Mál nr. 17/2024 Úrskurður 7. mars 2024
Mál nr. 17/2024 Eiginnafn: Ár
Hinn 7. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 17/2024 en erindið barst nefndinni 6. febrúar.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Ár tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Árs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ár er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.