Mál nr. 44/2017 Úrskurður 11. september 2017
Mál nr. 44/2017 Eiginnafn: Galti
Hinn 11. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 44/2017 en erindið barst nefndinni 29. ágúst.
Nafnið Galti kemur fyrir í Landnámu og í fornsögum. Það tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Galta og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Galti (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.