eftir að hann hafi fengið beiðni frá Vinnumálastofnun um skýringar á fjarveru sinni.
Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals og ekki tilkynnt um forföll hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri honum því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi nýtt bótarétt í 25 mánuðir virkist ákvæði 4. mgr. 59. gr. Því beri að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda og hann eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi áunnið sér rétt á nýju bótatímabili samkvæmt 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 4. mgr. sömu gr., laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr., 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Þá segir í 4. mgr. 59. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram 27. nóvember 2023. Þann dag boðaði kærandi forföll vegna veikinda. Kærandi kvaðst vera með flensu og tók fram að hann yrði líklega orðinn góður eftir nokkra daga. Þá tók kærandi fram að hann myndi fara til læknis til að fá læknisvottorð. Þann 29. nóvember 2023 var kærandi boðaður á ný í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram 30. nóvember 2023. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki í það viðtal og hefur borið því við að hafa ekki fengið tilkynningu um viðtalið, hvorki með tölvupósti né smáskilaboðum. Þá hefur kærandi vísað til þess að hann hafi enn verið veikur þennan dag.
Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að kærandi hafi skilað læknisvottorði þann 7. desember 2023 en það hafi verið útbúið eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum vegna fjarveru í boðað viðtal. Þá hefur stofnunin vísað til þess að með því að hafa ekki mætt í viðtalið og ekki tilkynnt um forföll hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006.
Úrskurðarnefnd velferðarmála getur ekki fallist á framangreinda afstöðu Vinnumálastofnunar. Ljóst er að kærandi tilkynnti stofnuninni um veikindi sín og að þau myndu vara í einhverja daga. Vinnumálastofnun brást í engu við þeirri tilkynningu kæranda, svo sem með því að óska eftir læknisvottorði eða óska eftir að kærandi léti vita þegar veikindin væru yfirstaðin. Þess í stað var kærandi strax tveimur dögum eftir tilkynningu um veikindi boðaður í annað viðtal sem fara átti fram degi síðar. Að mati úrskurðarnefndar var slík málsmeðferð ekki forsvaranleg í ljósi tilkynningar kæranda. Kæranda bar því ekki að sæta viðurlögum með vísan til brots á tilkynningarskyldu, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda felld úr gildi.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er felld úr gildi.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir