Mál nr. 80/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021
Mál nr. 80/2021 Eiginnafn: Svarthöfði (kk.)
Hinn 11. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2021 en erindið barst nefndinni 5. júlí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Svarthöfði (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Svarthöfða, og tíðkaðist á Íslandi á öldum áður. Nafnið telst uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn og ber að samþykkja það.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Svarthöfði (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.