Mál nr. 33/2014, úrskurður 3. apríl 2014
Mál nr. 33/2014
Eiginnafn: Sirrí
Hinn 3. apríl 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 33/2014 en erindið barst nefndinni 2. apríl:
Eiginnafnið Sirrí (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sirríar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sirrí (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.